Alþýðublaðið - 17.03.1995, Síða 3
HELGIN 17.-19. MARS 1995
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
■ ■
Ofugmælasafn Alþingis
„Alþingismenn íslendinga eiga
að hafa manndóm í sér til að
verja heiður Islands mót
trylltri öld.“
Svavar Gestsson, Alþingi, 6. janúar,
1993.
„Þá hafa íslendingar, ef samn-
ingurinn verður að lögum,
ekki lengur neinn frumburð-
arrétt að landi sínu eða auð-
lindum þess. Við verðum að
veita flota Evrópubandalags-
ins aðgang að fiskimiðum okk-
ar. Útlendingum verður heim-
ilt að kaupa hér lendur og
jarðir, laxveiðiár og orkulind-
ir til jafns við íslendinga. At-
vinnuleysi hér hlýtur að auk-
ast með aðild að efnahagssam-
félagi, þar sem atvinnuleysi er
stöðugt um og yfir 10%.“
Páll Pétursson, kjallaragrein í DV, 7.
september, 1992.
„Munu menn freistast til þess
að ráða ódýrt erlent vinnuafl
hingað og borga lægstu taxta
eða tekst að standa vörð um
réttindi launafólks?“
Kristín Ástgeirsdóttir, Alþingi, 3. sept-
ember, 1992.
„.... sá samningur, sem hér
iiggur á borðum opnar erlend-
um aðilum fullan aðgang til
jafnréttis við íslenska aðila til
að eignast hér orkufyrirtæki,
vatnsból, lönd, jarðir og aðrar
náttúruauðlindir...“
Ólafur Ragnar Grímsson, Alþingi, 24.
ágúst, 1992.
„Miðstýring, karlaveldi, hag-
vaxtardýrkun og skortur á
lýðræði er það sem blasir við
öllum þeim sem kynna sér EB
og skipulag þess.“
Kristín Ástgeirsdóttir, Alþingi, 7. janú-
ar, 1993.
/ r
Samningurinn um hið Evr-
ópska efnahagssvæði
(EES) hefurskilað millj-
arða króna ábata fyrir
þjóðarbúið og hrundið af
stað miklum umbótum
víða í samfélaginu. Það er
staðreynd, að ekkert mál á
líðandi kjörtímabili hefur
vakið jafn heitar tilfinning-
ar meðal þingmanna og
almennings og EES-
samningurinn. Um samn-
inginn voru skiptar skoð-
anir innan flestra stjórn-
málaflokka. Þó voru tveir
þingflokkar heilir í afstöðu
sinni til hans: Alþýðuflokk-
urinn, þarsem allirvoru
með og Alþýðubandalag-
ið, þar sem allir voru á
móti. Gegn þessu þjóð-
þrifamáli hömuðust meðal
annars stjórnarandstæð-
ingarnir Ólafur Ragnar
Grímsson, Svavar
Gestsson, Steingrímur
J. Sigfússon, Kristín
Ástgeirsdóttir, Jóna
Valgerður Kristjáns-
dóttir og Páll Pétursson.
Alþýðublaðið rifjar hér
upp nokkurgullkorn úr
umræðunni:
„Samningurinn EES breytir
Alþingi Islendinga í færi-
bandastofnun fyrir Evrópu-
bandalagið. Samningurinn um
EES gerir EB-réttinn að for-
sendu íslenskra dómstóla.“
Svavar Gestsson, Alþingi, 6. janúar,
1993.
„Vinnuveitendur fagna marg-
ir hverjir aðild að Evrópsku
efnahagssvæði og vænta sér þá
væntanlega ódýrara vinnuafls
að utan.“
Páll Pétursson, Alþingi, 25. ágúst,
1992.
„Evrópska efnahags-
svæðið er byggt upp
þannig að ef við ætlum
að vera fullgildir þátt-
takendur, þá þurfum
við að setja nokkur
hundruð embættis-
manna í þessa vinnu.“
Ólafur Ragnar Grímsson, Al-
þingi, 15. desember, 1992.
„Ég tel mikla ástæðu
til þess að þakka hæst-
virtum dómsmálaráð-
herra fyrir þann
myndugleik að leggja
það til við þessa virðu-
legu stofnun að fram-
vegis verði töluð ís-
lenska við íslenska
dómstóla þrátt fyrir
það að ísland gerðist
aðili að Evrópsku efna-
hagssvæði.“
Svavar Gestsson, Alþingi, 1.
september 1992.
„Við Kvennalistakon-
ur erum hingað komn-
ar á Alþingi Islendinga
til þess að reyna að
gera allt það sem í
okkar valdi stendur til
þess að bæta stöðu
kvenna og barna í okk-
ar þjóðfélagi og ég tel
að þessi samningur um
EES, ef hann verður
að veruleika, verði
kvennabaráttu fremur
til trafala en tii hins
betra.“
Kristín Ástgeirsdóttir, Al-
þingi, 7. janúar, 1993.
„Með svipuðu lögmáli
og vatnið rennur und-
an brekkunni, hlýtur
atvinnuleysi hér að
aukast til stórra muna
og innstreymi erlends
vinnuafls hlýtur að
taka atvinnu frá ís-
lendingum og atvinnu-
leysisstig hér að verða
svipað og annars stað-
ar á svæðinu.“
Páll Pétursson, Alþingi, 25.
ágúst, 1992.
Hagstæðustu
bílakaup ársins!?
Verðið á Renault 19 RN
árgerð 1995
er aðeins kr. 1195.000,-
INNIFALIÐ:
Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél, vökvastýri, rafdrifnar
rúðuvindur, fjarstýrðar samlæsingar, fjarstýrt útvarp/segulband,
styrktarbitar í hurðum, bílbeltastrekkjarar, samlitir stuðarar,
málmlitur, ryðvörn, skráning ..
Fallegur fjölskyldubíll áfínu verði.
Reynsluaktu
Renaultl
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI 553 1236