Alþýðublaðið - 17.03.1995, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 17.-19. MARS 1995
S k o ð u n
Það er ekki rétt að við leyfum
þeim að þukla okkur að vild.
Við látum þá ekkert káfa á
okkur. Þeir fá aðeins að
koma við brjóstin á okkur
en það telst varla káf.
18 ára reykvísk stúlka
sem vinnur sem fatafella
á Café Bóhem. MP í gær.
Þeim var klappað hlýlega lof
í lófa og ég þóttist greina í
klappinu þakklæti fyrir að
hafa haldið uppi, áratugum
saman, þessu hvíta laki sem
hver þjóð vefur utan um
vitund þegna sinna svo
þeir ætist ekki í víðáttu
reynslunnar og heitir
menning.
Leikdómur Guðbrands Gíslasonar
um sýningu Halaleikhópsins.
Mogginn í gær.
Er Magnús ekki
bara spældur?
Bubbi Morthens um gagnrýni
Magnúsar Kjartanssonar á Björgvin
Halldórsson fyrir að velja enskan
meðhöfund að íslenska
Eurovisionlaginu. MP í gær.
Nýjar leiðir í landbúnaðarmálum
„Hagræðing innan greinarinnar er skynsam-
ari lausn en núverandi stefna, sem heldur
öllum sauðfjárbændum við fátækramörk-
in...Hugmyndir eins og að banna heima-
slátrun, herða viðurlög við framhjásölu og
auka niðurgreiðslur, til dæmis með útflutn-
ingsbótum, er engin lausn á vandanum.
Því fyrr sem bændur eru leystir undan þeim
fjötrum sem þeir búa við, því betra."
„Efvið horfum til bakct er enginn
vafi á að við sauðfjárbœndur stœð-
um betur í dag efmeginreglur versl-
unar og viðskipta hefðu ráðið skipu-
lagi og sölu. Efvið hotfum tilfram-
tíðar, með innflutning og harðnandi
samkeppni í huga, getur það fyrir-
komulag sem núna er alls ekki geng-
ið.“
Þannig Ijúka þau Guðrún S. Krist-
jánsdóttir og
Gunnar Einarsson,
búendur á Daða-
stöðum, grein sinni
í Morgunblaðinu
11. febrúar síðast-
liðinn. Þessar
skoðanir eiga vax-
andi fylgi að fagna
innan bændastétt-
arinnar. Þær eru
einnig í samræmi
við þau sjónarmið sem Alþýðuflokk-
urinn hefur lengi boðað.
Alþýðuflokkurinn vill afnema nú-
verandi kvótakerfi í landbúnaði fyrir
mjólk og sauðfjárafurðir. Halda ætti
áfram beingreiðslum til bænda, en
þær ættu að vera óháðar framleiðsl-
unni. Með því móti fá markaðslög-
málin betur að njóta sín. Slíkt fyrir-
komulag myndi veita svigrúm til
hagræðingar innan greinarinnar,
framleiðsluaukningar hjá þeim býl-
um þar sem það á við og tekjuaukn-
ingar fyrir bændur.
Hugmyndir af þessu tagi eru í
anda nýgerðs GATT-samnings, sem
heimilar svokallaðar grœitar
greiðslur til bænda, það er greiðslur
sem ekki skekkja samkeppnisstöð-
una verulega í viðskiptum með land-
búnaðarvörur. Framleiðslutengdar
greiðslur þykja ekki heppilegar að
þessu leyti.
Framangreindar tillögur Alþýðu-
flokksins fá stuðning í drögum að
fyrstu skýrslu OECD, Efnahagssam-
vinnu- og þróunarstofnunarinnar,
um landbúnaðarstefnuna á íslandi.
Endanleg skýrsla er væntanleg á
næstu vikum, en ekki er búist við
breytingum á meginniðurstöðunum.
Forstjóri þjóðhagsstofnunar hefur
nýlega fjallað opinberlega um suma
þætti þessarar skýrslu (Morgunblað-
ið 15. febrúar síðastliðinn) og land-
búnaðarráðhen-a gerði hana að um-
talsefni á Búnaðarþingi síðastliðinn
mánudag 13. mars.
Skýrsludrög OECD staðfesta það
sem áður hefur
komið fram að
styrkir til landbún-
aðar á Islandi hafi
verið með þeim
hæsm af OECD-
ríkjum á síðast-
liðnum 15 ámm
og alhœstir á ár-
unum 1981-1992.
Styrkimir náðu
hámarki á árinu
1991 en þá námu þeir hvorki meira
né minna en 84% af framleiðslu-
verðmæti, sem er tvöfalí hœrra en
OECD-meðaltalid. Það er fyrst á ár-
inu 1993 sem Island fellur í 3. sœti,
með 75% stuðning af framleiðslu-
verðmœti samkvœmt bráðabirgða-
tölum, á eftir Sviss (77%) og Noregi
(76%).
Meginniðurstaðan í skýrsludrög-
um OECD er sú að stofnunin leggur
til minnkun ríkisstyrkja til landbún-
aðar á Islandi og innflutningsvemdar
f áföngum. Hagkvæmasta leiðin til
þess sé að afnema núverandi verð-
stýringarkerfi. Afnám framleiðslu-
kvóta og markaðstenging framleiðsl-
unnar myndi opna möguleika á
stækkun búa og frekari sérhæfingu.
Ahrifin yrðu jákvæð á vinnslugrein-
ar, heildsöluna og smásöluna. Eftir-
spum eftir búvömm myndi trúlega
aukast. I þessu sambandi leggur
OECD til að beingreiðslur vegna
kindakjöts- og mjólkurframleiðslu
verði aftengdar framleiðslunni. Þetta
mætti gera í áföngum. Til lengir tíma
litið ættu greiðslur til bænda að taka
mið af heildartekjum búanna.
OECD bendir á að frekari mark-
aðsvæðing í landbúnaði á Islandi
myndi betur undirbúa bændur undir
vaxandi samkeppni á landbúnaðar-
sviðinu, sem ætti að leiða af frekari
GATT-viðræðum í framtíðinni.
Stofnunin varar við því að hefja út-
flutningsuppbætur á ný.
Að lokum segir að kerfisbreyting-
amar sem leiddu af síðasta búvöm-
samningi til lækkunar á styrkjum til
sauðfjár og mjólkurframleiðslu hafi
verið hógværar. Þörf sé á mun rót-
tœkari breytingum á landbúnaðar-
kerfinu ef ná eigi þeim markmiðum
sem stjómvöld hafi lýst yfir að þau
stefni að, til þess að tryggja að mark-
aðsverð ráði meiru um framleiðsl-
una. Afnám innflutningsbanns og
lækkun tolla á búvömm í áföngum
myndi styrkja umbætur á þessu
sviði.
Miðstýringin í landbúnaði hér á
landi er orðin svo mikil að verði
ekkert að gert mun hún ganga að
landbúnaðinum dauðum. Ef við
getum dregið einhvem lærdóm af
efnahagshruni miðstýrðu hagkerf-
anna í Austur-Evrópu og Rússlandi
þá er hann þessi: Hefjast verður
handa sem fyrst um að innleiða
markaðslögmál í framleiðslu land-
búnaðarvara, sérstaklega kjöt og
mjólkurframleiðslu. Stfga mætti
stórt skref í þessa átt með því að
hœtta að tengja beingreiðsur til
bœnda við framleiðsluna.
Ákvörðun af þessu tagi yrði mikil-
vægur áfangi í þá átt að tryggja hags-
muni bænda til lengri tíma. Sam-
keppni mun aukast á komandi ámm.
Hagræðing innan greinarinnar er
skynsamari lausn en núverandi
stefna, sem heldur öllum sauðfjár-
bcendum við fátœkramörkin.
Þvf miður heyrast tillögur sem
ganga í allt aðra átt frá Bændahöll-
inni þessa dagana, þar sem Búnaðar-
þing stendur yfir. Þar, eins og í Sov-
étríkjunum forðum, vilja menn
kenna ófömm bænda um allt annað
en kerfið sjálft. Hugmyndir eins og
að banna heimaslátrun, herða viður-
lög við framhjásölu og auka niður-
greiðslur, til dæmis með útflutnings-
bótum, er engin lausn á vandanum.
Því fyrr sem bændur em leystir und-
an þeim fjötrum sem þeir búa við,
því betra.
Höfundur er utanríkisráðherra
og formaður Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands.
Pallborðið |
r Wí'ión
e JM Baldvin
'þ 'iJB Hannibalsson
skrifar
Hinsvegar gæti veríð að þeir
[starfsmenn Stasi] hafí
stundum fylgst með einhverj-
um sem var á uppleið, var
líklegur til að komast til auk-
inna metorða í stjórnmálum,
virtist verða æ mikilvægarí.
Þeir gætu hafa viljað dylja
tengslin við slíkan mann
enn betur.
David H. Childs, breskur sérfræðingur
f málefnum Stasi, í samtali við
Morgunblaðið, aðspurður um
skýringu á því hversvegna skjöl
um Svavar Gestsson voru fjarlægð
úr hirslum Stasi.
Gagnrýnendur eru í
vondum málum, það vita allir.
Þeirra staða er afleit og
spurning hvort ekki er
tímabært fyrír suma þeirra
að fínna sér eitthvað
þarfara að gera.
Ingibjörg Haraldsdóttir skáld og
formaður Rithöfundasambandsins,
aðspurð um stöðu bókmenntagagn-
rýnenda. MP í gær.
René Descartes vann að bók um
alheiminn þar sem fram kemur að
hann er hallur undir kenningar
Kópernikusar. En þegar hann frétti
að Galileó hefði verið fordæmdur
fyrir að taka undir með Kópemikusi
að sólin væri miðpunktur alheims
og plánetumar snémst um hana,
þá stakk þessi jesúíta-lærði,
franski heimsspekingur hálfkömðu
verkinu undir stól.
Byggt á Isaac Asimov's
Book ofFacts
"FarSide" eftir Gary Larson.
Nú er Ijóst að ekkert verð-
ur úr „kristilegu fram-
boði" í Suðurlandskjör-
dæmi einsog til stóð. í nýj-
asta tölublaði Sunnlenska
fréttablaðsins er gagnmerk
yfirlýsing frá Kjartani
Jónssyni, eina manninum
sem orðaður var við hið
kristilega framboð. Þar segir
hann að „óyfirstíganlegur
ágreiningur" hafi komið upp
millum hans og þeirra
tveggja sem væntanlega
munu skipa efstu sæti
„kristilega framboðsins" í
Reykjavík og Reykjanesi.
Kjartan segir að „þungu
fargi" sé af sér létt enda hafi
hann alla tíð verið í miklum
vafa um hvort rétt væri að
bjóða fram undir „kristileg-
um" merkjum. Athyglis-
verðast í yfirlýsingu Kjartans
Jónssonar er hinsvegar að
hann lýsirfullum stuðningi
við Alþýðubandalagið, og
segir að stefna „kristilegra"
fari í 90% tilfella saman við
stefnu Alþýðubandalagsins!
Þetta er einkar fróðlegt í Ijósi
þess að einu stefnumál
„kristilega" framboðsins
sem fram hafa komið snú-
ast um baráttu gegn mann-
réttindum samkynhneigða,
andstöðu við fóstureyðingar
og glasafrjóvganir. Það eru
semsagt fréttir að þessi mál
séu komin inn í stefnu Al-
þýðubandalagsins, en varla
eru þessar yfirlýsingar mjög
að skapi allra frambjóðenda
þess flokks - eða hvað...
Hörð hríð er nú gerð að
Þorsteini Pálssyni fyrir
ömurlega frammistöðu í
sjávarútvegsmálum. Gagn-
rýnin á Þorstein teygir sig
langt inn í raðir sjálfstæðis-
manna, enda þykir hann í
senn vera verkdaufur ráð-
herra og sendisveinn út-
gerðarauðvaldsins í LÍÚ. Þá
reyndi Þorsteinn á sínum
tíma að banna Smuguveið-
ar íslendinga, en þær hafa
nú fært þrjá milljarða í þjóð-
arbúið. Það þurfti sameigin-
legt átak Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Dav-
fðs Oddssonar til að koma
í veg fyrir að Þorsteinn
bannaði Smuguveiðarnar.
Bátasjómenn og trillukarlar
eru Þorsteini líka reiðir fyrir
að hygla sífellt sægreifun-
um. Gagnrýni á Þorstein er
enganveginn ný af nálinni,
en athygli vekur í kosninga-
hríðinni að forystumenn
Sjálfstæðisflokksins koma
honum ekki til varnar. Sárin
úrformannsslagnum eru
ógróin og Davíð þykir
greinilega ekki miður þótt
Þorsteinn engist...
Knattspyrnumenn eru nú
að dusta rykið af skón-
um og í hönd fer spennandi
keppni í fjórum deildum. í 4.
deild vekur athygli að nýtt
lið verður með í slagnum:
Knattspyrnufélag SÁÁ. í
fyrra varð liðið efst utan-
deildarliða og vann sér því
rétt til að leika í deilda-
keppninni. Lið SÁÁ, sem
hlotið hefur nafnið Víkverji,
ereinvörðungu skipað
óvirkum alkóhólistum og
þótti sýna góða takta í fyrra.
Kannski hér sé að fæðast
nýtt stórveldi í boltanum...
„Jesús Pétur! Ólína! Hann stefnir beint á okkur. Nagaður
blýantur númer 2!"
Dabbi dagsins
Ungir sjálfstæðismenn eru vel upp
aldir. Ef þeim er sagt að eitthvað -
ja, til dæmis Evrópumálin - séu
ekki á dagskrá, þá halda þeir kjafti.
Gluggum í þriggja ára gamalt við-
tal við Davíð Stefánsson, þáver-
andi formann Sambands ungra
sjálfstæðismanna. Hann er sem-
sagt að tala um Evrópumál:
„Eg sagði í grein í Morgun-
blaðinu sem ég skrifaði 1989
að við ættum að huga að aðild
að EB.“
&
„Ýmsir stjórnmálaleiðtogar
hafa sagt að þetta sé ekki á
dagskrá í íslenskri stjórnmála-
umræðu. En þetta er á dag-
skrá, hvort sem menn vilja það
eða ekki.“
&
„Mikilvægast af öllu er að
upplýsa þjóðina um raunveru-
Ieikann í þessum málum og
reyna að skilja kjarna málsins
frá öllu pólitíska írafárinu,
sem hefur komið upp vegna
Evrópumálanna.“
Húrra fyrir Davíð. Stefánssyni.
Fimm á förnum ve
Eigum við að sækja um aðild að Evrópusambandinu?
Aðalheiður Benediktsdóttir,
starfsmaður Lyfjaverslunar ís-
lands: Já, ég held við ættum að gera
það og fá þar með aukna samkeppni.
Hannes Ingólfsson, tæknifræð-
ingur: Já, tvímælalaust.
Erlendur Cassata, verslunar-
maður: Já, auðvitað eigum við að
kannainngöngu.
Arnar Arnarson, nemi: Já, við
skulum láta á það reyna.
Árni Ingólfsson, læknir: Já, ég
hef lengi verið þeirrar skoðunar.