Alþýðublaðið - 17.03.1995, Side 7
HELGIN 17.-19. MARS 1995
ALÞÝÐUBLAÐH)
7
með þér eða á móti. Þú ert á lista
yfir óvinsælustu stjórnmálamenn-
ina og líka þá vinsælustu. Hvað
veldur því að fólk tekur svona ein-
dregna afstöðu með þér eða á
móti?
„Margaret Thatcher hafði oft á orði
að pólitíkusar væru tvenns konar.
Sannfæringarpólitíkusar, hún var ein
af þeim, og hins vegar loðmullur sent
moða úr því sem til fellur. Ég er sann-
færingarpólitíkus. Sá sem tekur af-
stöðu knýr aðra til afstöðu. Við höf-
um ekki verið í vari og siglum ekki
milli skers og báru. Undir minni for-
ystu hefur Alþýðuilokkurinn tekið
upp hvert stórmálið á fætur öðru.
Sum eru þess eðlis að þau knýja fólk
til afdráttarlausrar afstöðu með eða á
móti. Alþýðuflokkurinn hefur jafnan
gegnt því hlutverki í tlokkaflórunni
að vera hugmyndabanki, umbóta-
flokkur. Hann getur það af því hann
er ekki háður neinum sérhagsmunum.
Gylfa Þ. Gíslasyni var úthúðað af
framsóknarmönnum allra flokka fyrir
að taka skynsemisafstöðu í landbún-
aðarmálum fyrir meira en 30 árum.“
Þú varst heldur ekki tekinn nein-
um siikihönskum í EES- málinu.
Sakaður um landráð og fleira í
þeim dúr. Hvernig tókstu þessum
ásökunum?
„Eins og hverju öðru hundsbiti.
Eina gagnrýnin sem ég tek inn á mig
er ef pólitískir andstæðingar seilast
svo langt til árása á mig að þeir skirr-
ast ekki við að ráðast á konu mína eða
böm. Því tek ég ekki þegjandi. En
meðan ég sat á þingi undir síbylju
málþófsins gegn EES mátti ég hlusta
á talkór sem sagði að þetta þýddi
framsal á löggjafarvaldi, dómsvaldi
og framkvæmdavaldi. Landið mundi
fyllast af útlendingum. Óðöl feðranna
og laxveiðiámar yrðu höfuðsetnar af
feitum Þjóðverjum. Floti Evrópu-
sambandsins muni fiska hér upp við
fjörusteina. Þetta þýddi afnám sjálf-
stæðis. Allt var þetta rangt. Þetta
hlustaði ég á í tvö ár. Það eina sem
kom mér á óvart var að erfðagóss
sjálfstæðisbaráttunnar frá liðinni öld
og heiftræknin í áróðri kommúnista
skuli vera svona lffseig. Menn tapa
glórunni. Svo þegar móðurinn rennur
af þeim er eins og allt sé gleymt. Nú
sameinast allir um að segja að Evr-
ópusambandið sé hið versta mál og
byrja með öll sörnu rökin. En segja að
við þurfum ekki að ganga í ESB því
EES- samningurinn sé svo góður.“
Hvað gerir þú til að slappa af í
orrahríð stjórnmálabaráttunnar?
„í hinu daglega striti er ein rútína.
Hún er sú að ef opnast smuga í degin-
um hendi ég mér í Sundlaug Vestur-
bæjar í hálftíma til klukkutíma. Það er
mfn heilsulind og þar þvæ ég af mér
rykið og óorðið sem á mig er borið.
Annars er það sem ég kalla vinnutíma
minn frá ellefu á kvöldin til tvö eða
þrjú á nóttunni. Þá slokknar á síman-
um og fjölmiðlagjamminu. Ég fæ þá
tíma til að lesa eða skrifa og hlaða
batteríin."
Hvaðan hefur þú þetta þrek til
að vinna lungann úr sólarhringn-
um árum saman og standa í þreyt-
andi ferðalögum?
„Það leiðinlegasta sem ég geri er
að ferðast. Ég vil helst ekki ferðast
neitt. Þrekið er hins vegar einhver
guðsgjöf. Ég er komin af tómtshús-
mönnum og sjóróðrurum vestan af
(jörðum sem voru aldir upp á trosi.
Það er langlífi í ættinni. Þeir sem ætla
að lifa af í pólitískri orrustu og láta
eitthvað að sér kveða verða að hafa
endalaust þrek og orku. En maður
þarf að kunna að slappa af og velta af
sér reiðingnum. Það geri ég f góðra
vina hópi og skemmti mér þá kon-
unglega. Ég held að vinnuþrek og
skopskyn, ekki síst á sjálfan sig, geri
manni kleift að lifa af.“
Borgarstjórinn
og skæruliðinn
Svo við förum út í aðra sálma.
Við upphaf núverandi stjórnar-
samstarfs gekk ekki hnífurinn niilli
þín og Davíðs Oddssonar. Þegar
leið á kjörtímabilið fóru að heyrast
sögur um fáleika ykkar á miilum.
Hefur ykkur greint á um margt?
„Ég heyrði einhvem tímann þá lýs-
ingu á Davíð Oddssyni og Vilmundi
Gylfasyni þegar þeir voru samtíða í
skóla, að samskipti þeirra hafi verið
eins og stórveldabandalag þar sem
hvorugur leitaði á hinn og ríkti kaldur
friður á milli þeirra. Við Davíð höfð-
um lítið kynnst persónulega fyrir
I„Alþýðuflokkurinn hefur sérstöðu
í hverju málinu á fætur öðru og
hann er ekki á klafa sérhags-
muna. A-mynd: E.ÓI.
stjómarmyndunina. Leiðir borgar-
stjórans í Reykjavík og hins pólitíska
skæmliða höfðu lítið legið saman.
Hins vegar gerði ég mér þær hug-
myndir um Davíð að hann væri mað-
ur að mínu skapi, skjótur til ákvarð-
ana og með húmorinn í lagi. Samn-
ingar um myndun ríkisstjómarinnar
gengu greiðlega enda hefur aldrei
verið mynduð stjóm á Islandi á jafn
skömmum tíma. Við Davíð gengum
frá þessu á tveggja manna fundi. Það
er engin persónuleg óvild milli okkar
þrátt fyrir að upp hafi komið mál sem
tekist hefur verið á urn af fyllstu
hörku. Ég held að okkur báðum sé
lagið að brosa út f annað og erfa ekki
slfk átök.
Hins vegar gerði ég aldrei ráð fyrir
því þegar ég samdi við Davíð Odds-
son út í Viðey að helsta misklíðarefni
þessara flokka yrði á sviði utanríkis-
viðskipta. Að það kæmu upp vanda-
mál í samstarfi þessara flokka í
tengslum við samninga okkar urn
GATT varðandi verslun með land-
búnaðarafurðir og svo í afstöðunni til
Evrópusambandsins. Það hefur kom-
ið mér á óvart. Enn þann dag f dag
veit ég ekki hvort þetta er taktik,
hyggindi formanns í stómm flokki
sem þarf að halda friðinn í flokknum
og vill þar af leiðandi ekki taka af-
stöðu, eða hvort fyrrverandi formanni
aldamótanefndar Sjálfstæðisflokks-
ins sem boðaði Evrópusambandsað-
ild fyrir mörgum ámm haft snúist
hugur. Það verður bara að koma í
ljós.“
Ertu tilbúinn að halda áfram
stjórnarsamstarfi við Davíð ef úr-
slit kosninganna gefa færi á því?
„Davíð hefur orðað það svo, að
hann telji eðlilegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn að loknum kosningum
ræði fyrst við samstarfsflokkinn um
stjómarmyndun ef forsendur em til
þess.
Þetta segir sig nánast sjálft. En for-
sendumar ráðast af kjörfylgi flokk-
anna.“
Hvað um þátttöku Alþýðu-
flokksins í annars konar sam-
stjórn?
„Stjórnarmyndunarviðræðurnar
1991 réðust raunvemlega af EES-
málinu. Þá var ljóst að þótt ríkis-
stjómin fyrrverandi héldi meirihluta
sínum tæknilega vom þar innanborðs
einstaklingar sem höfðu farið ham-
fömm gegn EES-samningnum. Ég
nefni bara tvo: Höllustaðabóndann og
Ijölfætlufræðinginn frá Leipzig. Það
réði úrslitum og ég má ekki til þess
hugsa hvað hefði gerst ef við hefðum
ekki náð EES-samningnum.“
Stóru umbótamálin
„Nú em málin ekki svona skýr og
ég held að stjómarmyndunarviðræð-
ur muni þess vegna taka nokkum
tíma. Menn muni vilja negla niður
nokkuð skýra afstöðu í nokkrum lyk-
ilmálum. Núverandi stjómarflokkar
em búnir að sýna í verki samstöðu
sína almennt varðandi efnahags- og
atvinnustefnu. Stöðugleikinn er eini
gmndvöllurinn sem við höfum fyrir
nýju vaxtarskeiði. Stóru umbótamál-
in hljóta að verða umbætur í sjávarút-
vegsstefnu og umbætur í stefnunni í
landbúnaðarmálum sem er óhjá-
kvæmilegt í framhaldi af GATT-
málinu. Við verðum að leysa bændur
úr fjötmm ef þeir eiga að geta staðist
samkeppni sem smám sarnan verður
innleidd. A næsta kjörtímabili blasir
það við að íslensk stjómvöld verða að
taka afstöðu til Evrópusambandsað-
ildar.“
Eru þetta stærstu kosningamál-
in að þínum dómi?
„Þetta em augljóslega stór mál en
þama kemur fleira til. Allir flokkar
segja nú að þeir vilji nýta efnahags-
batann til að gefa menntamálum
meiri forgang. Alveg frá tíð Gylfa Þ.
Gíslasonar hafa menntamálin verið
nánast afgangasmál í pólitík og lítið
rædd. Það þarf að taka á jressum mál-
um á nýstárlegan hátt með nýjum
hugmyndum. Þau verða því líka mik-
ið rædd við stjómarmyndunarborð.
Við emm nú að ganga til kosninga
eftir þrengingarskeið en batamerki
augljós. Við emm að kjósa um fram-
tíðina sent er okkur kannski ofar í
huga en ella af því það em aldamót í
uppsiglingu og þessu kjörtímabili
lýkur árið 1999. Við emm að velja
okkur framtíð og kjósa um lífskjör
þessarar þjóðar við aldaskipti. Þá
segja menn sem svo: Hvað mun ráða
lífskjörunum?
Óbreytt ástand, afturhvarf til
stjómarstefnu sem við höfum reynt
áður og skyldi eftir sig fjárfestingar-
mistök og hnignun?
í huga margra em þessi stóm al-
þjóðlegu mál skammstafanir í útlönd-
um. Þegar betur er að gáð em þetta
allt saman spumingar um lífskjörin í
framtíðinni. Þótt þessi ríkisstjóm geti
með ærnum rökum sagt við höfum
skilað góðum árangri hvflir þetta á
veikum gmnni. Veikleikar í okkar
þjóðfélagi blasa við. íslenskt þjóðfé-
lag er alltof einhæft og alltof háð sjáv-
arútvegi. Eiginfjárstaða íslenskra fyr-
irtækja er fyrir neðan hættumörk.
Unga kynslóðin er skólakynslóðin og
þúsundir rnanna í námi hér heima og
erlendis. Þau em að búa sig undir
störf í nútímaþjónustusamfélagi þar
sem ný störf kalla á þekkingu og
kunnáttu. Ef okkur mistekst að hraða
þessari breytingarþróun, að þróast úr
frumframleiðslusamfélagi yfir í full-
burða iðnaðar- og þjónustusamfélag
sem lifir á útllutningi, þá er stóra
hættan sú og veldur mér mestum
áhyggjum, að þetta unga fólk finni sér
ekki störf við hæfi í landinu. Ég sem
Vestfirðingur horfi á allan þann gríð-
arlega íjölda sem hefur horfið frá
Vestfjörðum gegnunt skólana til
starfa á suðvesturhominu. Ef þessi
þróun heldur áfram staðnæmist fólk
ekki við suðvesturhomið. Það heldur
áfram.
Ég segi að leiðin út úr þessu er ekki
að einangra ísland heldur að Ísland
gerist fullgildur aðili að Evrópusam-
bandinu. Það er lykillinn að því að
við getum haldið í horfinu, að við get-
um verið hluti af Evrópu framtíðar-
innar, tæknilega, efnahagslega, við-
skiptalega og menningarlega. Þess
vegna berst ég fyrir aðild að Evrópu-
sambandinu."
Ef tröllin renna saman
Er umsókn um aðild að ESB
skilyrði þitt fyrir aðild að næstu
ríkisstjóm?
„Ég vil ekki orða þetta sem skilyrði
því ég hef lært það af langri reynslu
að flokkur sem er á undan samtíman-
um og hefur mörg stór umbótamál á
dagskrá verður að sætta sig við að
þoka þeim fram í áföngum hægt og
rólega, en með festu, í samstarfi við
aðra. En ég dreg enga dul á það að
það gæti orðið dýrkeypt fyrir þessa
þjóð þegar við lítum til baka af sjón-
arhóli framtíðar, ef að áhrif Alþýðu-
flokksins minnka, svo ekki sé talað
um ef kjörfylgi hans dygði ekki til að
tryggja honurn áframhaldandi áhrif á
stjóm landsins. Hinn kosturinn er þá
líklegastur að þá hyrfum við aftur til
versta kostsins í íslenskri pólitík, það
er að tröllin rynnu saman og mynduð
yrði helmingastjóm Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks um
óbreytt ástand. En óbreytt ástand á
hraðfleygum breytingartíma er aftur-
för.“
Morgunblaðið
pólitískt stórveldi
Því er haldið fram að Morgun-
blaðið sé þér hliðhollt og bent á að
stefna þess í sjávarútvegsmálum
virðist vera á líkurn nótum og Al-
þýðuflokksins. Attu þarna hauk í
horni?
„Það fer ekki framhjá mér að það
vottar stundum fyrir ergelsi hjá ýms-
um forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins að vita af því að við Styrm-
ir Gunnarsson ritstjóri emm æskuvin-
ir. Af því draga menn þá ályktun, sem
er að vísu út í hött, að Morgunblaðið
dragi með einhverjum hætti taum for-
manns Alþýðuflokksins. Ég er sann-
færður um að Styimir og Matthías
brygðust reiðir við ef sagt væri að
barátta Morgunblaðsins gegn einka-
eign og forræði LIU og sægreifanna á
auðlindinni væri stuðningur við Al-
þýðuflokkinn. Morgunblaðið er pólit-
ískt stórveldi. Það hefur gamlar taug-
ar til Sjálfstæðisflokksins og gagn-
vegimir þar á rnilli em auðvitað enn
opnir. En Morgunblaðið er nú samt
sem áður sá íjölmiðill á íslandi sem
að stjómmálamönnum, af hvaða
sauðahúsi sem er, ber saman um að
hafi best rækt skyldur sína sem lands-
fjölmiðill. í fyrsta lagi með því að
blaðið tekur stundum einarða afstöðu
í stómm málum án þess að hlíta leið-
sögn foiystumanna Sjálfstæðis-
flokksins. í annan stað er blaðið opið.
Þetta er vandaður fréttamiðill sam-
kvæmt minni reynslu, með sjálfstæða
afstöðu og opnar sig fyrir ólíkum
skoðunum og sjónarmiðum. Hins
vegar notar blaðið ekki mslafötuna
nógu mikið. Að öðmm fjölmiðlum
ólöstuðum dreg ég ekki dul á þá
skoðun mína að Morgunblaðið er
vandaðasti fjölmiðillinn. Hins vegar
er Alþýðublaðið að sönnu miklu bet-
ur skrifað og er reyndar best skrifaða
blaðið á Norðurlöndum núna og Al-
þýðublaðið er heiðarlegt blað. Það
tekur mig orðið þijú korter við morg-
unverðinn að lesa Alþýðublaðið."
Vatnaskil við
EES-samninginn
Roosvelt sagði að snjöll nieðferð
utanríkismála væri að tala mjúkt
en hafa sterka kylfu í hendi. Nú
hafa utanríkismálin verið í brenni-
depli kjörtímabilsins. Hefur þú
haft kylfuna innan seilingar í við-
ræðum við aðrar þjóðir?
„Þegar við lítum til baka munu
menn sennilega sjá þessi vatnaskil
kringum EES-samninginn. Á ámnum
1989 til 1993 gerist sú breyting að
ntál sem við flokkum undir utanríkis-
mál verður ráðandi um þróun innan-
landsmála. EES-samningurinn er
ekki bara venjulegur samningur um
markaðsmál heldur samningur á yfir-
töku á löggjöf Evrópusambandsins
um vömviðskipti, þjónustuviðskipti,
Ijármagnsmarkað, vinnumarkað og
menningarsamstarf og hann er samn-
ingur um samræmda samkeppnislög-
gjöf sem er lykilatriði. Samkeppnis-
lögin em afleiðing af EES-aðildinni
og nú sjáum við að fákeppnin sem hér
var á undir högg að sækja. GATT-
samningurinn leiðir líka til þess að
við getum ekki leikið neinar fram-
sóknarkúnstir til að bijóta samninga.
Aðildin að GATT var sigurstund fyr-
ir okkur Alþýðuflokksmenn.
Þú vitnaðir í Roos velt og hafðir eft-
ir honum lögmálið. Þama talaði for-
seti mesta herveldis heims sem hefur
svo sannarlega sterka kylfu. Ég hef
stundum saknað þess sem utanríkis-
ráðherra að hafa ekki stærri staf. En ef
þig skortir aflsmuni verðurðu að beita
vitsmunum. Persónulega var mér
kannski lærdómsríkust reynslan af
frumkvæði okkar á ámnum 1988 til
1990 til að styðja við bakið á sjálf-
stæði Eystrarsaltsþjóða. Islendingar
höfðu aldrei gert slíka hluti og margir
töldu þetta blekkingariðju til að hagn-
ast eitthvað hér innanlands. Þetta er
dæmi um það að hin öflugari ríki áttu
svo ríka hagsmuni í sambandi við
Sovétríkin að þau gátu sig hvergi
hrært. Bandaríkjamenn héldu að þau
ættu líf sitt undir því að styðja Gorba-
sjov og ef þeir gerðu honum eitthvað
á móti skapi mundi gamla grýlan
vakna á ný. Þjóðverjar áttu allt undir
góðum samskiptum við hann til að fá
stuðning hans við sameiningu Þýska-
lands."
Að mega segja hug sinn
„Við byijuðum fyrstir að tala á al-
þjóðlegum vettvangi og upplýsa hið
alþjóðlega samfélag um söguna. Að
þessar þjóðir höfðu gleymst en áttu
sama rétt og aðrar þjóðir í Mið- og
Austur-Evrópu af því þær vom fóm-
arlömb stalínismans á stríðsámnum.
Við töluðum um þjóðarrétt og gmnd-
vallarreglumar sem þá var verið að
njörva niður unt viðurkenningu á
sjálfstjómarrétti og mannréttindasátt-
málanum sem verið var að semja um.
Þetta hafði áhrif. Mér er það ógleym-
anlegt þegar fulltrúi Bandaríkjanna á
ráðstefnu urn þessi mál gekk f veg
fyrir mig eftir að ég hafði flutt mína
ræðu, faðmaði mig og sagði: Mikil
forréttindi em það að vera fulltrúi lít-
illar þjóðar og mega segja hug sinn.
Enn í dag eigum við falin fjársjóð vel-
vildar meðal þjóða Eystrarsaltsland-
anna sem vita hverjir voru fyrstir til
að styðja þá í sjálfstæðisbaráttunni.
Síðan er það samningareynslan við
EES-samningana. Við hefðum raunar
aldrei náð þeim samningum nema í
félagsskap EFTA- þjóðanna. Þegar
við tókum fyrst við formennskunni í
EFTA var toppsamningamaður Svt'a
heimildarmaður að frétt sem hér birt-
ist, um að dvergríkið ísland réði ekk-
ert við þessi verkefni. Þau ummæli
áttu sinn þátt í því að kveikja upp
þann metnað í okkar fámennu sendi-
nefnd að við skyldum sína að við
gætum gert þetta betur en Svíar og
það gekk eítir. Og sannleikurinn er sá
að um ýmsa lykilþætti höfðum við al-
gjört málefnalegt frumkvæði og má
þar nefna eftirlitsþáttinn og dómstól-
inn.“
Laus við heimilisbölið
Svo við snúum okkur að kosn-
ingabaráttunni. Hvernig metur þú
stöðu Alþýðuflokksins fyrir kom-
andi kosningar?
„Ég hef lúmskt gaman af því að
það eru margir sem eru búnir að telja
Alþýðuflokkinn af og við svörum því
gjaman að tilkynningar um dánar-
dægur séu stórlega ýktar. Það er ekki
langt síðan Ólafur Ragnar opnaði
ekki svo munninn að hann talaði ekki
um hið deyjandi fiokksbrot. Það hafa
orðið umskipú. Gemingarveðrinu
slotaði um áramótin og það er eins og
fólki hafi ofboðið. Flokkurinn var
lagður í einelti, formaður hans og
ýmsir aðrir forystumenn. Þetta gekk
svo langt að nafnkunnir einstaklingar
okkur óbundnir gátu ekki orða bund-
ist. Ég minnist greinarskrifa manna
eins og Indriða G. Þorsteinssonar,
Guðmundar G. Þórarinssonar, Gunn-
ars Dals og fleiri. Þeir töldu að þetta
fár og einsýna ofstæki væri komið út
í öfgar og orðið íslenskum stjómmál-
um skaðlegt. Þessar árásir þjöppuðu
flokksmönnum saman og sannleikur-
inn er sá að eftir að við losnuðum við
heimilisbölið og það er orðið að ann-
ara heimilisböli, var sem öllum létti.
Það er eins og andrúmsloftið í flokkn-
um hafi gjörbreyst.
Þetta þýðir að flokkurinn er að
byija að njóta sannmælis. Það vottar
fyrir því að menn séu byijaðir að sjá í
samhengi að Alþýðuflokkurinn er
ekki það sem hann hefur verið sagður
vera, spilltur sérhagsmunaflokkur.
Alþýðuflokkurinn hefur verið fmm-
kvæðisaðili og hefur náð árangri.
Hann hefur sérstöðu í hveiju málinu á
fætur öðm og hann er ekki á klafa
sérhagsmuna. Það er skammt til
kosninga og ég veit ekki hvort okkur
endist tími til að koma þessu til skila.
En ég held að margur hugsandi
maðurinn í hópi kjósenda rnuni hugsa
sig vandlega um áður en hann kýs,
meðal annars út frá þessari einu
spumingu: Ef það er svo að ég
er sammála mörgum þeim málum
sent Alþýðuflokkurinn beitir sér
fyrir einn flokka, get ég þá varið það
fyrir samvisku minni að kjósa
eins og venjulega? Get ég
tekið þá áhættu að flokkurinn sem
hefur fmmkvæðið og framtíðar-
sýnina verði settur til hliðar á kjör-
tímabili sem sýnilega verður mjög af-
drifaríkt? Að þessu þurfa kjósendur
að spyija sig,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.