Alþýðublaðið - 17.03.1995, Síða 8
8
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 17.-19. MARS 1995
ð t a I
■ Magnús Norðdahl, lögmaður og stjórnarformaður Húsnæðisstofnunar,
skipar 10. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins í Reykjavík
„Hugum að hagsmun-
um morgundagsins"
- og þeir liggja meðal annars í þekkingu, tækni, há-
marksnýtingu auðlinda, nýtingu nýrra auðlinda og
markaðsaðgangi...Það er ekki spurning um hvort
við sækjum um aðild að Evrópusambandinu, held-
ur hvenær, segir Magnús
Magnús Norðdahl er lögmaður
og skipar 10. sætið á framboðslista
Alþýðuflokksins í Reykjavík til al-
þingiskosninganna í vor. Magnús er
fæddur í Reykjavík þann 30. septem-
ber 1956, sonur hjónanna Magnúsar
Brúnó Norðdahl leigubílstjóra og
Guðrúnar Andrésdóttur Norðdahl.
Hann varð stúdent frá MR 1976 og
er giftur Elínu Jónasdóttur kennara
og BA í sálfræði. Þau eiga tvö böm,
Margréti og Magnús Davíð. Magnús
útskrifaðist frá lagadeild Háskóla ís-
lands árið 1982 og rekur eigin lög-
mannsstofu ásamt Atla Gíslasyni
hæstaréttarlögmanni.
Hversvegna ert þú í framboði
fyrir Alþýðuflokkinn?
„Það er einfaldlega vegna þess að
ég hef trú á hugsjónum jafnaðar-
manna. í alþjóðamálum og þegar
kemur að opnun þjóðfélagsins þá er
Alþýðuflokkurinn eini íslenski
stjómmálaflokkurinn sem hefurboð-
lega stefnuskrá. I dag er mannkynið
að ná hámarki í nýtingu auðlinda.
Verkefnin framundan em þau að
tryggja að komandi kynslóðir geti
lifað á þeim auðlindum sem nú eru
að ná hámarksnýtingu, án þess að
þeim verði eytt að fullu. Hámarks-
nýting auðlinda þýðir meðal annars
að tryggja verður hámarkstækni við
nýtingu þeirra og síðast en ekki síst
að framleiðsla okkar eigi ótakmark-
aðan og auðveldan aðgang að þeim
mörkuðum sem við byggjum á en
það er Evrópa. Við verðum að
tryggja atvinnu og að allir hafi það
sem þarf til að framfleyta sér og sín-
um og síðast og ekki síst tækifæri til
lífshamingju og lífsfyllingar. Til
þess verðum við að taka þátt í náinni
samvinnu Evrópuþjóðanna. Ná-
strandaglópur?
Gott frí getur farið forgörðum ef þú tekur ekki rétta ákvörðun í tæka tíð.
Ákvörðun um sparnað getur haft úrslitaáhrif.
#•/ Keglul )un< íinn
i/# spaniaður
Hafðu samband við starfsfólk okkar, það finnur með þér
einfalda og þægilega leið til þess að spara fyrir fríinu
eða öðru sem þú hefur löngun til.
• Við millifærum reglulega af Einkareikningi þínum þá upphæð
sem þér hentar og lánum þér jafnvel ef á þarf að halda.
• Þú getur valið um afbragðs ávöxtunarleiðir sem auka sjóð þinn.
Komdu eða hringdu, það getur gert áform þín að veruleika
--- fjölbreyttur sparnaður fyrir þig
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Magnús Norðdahl: Ég er ekki í vafa um aö íslendingar eiga eftir að
sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er Ijóst að viðhorf Evrópu-
sambandsins til náttúruverndar, jafnréttis kynjanna, réttinda fatlaðra,
barna og svo framvegis er um margt skýrara en okkar. A-mVnd:E.ói.
grannar okkar í Evrópu búa við þjóð-
félagsgerð sem byggir að miklu leyti
á hugmyndum jafnaðarstefnunnar.
Þessi þjóðfélagsgerð er hin sama og
okkar og hana vil ég treysta með að-
ild að ESB.“
Þú ert þá að segja að Islending-
ar eigi að vera aðilar að Evrópu-
sambandinu?
„Eg er ekki í vafa um að íslend-
ingar eiga eftir að sækja um aðild að
Evrópusambandinu. Það er Ijóst að
viðhorf Evrópusambandsins til nátt-
úruverndar, jafnréttis kynjanna, rétt-
inda fatlaðra, bama og svo framveg-
is er um margt skýrara en okkar. Það
er einnig langt á undan okkur í ýms-
um réttindamálum verkafólks. Þar
hefur verkafólk sterk réttindi og þess
er gætt að þau séu tryggð á tímum
samdráttar. Nóg er að líta lil þess
aragrúa tilskipana og reglna sem við
höfum orðið að hrinda í framkvæmd
í kjölfar EES. Hagsmunum verka-
fólks má ekki fóma til að vinna þjóð-
félagið út úr efnahagslægð. ESB hef-
ur mótað sér stefnu í þessu efni inn í
21. öldina sem byggir á samþættingu
efnahagslegs árangurs og félagslegs
öryggis. Þessi félagslegi þáttur Evr-
ópusambandsaðildar er mér afar
hugleikinn og mér finnst erfitt að
takmarka umræðuna um Evrópu-
sambandið einungis við efnahags-
málin. Á íslandi byggjum við tölu-
vert á fiskveiðunum og vitaskuld
þurfum við að gæta þess þáttar í
samningaviðræðum við Evrópusam-
bandið. Það em hagsmunir dagsins í
dag. Hinsvegar verðum við að leyfa
okkur að huga að hagsmunum morg-
undagsins og þeir liggja meðal ann-
ars í þekkingu, tækni, hámarksnýt-
ingu auðlinda, nýtingu nýrra auð-
linda og markaðsaðgangi fyrir nú-
verandi framleiðslu okkar og ört
vaxandi iðnaðarframleiðslu. Það er
ekki spuming um hvort við sækjuin
urn aðild að Evrópusambandinu,
heldur hvenær.“
En hvað um það sem forsætis-
ráðherra segir, að málið sé ekki á
dagskrá fyrr en eftir ríkjaráð-
stefnu Evrópusambandsins, sem á
að hefjast á næsta ári?
„Eg skil satt best að segja ekki
hvað hann og þeir sjálfstæðismenn
em að fara í þessu máli. Þeir segjast
vilja bíða eftir að ríkjaráðstefnan
klárist og sjá hvað er í boði fyrir okk-
ur þá. Ég held að þeir séu þarna að
misskilja eðli Evrópusambandsins.
Þetta er ekki einhver efnahagslegur
afsláttarklúbbur. Þetta er samvinna
vestrænna ríkja sem vilja treysta
gmnn þess þjóðfélags sem við búum
í, þá þjóðfélagsgerð sem byggir á
frelsi, jafnrétti og bræðralagi. Við
verðum að gera okkur gildandi í um-
ræðunni innan þessa hóps, sem við
sannarlega tilheyrum og hafa áhrif á
það sem þar fer fram. Fyrsta skrefið í
því er að sækja um aðild. Það er ekki
eftir neinu að bíða.“
LfTTt
Vinn ngstölur ,------------
miðvikudaginn: 15. mars 1995
VINNINGAR
6 af 6
m
5 af 6
+bónus
5 af 6
4 af 6
. 3 af 6
5+bónus
FJÖLDI
VINNINGA
229
1000
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
27.715.000
2.477.171
88.310
1.840
180
jQ^Í/ffin/ngur f. .!°.r ,M Noregs °3 Finnlands
Aðaltölur:
2V4V9
16Y17Y44
BONUSTÓLUR
©0®
Heildarupphæð þessa vlku
58.773.461
á Isl.:
3.343.461
UPPLVSINGAR, SlMSVARI 91- 68 1S 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 4S1
8IR1 MEB TVRIRVARA UM PRtNTVILLUR