Alþýðublaðið - 17.03.1995, Blaðsíða 9
HELGIN 17.-19. MARS 1995
ALÞÝÐUBLAÐK)
9
ó r n m á I
■ Alþýðuflokkurinn leggurtil að Islendingar láti á það reyna með aðildarumsókn, hvernig
samningum er hægt að ná við Evrópusambandið (ESB). í ESB eru nánast öll lýðræðisríki Evrópu,
stór og smá, og í Evrópu eru langmikilvægustu markaðir íslendinga
Al<veðum sjálf
framtíö oklcar
- Nokkrir punktar um
Evrópusambandið og
hvað aðild að ESB hefur
í för með sér.
Stjórnmálaflokkum ber að
móta framtíðarsýn. Alþýðuflokk-
urinn - Jafnaðarmannaflokkur
Islands vill sjá Island til borðs með
lýðræðisþjóðum Evrópu. Flokkur-
inn hafnar hvers konar hræðsluáróðri
um missi sjálfstæðis og þjóðemis Is-
lendinga. Ungt fólk á Islandi - best
menntaða kynslóð íslandssögunnar
- á annað og betra skilið af forystu-
mönnum sínum en úrtölur og von-
leysi.
Evrópusambandið er pólitískt og
efnahagslegt samband lýðræðisríkja
Evrópu. Því er ætlað að stuðla að
friði í álfunni, hagsæld og lýðræði
meðal aðildarþjóða sinna og vera
vettvangur til að leysa sameiginleg
málefni. Mikilvægi sambandsins
hefur aukist ár frá ári og samstarfíð
færst á æ fleiri svið. Mörg brýnustu
úrlausnarefni samtímans, til dæmis
umhverfismál, em þess eðlis að þau
verða ekki leyst nema með mjög
nánu samstarfi þjóða. Tengsl Islands
við ESB em mikil í gegnum Evr-
ópska efnahagssvæðið og munu auk-
ast verulega á næstu ámm. Gildirþar
einu hvort Island gerist aðili að sam-
bandinu eða ekki.
Nær allar lýðræðisþjóðir Evrópu
em þegar aðilar eða hafa lýst yfir
vilja sínum til að gerast fullgildir að-
ilar að Evrópusambandinu. Af okkar
nánustu ffændþjóðum em Danir,
Svíar og Finnar þegar fullgildir aðil-
ar, en Norðmenn höfnuðu aðild í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Islendingar
verða að ákveða sjálfir framtíð
sína; það gera Norðmenn ekki fyr-
ir okkur.
Sjávarútvegurinn lykilatriði
Ymsir andstæðingar Evrópusam-
vinnu halda því fram að sjávarút-
vegsstefna ESB útiloki aðild íslands.
Ekki em þó gild rök fyrir því að hún
útiloki fyrirfram umsókn Islands um
aðild að ESB. Umsókn og samninga-
viðræður em eina leiðin til að skera
úr um það hvaða kjör Islendingum
bjóðast við inngöngu í sambandið.
Við mótun samningsmarkmiða
er ekkert jafn mikilvægt og sam-
staða um að tryggja óskoruð yfir-
ráð yfir fiskimiðunum. Aðild fs-
lands að ESB er í raun óhugsandi
takist þetta ekki. Alþýðuflokkurinn
leggur því til að sameign þjóðarinnar
á fiskimiðunum verði bundin í
stjómarskrá. Þar með væri stjóm-
völdum óheimilt að semja forræðið
yfxr fiskimiðunum af sér.
Fjölmörg rök styðja þá skoðun að
íslendingum takist að tryggja hags-
muni sína í sjávarútvegsmálum í
samningum við ESB.
★ í grundvallarlögum ESB, Róm-
arsáttmálanum, er kveðið á urn það
að valdið til að setja lög og reglur á
sviði sjávarútvegs sé hjá stofnunum
sambandsins, en ekki einstökum að-
ildarríkjum. Sameiginleg sjávarút-
vegsstefna er gmndvölluð á þessu.
Þó ber að hafa í huga að aðildar-
samningar em jafnréttháir Rómar-
sáttálanum og því möguleikar á
lausn á sérmálum Islands sé pólitísk-
ur vilji fyrir hendi. Evrópusam-
bandið er pólitískt bandalag og
hefur því reynst sveigjanlegt í að-
ildarsamningum.
★ Frá upphafi hefur
Evrópusambandið samið
við tíu ríki um inngöngu. í
öllum tilvikum héldu þessi
ríki ffam ákveðnum samn-
ingskröfum, sem þau töldu
markast af gmndvallar-
hagsmunum. Ævinlega
hafa slík mál verið leyst
þannig að báðir aðilar hafa
talið sig geta unað við sinn
hlut. Það em ekki hags-
munir Evrópusambandsins
að semja við nýtt aðildar-
ríki þannig að það telji
hagsmunum sínum ekki
borgið innan sambandsins.
★ Evrópusambandið
tekur því tillit til lífshags-
muna væntanlegra aðildar-
ríkja. Sambandið starfar
samkvæmt þeirri reglu að
sé aðildarþjóð háð nýtingu
einnar auðlindar um af-
komu sína, eigi hún að
hafa forgang. Auðvelt er
að sýna fram á algjöra
sérstöðu íslensks sjávar-
útvegs í samanburði við
sjávarútveg annarra
Evrópuþjóða. Annars
vegar er það hin mikla
þýðing sjávarútvegs íyrir
íslenskt atvinnulíf, en sjáv-
arútvegurinn stendur undir
meira en helmingi af tekj-
um þjóðarinnar af útflutn-
ingi af vömm og þjónustu.
Hins vegar er íslenskur
sjávarútvegur rekinn sem
alþjóðlega samkeppnisfær
atvinnugrein á hagkvæmn-
isgmndvelli, og þarf því að
leggja sitt af mörkunt til
efnahagslífs þjóðarinnar.
Það er engum í hag - allra
síst Evrópusambandinu -
að breyta þessu hlutverki
sjávarútvegsins í íslensku
atvinnulífi.
★ Hin sameiginlega sjávarútvegs-
stefna ESB tekur fyrst og fremst á
vandamálum sem tengjast stjómun á
sameiginlegum fiskistofnum aðild-
arríkjanna. íslenska efnahagslög-
sagan er algjörlega aðskilin frá
efnahagslögsögu Evrópusam-
bandsins og engir flskistofnar eru
nýttir sameiginlega með ríkjum
ESB. Sérstaða íslandsmiða er því
skýr og vandséð að stjómun íslend-
inga á eigin miðum valdi miklum
erfiðleikum við ffamkvæmd sameig-
inlegrar stefnu Evrópusambandsins.
★ Tilkall einstakra aðildarríkja til
veiða í sameiginlegri lögsögu ESB
byggir á reglum um veiðireynslu.
Aðildarríki Evrópusambandsins
hafa enga veiðireynslu innan ís-
lenskrar lögsögu og hafa því ekki
samkvæmt reglum ESB neina
stöðu til að krefjast veiðiheimilda
innan hennar.
★ Með reglugerð ESB frá 1992 er
veitt fávik frá sjávarútvegsstefnunni
sem á sérstaklega við hér á landi.
Samkvæmt reglugerðinni geta aðild-
arríki tekið sjálf við stjómun fisk-
veiða við aðstæður þar sem stofnar
eru staðbundnir og einungis út-
gerðir frá einu landi nýta. Þessar
aðstæður eiga við hér á landi og gætu
Islendingar hæglega stjómað veið-
um á Islandsmiðum án þess að í því
fælist mismunun á gmndvelli þjóð-
emis.
★ Minna má á að í EES-samn-
ingnum féll Evrópusambandið ffá
gmndvallarkröfu sinni f samningum
við ríki utan bandalagsins um ein-
hliða veiðiheimildir í stað markaðs-
aðgangs. Spænsk stjómvöld hafa
staðfest að þau muni ekki vekja upp
slíkar kröfur á ný gagnvart Islandi.
★ í samningnum um EES er und-
anþága frá fijálsum fjármagnsflutn-
ingum, sem gefur íslandi heimild til
að takmarka erlendar fjárfestingar í
sjávarútvegi. Viðurkennt er að þessir
fýrirvarar em vart framkvæmanlegir
og þarfnast rýmkunar. I raun koma
engin sérstök ný vandamál upp í að-
ildarsamningum við Evrópusam-
bandið varðandi erlendar fjárfesting-
ar í sjávarútvegi til viðbótar við þau
vandamál, sem nú er reynt að finna
lausn á.
★ Minna má á að Finnland og
Svíþjóð náðu varanlegum undan-
þágum frá sameiginlegu landbúnað-
arstefnunni með því að bætt var við
sérreglum um heimskautalandbúnað
sem fela í sér viðurkenningu á sér-
stöðu landbúnaðar á norðlægum
slóðum. Sérstaða íslensks sjávarút-
vegs er ekki minni en landbúnaðar á
norðurslóðum.
Þau dæmi sem hér hafa verið
rakin sýna svo ekki verður um
villst að íslendingar hafa góða
samningsstöðu gagnvart ESB þeg-
ar kemur að sjávarútvegi. Fullyrð-
ingar um annað standast ekki.
Endanleg niðurstaða fæst hins
vegar ekki fyrr en við samninga-
borðið.
ESB og lífskjörin
Aðild Islands að Evrópusamband-
inu er liður í þeirri baráttu jafnaðar-
manna að tryggja íslenskri alþýðu
sambærileg lífskjör og velferðarríki
Evrópu bjóða þegnum sínum. Sagan
kennir okkur að þjóðinni hefur vegn-
að best í sem nánustum tengslum við
nágranna okkar, en verst þegar ein-
angrun frá grannþjóðum var hlut-
skiptið.
Nær 70% af útflutningi þjóðarinn-
ar fer til landa Evrópusambandsins.
Jafn réttur okkar og keppinauta okk-
ar á þessum mikilvæga markaði get-
ur haft úrslitaáhrif á þróun íslensks
efnahagslífs. í kjölfar aðildar að Evr-
ópusambandinu fylgir fullur mark-
aðsaðgangur fyrir sjávarafurðir og
aukin fullvinnsla sjávarfangs innan-
lands. Almennt efnahagsumhverfl
innanlands verður sambærilegt við
Evrópusambandið, sem ætti að leiða
til aukinnar erlendrar fjárfestingar,
aukinns stöðugleika og hagvaxtar.
Kaupmáttur launa eykst stórlega
strax frá fyrsta degi aðildar, enda
mun verð landbúnaðarafurða geta
lækkað um allt að 35 til 45%, ef
treysta má niðurstöðu skýrslu Hag-
fræðistofnunnar Háskóla íslands.
Kjör hvers einstaklings í landinu
myndu samkvæmt þessu batna
um 22 þúsund krónur
að meðaltali, eða um 88
þúsund krónur á hverja
fjögurra manna fjöl-
skyldu á ári. Til lengri
tíma batna þó kjörin mun
meira, enda hefur aðild að
Evrópusambandinu í öll-
um tilvikum haft mjög já-
kvæð áhrif á efnahag
nýrra aðildarríkja. Engin
dæmi eru um hið gagn-
stæða.
Stórkostleg verð-
lækkun
Af pólitískum ástæðum
er óvfst hvort og þá
hversu hratt hagur neyt-
enda batnar vegna GAJT.
Gangi ísland í Evrópu-
sambandið er verðlækkun
á matvælum tryggð. Strax
frá fyrsta degi aðildar
þyrfti verðið að lækka til
samræmis við við verðlag
ESB. Samkvæmt útreikn-
ingum Hagfræðistofti-
unnar hefði þetta í för
með sér 35-45% lækkun
á matarverði hér á
landi.
Aðild að Evrópusam-
bandinu er því mikið
hagsmunamál íslenskra
neytenda, ekki síst lág-
launafólks.
Kjör bænda versna
ekki
Samkvæmt útreikning-
um Hagfræðistofnunnar
gæti verð til frameiðenda
lækkað um 30%. Að
verðmæti er þessi lækkun
um 5,5 milljarðar króna.
Ef tekið er mið af samn-
ingum Norðurlandanna
við ESB ætti að koma á
móti 4-7 milljarðar í beina
styrki frá ESB og íslenskum stjóm-
völdum. Styrkir ESB til bænda
gætu numið um um 800 þúsund
kr. á hvern bónda í landinu. Heild-
artekjur landbúnaðarins og þar með
kjör bænda þyrftu því lítið sem ekk-
ert að breytast við inngöngu íslands í
ESB.
Mál næsta kjörtímabils
Enginn vafi er á því að tengslin
við Evrópusambandið verður eitt
brýnasta úrlausnarefni næsta kjör-
tímabils. Stjómmálaflokkum ber
skylda til að móta skýra stefhu í svo
mikilvægu máli og útskýra hana fyr-
ir kjósendum. Enginn kemst hjá
slíku með því að segja að málið sé
ekki á dagskrá fyrr en eftir kosning-
ar. Vilji Islendingar ekki taka þá
áhættu að missa af tækifærinu, sem
kann að opnast á næsta kjörtímabili,
þurfa þeir að móta stefnu og ljúka
heimavinnunni í tæka tíð.
Þjóðin tekur lokaákvörðun
Alþýðuflokkurinn Ieggur
áherslu á að umsókn um aðild og
endanleg ákvörðun um aðild eru
tvær aðskildar ákvarðanir. Skapa
þarf samstöðu þjóðarinnar um
samningsmarkmið og fyrirvara í
aðildarumsókn, sérstaklega í mál-
efnum sjávarútvegsins. Loka
ákvörðun verður í höndum al-
mennings á Islandi - í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
ri i ir^Y^
floKkur-
inn
Gauti
Eggertsson
Bara.
Tómas
Ragnarsson
Alþýðuflokkurinn vill frelsi með
skýrum leikreglum. Ég líka.
Sigurpáll
Scheving
Ég kýs flokk sem hefur stefnu sem
samræmist mínum skoðunum. Ég
hef ekki kosið Alþýðuflokkinn áður
en þegar ég settist niður og fór að
hugsa um stjórnmál þá kom hrein-
lega ekki neitt annað til greina.
Karl
Hjálmarsson
Heilbrigð hugsun.
Jón Einar
Sverrisson
Alþýðuflokkurinn er framtíðin.
Sigríður Björk
Jónsdóttir
Af því að framtíðin skiptir mig máli
og þetta er eini flokkurinn sem
þorir að taka afstöðu á raunsæum
forsendum nútímans.
Einar Jóhannes
Ingason
Vegna unga fólksins.
Unnur
Sturlaugsdóttir
Af því að Alþýðuflokkurinn er eini
flokkurinn sem setur heildarhag
samfélagsins á oddinn án tillits til
hagsmunahópa og án þess að
skerða frelsi einstaklingsins.