Alþýðublaðið - 17.03.1995, Síða 11
HELGIN 17.-19. MARS 1995
ALÞYÐUBLAÐIÐ
11
Hallgrímur Helgason: Island er smáborgarapyttur: fólk dæmir stjórnmálamenn ekki af gerðum þeirra,
heldur af því hvernig þeir voru í partýi. A-mynd: E.ÓI.
■ Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistarmaður auk
þess að vera pistlahöfundur Alþýdubladsins, skipar 28. sætið á
lista Alþýðuflokksins í Reykjavíktil komandi kosninga. Hann er
búsettur í París þangað sem Jakob Bjarnar Grétarsson hringdi
og lagði fyrir hann krefjandi spurningar varðandi spillingu og
pólitísk markmið
„Flokkurinn þarf
fleiri menn
eins og mig"
- segir Hallgrímur og aðeins síðar...:
„Fyrr mun ég fara á höggstokkinn en að taka við
launastarfi. Djobb erdauði listamannsins."
Hvað ert þú listamaðurinn að
vilja með það að binda þig á
flokkspólitískan klafa?
„Ég er ekki að binda mig á neinn
klafa. Ég lít á þetta sem stuðningsyf-
irlýsingu. Margir af minni kynslóð
og yngri - og þá ekki síst listamenn -
hafa verið í lausu pólitísku lofti og
verið að kjósa hitt og þetta og jafnvel
ekki neitt, aldrei þorðu almennilega
að taka afstöðu og standa með henni.
Maður á að kjósa í kosningum. Fátt
er ömurlegra en sitja stikkffí hjá og
liggja svo eins og blóðsjúgandi
„ópólitísk" mara á spenum þjóðfé-
lagsins, þiggja bama- og örorkubæt-
ur, námslán, styrki og starfslaun um
leið og segjast vera „orðinn hund-
leiður á þessu pólitíska þrasi“ og
sitja heima á kjördag og lesa... já
lesa um frönsku byltinguna.
Með því að taka sæti á framboðs-
lista gengur maður hreint til verks,
tekur afstöðu, og hvetur um leið aðra
til að gera það. Og þá veit maður líka
hvað maður á að kjósa. Ég mæli ein-
dregið með þessu fyrir fólk sem er í
vafa.“
Af hverju Alþýðuflokkurinn?
„Alþýðuflokkurinn er jafnaðar-
mannalíokkur íslands, eini flokkur-
inn sem stendur almennilega fyrir
þessa fallegu stefnu, þessa glæsilegu
evrópsku líberal hefð, sem er af-
rakstur 2000 stritandi og blóðugra
ára sögu og hin eina sanna pólitíska
stefna. Alþýðuflokkurinn er laus við
þetla gamla vinstra vesen, kröfu-
gerðarsósíalismann, „eina kerfið
sem virkar“ eins og austurnski rit-
höfundurinn Thomas Bemhard heit-
inn sagði svo réttilega. Alþýðuflokk-
urinn fylgir raunsæni mannúðar-
stefnu og er ekki bamalegt fórnar-
lamb útópískrar óskhyggju. Hann er
einnig eini flokkurinn sem vinnur
gegn öllum hinum framsóknarflokk-
unum.
Á íslandi þurfum við að efla einn
flokk mátulega vinstra megin við
miðju, en ekki stofna fleiri á per-
sónulegum forsendum. Við þurfum
einn stóran og nútímalegan krata-
flokk eins og þeir em til í flestum
öðmm Evrópulöndum. Um þetta em
flestir sammála en þráast við að við-
urkenna það að AljDýðuflokkurinn er
sá flokkur, aðeins vegna þess að þeir
segjast ekki fella sig við þennan eða
hinn þingmanninn. Island er smá-
borgarapyttur: fólk dæmir stjóm-
málamenn ekki af gerðum þeirra,
heldur af því hvemig þeir vom í
partýi.“
Eru þín sjónarmið í sjávarút-
vegsmálum þau sömu og flokksins
og hvað flnnst þér um veiðileyfa-
gjaldið? Iirþað leiðin?
„Desolé. Eg veit ekkert um sjávar-
útvegsmál. Ég hef alltaf verið vatns-
hræddur og lítið gefinn fyrir fisk.“
Er Alþýðuflokkurinn spilltur
flokkur og ef svarið er já - er það
þess vegna sem þú vilt vera þar
innandyra? Áttu von á bitlingi?
„Alþýðuflokkurinn er spilltur. Ég
er óspilltur. Flokkkurinn þarf fleiri
menn eins og mig.“
Gætirðu hugsað þér að starfa
við íslenska sendiráðið í París í
framtíðinni?
„Frá því að mínu síðasta brúar-
vinnusumri lauk - mig rninnir að það
hafi verið haustið ’81 - hef ég ekki
unnið að öðm en eigin list og fyrr
mun ég fara á höggstokkinn en að
taka við launastarfi. Djobb er dauði
listamannsins."
Getur hugsast að þín pólitíska
þátttaka tengist ættartengslum
þínum við fólkið á Vesturgötu 38?
„Þegar smátt er spurt verður
smærra um svör. Þessi spuming er
lýsandi fyrir það ástand sem ég var
að lýsa áðan. - Blaðamaður gerir sér
vonandi grein fyrir því að hann er
einungis ráðinn vegna þess að hann
kemur úr kjördæmi Guðmundar
Áma Stefánssonar og fyrir hans til-
stilli, eða hvað...? - En svo ég reyni
að brúa þennan bakkafulla læk:
Systir mín er í framboði fyrir
Kvennalistann. Mágur minn svissaði
nýverið úr Alþýðubandalaginu yfir í
Þjóðvaka og starfar þar að
krafti. Móðurbróðir minn sat á
þingi og er harður Sjálfstæðis-
maður. Og mér þykir leitt að
segja frá því, en nokkrir vinir
mínir em fæddir Framsóknar-
menn. Em fleiri flokkar í fram-
boði?“
Hefur jafnaðarstefnan
blundað lengi með þér?
„Ég bar út Þjóðviljann í
æsku. Ég starfaði fyrir Alþýðu-
bandalagið í kosningunum ’71.
Síðar skrifaði ég í Þjóðviljann
og kaus nokkmm sinnum G.
Síðasta vor kaus ég R- listann.
Maður vitkast með ámnum.
Jafnaðarstefnan er stefnan. Allt
annað er annaðhvort tvískinn-
ungur frá hægri eða barnaskap-
urtil vinstri.”
28. sætið. Er það ekki
svoldið plebbalegt sæti? Þú
átt sáralítinn séns á þingsæti
og heiðurssætin eru víðs
fjarri.
„8 er happatalan mín. En átt-
unda sæti fannst mér of hátt og
það 18. of moyenne. Ég bað
því sérstaklega um 28. sæti og
fékk það. Og þó þetta sé
kannski ekki baráttusæti, þá lít
ég meira á þetta sem góðan
undirbúning, ef ég, segjum...
ætla mér í prófkjör einhvem-
tíma.“
Að lokum: Einhver skila-
boð til íslenskra kjósenda?
„Kjósið mig.“
Koinið allir kratasveinar
komið mér nú inn á þing
á meðan ég mitt kratakvœði
um Kratarínu litlu syng.
Látið œla og orga af reiði
allra flokka gömul svín
Kratarína Kratarína
Kratarína er stúlkan mín.
djúpsteiktur - eða er einfaldlega settur beint í munninn
BONDABRIE ^
Með kexinu, brauðinu '
og ávöxtunum. Mjög góður
djúp- eða smjörsteiktur.
DALA BRIE
Á ostabakkann og með kexi
og ávöxtum.
DALA BRIE 30 g
Góður að grípa til!
HVITLAUKS-
OSTUR
Við öll tækifæri
og frábær
í sósur.
GRÁÐAOSTUR
Tilvalinn til matargerðar
- í súpur, sósur eða til
fyllingar i kjöt- og fiskrétti
Góður einn og sér!
CAMEMBERT
Einn og sér, á ostabakkann
og í matargerð.
LUXUSYRJÁ
Mest notuð eins og hún
kemur fyrir en er einkar góð
sem fylling í kjöt- og fiskrétti,
Bragðaswnjög vel djúvMeikt.
með lauk <>!
luðuu' krydt
DJUPSTEIKTUR
CAMEMBERT
Sem smáréttur eða
eftirréttur.
RJÓMAOSTUR
kexið, brauðið, í sósur
á og ídýfur.
OSTAKAKA
Sem ábætisréttur,
með kaffinu og
á veisluborðið.
PEPPERONEOSTUR
Góður í ferðaljigið. HVÍTUR KASTALI
Með ferskum ávöxtum
eða einn og sér.