Alþýðublaðið - 17.03.1995, Blaðsíða 12
12
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 17.-19. MARS 1995
Kristján Emil
Jónasson
Af því aö Fríða frænka er í fram-
boði fyrirflokkinn.
Örn Úlfar
Sævarsson
Vegna víðsýnnar utanríkisstefnu
Alþýðuflokksins.
Sigurður Orri
Jónsson
Á framboðslistum flokksins má
finna frambærilegasta fólkið.
Hreinn
Hreinsson
Af því ég vil geta lifað í nútíman-
Júlía
Jóhannesdóttir
Alþýðuflokkurinn er eini flokkurinn
sem býðurfólki upp á raunveru-
lega framtíðarsýn. Nú og líka af
því að Fríða er í framboði.
Ólafur
Lárusson
Ég er harður lýðræðissinni í pólít-
ík. Það ríkir bágborið ástand á at-
vinnumarkaðnum og í því sam-
bandi vil ég benda á atvinnuleysi
hreyfihamlaðra og fatlaðra. Við
verðum að stefna að góðu at-
vinnulífi.
Gunnar Alexander
Ólafsson
Ég vil að ísland sé þátttakandi í al-
þjóðlegu samstarfi í stað þess að
vera einangrað fyrirbæri norður í
Ballarhafi.
■ Ásta B. Þorsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri og formaður Þroskahjálpar,
skipar 3. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins í Reykjavík.
í samtali við Stefán Hrafn Hagalín ræðir hún um heilbrigðismálin, velferðarkerfið og ísland í Evrópu
r
„Island verður fremst
meðal jafningja í
Evrópusambandinu"
- þar sem við stöndum gríðarlega vel til dæmis
hvað varðar gæði þeirrar heilbrigðisþjónustu sem
við veitum, segir Ásta. „ísland á að ganga í Evrópu-
sambandið hnarreist og án betlistafs og láta til sín
taka sem forystuafl. Við höfum af miklu að miðla."
Ásta B. Þorsteinsdóttir: Sú reynsla sem ég hef fengið í starfi mínu, í
baráttunni fyrir bættum lífskjörum dóttur minnar og sem formaður
Þroskahjáipar hefur reynst mér mjög mikilvæg. Þrátt fyrir að málefni
fatlaðra hljómi ef til vill sem sértækur málaflokkur þá er það nú svo, að
þau spanna gífurlega stórt svið. A-mynd: E.ÓI.
„Ég er þess fullviss að okkar sýn á
velferðarkerfið og okkar vinnubrögð
hvað það snertir er eitthvað sem fiillt
erindi á í umræðuna í Evrópu í dag,“
segir Asta B. Þorsteinsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri og formaður
Þroskahjálpar, sem skipar 3. sætið á
framboðslista Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Hún er gift Ástráði B.
Hreiðarssyni lækni og eiga þau þijú
böm, Amar 27 ára, Asdfsi Jennu 25
ára og Þorstein Hreiðar 19 ára. Ásta
er fædd og uppalin í Verkó í Vestur-
bænum, dóttir Ásdísar Eyjólfsdóthir
og Þorsteins Þorsteinssonar. Þetta er
gáfuð og heillandi kona með afslapp-
aða og sjálfsörugga framkomu þess
sem ekki lætur slá sig útaf laginu -
hvað sem á gengur. Asta ber það ut-
an á sér að vera skelegg og hörð í
hom að taka, enda er það kannski
ekki að furða sé litið á feril hennar
sem felur meðal annars í sér erilsamt
starf hjúkmnarfræðings, hjúkmnar-
framkvæmdastjóra og formanns sex
þúsund manna samtaka í átta ár. Við
þessa reynslu bætist síðan 25 ára bar-
átta hennar fyrir mikið fatlaða dóttur.
Tiltölulega nýkomin í víglínu ís-
lenskra stjórnmála situr þú í
þriðja sæti jafnaðarmanna í
Reykjavík, afliverju?
„í fyrsta lagi hef ég áhuga á að
taka þátt í stjómmálum vegna þess
að ég tel, að á þann hátt geti maður
best haft áhrif á þau málefni sem
manni em helst hugleikin. I öðm lagi
hef ég unnið náið í gegnum árin með
ýmsum stjómmálamönnum og fólki
sem starfar innan hins félagslega
geira og úr þeim herbúðum fékk ég
mikla hvatningu. Það var þessi
stuðningur sem gerði gæfumuninn
fyrir mig og ég ákvað að gefa kost á
mér í þetta sæti. Þau málefni sem
mér em sérstaklega hugleikin em
málefni fatlaðra - það kom upphaf-
lega til vegna dóttur minnar - og
heilbrigðismál sem ég hef um ára-
tugaskeið unnið við. Inní þessa
málaflokka blandast síðan velferðar-
mál á borð við uppeldis- og mennta-
mál og ekki síst áhuginn á að hlúa að
og bæta stöðu fjölskyldna á Islandi.
Þetta em málaflokkar sem ég tel mig
hafa allgóða þekkingu á, sé ágætlega
hvað má bæta þama og veit býsna
vel af eigin raun hvar skóinn krepp-
ir.“
Þegar maður lítur yfir starfsfer-
il þinn er Ijóst að þú kemur vel
brynjuð og með gott veganesti inní
stjórnmálin...
„Sú reynsla sem ég hef fengið í
starfi mínu, í baráttunni fyrir bættum
lífskjömm dóttur minnar og sem for-
maður Þroskahjálpar hefur reynst
mér mjög mikilvæg. Þrátt fyrir að
málefni fatlaðra hljómi ef til vill sem
sértækur málaflokkur þá er það nú
svo, að þau spanna gífurlega stórt
svið. Ég hef þurft að setja mig mjög
vel inní þessi mál og kem því reiðu-
búin til í baráttuna."
Hvemig líkar þér veran í röðum
framvarðasveitar jafnaðar-
manna?
,Ááér líður mjög vel þarna. Ég er
ekki framapotari og það era ýmsar
stórar ástæður fyrir því, að ég valdi
Alþýðuflokkinn sem minn stjóm-
málavettvang. Þar fann ég hljóm-
gmnn fyrir mín viðhorf og mínar
hugsjónir: lífssýn jafnaðarmanna er
lífssýn mín. Mér finnst Alþýðuflokk-
urinn í dag vera bjartsýnt og jákvætt
stjómmálaafl og það sem mér fellur
best við hann er að þar er litið raun-
sæjum augum á málefnin og stefna
mótuð samkvæmt því. Þama er ekki
að finna neinar skýjaborgir. Raun-
veruleikatengingin er mér afar áríð-
andi þáttur í störfum og stefhu
flokksins. Að sjálfsögðu er ekki ann-
að hægt en að horfast í augu við þá
staðreynd, að við höfum verið að
fara í gegnum erfiðleikatímabil -
aflabrestur og svo framvegis - en
mér finnast jafnaðarmenn hafa tekið
á vandamálunum með mikilli skyn-
semi og neytt hvers færis sem gafst
til að rétta af kúrs þjóðarskútunnar
og stefna henni til framtíðar. Við
stöndum frammi fyrir því í dag, að
nauðsynlegt er að stokka upp vel-
ferðarkerfið og taka til gagngerrar
endurskoðunar svo nást megi fram
spamaður og aðhald á öllum sviðum.
Ef ekki verður gripið rösklega í
taumana gæti annars komið til þess
að kerfið hreinlega hrynji vegna
sjálfvirkrar útgjaldaþenslu. Ekkert
kerfi er svo heilagt og fullkomið að
það þoli ekki yfirhalningu og upp-
færslu til nútímans."
Ýmsir forystumenn Alþýðu-
flokksins hafa sagt að lengi megi
hagræða enn innan kerfisins áður
en það fari að bitna á heiisu fólks
og grunnþjónustu. Ertu sammála
þessu?
, Já, og ég hef ákveðnar skoðanir á
því hvemig megi framkvæma þessa
hagræðingu. Þar er komið beint inná
mitt starfssvið sem hjúkmnarfram-
kvæmdastjóra því ég hef einmitt
þurft að takast á við þessi vandamál
frá fyrstu hendi og unnið mína vinnu
samkvæmt þeim spamaði og hag-
ræðingaraðgerðum sem fyrir liggja.
Ég starfa nú á endurhæfingardeiid
Landspítalans þar sem áður hét
Kópavogshæli, þar vinna 180 manns
og það kentur í minn hlut á þessum
deildum að halda utanum fjármálin.
Ég hef einnig starfað á Kvennadeild
Landspítalans."
Ertu þá send sérstaklega á milli
til að stjórna aðhaldsaðgerðum?
„Það hentar mér allavega ekkert
illa að standa í þessum erfiðu verk-
um, en við hjúkranarfræðingamir
höfum vitaskuld skipt með okkur
verkum og haldið utan um ákveðin
svið. Það er síðan verið að breyta
ýmsu í stjómskipulagi spítalans."
Er það hollt fyrir stofnanir að
hafa hreyfanlega yfirmenn sem
færa með sér ferska vinda og ný
sjónarmið?
„Ég held að það sé stjómendum
gott og hollt að takast á við ný verk-
efni í stað þess að staðna. Það er ein-
ingunum mjög nauðsynlegt að fá inn
nýtt fólk til að vinna störf þar sem
stöðugt þarf að endurmeta flesta
þætti og skoða hvemig þeir mættu ef
til vill fara betur.“
Þetta starf sem þú gegnir hljóm-
ar cinsog sniðið fyrir einhverskon-
ar hörkutól - öll þessi endurskipu-
lagning og hagræðing..., ertu
hörkutól?
„Ég er nú varla rétta manneskjan
til að dæma um það. Ég er hinsvegar
vön að vinna og finnst skemmtilegt
að takast á við svona erfið verkefni.
Sérstaklega hef ég gaman af því sem
ég er að gera núna þar sem ég sam-
eina tvö stór ástríðumál mín. I fyrsta
lagi er ég hjúkmnarfræðingur og hef
gaman af því að axla þá ábyrgð sem
í stjómunarstörfunum felst. En í öðra
lagi er ég líka að takast á við málefni
fatlaðra og er um þessar mundir að
starfa ásamt frábæm fólki að því að
breyta þama um starfsemi; gefa því
fólki sem hefur átt sitt heimili þama
- kannski alla sína ævi - tækifæri til
að eignast nútímaheimili og flytjast
þaðan á brott. Við emm að upplifa
mjög athyglisverða hluti þama í
fyrsta sinn, að áform og ákvarðanir
og áform sem hafa legið fyrir um
þriggja ára skeið án þess að fá braut-
argengi em að verða að vemleika. Á
ámm áður vom sólarhríngsstofnanir
eina úrræðið sem bauðst fyrir fatlaða
og þroskahefta, en áherslur breyttust
og það var farið að skapa sambýli og
önnur fijálsari úrræði. Sólarhrings-
stofnanir fyrir þennan þjóðfélagshóp
em orðnar gamaldags og hætt að
byggja slíkar upp. Allsstaðar í kring-
um okkur em menn að leggja stofn-
anir af þessu tagi niður því þær sam-
ræmast ekki nútímaviðhorfum um líf
fatlaðra. ísland er í raun mjög aftar-
lega á merinni að vera byija á þessu
fyrst núna. Við emm að bjóða fötluð-
um og aðstandendum þeirra nýtt líf
og ég er glöð að fá að taka þátt í að
stíga þessi framfaraskref.“
Og þú segir að íslendingar byrji
seint á þessu verki miðað við aðrar
þjóðir?
„Svíar hafa í mörg ár verið að
leggja niður þessar stofnanir og
Bandaríkjamenn sömuleiðis. Danir
em einnig komnir vel á veg og Finn-
ar hafa jafnvel lagt niður nýlegar
stofnanir. Á Islandi hefur þetta ekki
verið gert nema á Akureyri þar sem
tekin var ákvörðun um að Sólborg
yrði lögð niður. I dag er síðan búið
að gera samning um það að Háskól-
inn á Akureyri yfirtaki húsnæði Sól-
borgar. Þar má reyndar sjá dæmi um
hvemig tveir aðilar innan kerfisins
hagnast á endurskipulagningunni."
Hefur verið gert nóg af því að
leita samráðs við stjórnendur í
heilbrigðiskerfinu?
„Ég tel að lengi megi bæta sig í
þeim efnum. Hjúkmnarfram-
kvæmdastjórar og aðrir stjómendur í
heilbrigðiskerfinu búa til dæmis yfir
mikilli reynslu og þekkingu á mál-
efnum deilda sem undir þá heyra.
Það má ekki vanmeta það, að starfs-
fólkið sem vinnur útá akrinum hefur
af miklu að miðla. Samráð er geysi-
lega mikilvægur hlekkur í þessu
ferli.“
Hvað með önnur málefni vel-
ferðarkerfisins?
„Ég vildi gjaman láta til mín taka
eitt málefni sem mér hefur fundist
hafa lent útí kanti, en það eru málefni
aldraðra. Ég tel það gríðarlega brýnt
að öldruðum borgumm verði gert
það kleyft - með öflugri heimahjúkr-
un og þjónustu - að dvelja sem allra
lengst á heimilum sínum. Miklu máli
skiptir, að önnur úrræði þegar heim-
ili fólksins sleppir feli í sér minni
einingar en þessar stóm og óheimil-
islegu stofnanir sem tíðkast í dag.
Elliheimilin eiga að minnka til mik-
illa muna og jafnvel að stefna að
sambýlisforminu þar sem veitt yrði
ákveðin stuðningsþjónusta."
Kostnaðarhlutdeild sjúklinga.
Nokkur orð um hana?
„Ég tel að við getum ekki farið
mikið lengra í þeim efnum og þá er
ég að tala um allan þorra almennings
sem maður þarf að gæta hagsmuna
fyrir. Margar fúllyrðingar hafa verið
settar fram um þessi mál og mér
finnst athyglisvert í þessu sambandi
að líta á Dani sem áður höfðu heil-
brigðiskerfi á heimsmælikvarða -
kerfi þar sem enginn þarf að greiða
krónu - en hafa nú dottið niður í átj-
ánda sæti yfir þær þjóðir sem státa af
mestum gæðum heilbrigðisþjónustu.
Danir hafa verið seinir að taka upp
hjá sér nýjungar og hafa hliðrað sér
hjá því að framkvæma umbætur á
kerfinu; endurskoðun sem vissulega
er alltaf þörf á þessu sviði. Utkoman
er sú, að Danir horfa fram á sjálf-
virka útgjaldaaukningu og kerfi sem
illmögulegt er að stjórna. Þessu þurf-
um við Islendingar að vara okkur á.“
Nú langar mig aðeins að skipta
um gír og spyrja þig um hvar þú
sjáir sóknarfæri Alþýðuflokksins
liggja í komandi kosningum?
„Sérstaða Alþýðuflokksins felst
að mfnu mati í því, að flokkurinn er
mjög skýra framtíðarsýn og hún er
afar raunsæ. Persónulega er ég mjög
mikill Evrópusinni og er því afar
upptekin af þeim þætti framtíðarsýn-
arinnar. Um nokkurra ára skeið hef
ég tekið virkan þátt í Norðurlanda-
samstarfinu og þar hefur maður
fundið hvemig vindamir blása. Ég
get ekki neitað því að maður hefur á
stundum verið hálf einmana og átt
erfitt komandi frá landi þar sem Evr-
ópusammninn var ámm saman heil-
ög kýr sem ekki mátti ræða - og má
varla enn. Það hefur oft verið erfitt
fyrir mig sem íslending að fóta mig
þama inni.“
Hvað er það sem heillar þig
svona við Evrópusambandsum-
ræðuna?
„Ég hef kannski nokkuð aðrar
áherslur í Evrópumálunum en marg-
ir aðrir: Þrátt fyrir að ég skilji vel og
gangist undir hinar efnahagslegu
röksemdir, þá held ég að það sé allt-
of lítið um það talað að önnur verð-
mæti em einnig í húfi. Ég skil til
dæmis ekki hvers vegna menn
gleyma því á hverju Evrópuhugsjón-
in gmndvallaðist í upphafi, friðar-
hugsjóninni. Þetta hafa menn lagt til
hliðar í umræðunni um efnahagsmál-
in. I Evrópusamstarfinu em einnig
fjölmörg verkefni á mennta-, menn-
ingar- og félagslega sviðinu sem
þarfnast brýnnar umræðu og gætu að
mörgu leyti skipt sköpum fyrir okkur
íslendinga að tengjast. Þessir hlutir
hafa einnig farið dálítið fyrir bí í um-
ræðunni. Eg horfi til dæmis á um-
fangsmikil verkefni á sviði mennta-
mál og félagslegra mála á borð við
málefni fatlaðra."
Eru Islendingar þá að sleppa
heilu köflunum útúr Evrópuum-
ræðunni?
,Já, við emm til dæmis alltaf að
tala um hvað við getum fengið útúr
inngöngu í Evrópusambandið, en
ekki hvað við getum lagt á vogar-
skálamar. Ég er þess fullviss að okk-
ar sýn á velferðarkerfið og okkar
vinnubrögð hvað það snertir er eitt-
hvað sem fullt erindi á í umræðuna í
Evrópu í dag. Norðurlöndin eiga
saman mikinn möguleika á að hafa
varanleg áhrif til framfara í velferð-
armálum í álfúnni. Island verður
fremst meðal jafningja í Evrópusam-
bandinu og er þannig í þriðja eða
fjórða sæti yfir þær þjóðir í heimin-
um sem státa af mestum gæðum
heilbrigðisþjónustu. Island á að
ganga í Evrópusambandið hnarreist
og án betlistafs og láta til sín taka
sem forystuafl. Við höíúm af miklu
að miðla.“