Alþýðublaðið - 17.03.1995, Síða 14
14
ALÞYÐUBLAÐIÐ
V i ð t a I
HELGIN 17.-19. MARS 1995
Eiríkur Bergmann Einarsson, 26 ára stjórnmálafræðinemi, skipar 15. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Óhjákvæmilegt að ísland verði aðili að Evrópusambandinu."
n
Eiríkur Bergmann Einarsson er
26 ára Breiðhyltingur. Hann skipar
15. sætið á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík við alþingiskosningamar
í vor. Eiríkur gekk í Hólabrekku-
_skóla í æsku og fór þaðan í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti hvaðan
hann útskrifaðist með stúdentspróf.
Eiríkur er nú að ijúka námi í stjóm-
málafræði við Háskóla íslands.
Hann er í sambúð og á eitt bam. En
hvað kemur til að hann er nú í fram-
boði fyrir Alþýðuflokkinn?
„Ég er kominn af rótgróinni
íhaldsljölskyldu en mér fannst ávallt
röksemdir hennar f hæsta máta vafa-
samar. Því fór ég í stjómmálafræðina
ákveðinn í að kynna mér málin. Eftir
það sá ég að eini skynsamlegi kost-
urinn var Alþýðuflokkurinn."
Hvers vegna í ósköpunum?
„Stefna Alþýðuflokksins er skyn-
semis- og raunsæisstefna. Flokkur-
inn er ekki beintengdur neinum sér-
hagsmunahópum eins og hinir flokk-
amir. Framsóknarflokkurinn er svo
augljóslega tengdur þeim aðilum
sem halda bændum f gíslingu land-
búnaðarkerfisins. Það er afturhald
sem hefur stuðlað að smáborgaraleg-
um hugsunarhætti hérlendis. Helm-
ingur Sjálfstæðismanna em einskon-
ar framsóknarmenn. Einn fjórði em
fijálshyggjumenn í anda Friedman
og Hayeks. Ef sá hluti fengi að ráða
þá væru 10 prósent þjóðarinnar rík
og aðrir fátækir. Restin af Sjálfstæð-
isflokknum eru einhverskonar kristi-
legir demókratar, ágætir í sjálfu sér,
en full hægri sinnaðir og íhaldssamir
fyrir mig. Kommúnisminn er dauð-
ur, þannig að ekki þýðir að tala um
Alþýðubandalagið. Alþýðuflokkur-
inn er alþjóðlega sinnaður jafnaðar-
mannaflokkur og það á ágætlega við
mig. Mér þykir leiðinlegt hvað ís-
lendingar geta verið einangmnar-
sinnaðir."
Þú ert formaður í samtökum
ungra Evrópusinna, ekki satt?
„Jú, ég er formaður félags sem
heitir Samband ungra Evrópusinna á
Islandi. Það er lítill angi risastórra
hreyfingar áhugamanna um evr-
ópska samvinnu.”
Nú ert þú virkur innan hreyf-
ingar ungra jafnaðarmanna og
þið hafið verið að kynna til sög-
unnar hugtakið sjálfsvald. Hvað
geturðu sagt okkur um það?
„Sjálfsvaldið er í mínum huga
míkróútgáfa af því sem kallað er
dreifræði. Það byggist upp á því að
þær ákvarðanir sem þarf að taka
skuli taka á lægsta mögulega stjórn-
sýslustigi. Sjálfsvaldið snertir sjálf-
stæða ákvörðunartöku húsfélaga,
skóla og annars sem snertir daglegt
líf fólks. Þetta minnir nokkuð á þann
part anarkisma sem hefur alltaf heill-
að mig að einstaklingurinn fái frið lil
að taka ákvarðanir fyrir sjálfan sig.“
Snúum okkur aftur að þér sjálf-
um. hver eru þín framtíðaráform?
„Enginn veit sína ævina... Ég tel
nauðsynlegt fyrir mig sem eyjar-
Vandaðar og nytsamar
fermingargjafir
cn
co
£
<
.
Z>
<
é* Ééi i Mwm\£k \
BAKPOKAR
iTrall 451
Discovery 55
Panther óoi
Fermingartilboð
Verð kr. 8.880
ajungilaK
SVEFNPOKAR
Scout Lux 8?
Fermingartilboð
Fermingartilboð
Verð kr. 10.880
ír. 9.792*
skeggja að leggja land undir fót og
öðlast örlítið víðari sjóndeildarhring.
Mig langar að búa erlendis í eitt til
tvö ár. Hins vegar sé ég ekkert annað
land en Island fyrir mér sem mitt
framtíðarheimaland. I menningu
Astrala er innbyggt að um tvítugt fer
unga fólkið út í heim í tvö ár og kem-
ur heim með reynslu sem nýtist
þjóðinni. A Islandi hefur mér fundist
þessu vera þveröfugt farið. Menn
leggja á það áherslu að halda fólkinu
hér á landi. Þetta hefur verið sá andi
sem hefur svifið yfir vötnunum, en
þetta er að breytast. Það kann að vera
að þetta hafi verið einhver arfleifð
frá vistarbandinu."
Hvcrt ætlarðu að fara?
„Mig langar til Skandinavíu eða
Norður-Evrópu."
Heldurðu að Island eigi í
framtíðinni eftir að verða
aðili að ESB?
,Já, ég held að það sé óhjá-
kvæmilegt að Island verði að-
ili að Evrópusambandinu. Ég
finn á ferðum mínum til Evr-
ópu að sú er þróunin. Þjóðir
heimsins eru að nálgast hver
Verð kr. 9.990 |
:. 8.991
Lillehammer io° verð kr. 10.480
9.390*
Fermingartilboð
kr. 11.412* Fermingartilboð kr. 11.470*
TJÖLD lichfieldUi
Falcon 150 2 manna Verð kr. 11.990
1 Fermingartilboð kr. 10.791*
Falcon 180 2-3 m. Verð kr. 13.840
Fermingartilboð kr. 12.456*
Hawk 180 2-3 m Verð kr. 16.990
Fermingartilboð kr. 15.291*
GONGUSKOR
Mirage leðurgönguskór Verð kr. 9.990
“Qkr. 8.991*
Fermingartilbo
Einnig skíðatöskur frá kr. 2.000, hanskar,
húfur, gleraugu og margt, margt fleira.
‘Tilboösverö miðast viö staðgreiðslu.
V/SA
Raðgreiðslur • Póstsendum samdægurs.
Umboðsmenn um iand allt.
-SWWK fRAMÚK
Snorrabraut 60 • Sími 561 2045
Eiríkur Bergmann Einarsson: Mér
þykir leiðinlegt hvað íslendingar
geta verið einangrunarsinnaðir.
A-mynd: E.ÓI.
aðra. Þær eru að skynja nauðsyn þess
að vinna sajnan. Heimsþorpið er að
verða að verulcika. Við verðum að
vera með. Við eigum ekki að vera
endalaust þiggjendur heldur einnig
að leggja okkar af mörkum. Við eig-
um að hafa tækifæri til að hafa áhrif
á þá sem hafa áhrif á okkur.“
Frá yfirkjörstjórn
Vesturlandskjördæmis
Framboðsfrestur vegna alþingiskosninga 8. apríl
1995, rennur út föstudaginn 24. mars 1995,
kl. 12:00 á hádegi.
Framboðum skal skila til formanns yfirkjörstjórn-
ar, á skrifstofu hans að Borgarbraut 61, Borgar-
nesi. Einnig tekur yfirkjörstjórn á móti framboð-
um í Hótel Borgarnesi, milli kl. 11:00-12:00 árdeg-
is, föstudaginn 24. mars 1995.
Á framboðslista í Vesturlandskjördæmi skulu að
lágmarki vera fimm nöfn og eigi fleiri en tíu nöfn.
Fjöldi meðmælenda er að lágmerki 100 og eigi
fleiri en 150. Fylgja skal tilkynning um hverjir séu
umboðsmenn framboðslistanna.
Framboðslistar verða úrskurðaðir á fundi yfirkjör-
stjórnar sem haldinn verður í Hótel Borgarnesi,
laugardaginn 25. mars 1995, kl. 13:00.
Yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis,
Borgarnesi 16. mars 1995.
Gísli Kjartansson formaður.
Guðjón Ingvi Stefánsson.
Páll Guðbjartsson.
Ingi Ingimundarson.
Sigurður B. Guðbrandsson.
Stefánsstyrkur
Auglýst er eftir umsóknum um Stefánsstyrk, sem
Menningar- og fræðslusamband alþýðu og Fé-
lags bókagerðarmanna veita til minningar um
Stefán Ögmundsson, prentara og fyrsta formann
MFA.
Tilgangur styrkveitingarinnar er að veita einstak-
lingi, einstaklingum, félagi eða samtökum stuðn-
ing vegna viðfangsefnis, sem lýtur að fræðslu-
starfi launafólks, menntun og menningarstarfi
verkalýðshreyfingarinnar. Heimilt er að skipta
styrknum milli fleiri aðila.
Styrkurinn er nú 230.000,- krónur. Áformað er að
veita hann 1. maí næstkomandi.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu MFA, Grens-
ásvegi 16a eða skrifstofu Félags bókagerðar-
manna, Hverfisgötu 21, ekki síðar en kl. 17.00,
föstudaginn 14. apríl. * Umsókninni fylgi skrifleg
greinargerð um viðfangsefnið, stöðu þess og
áætlaðan framgang.
Nánari upplýsingar veita Ásmundur Hilmarsson í
síma 91-814233 og Svanur Jóhannesson í síma
91-28755.
Félag bókagerðarmanna.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu.