Alþýðublaðið - 17.03.1995, Page 15
HELGIN 17.-19. MARS 1995
V
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
15
i ð t a I
■ Vilhjálmur Þorsteinsson, 29 ára kerfisfræðingur, skipar 7. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Hann var farinn að kenna á tölvur fyrir fimmtán árum, tvítugur var hann kosinn varaformaður Bandalags
jafnaðarmanna og rekur í dag ásamtfélaga sínum þrjátíu manna hugbúnaðarfyrirtæki sem nú er að ryðja sér
til rúms á Bretlandseyjamarkaði. Það var Stefán Hrafn Hagalín sem ræddi við Vilhjálm um tölvurnar,
upplýsingahraðbrautina og áhugaverðan feril hans í stjórnmálum
Ég erfæddur
- ranghermdi DV eftir Vilhjálmi fyrir níu
árum að lokinni varaformannskosningu
hans í Bandalagi jafnaðarmanna.
En hvað sagði hann í raun og veru?
„Ég sagði að ég tæki þessu öllu með stillingu
enda væri ég með báða fætur á jörðinni."
jörðinni!
ÆÆ
„Ég lauk ekki prófi í Háskólanum.
Ég var á þeim tíma farinn að vinna á
í'ullu við tölvumar og hafði aldrei
tíma til að bæta við nám mitt í Há-
skólanum. Ég í raun lært allt sem ég
kann í mínu fagi í vinnunni,“ segir
Vilhjálmur Þorsteinsson, 29 ára
kerfisfræðingur, sem skipar 7. sæti á
framboðslista Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Kona hans er Anna
Ragna Magnúsdóttir þýðandi og rit-
höfundur og eiga þau tvö böm, Þor-
stein sjö ára og Hlín fimm ára. Vil-
hjálmur lauk stúdentsprófi frá eðlis-
sviði Menntaskólans við Hamrahlíð
og kallar vem sína í Háskólanum „lít-
ilsháttar gaufHann virkar nokkuð
feiminn við fyrstu sýn og jafnvel óör-
uggur, en það er einhver vitneskju-
glampi í augunum á unglegu andlit-
inu. Oftar en einu sinni hefur hann
stigið uppí ræðustól á fundum jafn-
aðarmanna og sagt félögum sínum
umbúðalaust til syndanna. Hann er
einnig vel þekktur fyrir að skrifa
beinskeyttar greinar og þar fer óvæg-
inn penni sem ekki er gott að fá upp á
móti sér. Vilhjálmur hefur hingaðtil
lítið tranað sér fram í sviðsljósið í Al-
þýðuflokknum, en kunnugir segja
þennan unga hugvitsmann einn af
helstu hugmyndafræðingum jafnað-
armanna og bíða spennúr eftir að
hann varpi sér af alefli í eldlínuna.
Ég man eftir þér sem unglingi að
kenna á tölvur á Akureyri og ég
man líka að ntér þótti mikið til þess
koma að svo ungur maður væri að
kenna sem jafningi hinna full-
orðnu.
, Já, ég byrjaði nokkuð snemma að
vinna við töl vubransann. Það var árið
1980 sem ég fór fyrst að vinna við
þetta, þá fjórtán ára gamall og og
hafði kennsluna til að byrja nieð sem
sumarvinnu hjá Tölvuskólanum.
Einnig hóf ég fljótlega að þýða texta
í fonitum yfir á íslensku. Smámsam-
an vatt þetta uppá sig, ég fór að skrifa
forrit og hef unnið við þetta síðan.“
Við hvað starfar þú svo í dag?
„Frá árinu 1983 hef ég verið með-
eigandi í fyrirtæki sem heitir íslensk
forritaþróun og við stofnuðum tveir
félagar, ég og Óm Karlsson, en síðar
slóst Hálfdán Karlsson í hópinn. Fyr-
irtækið fæst aðallega við bókhalds-
og viðskiptahugbúnað og hefur vaxið
með árunum. Við höfum nú um þrjá-
tíu rnanns í vinnu. Ég sjálfur starfa
mest sem verkstjóri yfir hópi sem
vinnur við að þróa næstu kynslóð
hugbúnaðar."
Hvaða kynslóð er það - gervi-
greindin og allt það?
„Nei, kannski ekki alveg svo langt
heldur snýst þetta um frekari þróun á
Windows-viðmótinu. Það verður af-
skaplega þægilegt að vinna með
þennan hugbúnað og hann ætti til
dæmis að gefa stjómendum miklu
betra tækifæri til að fylgjast náið með
rekstri fýrirtækja. í raun má segja, að
það sé að verða ákveðin bylting í
þessum geira. Áður vom menn með
kerfi sem spúðu útúr sér löngum
ræmum af grænum og hvítum pappír
með reglubundnu millibili. Stjóm-
endur lentu síðan í því að reyna lesa
eitthvað útúr þessu talnaflóði. Þróun-
in f dag gengur hinsvegar útá það, að
stjómendur fái tilbúnar upplýsingar á
tölvuskjáinn; ntyndrænar upplýsing-
ar í fullum litum og í svokölluðum
rauntíma. Með þessu ætti stórkost-
lega að rninnka, að stjómendur þurfi
sjálfir að leita að upplýsingum um
það sem er að gerast. Við emm að
þróa kerfin rneira og meira í þá átt að
þau leiti þetta uppi sjálf og matreiði
upplýsingamar í aðgengilegt form
eftir hentugleika hvers og eins.“
Hættir maður þá að þurfa að
vera endalaust að smclln á milli
glugga og forrita og standa sjálfur
í að græja þetta?
, Já, slíkur námugröftur mun heyra
sögunni að mestu til.“
Get ég þá beðið tölvuna á afar
einfaldan hátt um að safna saman
upplýsingum úr afgreiðslukössum
og segja mér til dæmis hvað við
höfum selt af tiltekinni vöru á til-
teknu tímabili og hún síðan setur
það uppí myndrænu formi?
„Okkar þróun gengur ennþá
lengra, því þú getur haft á skjánum
hjá þér gangandi fyrirspum sem stöð-
ugt uppfærir sig og þú þarft ekkert að
gera; hefur alltaf l'yrir augunum á þér
hversu mikið ntagn af þessari til-
teknu vöm þú ert búinn að selja und-
anfarinn áratug, ár, mánuð, viku, dag,
klukkub'ma, hálftíma, korter, mínútu
og svo framvegis. Þú ert alltaf með
söluna á hreinu; hvað er verið selja
núna, hvaða vömflokkar em á upp-
leið og hvaða vörufiokkar em á nið-
urleið og af hvaða vöm þarf að panta
og hversu mikið magn. Rekstur fyrir-
tækisins verður allt annar við þetta
því stjómendur geta með þessari
næstu kynslóð tímasparandi
Windows-viðmóts ávallt verið með á
hreinu hver staðan er; reiðufjárstaða,
útistandandi skuldir og þessháttar.
Kannski er helst hægt að líkja við-
mótinu við flugstjómarklefa þar sem
allt er innan seilingar og liggur dag-
ljóst fyrir. Einhvem tímann í framlíð-
inni kemur sfðan að því, að menn
hætta að nota þessa dæmigerðu
tölvu- og sjónvarpsskjái heldur setja
einfaldlega á sig sérstök gleraugu þar
sem alit er í þrivídd."
Hver er markaðsstaða fyrirtæk-
is ykkar félaganna?
„Við emm stærsti innlendi fram-
leiðandinn í bókhalds- og viðskipta-
fonitum íyrir einmenningstölvur og
höfum síðan verið að færa okkur
uppá skaftið á erlendri gmndu. Fyrir
stuttu settum við upp systurfyrirtæki í
Glasgow í Skotlandi sem selur hug-
búnað okkar í enskri útgáfu. Við er-
um bjartsýnir á árangur og Skotar
hafa bæði tekið okkur afar vel sent
erlendum íjáifestum og eins hefur
markaðurinn veitt okkar hlýjar mót-
tökur. Vegna þess hversu samkeppn-
in hér hefur verið hörð emm við
ákaflega vel í stakk búnir og sam-
keppnisfærir til að takast á við þetta;
emm með góðan hugbúnað á góðu
verði.“
Þú hefur fylgst í návígi með þró-
un tölvunnar undanfarin fimmtán
ár í það minnsta. Hvaða áhrif tcl-
urðu að netyæðing heimsins muni
hafa á líf íslcndinga í nánustu
framtíð?
„Það sýnir sig í þessum geira ein-
sog sumsstaðar annarsstaðar í ís-
lensku samfélagi, að við emm nokk-
uð röskir við að tileinka okkur nýj-
ungar og vöxtur hraðbrautar upplýs-
inganna og Intemetsins
hefur verið mjög mikill. I
dag hefur þannig í kringum
átta þúsund tölvupóstföng-
um verið komið á fót á Is-
landi. I allra nánustu ffam-
tíð munu áhrifin helst sjást
f því, að einstaklingar,
stofnanir og íyrirtæki
dreifa upplýsingum í stór-
auknum mæli á tölvunetið.
Upplýsingar um allt á milli
himins og jarðar verða
stöðugt aðgengilegri fyrir
almenning. Eins á ég von á
því að hlutir sem tengdir
em tjáningu af ýmsu tagi
muni vaxa mjög. Þetta er
miðill sem hlýtur að vera
afar áhugaverður fyrir alla
þá sem vilja koma ein-
hverju á framfæri. Það er til
dæmis gaman að sjá hvem-
ig Smekkleysa og Björk
hafa verið að kynna heim-
speki'sína á netinu um vfða
veröld. Annar hlutur sem
mér finnst ákaflega
skemmtilegur, er jafnréttið
sem rikir í heimi netsins.
Það kostar lítið að komast
þama inn og hver sem
áhuga hefur getur leitað til
þín. Kostnaðarmúrinn við
útgáíú af fjölbreyttu tagi er
að hrynja. Engin miðstýr-
ing ríkir, allir eru jafnir og
allir hafa jafnan aðgang að
öllu og öllum. Frábær þró-
un.“
Það er við hæfi á þess-
uni punkti umræðu uni
stjórnleysi í tölvuheimin-
um, að við vindum okkur
yfir í stjórnmálin...
„Mín saga í stjómmál-
um er að verða nokkuð
löng - allavega miðað við
aldur. Ég gekk í Bandalag
jafnaðarmanna á sínum
tíma eftir að hafa kynnst
Frosta Bergssyni, núver-
andi forstjóra HP á íslandi.
Hann hafði verið dálítið að þvælast í
kringum Vilmund Gylfason og hvatti
mig til að ganga í hreyfinguna sem ég
gerði á afar lýðræðislegum og opn-
um landsfundi Bandalags jafnaðar-
manna árið 1984 og var þarmeð orð-
inn fullgildur fulltrúi á fundinum.
Þama kunni ég mjög vel við mig,
þekkti ýmsa og var strax kosinn í
fjörtíu manna landsnefnd. Á þessum
tíma var jafnvel ennþá auðveldara að
komast áfram í Bandalagi jafnaðar-
rnanna en í Alþýðuflokknum þessa
dagana. Tveimur ámm síðar var
haldinn annar landsfundur á Hótel
Sögu og þá var nú eitthvað farið að
styttast í lífdögum BJ, en ég hélt þar
samtsem áður einhverja þmmu-
hvalningarræðu og endaði með því
að vera kosinn varaformaður. Þá var
Guðmundur Einarsson formaður og
kosning mín kom mér jafnmikið á
óvart og öllurn öðrnm. Þama á lands-
fundinn 1986 kom síðan einhver
blaðastúlka frá DV - sem mér skilst
að hafi verið í starfskynningu - og
tók við mig viðtal. Hún spurði mig
auðvitað um hvemig mér liði að vera
orðinn varaformaður BJ. Ég sagði að
ég tæki þessu öllu með stillingu enda
væri ég með báða fætur á jörðinni.
Stúlkan hafði hinsvegar eftir mér
daginn eftir í DV, að ég væri fæddur
ájörðinni. Þetta var sérstaklega tekið
Vilhjálmur: Ég hef frá BJ-árunum haft mestan áhuga á grundvallarat-
riðum stjórnmálanna; hvernig eigi að stjórna þjóðfélaginu, hlutverki
stjórnmálamanna, hugmyndakerfunum, lýðræðinu og heimspekinni
þar að baki, löggjafarvaldinu, framkvæmdavaldinu, dómsvaldinu og
svo framvegis. Þetta er býsna vítt svið sem kemur inná alla þætti
þjóðfélagsins. A- mynd; E.ÓI.
fram og vitnað beint í mig - gott ef
ekki í fyrirsögn: Ég er fæddur á jörð-
inni! Maður á að lesa viðtöl fyrir birt-
ingu.“
Þú hlýtur að hafa verið yngsti
varaformaður alvöru stjórnmála-
flokks fyrr og síðar í íslenskri
stjórnmálasögu?
„Það þori ég ekki að fullyrða, en
við vomm gott teymi, ég og Guð-
mundur Einarsson."
Og svo gengurðu fljótlega yfir í
Alþýðuflokkinn.
,dá, þetta sama ár, 1986. Þegar
Bandalag jafnaðamianna gekk inní
Alþýðuflokkinn kom ég bara með
öðmrn. Það var á flokksþingi Al-
þýðullokksins í Hveragerði sem það
var innsiglað formlega. Enn eitt gerði
ég á þessu ári, en það var að taka þátt
í að stofna Félag frjálslyndra jafnað-
armanna innan Alþýðuflokksins. Þar
hef ég setið í stjóm frá upphafi."
Hvar liggur þitt áhugasvið í
stjórnmálum?
„Ég hef frá BJ-ámnum haft mestan
áhuga á grundvallar atriðum stjóm-
málanna; hvemig eigi að stjóma
þjóðfélaginu svo best faii, hlutverki
stjómmálamanna, hugmyndakerfun-
um, lýðræðinu og heimspekinni þar
að baki, löggjafarvaldinu, fram-
kvæmdavaldinu, dómsvaldinu og
svo framvegis. Þetta er býsna vítt
svið sem kemur inná alla þætti þjóð-
félagsins; velferðannálin, nTdsfjár-
ntálin, starfsreglur stjómmálamanna,
hugsanagang kjósenda og þessháttar.
Ennfremur hef ég nokkuð hoift til at-
vinnuntálanna þarsern ég þekki það
svið ágætlega, en ég er ekki að tala
þar um hið hefðbundna svið atvinnu-
málanna - sem snýst kannski á köfl-
um um það hvort stjórnmálamenn
eigi að vera með puttana hér eða þar
og hvort þessi atvinnugrein eða önn-
ur deyr út - heldur rneira unt hvemig
við getum búið til almennt umhverfi
fyrir atvinnulífið svo við fáunt nægi-
legt fé til að leggja í sterkt velferðar-
kerfi og aðra góða hluti.“
Ertu þá að tala um „frclsi með
skýrum leikreglum“?
,Já, það má segja það. Ég hef
áhuga á öllu þrennu...; frelsinu, jafn-
réttinu og bræðralaginu.“
Hvernig stendur Island sem lýð-
ræðissamfélag?
,JÉg hef ekki búið erlendis þannig
að ég hef ekki þann samanburð, en
eftir því sem ég hef lesið og kynnt
mér þá virðist mér að við eigum vel
heima inní þessari evtópsku lýðræð-
ishefð. Engu að síður em ýmsir hlut-
ir öðmvísi hér en annarsstaðar. Að
mínu mati er til að mynda kjördæma-
skiptingin vond einsog hún er í dag
og enn verri verður hún vegna fá-
mennis í hverju kjördæmi. Maður
kemur ekki lengur auga á samgöngu-
leg rök fyrir þessari skiptingu. Inní
það kemur návígið í fámenninu og
fyrirgreiðsla þessu tengd. Við höfúm
verið að reyna að komast aðeins útúr
jtessu fyrirgreiðsluformi í stjómmál-
um og meira inní hugmyndir um al-
menna stjómsýslu sem byggist á
vissum gmndvallaratriðum; til dæm-
is að þingmenn séu kosnir inná þing
sem fulltrúar þjóðarinnar
allrar, en ekki bara ein-
stakra kjördæma. Einnig
hefur verið sagt að emb-
ættismannakerfið og
stjómsýslan hér á landi sé
tiltölulega veik og ég get
að flestu leyti tekið undir
þá gagnrýni. Það hefur
verið okkur til baga, að
stjómmálin hafa verið fag-
mennskunni yfirsterkari á
sviðum þarsem slíkt á eng-
an veginn við. En þetta er
hægt og bítandi að breyt-
ast og áherslur og straum-
ar sem við fáum að utan
með síauknum alþjóða-
samskiptum - fólks og
þjóða gera stóra hluti fyrir
framfarasinnaða hugsun.
Fyrirgreiðslan er á undan-
haldi."
Um hvaða málefni
verður helst kosið 8. apr-
íl?
„Ég held ég verði að
segja að það sé Evrópu-
sambandsumræðan sem
þar ræður mestu og í henni
kristallast ákveðnir gmnd-
vallarþættir í íslensku
stjómmálamynstri. Emm
við að kjósa yfir okkur
stjórn Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks? Ég
er hræddur um að það yrði
stjóm flokka sem myndu
magna verri og íhaldssam-
ari hluta hvors annars og
þar yrði ekki mikil rót-
tækni í gangi; hagsmuna-
gæslan myndi styrkjast og
ríkjandi ástand varðveit-
asL Síðan er það auðvitað
valkostur, að fara í harða
vinstristjóm margra
flokka, sem ekki yrði góð-
ur kostur fyrir efnahagslff-
ið og velferðarkerfið þegar
til lengdar léti, því keifið
þolir ákaflega iila óráðsíu,
skuldasöfnun, verðbólgu
og vaxtaholskeflur. Mér
líst illa á það bögglaupp-
boð sem nú fer fram í stjómarand-
stöðuflokkunum. Þriðji valkosturinn
- og sá eini sem eftir er - er áfram-
hald á ríkisstjóm með Sjálfstæðis-
flokki með því skilyrði að frjálslynd-
ari og umbótasinnaðri hlið hans fái
að njóta sín.“
Semsagt, þér líst best á áfram-
haldandi Viðreisn II og að bjarga
þannig Sjálfstæðisflokknum frá
sjálfum sér?
„Já. Annars held ég að átakalínur í
gríðarlega stómm hagsmunamálum
þjóðarinnar liggi í raun þvert á stjóm-
málaflokkana. Þar mætti nefna hluti
á borð við afstöðuna til Evrópumál-
anna, samkeppni og opnunar, kjör-
dæmis- og kosningalaga, umbóta í
landbúnaði og sjávaiútvegi, tilurð
stórs atyinnumálaráðuneytis og þess-
háttar. I þessum málum og mörgum
lil viðbótar togast á andstæðir hópar,
en fulltrúa þeirra má finna í flestum
ef ekki öllum flokkum - nema ein-
um.“
Erunt við að horfa framá kosn-
ingar eftir gömlu kerfi uni málefni
sem ganga þvert á gömlu línurnar
og skapa nýjar?
, Já og ég tel að þama liggi sérstaða
Alþýðuflokksins fólgin því ég er þess
fullviss að full eindrægni ríki meðal
jafnaðarmanna í öllum þessum fyrr-
töldu málum.“