Alþýðublaðið - 17.03.1995, Qupperneq 16
16
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 17.-19. MARS 1995
V i ð t a I
Afhverju
inn
Hrönn
Hrafnkelsdóttir
Af því að hann er æðislegur.
Hildur Björk
Sigurbjörnsdóttir
Alþýðuflokkurinn er heiðarlegur
og róttækur umbótaflokkur; flokk-
ur sem þorir að framkvæma; flokk-
ur sem hefur skynsemina að leið-
arljósi í leit sinni að framtíðar-
lausnum.
Kjartan Emil
Sigurðsson
Alþýðuflokkurinn er einn flokka
um að geta boðið uppá skynsam-
lega og víðsýna utanríkisstefnu.
Hólmfríður
Sveinsdóttir
Mér líst vel á hvað Alþýðuflokkur-
inn ætlar að gera til nýsköpunar
fyrir ungt menntafólk.
Hrönn
Hrafnsdóttir
Alþýðuflokkurinn er eini stjórn-
málaflokkurinn sem þorir að
stefna til framtíðar - til Evrópu.
Steinn
Eiríksson
Alþýðuflokkurinn og ráðherrar
hans hafa staðið sig með afburð-
um vel í ríkisstjórn undanfarin átta
ár. Mér hefur litist sérstaklega vel
á aðgerðir í þágu iðnaðarins.
Vilberg Friðrik
Ólafsson
Alþýðuflokkurinn er eini flokkurinn
sem býður uppá raunverulega val-
kosti fyrir ungt fólk. Auk þess er
ungliðahreyfing hans yfirburða-
samtök.
■ Magnús Árni Magnússon heimspekinemi skipar 4. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins
í Reykjavík. Stefán Hrafn Hagalín settist niður með frambjóðandanum í gærkvöldi og ræddi við hann
um landsins gagn og nauðsynjar - og Ijóð... Og Ijóð...
„Hver dáð, sem maður-
inn drýgir, er draumur
um Konu ást"
Magnús Árni Magnússon: Ég held að allir sem málið þekkja séu sam-
máia um að unga kynslóðin í Alþýðufiokknum hafi sjaldan eða aldrei
verið eins sterk. Við erum mörg, við erum ákveðin og ráðin í að láta til
okkar taka. A-mynd: E.ÓI.
„Ungir jaftiaðarmenn lögðu ofur-
áherslu á að fá sína fulltrúa ofarlega
á lista víðsvegar um landið. Þá urðu
þeir að gjömýta sitt reyndasta fólk.
Hér stend ég og get ekki annað, guð
hjálpi mér amen,“ segir Magnús
Arni Magnússon heimspekinemi
sem skipar 4. sætið á framboðslista
Alþýðuflokksins í Reykjavík. Magn-
ús Ami er 27 ára gamall, yngsti son-
ur hjónanna Magnúsar Bærings
Kristinssonar fyrrverandi skólastjóra
og Guðrúnar Sveinsdóttur sérkenn-
ara. Hann er giftur Sigriði Björk
Jónsdóttur sagnfræðinema og býr
með henni í fallegu timburhúsi við
Grettisgötu. Magnús Ami er bjartur
yfirlitum og glaðhlakkalegur, útskei-
fur, hrifnæmur og opinn fyrir nýj-
ungum. Hann hefur reynt eitt og ann-
að; hluti sem spanna allt frá for-
mennsku nemendafélags Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og leiklistamámi
til hljóðlátrar iðkunar andlegra
fræðistarfa og náms í Söngskólan-
um. Umfram allt þetta er náungi sem
veit lengra nefi sínu og var ekki
fæddur í gær.
Þú byrjaðir ungur að skipta þér
af stjórnmálum.
„Eg byijaði þegar ég fékk kosn-
ingarétt, við átján ára aldurinn. Ég
gekk í Félag ungra jafnaðarmanna í
Kópavogi í kringum sveitarstjómar-
kosningamar 1986. Það hefur sjálf-
sagt haft sín áhrif að bróðir minn,
Kristinn O. Magnússon, var í fram-
boði fyrir Alþýðuflokkinn og varð
fyrsti varabæjarfulltrúi og sfðar bæj-
arfulltrúi þegar Rannveig Guð-
mundsdóttir fór á þing. Hann dró sig
síðan að mestu út úr stjómmála-
vafstrinu, en eftir sat ég, pikkfastur í
netinu."
Og á þig hlóðst væntanlega
ótölulegur fjöldi af embættum...
„Ég hef löngum verið mikil fé-
lagsvera og má varla detta inná fund
neinsstaðar án þess að vera kosinn í
stjóm, nefnd eða einhver leiðindi.
Með ámnum hefur maður orðið að
taka sig á og læra að velja og hafna.
Innan hreyfingar ungra jafnaðar-
manna var ég formaður utanríkis-
málanefndar um fjögurra ára skeið,
síðan varaformaður og loks formað-
ur á síðasta ári. Þá ákvað ég að láta af
embættum innan sambandsins, en
læstist svo inni í ffamboðsmálum
flokksins, þar sem ungir jafnaðar-
menn lögðu ofuráherslu á að fá sína
fulltrúa ofarlega á lista víðsvegar um
landið. Þá urðu þeir að gjömýta sitt
reyndasta fólk. Hér stend ég og get
ekki annað, guð hjálpi mér amen.“
Er þetta ekki góður tímapunkt-
ur í viðtalinu til að fara með svo-
sem einsog eitt ljóð?
,Jú, hér er eitt eftir Stefán frá
Hvítadal sem heitir Þér konur:
Þér konur, sem hallimar hœkkið
og hefjið mannanna sonu,
hve Eysteins Lilja er innjjálg
afást hans til jarðneskrar konu.
Þér hœkkið vort andlega heiði,
uns himnamir opnir sjást.
Hver dáð, sem maðurinn drýgir,
er draumur um konu ást.
Var þetta ekki ágætt?"
Aldeiiis fínt. Aftur að pólitík-
inni: Ég heyri að utanríkismálin
hafa fengið sitt pláss í þínu lífi.
Liggja þar helstu áhugasviðin?
,Já, ætli það megi ekki skilgreina
mig einhvem veginn á þann hátt ef
menn endilega vilja."
Menn endilega vilja...
„Þá má hinsvegar ekki gleyma því
að tenging okkar við Evrópu er eitt-
hvað miklu meira en
utanrikismál. Hún er
miklu frekar lífsspurs-
mál. Um daginn var ég
á fundi með fulltrúum
annarra stjómmála-
floka og þar var einn
aðilinn sem lá mér sér-
staklega á hálsi fyrir að
tala allan tímann um
Evrópusambandið og
koma aldrei til íslands,
eins og hann orðaði
það. En Evrópusam-
bandsmálið er nú einu
sinni eins íslenskt og
það getur orðið. Það
snýst um það hvort við
Islendingar viljum
skipa okkur í ffemstu
röð evrópskra lýðræð-
isríkja eða ekki. Það
snýst um h'fsafkomu
okkar hér á landi á 21.
öldinni, það snýst um
atvinnutækifæri ffam-
tíðarinnar, að bjóða
best menntuðu kynslóð
fslandssögunnar, ungu
kynslóðinni í dag, upp
á störf á íslandi við sitt
hæfi. Það snýst um að
fá hingað til lands vel
launuð störf. Ég elska
Island og vil hvergi
annarsstaðar búa. Þess-
vegna er það skylda
mín sem Islendings að
berjast fyrir því að ég
og rrn'n kynslóð höfum
eitthvað hingað að
sækja þegar við ljúkum
okkar námi.“
Nú hefur verið
mikið rætt um að ís-
land græði svo og svo
mikið við inngöngu
og komist í allskonar
digra sjóði án þess
varla að þurfa koma
með krónu á móti.
Ætlar ísland að fara
inn í Evrópusam-
bandið einsog einhver
betlikerling?
„Ég vil helst af öllu
að íslendingar taki þátt
í alþjóðasamstarfi á
jafnréttisgrundvelli. Við myndum
þurfa að greiða eitthvað til Evrópu-
sambandsins eins og allar aðildar-
þjóðir. Einhveijir íslendingar, eins
og bændur, listamenn og menningar-
stofnanir myndu vafalaust fá ýmsa
styrki, en gróði íslenskra heimila
yrði mestur, því það er fyrirliggjandi
að strax á fyrsta degi aðildar myndi
matvælaverð lækka um 35 til 40 pró-
sent. Gróðinn yrði líka sá að landið
yrði fýsilegri kostur til fjárfestinga,
þannig að hér myndu skapast fleiri
vel launuð störf. Við verðum engin
betlikerling, síður en svo.“
Ykkur ungum jafnaðarmönn-
um hefur orðið tíðrætt um að
tengingin við Evrópu séu jafn
mikilvæg í menningarlegu tilliti og
efnahagslegu.
„Já, það er rétt að okkar rök eru
fyrst og fremst menningarleg. Við
erum Evrópuþjóð og við viljum eiga
samleið með öðrum slíkum. Við telj-
um að íslenska þjóðin sé mikilvægur
kafli í því tónverki sem evrópsk saga
og evrópsk menning er. Við höfum
varðveitt betur en flestar þjóðir arf-
leifð hinnar fomgermönsku þjóðar
og án hennar væri Evrópa fátækari
en hún er. Evrópusambandið leggur
mikið upp úr fjölbreytni álfunnar og
margbreytileika. Við höfum mikið
að gefa og einnig mikið að þiggja."
Er mikil starfsemi meðal ungra
jafnaðarmanna þessa dagana?
„Ég held að allir sem málið þekkja
séu sammála um að unga kynslóðin í
Alþýðuflokknum hafi sjaldan eða
aldrei verið eins sterk. Við emm
mörg, við eruin ákveðin og ráðin í að
láta til okkar taka. Enda skynjar unga
fólkið hve brýnt það er að sá boð-
skapur sem jafnaðarmenn hafa fram
að færa fái að heyrast og hafa áhrif
og leiða okkur inn í nýja öld.“
Hvernig á ungt fólk að taka af-
stöðu samanber samnefnt átak?
„Ef ungt fólk kynnir sér málin for-
dómalaust, þá er óttast ég ekkert fyr-
ir hönd okkar jafnaðarmanna. En
það er annað sem er brýnna. Stjóm-
málaflokkur er ekkert annað en fólk-
ið sem í honum er. Jafnaðarstefnan
rímar við það sem stór hluti ungs
fólks trúir á. Það verður að ganga til
liðs viðjafnaðarstefnuna, þvf jafnað-
arstefnan getur ekki gengið til liðs
við neinn. Hún er hugsjón og um
hana er til gamall flokkur með síung-
ar hugmyndir. Það er flokkur sem
hlustar. Auðvitað er enginn flokkur
þannig gerður að menn geti verið
sammála öllu sem hann segir og sátt-
ir við alla í honum. Það væri þá al-
deilis heilaþvottur sem færi þar fram.
Alþýðuflokkurinn er ekkert annað
en tæki þeirra sem aðhyllast jafnað-
arstefnu til að breyta þjóðfélaginu.
Þetta er lýðræðislegur llokkur og þar
breyta ntenn og vinna á grundvelli
lýðræðisins, þess sem gefur okkur
nafn sitt í erlendum tungumálum,
sósíal-demókratí og okkur íslensk-
um jafnaðarmönnum gælunafn:
krati."
Stefnir þú einsog flestallir hinir
ungpólitíkusarnir á að verða at-
vinnupólitíkus eða embættismað-
ur?
„Ég stefni nú að því einu að jafn-
aðarmenn vinni sigur
áttunda apríl. Þá taka
prófin í Háskólanum
við. Ég klára heim-
spekina í vor eða í
haust. Svo langar mig
til útlanda í ífekara
nám. Nema ég detti inn
á þing. Þá mun ég berj-
ast fyrir stefnumálum
nýrrar kynslóðar jafn-
aðarmanna á þeim vett-
vangi. Evrópumálin
eru þar sýnu brýnust,
sem lykill að lausn
annars vanda.“
Nú hefur síðasta
kjörtímabil verið erf-
itt fyrir Alþýðuflokk-
inn. Hann hefur með-
al annars verið ásak-
aður fyrir spillingu.
Af hverju? Hvað
gerðist?
„Alþýðuflokkurinn
er ekki spilltari stjóm-
málaflokkur en hinir og
til muna skárri ef málið
er skoðað fordóma-
laust. Það sem forysta
flokksins talar stundum
um sem helsta kost
hans, það að hann sé
ekki bundinn á klafa
neinna sérhagsmuna, er
einnig hans helsti veik-
leiki. Hann á sér enga
öfluga málsvara úti í
þjóðfélaginu aðra en
flokksmenn sjálfa. Þess
vegna liggur þessi
valdamikli og skeleggi
stjómmálaflokkur svo
vel við höggi og engir
þjóðfélagshópar tala
máli hans þegar illa
viðrar. Þess vegna
verður líka erfiðara fyr-
ir flokkinn að réttlæta
það þegar hann misst-
tígur sig. Flokkar eins
og Framsóknarflokkur-
inn og Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa vísað
til málefna eins og
byggðastefnu, stuðn-
ings við bændur og að-
stoðar við sjávarútveg-
inn eða að þeir séu að renna stoðum
undir nýja atvinnuvegi, þegar þeir
eru í raun að afhenda gæludýmm
sínum og flokksgæðingum millj-
arðatugi af almannafé. Þessi gælu-
dýr, sem oft hafa öflug hagsmuna-
samtök að baki sér, tala svo til stuðn-
ings óráðsíunni eins og þeir eigi lífið
að leysa. Þetta slær ryki í augu lands-
manna sem er auðvitað vel við
bændur, sjómenn og nýja atvinnu-
vegi, og því sjá þeir ekki í gegnum
blekkingarvefinn. Þetta er hin raun-
vemlega spilling sem jafnaðarmenn
em að berjast við og vegna þess að
gríðarlegir hagsmunir gæludýranna
em í húfi, er ekkert tækifæri látið
ónotað til að koma höggi á Alþýðu-
flokkinn."
Hver eru helstu sóknarfæri
flokksins í kosningunum?
„Við megum ekki láta huglausa
stjómmálamenn annarra flokka
svæfa það mikilvæga mál sem ffam-
tíð íslands í alþjóðlegu samhengi er.
Þar munum við beita okkur og þar
liggja sóknarfærin."
Þetta var svo ágætt Ijóð hjá þér
áðan lumarðu ekki á fleiri slíkum?
„Nei. Nú er nóg kontið. Slepptu
mér.“