Alþýðublaðið - 17.03.1995, Side 17
HELGIN 17.-19. MARS 1995
V
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
17
i ð t a I
■ Bryndís Bjarnadóttir, 22 ára heimspekinemi, skipar 16. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins
í Reykjavík. í samtali við Stefán Hrafn Hagalín ræðir hún um líf sitt og tilveru; uppeldið, stjórnmálaþátttökuna
og gildi þess að taka afstöðu, sinnuleysi X-kynslóðarinnar, heimspekina, draumana um skáldalíf að hætti afa
síns, og klykkir að lokum út með brandara sem Stefán Hrafn fattaði vitaskuld ekki
langar til
setjastað
munkamaustri
- og stunda þar íhugun og ritun bóka, segir Bryndís.
„Hugmyndin á bakvið þessa X-
kynslóðar-nafngift gengur útá það, að
unga kynslóðin í dag eigi sér engar
hugsjónir og sé almennt dofin gagn-
vart því samfélagi sem hún lifir í. Og
það er bara hárrétt því unga kynslóðin
sefur vissulega fast á meðan hún flýt-
ur að feigðarósi félagslegs sinnuleys-
is. Það er tími tilkominn fyrir okkur
öll að vakna og...taka afstöðu," segir
Bryndís Bjamadóttir, 23 ára heirn-
spekinemi, sem skipar 16. sæti á fram-
boðslista Alþýðuflokksins í Reykja-
vík. Hún er alin upp í Garðabænum,
dóttir Bjama Ágústssonar verkstjóra
og Sóleyjar Brynjólfsdóttur, gekk í
Flataskóla og síðar í Gagnfræðaskól-
ann í Gatðabæ. Að þvf loknu settist
Bryndís í hinn fomlfæga Menntaskóla
í Reykjavík og þaðan lá leiðin eftir
tveggja ára námshlé í heimspeki við
Háskóla íslands. Konan er eldklár,
skemmtileg og gullfalleg, stöðugt
hlæjandi og hvatvís á ögn stressaðan
hátt - skemmtileg, lumar stöðugt
lúmsk á óvæntum spumingum, svör-
um og hugdettum af ýmsum toga:
uppátækjasöm og er vissulega hvergi
bangin við að bjóða heiminum birg-
inn.
Ljúkum fyrirsætuhlutanum í
snarhasti af, j)ú ert án vafa orðin
leið á að tala um þetta. Hvernig
kom „bransinn“ til?
„Það kom Ijósmyndari niður í
Gagnfræðaskóla til að taka mynd af
skólastjóranum og hann sá mig á
vappi með öðmm nemendum í frí-
mínútum. Ljósmyndarinn spurði mig
hvort ég væri til í að láta mynda mig í
bak og fyrir og ég sagði já. Uppfrá þvf
starfaði ég að mestu erlendis; fór fyrst
út þegar ég var fjórtán ára og þá til
London í tvo mánuði. Tók mér svo eitt
ár í frí, en var eftir það öll sumur í út-
löndum að vinna.“
Þetta hljómar sem h'tið mál.
Varstu frakkur krakki?
,JJei, ég var nú ffekar óömgg og
vildi helst ekki vera í sviðsljósinu.
Einhvem veginn álpaðist ég þó þama
inn.“
Hvar og á hverra vegum varstu
við fyrirsætustörf?
.fyrst fór ég til London semsagt,
síðan til Mílanó í þrjú sumur, var í
París um tveggja ára skeið og einnig
hef ég unnið í Áusturríki og svo I New
York í fyrra. Skrifstofumar sem ég hef
unnið fyrir em Elite og Ford og
Metropolitan í París.“
Er það rétt að þú sért hætt?
,Já, ég ætla sennilega að fara út í
sumar og láta það gott heita. Ég er
orðin frekar þreytt á þessari vinnu sem
kallar á eilíft puð og aukaálag síðan
við að innheimta vinnulaun og þess-
háttar. Ég var eiginlega á tífnabili að
velta því fyrir mér að stofna verka-
lýðssamtök fyrirsæma því við virð-
umst alltaf þurfa að bíða í tvo til þrjá
mánuði eftir að fá launin okkar greidd.
Þegar við loksins fengum launin var
búið að taka sjötíu prósent þegar verst
lætur, fjörtíu prósent af þessum þijátíu
sem eftir vom fóm í skatta og þijátíu
til viðbótar til umboðsmannsins. En
nú ætla áð snúa við blaðinu og leggja
stund á andleg málefni í heimspek-
inni. Þetta er auðvitað kúvending eftir
að hafa lifað nokkuð lengi í heimi efn-
islegra gæða.“
Tafðistu ekkert í námi vegna allr-
ar þessarar vinnu?
„1 raun og vem ekki. Ég kláraði
Menntaskólann í Reykjavík á réttum
tíma og fór síðan út til Parísar í eitt ár
til að finna út hvað ég ætti að gera við
sjálfa mig í framtfðinni. Upphaflega
ætlaði ég að fara í listasögunám í Berl-
ín. Það kom þannig til að ég kynntist
listamanni í París sem hafði lært lista-
söguna af póstkortum. Ég ákvað að
prófa það og keypti mér þúsund póst-
kort eða svo - og var meira að segja
búin að koma mér upp ákveðnu kerfi.
Þetta var ansi sniðugt fannst mér. Svo
gerðist það að ég asnaðist hingað
heim í ágústmánuði og sótti um í Há-
skólanum. Fyrst var ég að spá f sál-
fræði eða lögfræði, en slysaðist síðan
inní heintspekina með þeim afleiðing-
um að mér finnst ég vera að endur-
fæðast á hveijum degi; slíkan undra-
heim hefur heimpspekin opnað í hug-
arskoti mínu.“
Hvað lærir maður eiginlega í
heimspeki?
„Hmmm... Listina að lifa? í heim-
speki lærir maður ekki allt og ekkert;
ást og visku, tilgangs lífsins, óveruna,
raunvemleikann, sálina, líkamann ást
og visku. Maður heyrir það nú á flest-
um að menn líta ekki á heimspekina
sem almennilegt nám - ekki frekar en
aðrar greinar húmanfsku greinanna;
að þetta séu allt hálfgerð kjaftafög.
Mér finnst sjálffi að heimspekinámið
sé afar gagnlegt nám fyrir lífið og til-
vemna og kemur inná ótalmörg svið;
er á vissan hátt sjálfskönnun og ákaf-
lega þroskandi sem slíkt. Nýjar gáttir
opnast. Em ekki mörg fyrirtæki farin
að ráða heimspekimenntaða yfirmenn
sem kannski hafa sérmenntað sig í
öðm? Maður er allavega að heyra það
þannig að heimspekin hlýtur að vera
praktískt nám.“
Hvað kom þér mest á óvart við
heimspekina?
„Fyrst fannst mér þetta ákveðin
hringferð, maður kæmist ekki að
neinni niðurstöðu og væri alltaf að elt-
ast við skottið á sér. Allt til þess eins
að uppgötva síðan að maður hefði vit-
að lengi og löngu spáð í. Þama í fyrstu
varð mér oft hugsað til þess með hryll-
ingi, að ef til vill hefðu úrtölumennim-
ir réit fyrir sér og heimspekin væri
handónýtt fag. Ég hélt samtsem áður
áfram og ætla að klára námið."
Er hringferðin kannski tilgangur
í sjálfu sér?
,Já, afhveiju ekki? Ég skil ekki að
það þuríi allsstaðar að vera tilgang að
finna. Maður á stundum bara að vera.“
Afhverju eru fáir kvenkyns
heimspckingar nafnkunnir?
„Ég er sífellt að spyrja blessaða
heimspekikennarana mína að þessu,
vegna þess að ég er orðin svo þreytt á
því að sjá skína í gegnum heimspeki-
söguna þessa ofuráherslu á skynsem-
ina; hina köldu rökhyggju sem segir
að engar tilfinningar sé að finna í
skynseminni og öfugt. Kvenheim-
spekingamir em auðvitað til þótt þeir
séu fáir, en karlamir- sem em allsráð-
andi í heimspekinni við Háskóla ís-
lands - kenna auðvitað ekki fræði
kvenheimspekinganna. Tilfinningam-
ar lenda alltaf í því að vera þaggaðar
niður. Virkilega heimskulegt."
Hvað ætlarðu að gera að heim-
spekináminu loknu?
,JVlig langar í augnablikinu til að
setjast að í munkaklaustri á eyðieyju
og stunda þar íhugun og ritun bóka.“
Afhverju munkaklaustur? Þú ert
nú einu sinni kona...
,Já, þetta er dálítið skondið. Ég fór
nefnilega til miðils um daginn og hún
sagði að ég hefði verið munkur í fyrra
lífi - ekki nunna. Miðillinn sá fyrir sér
risastórt skrifborð og fullt af bókum
og mér fannst þessi hugmynd passa
velvið mig.“
í munkaklaustri... Áttu ekki
þcnnan fína kærasta?
,Jú, reyndar..., ég og Glúmur
Baldvinsson höfum verið saman í
fimm ár. Ég veit ekki hvort það geng-
ur í ættir, en Jón Baldvin hefur stund-
um kallað hjónaband sitt og Bryndísar
þijátíu ára stríðið og ég kalla samband
okkar Glúms fimm ára stríðið. Við
höfum á stundum siglt seglum þönd-
um í gegnum þetta allt saman og það
hefur auðvitað framkallað mikla
spennu sem síðan gerir hversdagsleik-
ann erfiðari fyrir vikið."
Yfir í póiitfldna: Þú ert þekkt fyr-
irsæta í 16. sæti á framboðslista sem
faðir kærasta þíns leiðir og ýmsir
hafa við það kvikindislegar athuga-
semdir. Hvað finnst þér um það?
„Það angrar mig h'tið þótt einhveij-
ar smásálir velti fyrir sér: Hvem and-
skotann er þessi Bryndís Bjamadóttir
að gera þama á listanum? eða Hvað er
þessi fegurðardmsla að trana sér fram
í stjómmálum? Þegar maður mætir
uppí skóla alls ófeimin með barm-
merki og þessháttar þá skáskýtur fólk
til að mynda á mann augunum, en ég
er bara glaðhlakkaleg."
Afhverju fórstu inná þessa
braut; stjórnmál?
,JÉg tel afar mikilvægt að ungt fólk
taki virkan þátt í að láta hugsjónir sem
vaiða almannaheill verða að vem-
leika. Ég treysti engum betur en Al-
þýðuflokknum til að leiða okkur ís-
lendinga til bjartari og ömggari fram-
tíðar. Þetta er eini flokkurinn sem hef-
ur mótað sér skýra stefnu um það
hvemig leysa eigi eilífðarvandann.
Innganga í Evrópusambandið er á
dagskrá, takk fyrir. Það þýðir ekki að
segja mér, að það sé ekki á dagskrá, að
auka menntun og atvinnumöguleika,
tryggja fijálst flæði vöm og mannafls,
tollfrelsi og þessháttar. Lausnin á ei-
lífðarvandanum felst í losun hafta og
eyðingu margra ára einokunar og fá-
keppni hér á landi. Við verðum að
skyldi halda það af litlu áliti þeirra
hingaðtil allavega á beinni og virkri
þátttöku í stjómmálum. Átakið Ungt
fólk takið afstöðu snýst um það, að
æska þessa lands hætti sínu uppgjafar-
háttemi og fari til beinnar þátttöku. Og
ég gerði það: skellti mér í slaginn."
Ætlar nú X-kynslóðin að reka af
sér slyðruorðið?
,Já, hugmyndin á bakvið þessa X-
kynslóðar-nafngift gengur útá það, að
unga kynslóðin í dag eigi sér engar
hugsjónir og sé almennt dofin gagn-
vart því samfélagi sem hún lifir í. Og
það er bara hárrétt því unga kynslóðin
sefúr vissulega fast á meðan hún flýt-
ur að feigðarósi félagslegs sinnuleys-
is. Það er tími tilkominn fyrir okkur
öll að vakna og.. .taka afstöðu."
Nú hefurðu kynnst lífi stjóm-
málamannsins í gegnum heimilis-
fólkið að Vesturgötu 38..., heillandi
h'f?
„Nei, það fmnst mér alls ekki og sú
er einmitt ástæðan fyrir því að ég hef
Bryndís Bjarnadóttir: Unga fólkið hefur of lengi látið sig það litlu skipta
hvernig lífskjörum verði háttað hér á landi í framtíðinni og hvaða
menntunar- og atvinnumöguleikar bjóðist. Átakið Ungt fólk takið af-
stöðu snýst um það, að æska landsins hætti sínu uppgjafarhátterni og
fari til beinnar þátttöku. Og ég gerði það: skellti mér í slaginn. A-mynd: E.ÓI.
skoða inngöngu sem raunhæfan
möguleika. Eg segi bara: Davíð, þú ert
ekki á dagskrá.
Hvaða mál finnst þér mikilvæg-
ust í stefnu flokksins?
„Ég læt mig Eviópumálin mestu
vaiða og vitaskuld menntamálin -
verandi heimspekinemi. Fyrir stuttu
var haldinn fundur í Háskólabíó undir
yfirskriftinni Ungt fólk takið afstöðu
eftir samnefndu átaki stjómmála-
fræðinema sem stefnir að því að gera
ungt fólk meðvitaðra um þjóðfélag
sitt; taki afstöðu og virkan þátt. Ungt
fólk hefur þvf miður lengi kvartað
miskunnarlaust um að hér á landi sé
ekkert að fá og úr engu sé að moða -
það hafi engin áhrif, en samt skirrist
það við að taka afstöðu og taka þann-
ig þátt í að móta eigin framtíð. Þetta er
áberandi afstaða og unga fólkið hefur
of lengi látið sig það litlu skipta hvem-
ig lífskjörum verði háttað hér á landi í
framtíðinni og hvaða menntunar- og
atvinnumöguleikar bjóðist. Maður
haldið mig fjarri stjómmálunum
þangað til núna - ásamt því að ég taldi
mig ef til vill ekki hafa þroska í átökin
við hákarlana í stjómmálahafinu. Nú
langar mig hinsvegar að fullnægja
eigin metnaði og innri þörf til þess að
vinna góð framfaraverk í þágu heild-
arinnar; samfélagsins."
Einhver sagði mér að þú værir
alin upp á helbláu íhaldsheiniili og
ofaná það bætist svo bærinn:
Garðabær, eitt af höfuðvígjum
Sjálfstæðisflokksins. Eru átök á
heimilinu?
„Foreldrar mínir em að snúast...,
held ég. Það getur verið að þau séu
bara svona montin af mér, en ég er
allavega búin að koma því til leiðar að
í fyrsta skipti í mörg ár em stjómmál
rædd á jressu heimili. Það var aldrei til
siðs heima áður íyrr og hreinlega
þaggað niður - algjört tabú. Meira að
segja [regar ég sem unglingur byrjaði
að inóta mínar eigin stjómmálaskoð-
anir og reyna ræða þær við eldhús-
borðið kom aldrei til greina af þeirra
hálfu að láta etja sér útí slíkt.“
En nú eru þau semsagt að
sprínga úr stolti?
,Já. Mamma hefur til dæmis sett
upp barmmerki jafnaðarmanna og fer
með þau ótrauð í saumaklúbbinn; hún
er líklegri en pabbi til að kjósa Al-
þýðuflokkinn enn sem komið er - en
ég er að vinna í honum og hef trú á að
hann gefi sig.“
Hvemig líður Bryndísi Bjama-
dóttur frambjóðanda?
,Jvlér leið svolítið asnalega á fyrsta
fundinum þegar listinn var kynntur og
mér fannst fólk eiginlega líta á hvort
annað með spumarsvip. Líklegast var
það bara ímyndun. Vinum mfnum líst
vel á Jtetta - sérstaklega þeim sem em
í Háskólanum og hafa ágætis bein-
tengingu þar við stjómmálin. Mér
’ sýnist aðrir vinir mínir annars hálf-
áhugalausir um stjómmál og helst
hafðar áhyggjur af því hvar ódýrasti
bjórinn fæst.“
Það er nú mikið alvömmál, þetta
með ódýra bjórinn.
,Já, og ber auðvitað ekki að van-
virða það á neinn hátt.“
En þú hefur væntanlega mikið
gaman af þessu streði?
„Hvemig getur maður annað? Þetta
er allt svo jákvætt í AI-
þýðuflokknum og bjart-
sýni ríkjandi á útkomu
kosninganna. Ég hef
síðan reynt að vera dug-
leg að mæta á hina og
þessa fundi og fylgjast
með. Mér líst gríðarlega
vel á hópinn sem skipar
listann og sérílagi er
mikið af efnilegu æsku-
fólki á honum.“
Er ekki mikið að
gera hjá ungum fram-
bjóðanda sem er sam-~*
tímis að lesa undir vor-
próf í Háskólanum?
„Ég hef í öllu falli
varla stoppað síðustu
daga og sofið lítið í sam-
ræmi við það. Ég er
einnig að skipuleggja
árshátíð Soffíu, félags
heimspekinema, þar
sem ég verð veislu-
stjóri."
Færum okkur burtu
frá stjórnmálunum.
Hvað langaði þig sem
telpuhnokka að verða
þegar þú myndir vaxa^,
úr grasi?
„Rithöfundur. Ég ætl- -
aði alltaf að feta í fótspor
afa míns, Stefáns Jóns-
sonar. Ég var hálfskrýtin
sem bam; vaknaði jafn-
vel upp á nóttunni til að
skrifa. Þetta var svo
mikið leyndarmál, að ég
læsti herbergishurðinni.
Kaldasta homið þar varð
minn staður og ég sat
þar löngum stundum og
skrifaði."
Kaldasta staðinn,
segirðu. Hafði þar
áhrif goðsögnin um að-**
skáldum verði að líða
illa til að geta afrekað
eitthvað?
,Já, sársaukinn og þjáningin draga
fram tilfinningamar úr afkimum hug-
ans. Það var svona nettur masókisti í
mér þá.“
Draumhugi frekar. Er mikil
rómantík í þér?
„Einhvers staðar er hana að finna,
já. Stundum finnst mér hinsvegar að
hún villist af leið og gleymist. Því er
nú verr.“
Kanntu einhvem brandara?
.Allavega einn sem ég er að hugsa
um að segja á árshátíð heimspeki-
nema: Það var eitt sinn heimspekingur
að nafni Isah Berlin sem fór ásamt
nokkmm merkilegum hugsuðum -
þar á meðal David Hume og fleiri'"
góðum köppum - á eyðieyju hvar
komið hafði verið upp nektamýlendu
fyrir karlmenn. Síðan slysaðist þannig
til að þrjár fínar frúr dúkkuðu upp á
eynni og allir karlmennimir breiddu
vitaskuld yfir sinn viðkvæmasta stað á
milli stómtánna í miklum flýti - eða
allir nerna einn því Isah þessi Berling
breiddi yfir höfuðið."
Ha.„?
,Já, sko þetta er yfirvegunin: að
breiða yfir höfuðið því þannig átti
enginn möguleika á að þekkja hann.
Sniðugur."