Alþýðublaðið - 07.12.1995, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 07.12.1995, Qupperneq 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ HELGIN 7. - 10. DESEMBER 1995 4 JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Það er mín skoðun að láta eigi uppsögn kjarasamninganna gilda og taka slaginn. Halldór Björnsson varaformaður Dagsbrúnar í samtali við DV í gær. Hitt er merkilegra að engar konur skyldu láta sjá sig í nektarröðinni í Aust- urveri, enda hefði það verið ólíkt betra myndefni. Dagfari DV í gær. Fjölmiðlar og aðrar kjaftandi stéttir segja okkur það hundrað sinnum á dag að samkeppnin sé það afl sem leysir vanda og hnúta og bætir úr böli. Árni Bergmann í DV í gær. Við, Pollýönnurnar, megum ekki til þess hugsa að menn búi hér í ósátt við sína ófullkomnu þjóð og leggi á sig, og okkur hin, ómældar píslir við að þola hér við. Úr lesendabréfi i DV i gær. Jafnvel þó að menn séu styttri tíma í rigningu ef þeir hlaupa en þegar þeir ganga, verða menn jafnblautir í lokin. Morgunblaðið í gær. Hann hefur einnig reynst okkur ánægðum viðskipta- vinum sínum vel með alls kyns „sprengjutilboðum þegar við á. Hann er bestur á sínu sviði. Aðdáandi Jóhannesar í Bónus í lesendabréfi í Morgunblaðinu í gær. f réttaskot úr f ortíð Að flengja þá! Bændur eystra kvarta sáran undan drykkjuskap Reykvíkinga þeirra, er komu á Skeiðarétt, og töluðu um að réttast væri að flengja þessa óróaseggi og lögbrjóta. Töldu sennilegt, að öðmvísi yrði þeim lítt hegnt, jafnvel þó nöfn þeirra væm skráð. Leitt er til þess að vita að höfuðstaðarbúar skuli fá óorð á sig til sveita, vegna nokkurra drykkjuslána, sem em að flækjast sjálfum sér til skammar og öðmm. Alþýðublaðið 27. september 1920 Hvers konar flokkur? í seinasta pallborði (30/11) spurði ég, hvers vegna þeir (þær) hefðu hæst um sameiningu jafnað- armanna, sem harðast hefðu gengið fram í því að sundra jafnaðarmönn- um? Til dæmis hefur aldrei fengist trúverðug skýring á því, hvers vegna Jóhanna Sigurðardóttir fann það allt í einu út, eftir 7 ára setu í ráðherrastól á vegum Alþýðu- flokksins, að hún gæti ekki lengur Háborðið Jón Baldvin Bljr, ,w-.. * ■. Hannibalsson 1 ; ,f skrifar j starfað innan flokksins? Ef skýring- in á að heita sú, að hún hafi ekki getað starfað með mönnum eins og undirrituðum, þá hlýtur að vakna sú spuming hvemig hún uni hag sín- um í félagsskap Agústar Einarsson- ar? Þeir sem fylgst hafa að undan- fömu með málflutningi Ágústar á þingi, til dæmis í landbúnaðarmál- um, um framkvæmd GATT-samn- ingsins, um veiðileyfagjald og bú- vörusamning, eiga bágt með að heyra mun á málflutningi mínum og Ágústar. Og ekki nema von, því hann er enginn. Ágúst hafði nefni- lega þessa heimanfylgju með sér úr Alþýðuflokknum og heldur áfram að fylgja stefnunni óbreyttri. Þeir sem hafa hins vegar kynnst Ágústi við samningaborð, sem formanni samninganefndar ríkisins, halda því að vísu fram að fenginni reynslu að Ágúst sé mun ósveigjanlegri við samningaborðið en undirritaður. Trúlega vomm við of undanláts- samir og leiðitamir Jóhönnu - eða hvað? Alla vega vefst það fyrir manni, þótt allur sé af vilja gerður að skilja, hvemig það að smækka jafnaðar- mannaflokkinn geti verið rétta leið- in til að stækka? Stóri flokkurinn Og svo er það þetta með „Stóra flokkinn". Menn eru orðnir leiðir á smáflokkatilverunni og láta sig dreyma um stóran flokk. í huga flestra er undirskilið: Stóran jafnað- armannaflokk, eins og annars staðar á Norðurlöndum. Þar hafa jafnaðar- mannaflokkamir, með verkalýðs- hreyfinguna að bakhjarli, mælst af stærðargráðunni 35-45% áratugum saman. Þessir flokkar - jafnaðar- mannaflokkar á Norðurlöndum og annars staðar í N-Evrópu, em marg- ir hveijir að fagna aldarafmæli sínu á þessum áratug. Þeir hafa yfirleitt verið stærsti stjómmálaflokkurinn (eða annar af tveimur tiltölulega jafnvígum) þar sem best hefur til tekist að byggja upp mannúðleg velferðarþjóðfélög í Evrópu. Islenska jafnaðarmannaflokkn- um - Alþýðuflokknum - var í ár- daga ætlað að feta í fótspsor þessara flokka. Fyrstu tvo áratugina vom Alþýðuflokkurinn og Alþýðusam- bandið ein skipulagsheild. En Al- þýðuflokkurinn íslenski er 20-30 ámm yngri en bræðra- og systra- flokkamir í N-Evrópu. Jafnaðar- stefnan hafði því ekki náð að skjóta djúpum rótum í íslensku þjóðfélagi, hugmyndalega og skipulagslega, þegar áhlaup rússnesku byltingar- innar (1917) og djöfulsskapur milli- stríðsáranna braust út. Hann varð því veikari fýrir að standa af sér áhlaup kommúnista en hinir rót- grónu jafnaðarmannaflokkar á Norðurlöndum. Þeir hristu þetta af sér eins og hverja aðra óvæm. Þar urðu kommúnistaflokkamir yfirleitt ekki annað en tiltölulega fámennir og áhrifalausir sértrúarsöfnuðir menntamanna. Stóm jafnaðar- mannaflokkamir stóðu þetta af sér. Fyrir utan rangláta kjördæma- skipan og kosningalög var það sí- endurtekinn klofningur Alþýðu- flokksins sem olli því að stóri jafn- aðarmannaflokkurinn, sem alla dreymir nú um, varð ekki að vem- leika hér á landi. Alþýðuflokkurinn hefur klofnað ekki sjaldnar en 6 sinnum á 80 ára ferli sínum. Með hvaða afleiðing- um? Að sundra jafnaðarmönnum, veikja launþegahreyfinguna og færa Sjálfstæðisflokknum völdin á silfurfati. Eins dauði er annars brauð Hvað gekk öllu þessu fólki til, sem sífellt var að kjúfa jafnaðar- mannaflokkinn í smærra og smærra? Surrúr trúðu á Sovétið og hötuðu jafiiaðarmenn eins og pest- ina sem svikara við „málstað öreig- anna“. Þeir vildu reyndar heldur vinna með íhaldinu innan verka- lýðshreyfingarinnar en jafnaðar- mönnum, sem segirheilmikla sögu. Arftakar þessara manna vilja skilj- anlega sem minnst um jjetta tala nú- orðið - skiljanlega. Það breytir ekki því að þessi síendurtekna klofnings- iðja, hvemig svo sem hún hefur ver- ið réttlætt hveiju sinni, er megin- skýringin á því að draumurinn um stóra jafnaðarmannaflokkinn hefur enn ekki orðið að vemleika á Is- landi. Hitt liggur ekki eins í augum uppi en er engu að síður satt, að þessi sundrungariðja varð vatn á myllu Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðis- flokkurinn er stór af því að hið nátt- úrulega mótvægi hans, hreyfing jafnaðarmanna, er sundmð og sjálfri sér sundurþykk. Þetta er söguleg lexía sem þeir verða að læra, sem láta sig dreyma um stóra jafnaðarmannaflokkinn. Lexían er sú að jafnaðarmanna- Okkur vantar vissulega ekki fleiri flokka. En okkur vantar viti borna og fordómalausa umræðu, byggða á vitneskju um fortíðina og skilningi á framtíðinni, um þau málefni sem jafnaðarmenn eiga að geta náð samstöðu um. Lítið skref er upphafið að Iangri ferð. flokkurinn verður aldrei stór á Is- landi nema að Sjálfstæðisflokkur- inn verði minni. Þetta er eitt af því sem við getum lært af reynslu Ijöldaflokka jafnaðarmanna annars staðar á Norðurlöndum. Ef við not- umst við gömlu merkimiðana um hægri og vinstri þá spanna þessir flokkar vinstrið og vel yfir miðjuna. Hægri flokkamir á Norðurlöndum em með íylgi fráca 15% upp í 25%. Öfugt við Sjálfstæðisflokkinn ís- lenska em þeir tiltölulega klárir á sinni hugmyndafræði (markaðsbú- skapur + lágmarks ríkisafskipti). Uppistaðan í fylgi þeira er meðal sjálfstæðra atvinnurekenda, stjóm- enda fyrirtækja og effa lagsins í embættiskerfinu. Jafnaðarmannaflokkamir njóta fylgis yfirgnæfandi meirihluta laun- þega. (Undantekningamar em bændur sem yfirleitt em opinberir styrkþegar en reka eigin sérhags- munaflokka og hluti kennara og heilbrigðisstétta, sem virðast finna sér eðlilegt athvarf í litlum vinstri- sósíalistaflokkum). Verkalýðs- og launþegahreyfingin er yfirleitt heil og óskipt að baki jafnaðarmanna- flokkunum. Sennilega er það ekkert ejtt sem hefur valdið eins miklum usla í íslenskum stjómmálum og skemmdarstarfsemi kommúnista á sinni tíð innan verkalýðshreyfingar- innar. Sundmngariðja kommanna innan verkalýðshreyfingarinnar lamaði umbótaafl hreyfingarinnar á stjómmálasviðinu. (Verðbólgu- tímabilið frá stríðsámm fram á sein- ustu ár er að hluta til afleiðing þessa.) Að læra af reynslu annarra Það sem við þurfum að læra af reynslu jafnaðarmanna á Norður- löndum er meðal annars að leita svars við spumingunni: Hvemig fóm þeir að því að verða ráðandi 35-45% flokkar svo lengi sem raun ber vitni? Þeir vom undantekningarlaust harðir andstæðingar kommúnista og Ráðstjómarríkjanna. Frá og með millistríðsárunum (eða stríðsámn- um) vom þeir eindregið fylgjandi Magnús Þór Magnússon fram- kvæmdastjóri: Já, ég er mikill að- dáandi þessa áttræða snillings. Dóra Gunnarsdóttir nemi: Já, ég er það. Átti hann ekki 80 ára afmæli um daginn? Baldur Rúnarsson nemi: Já, ég hlusta mikið á hann. Valgeir Sigurðsson verslunar- maður: Eg hef mjög gaman að hlusta á hann en er enginn aðdáandi. markaðskerfi í efnahagsmálum. Markaðskerfið malaði gullið, sem dugði til að greiða reikninga vel- ferðarkerfisins. Velferðarrríkið evr- ópska, sem jafnaðarmenn em arki- tektar að, reis á hagvaxtarskeiði Evrópu eftir stríð. Vandi jafnaðar- manna nú og í framtíðinni er að reka velferðarríki - án hagvaxtar. Jafnaðarmenn hafa lært það af blóðugri sögu Evrópu að vera al- þjóðasinnar - ekki þjóðemissinnar. Jafnaðarmannaflokkamir em því víðast hvar eindregið íylgjandi sammnaferlinu í Evrópu, (þótt vissulega finnist minnihlutahópar á móti), enda fjölmennasti þingflokk- urinn í Evrópuþinginu í Strassburg. Þeir vita sem er að velferðarríkinu verður ekki lengur haldið uppi nema á gmndvelli samþjóðlegs samstarfs - út yfir landamæri þjóð- ríkja. Þeir vita sem er að þjóðríkið er of lítið til að leysa hin stóm vandamál samtímans; vandamál at- vinnuleysis, mengunar, alþjóðavið- skipta, ljárfestingar, félagslegra undirboða, svo eitthvað sé nefnt, kalla á samþjóðlegar lausnir. Hvað getum við lært af þessum flokkum? Þeir sem vilja byggja upp íjölda- flokk jafnaðarmanna á Islandi verða að reka pólitík sem skírskotar til jafnaðarmanna, þvert yfir núver- andi landamæri flokka. Island úr NATO - herinn burt, dugar ekki til þess. Barátta gegn EFTA og EES dugar ekki til þess. Andúð á NATO og sameiginlegu öiyggiskerfi lýð- ræðisríkjanna, dugar ekki til þess. Andóf gegn erlendu Ijármagni til uppbyggingar í atvinnulífinu, dugar ekki til þess. Þjóðemissinnuð ein- angmnarhyggja dugar ekki til þess. Tregða að viðurkenna jöfnun at- kvæðisréttar sem gmndvallarmann- réttindi, dugar ekki til þess. Varð- staða um óbreytt ástand í sjávarút- vegi og landbúnaði, dugar ekki til þess. Tillitsleysi til hagsmuna neyt- enda í þéttbýli dugar ekki til þess. Kröfugerð á hendur ríkinu um sjálf- virkan vöxt opinbera geirans, með hækkandi skattlagningu og skulda- söfnun, dugar ekki til þess. Og það þarf meira til: Stóri jafnaðarmanna- flokkurinn á nefnilega ekki að vera hagsmunafélag um óbreytt ástand, heldur róttækur umbótaflokkur og þar af leiðandi óbundinn sérhags- munum. Okkur vantar vissulega ekki fleiri flokka. En okkur vantar viti boma og fordómalausa umræðu, byggða á vitneskju um fortíðina og skiln- ingi á framtíðinni, um þau málefni sem jafnaðarmenn eiga að geta náð samstöðu um. Lítið skref er upphaf- ið að langri ferð. Höfundur er formaður Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands. Erla Ásmundsdóttir húsmóðir: Já, hann er æði. Ljúfur og fínn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.