Alþýðublaðið - 07.12.1995, Blaðsíða 10
VAKA-HELGAFELL
10
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 7. -10. DESEMBER 1995
Vetrareldur
- ef þú lest aðeins
eina skáldsögu á ári!
é
VAKA-HELGAFELL
SÍÐUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 550 3000
í skáldsögu sinni, Vetrareldur, skrifar Friðrik Erlingsson um
mannlega reynslu af miklu listfengi og er langt síðan íslenskur
skáldsagnahöfundur hefur fjallað um tilfinningar fólks af jafn
miklu innsæi. Á síðum bókarinnar lifna eftirminnilegar persónur
og kynnist lesandinn þeim í gleði og sorgum, vonum þeirra og
vonbrigðum, hamingju og nístandi sársauka.
Vetrareldur er fyrsta skáldsaga Friðriks Erlingssonar
ætluð fullorðnum en kunnastur er hann fyrir söguna um
Benjamín dúfu. Hann hefur hlotið verðlaun og
viðurkenningar fyrir ritstörf sín heima og erlendis.
í Vetrareldi nær Friðrik mögnuðum
tökum á lesendum sínum með stílfimi
sinm og sterkri persónusköpun.
Þetta er seiðandi íslensk saga
sem engan svíkur.
AHRIFARIK
SKÁLDSAGA
eftir FrIÐRIK
ERLINGSSON
Umsagnir
Arnórs
Benónýssonar
og Sæmundar
Guðvinssonar
um leiksýningar
Borgarleikhúsið
Lína Langsokkur
Höfundur: Astrid Lindgren
Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir
Lína og apinn bera hita og
þunga leiksins ásamt Önnu
og Tomma. Margrét Vil-
hjálmsdóttir fer með hlut-
verk Línu og á þar mjög
góða spretti. Hlutverk Ní-
elsar apa er vel skipað þar
sem er Fanney Vala Arnórs-
dóttir. Ásdis Skúladóttir
leikstjóri hefur um margt
skapað hina bestu skemmt-
an en hefði mátt láta hana
springa út með meiri krafti
og fjöri. Hvað sem því líður
er sýningin í heild hið besta
ævintýri fyrir börn og full-
orðna. SG
Hvað dreymdi þig
Valentína
Höfundur: Ljudmíla Raz-
úmovskaja
Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir
Guðrún Ásmundsdóttir
fagnar 40 ára leikafmæli
sínu í hlutverki ömmunnar
Ninu Petrovnu. Og Guðrún
bregst ekki, eftir hlé sýndi
hún allar sínar bestu hliðar,
og aftur og aftur skapaði
hún andartök sem aðeins
eru á færi hinna bestu. Sýn-
ingin býr yfir gullfallegum
og vel unnum augnablik-
um, en geldur þess að leik-
stjórinn nær ekki að fullu
utan um verk sitt. ab
Barpar
Höfundur: Jim Cartwright
Leikstjóri: Helga E. Jóns-
dóttir
I þessu verki reynir veru-
lega á þann hæfileika leik-
arans að geta brugðið sér i
allra kvikinda líki og skapað
hinar aðskiljanlegustu per-
sónur án flókinna hjálparm-
eðala. Það hlýtur því að
vera öllum leikurum nokkur
ögrun að fá að takast á við
slíkt verkefni og víst er þetta
samviskusamlega unnin
sýning, sem ætlar sér ekki
um of og hlýtur að teljast
hin dægilegasta kvöld-
skemmtun. ab
Hafnarfjarðar-
leikhúsið Her-
móður og Háðvör
Himnaríki
Höfundur: Árni Ibsen
Leikstjóri: Hilmar Jónsson
Árni hefur með þessu verki
skapað alíslenskan ærsla-
leik, þar sem fer saman
ferskur og bráðfyndinn
texti og hröð, fljótandi at-
burðarás, full af óvæntum
uppákomum. Þó leikgleðin
og krafturinn séu vissulega
hreyfiaflið í persónusköp-
uninni og stundum farið
fram á bjargbrúnina í þeim
efnum, missir leikstjórinn
aldrei tökin. Útkoman er því
glæsileg frumraun hjá nýju
leikhúsi, þar sem saman fer
vel skrifað verk, vönduð
leikstjórn og kraftmikill, ag-
aðurleikur. ab