Alþýðublaðið - 07.12.1995, Blaðsíða 19
HELGIN 7. - 10. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIO
19
4-
Hugljúf fjölskyldumynd: Sinatra í verndarfaðmi alræmdra mafíósa meðal annars Gregory De Palma, Salva-
tore Spatola og Joe Gambino.
Sinatra giftist í þriðja sinn um
miðjan sjöunda áratuginn, leik-
konunni Miu Farrow. Hann var
tæplega fimmtugur, hún var nítján
ára. Vinir hans hæddust opinber-
lega að sambandinu. „Ég á viskí
sem er eldra en Mia“, sagði Dean
Martin. „Ff Frank giftist þessari
eiga bömin hans eftir að segja
Mamma Mia,“ sagði annar vinur."
Fyrrverandi eiginkona, Ava
Gardner, sem nú var orðin af-
kastamikil fyllibytta, gaf sér tíma
til að líla upp úr glasinu til að
hreyta út úr sér svívirðingum um
ungu eiginkonuna, sem hafði
klippt hár sitt og var með drengja-
koll. Ava sagði: „Ég vissi alltaf að
Frank ætti eftir að lenda uppi í
rúmi með litlum strák.“
Við vin sinn sagði Sinatra:
„Mia er góð stelpa og ég er ein-
mana“. Þegar vinurinn viðraði
efasemdir sínar um að sambandið
myndi endast henti Sinatra lampa
á gólfið og öskubakka í glugga-
rúðuna, hringdi síðan nokkur sím-
töl og gekk frá væntanlegu brúð-
kaupi. Frank og Mia giftust í kyrr-
þey við undirspil af Strangers in
the Night, nýjasta lagi Sinatra.
Sonur Sinatra fékk fréttimar af
giftingunni þar sem hann var á
tónleikum í Florída og sagði við
áheyrendur sína áður en hann
söng lög sem faðir hans hafði gert
fræg: „Ég ætla að helga föður
mínum fimm mínútur af tíma
mínum vegna þess, eins og hann
sagði mér sjálfur á veikleika-
stundu, þá er það nákvæmlega sá
tími sem hann hefur gefið mér í
samskiptum okkar.“
Hjónaband Sinatra og Miu
Farrow entist í einhverja mánuði
og hann skildi við hana vegna
þess að hún var ekki reiðubúin til
að fóma starfsframa fyrir hjóna-
bandið.
Hann giftist í ljórða sinn, og að
því er virðist það síðasta, árið
1976, konu sem var fullkomlega
sátt við að vera einungis eigin-
kona Frank Sinatra. Meðal veislu-
gesta í brúðkaupinu var Ronald
Reagan, sem nú var orðinn einn
nánasti vinur Sinatra. Tíu ámm
áður hafði Sinatra sagt um Reagan
af djúpri íyrirlitningu: „{ hvert
skipti sem maður er í návist Reag-
ans heldur hann ræðu og hann veit
aldrei um hvað hann er að tala.
Vandamál Reagans er það að eng-
inn hefur viljað hafa hann í
vinnu.“
hina stundina er hann ekki eins in-
dæll.“Anthony Quinn tók máli
listamannsins Frank Sinatra þegar
hann sagði: „Ég er ekki sáttur við
allt sem Frank gerir eða hvemig
hann á til að koma fram við fólk,
en sá sem syngur eins og hann
getur ekki verið algjör óþokki“.
En Marlon Brando, sem Sinatra
kallaði venjulega „muldrarann"
og oflofaðasta leikara tuttugustu
aldar, komst kannski að skemmti-
legustu niðurslöðunni um eðli
söngvarans þegar hann sagði: „Ff
ég á að lýsa persónuleika Franks
Sinatra þá er hann þannig maður
að þegar hann deyr og fer til
himna þá á hann eftir að hella sér
yfir Guð fyrir að hafa gert sig
sköllóttan." ■
Kejmmgar
I~felga ^jPjeturss
„Blaðakonur eru hórur“
Á áttunda áratugnum var röddin
óneitanlega farin að gefa sig, en
Sinatra lifði á fomri ffægð og
ferðaðist um heiminn og söng
gömlu góðu lögin. Fjölmiðlar eltu
hann enn á röndum við litla hrifn-
ingu söngvarans. Mesta ljölmiðla-
fárið varð í Ástralíu þar sem Sin-
atra hellti sér yfir þarlendar blaða-
konur sem ítrekað höfðu
reynt að ná tali af honum, og
líkti þcim við hómr. Yfirlýs-
ingin vakti þvílíkan úlfaþyt að
hún var rædd í ástralska þing-
inu. Að lokum neyddist Sin-
atra til að biðjast afsökunar á
orðum sínum. Þegar heim
kom gat hann ekki stillt sig
um að endurtaka glæpinn
þegar hann sagðist vilja biðja
hórur afsökunar á því að hafa
líkt þeim við blaðakonur og
bætti við: „Munurinn á frétta-
konum og hómm er sá að
hómr selja líkama sinn en
fréttakonur selja sál sína
vegna þess að það er enginn
sem vill borga fyrir líkama
þeirra.“ Maðurinn sem mælti
þessi orð hefur á ferli sínum
fengið fjölda viðurkenninga
fyrir fjárstuðning sinn við
stofnanir og einstaklinga.
Orðumar og skjölin sem hon-
um hafa verið afhent vegna
þess stuðnings ættu að bera
sannfærandi vott um mann-
gæsku hans. Ymsir hafa þó
orðið til að efast. Karl Breta-
prins setti efasemdir sínar í
kurteisan búning þegar hann
sagði: „Frank Sinatra er ansi
einkennilegur maður. Afar in-
dæl eina stundina og.. jæja,
um lífið,
voru langt á undan
samtíma þekkingu
Efþú vilt vita
hvað bera
mun hœst
í heimspeki
og vísindum
á komandi árum,
þá er þetta
bókifi fyrir þig