Alþýðublaðið - 14.12.1995, Qupperneq 24
Öld frá fæðingu Paul Éluard
Sigurður Pálsson hefur sent frá sér veglegt safn þýðinga á ljóðum franska meistarans.
í dag eru hundrað ár frá fæðingu Paul Éluard, eins af höfuð-
skáldum aldarinnar. Hann var í fararbroddi í hreyfíngu súrrealist-
anna á þriðja og fjórða áratugnum, varð svo virkur kommúnisti og
í seinna stríði urðu ljóð hans svo ástsæl meðal frönsku þjóðarinn-
ar að hann varð að þjóðskáldi. Ljóðmál hans var liðugt og skýrt,
lítið um hátíðleg eða sjaldgæf orð, en ljóðmyndimar hinsvegar
iðulega flóknar og óvæntar að hætti súrrealista. Það átti því vel við
að margir frægustu myndlistarmenn aldarinnar myndskreyttu
bækur hans, Picasso, Chagall, Dalí og Max Emst. Fyrir skömmu
gaf Forlagið út þýðingar Sigurðar Pálssonar á ljóðum Éluards.
Bókin heitir Astin Ijóðlistin og önnur Ijóð og henni fylgir ítarlegur
og stórfróðlegur inngangur Sigurðar þarsem segir frá ljóðagerð
Éluards, ævi hans og ástum og hinni litríku hreyfingu súrrealista.
/
Paul Eluard
í fyrsta lagi
XIII
Ástfangin í laumi bakvið bros þitt
Allsnakin ertu ástarorðin
Leiða brjóst þín og háls í ljós
Og mjaðmir og augnlok
Leiða öll atlotin í ljós
Til þess að kossarnir í augum þínum
Sýni einungis þig alla
Geisiaspilari í vasann
á frábæru ver'Si'
Rakvel 1 brjostvasann
My flrst Sony er
draumur allra
bama. Er ekki
bamf
þinni
tjölskyldu sem
gaman væri að
gleðja ?
JAPIS
síðan
l
i
Á jólatilboði Japis gefst þér tækifæri á að eignast frábærar vörur á sérstöku
jólatilboðsverði. Hér á síðunni er örlítið sýnishorn af vöruvali verslana Japis.
HElMABfÓMAG
Flest okkar viljuin hafa myndbandstækið þannig úr garði gert að það sé vandræðalaust í allri notkun og ekki þurfi
sérfræðiaðstoð þegar eitthvað bjálar á. Panasonic SD200 myndbandstækið er einmitt þannig úr garði gert, frábær
myndgæði, (Super Drive, A1 Crystai vievvj allar aðgerðir koma fram á skjá, innstilling stöðva sjálfvirk ásamt langtíma
upptökuminni og þess háttar búnaði sem okkur þykir sjálfsagður nú til dags.
Panasonic
Kannast þú við það að sitja í kvikmyndahús,i þar sem hljóðið leikur um þig og þú hefúr það á tilfinningunni
að þú sért staddur inní myndinni? Þessa tilfinningu getur þú nú fengið heim í stofii með Dolby Pro Logic
útvarpsmagnaranum frá SONY. Þeir sem kaupa Dolby Pro Logic magnara er boðið sértilboð á öllu settinu
þ.e. magnarinn 70W miðjuhátalara og pari af 50W bakliátölurum á aðeins...
Panasonic SC-CH32
9 Magnari 2x20w din 2x40 músík
9 Útvarp með FM/MV/I.W og klukku
9 Tvöfalt segulband auto-reverse
9 MASH1 bita geislaspilari
% Forstilltur tónjafnari surround
# Góðir hátalarar 2way 30w din 60 músík
9 Fjarstýring
21" monotæki
Textavarp
Black Matrix myndlampi
Scarttengi
Allar upplýsingar birtast á skjá
JAPIS
jólatilboðsverð
jólatilboðsverð
atillwðsu
Skáld ástarinnar. Raul Eluard árið 1942.
Hringadrótt-
inssaga öll
komin út á
íslensku
Hringa-
dróttinssaga
Tolkiens er
nú öll komin
út á íslensku í
þýðingu Þor-
steins Thor-
a r e n s e n .
Þriðja bindið
sem Fjölva-
útgáfan er nú
að senda frá sér, nefnist Hilmir
snýr heim, en með því er átt við
að útlaginn Stígur eða Aragom
kemur tii ríkis í Gondor. Nú er
liðinn meira en áratugur síðan
Þorsteinn hóf þýðingu þessa
mikla verks, sem í heild er nærri
tólfhundruð blaðsíður. Eftir að
hann var tilbúinn með verkið,
hafa bindin komið út reglulega
þrjú ár í röð. Fyrri bindin nefnd-
ust Föruneyti hringsins og
tveggja tuma tal. Hringadróttins-
saga er viðurkennt sígilt bók-
menntaverk og nýtur óhemju vin-
sælda um víða veröld. Tolkien
var nokkuð sérvitur prófessor í
Oxford og skapaði sér í ritum
heila ævintýraveröld. gekk hon-
um í fyrstu illa að koma þessu
verki fyrir almenningssjónir, út-
gefendur höfðu ekki trú á því, en
svo sló það óvænt algjörlega í
gegn. Þessum ævintýraheimi er
lýst svo ýtariega, að lesendum
finnst hann raunverulegur og lifa
sig inn í hann.
Pastoral-
sinf ónían
Ut er komin
hjá Fjölva,
skáldsagan Pa-
storalsinfónían
eftir franska rit-
h ö f u n d i n n
André Gide í
Þýðingu Sigur-
laugar Bjarna-
dóttur. André Gide telst meðal
merkustu og áhrifamestu höfunda
vestrænna samtímabókmennta.
Hann hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1947. í sögum hans
kemur fram eindregin einstak-
lingshyggja sem oftar en ekki
lendir í árekstrum við ríkjandi
trúarhefðir og siðalögmál. Pator-
alsinfónían er hér engin undan-
tekning. Hún segir af sóknar-
presti í afskekktu fjallahéraði sem
tekur upp á sína arma blinda
munaðarlausa stúlku, - kristilegt
kærleiksverk. en svo fer að hann
verður ástfanginn af stúlkunni, -
baráttan við freistingu og synd.
Gítarlist
á geisla-
diski
Út er kominn geisladiskur
með gítarleikaranum Kristni
Arnasyni. Kristinn er tónleika-
gestum að góðu kunnur og hefur
fengið góðar viðtökur hjá áheyr-
endum og gangnrýnendum fyrir
leik sinn. Það er því mikið
ánægjuefni að gitarlist hans
skuli nú vera að fínna á geisla-
diski. A diskinum eru verk eftir
Agustin Barrios og Francisco
Tárrega. Tárrega hafði mótandi
áhrif á þá lækni sem gítarleikar-
ar hafa notað. Hann var rómantí-
ker og notaði gítarinn á nýstár-
legan hátt. Agustin Barrios var
frá Paraguay og var af indíána-
ættum. Hann var feikna mikill
virtúós, en ekki rnetinn að verð-
leikum rneðan hann lifði. Hann
var mikill snarstefjari og átti til
að breyta verkum sínum á tón-
leikum.
Kristin Amason er meðal
okkar snjöllustu gítarleikara, hóf
klassískt gítamám tíu ára gam-
all. Eftir burtfararpróf stundaði
hann framhaldsnám meðal ann-
ars í Bretlandi, Bandarikjunum
og á Spáni. Kristinn hefur komið
fram á fjölmörgum tónleikum
hér heima og erlendis.
Útgefandi disksins er ARSIS
CLASSICS í Hollandi, en hon-
um er dreift af Japis hér á landi
en EMl erlendis.