Alþýðublaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
13
1. MAI AVARP 1997
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja,
Kennarasambands íslands og
Iðnemasambands Island
Eftir setningu nýrra laga um stétt-
arfélög og vinnudeilur reyndi nú í
fyrsta sinn á löggjöfina með beinum
hætti í kjarasamingum.
Breytingamar á lögunum voru á
sínum tíma gerðar í algerri andstöðu
við alla verkalýðshreyfinguna. Með
þeim hlutaðist ríkisvaldið til um innra
skipulag frjálsrar hreyfingar launa-
fólks með óþolandi ofbeldi. Ljóst er
að allt það sem verkalýðshreyfingin
sagði um breytingarnar á lögunum
hefur reynst rétt. Samtök launafólks
og atvinnurekenda sitja nú uppi með
löggjöf sem tefur alla samningagerð
og njörvar öll samskipti þeirra niður.
Verkalýðshreyfingin gerir þá kröfu til
stjórnvalda að lögin verði tekin til
enduskoðunar nú þegar.
Skipulagíð til gagn-
gerrar endurskoðunar
Verkalýðshreyfingin þarf að líta í
eigin barm og spyrja hvort meiri og
víðtækari samstaða innan eigin raða
um markmið og leiðir hefði ekki skil-
að betri árangri í kjarabaráttunni en
raun ber vitni. Við verðum að læra af
reynslunni og láta hana verða okkur
vegamesti inn í framtíðina. Verka-
lýðshreyfingin þarf að taka skipulag
og baráttuaðferðir til gagngerrar end-
urskoðunar með það að leiðarljósi að
okkur miði sem hraðast fram í sókn
til bættra lífskjara.
Undiralda og reiði fólks
Þrátt fyrir nokkurn árangur margra
verkalýðsfélaga í kjarasasamningum
sem markast af mikilli hækkun
lægstu launa og eflingu kauptaxta-
kerfisins kraumar engu að síður óá-
nægja í þjóðfélaginu. Ljóst er af af-
greiðslu kjarasamninga í mörgum
stéttarfélögum að atkvæðatölur bera
vott um undiröldu og reiði fólks yfir
stöðu sinni eftir margra ára stöðunar-
tímabil í kaupmætti og kjörum.
Fólki svíður sú misskipting sem á
undanfömum árum hefur verið fest í
sessi með stefnu stjórnvalda í skatta
og velferðannálum og óbilgimi at-
vinnurekenda við samningaborðið.
Á meðan ýmsir þjóðfélagshópar
hafa allt sitt á þurru hafa aðrir án fyr-
irhafnar sótt ígildi mánaðarlauna
verkamannsins í kjarabætur.
Misskipting og misrétt-
ið eitra út frá sér
Aðeins hluti þjóðarinnar þarf að
bera allar skattbyrðar landsmanna á
herðum sér. Ljóst er að þolinmæði
hins almenna launamanns er nú á
þrotum. Hann hefur haldið uppi vel-
ferðarþjóðfélaginu með sköttum sín-
um, dugnaði og vinnusemi, en horfir
upp á skattsvik látin óáreitt. Verka-
lýðshreyfingin krefst þess að tekið
verði á skattsvikurunum.
Stöðugt er svorfið að öllum þeim
hópum sem höllum fæti standa hvort
sem það eru atvinnulausir, aldraðir
eða öryrkjar.
Misréttið grefur um sig og eitrar út
frá sér. Nú er svo komið að hægt er að
segja með sanni að tvær eða fleiri
þjóðir byggi landið. Fólk horfir á
hagnaðartölur fyrirtækjanna og hefur
skattsvik og undanskot fyrir augun-
um. Hver lagasetningin á fætur
annarri eykur á misskiptingu og kjör
þeirra versna stöðugt sem höllum fæti
standa.
Manngildið látið róa
Greiðsluvandi heimilanna blasir
við. Meðan launamenn tóku á sig
ótæpilegar byrðar á þjóðarsáttartím-
anurn, hlóðust skuldimar á heimili
landsins. Ráðantenn þjóðarinnar hafa
engar áhyggjur af því.
Peningafrjálshyggja og gróðasjón-
armið birtast okkur í sínum verstu
myndum í grimmri aðför að velferð-
arþjónustunni og í tilraunum til að
svipta launamenn réttindum sínum
t.d. með því að þröngva þeim til verk-
töku.
Þessi sjónarmið og stefna birtist
okkur einnig í tilraunum atvinnurek-
enda, jafnt á almennum vinnumark-
aði sem opinberum, til að umbylta
iaunakerfum þannig að vald forstjóra
aukist samhliða því sem áhrif stéttar-
félaga og þar með einstaklingsins, er
veikt. Samkvæmt kennisetningu pen-
ingaaflanna eru öll ráð ráðin með
hliðsjón af hámarksgróða en mann-
gildið látið róa. Þetta er stefna mis-
réttis og atvinnuleysis.
Verkalýðshreyfhingin krefst rétt-
láts launakerfis sem tryggir launa-
fólki eðlilega hlutdeild í þjóðartekj-
um.
mMíi Wii 'mmí-sm
Útsölustaðir:
Rollingar, Kringlunni
Barnaheimar, Síðumúla
Spékoppar, Grafarvogi
Bangsi, Bankastræti
Ólavía og Óliver, Glæsibæ
Embla, Hafnarfirði
Grallarar, Selfossi
Leggur & skel, ísafirði
Ozone, Akranesi
Kátir krakkar, Akureyri
Bambi, Húsavík
Blómsturvellir, Hellissandi
Sentrum, Egilsstöðum