Vísir - 21.01.1976, Side 3
vism Miðvikudagur 21. janiíar 1976.
3
Ýmsar vörur
lœkka vegna
tollalœkkana
Ýmsar innfluttar vörur ættu að
lækka i verði um þessar mundir.
Tollalækkanir frá áramótum ættu
að fara að hafa áhrif.
Þegar hafa sést auglýsingar
um lækkun á einni tegund inn-
fluttra eldavéla. Vél sem áður
kostaði 126 þúsund, kostar nú 115
þúsund. Eldavélar eru einu raf-
magnstækin sem tollar lækka á.
Tollar á innfluttum húsgögnum
lækkuðu t.d. um áramótin um 10
prósent. Þær vörutegundir sem
tollar lækkuðu á, eru yfirleitt þær
sem einnig eru framleiddar hér-
lendis. Tollalækkun er sú sama á
öllum vörutegundunum, 10 pró-
sent. Þ.e.a.s. tollur sem var t.d.
40 prósent, lækkaði i 30 prósent.
Tollalækkanir um áramótin
voru samkvæmt samningum við
EFTA, Friverslunarsamtök
Evrópu og EBE, Efnahagsbanda-
lag Evrópu. Þegar við gerðum
samninga við þessi samtök á sin-
um tima, felldu þau strax niður
alla tolla á vörum frá íslandi. Við
fengum hins vegar aðlögunar-
tima. Fram til 1980 eiga tollar á
ákveðnum vörum að lækka um 10
prósent á ári hverju. Á móti
kemur að iðnaður sem á i sam-
keppni við innfluttu vörurnar, fær
um leið ýmis friðindi, t.d. lækkun
á tollum á hráefni og vélum.
—ÓH
Gróf sér bœli í snjó
Skyldi nokkur hafa haft eins mikið fyrir þvi að láta ekki taka af sér mynd, Það er þá helst að frægar
kvikmyndastjörnur reyni að leynast þegar ljósmyndarar nálgast. Þær geta ekki gert sér bæli í snjó.
— En án gamans. Hún var að grafa sig inn I skafl og hefur vafalaust haft eins gaman af þvi og flestir
aðrir að láta mynda sig. Ljósm: Jim.
SALA Á SEMENTI TIL ALMENNRA FRAM-
KVÆMDA í LANDINU HEFUR MINNKAÐ
Sementssala á árinu 1975 nam
alls 159.391 tonni, sem er mjög
svipað magn og á árinu 1974.
Salan var þá 158.597 tonn.
Þetta kemur fram i frétta-
tilkynningu, sem Sementsverk-
smiðja rikisins hefur sent frá sér.
Þar kemur einnig fram, að sala
hefur minnkað til almennra
framkvæmda i landinu. Aukning
á sölu til framkvæmda við Sig-
öldu nemur um það bil þessu
magni svo útkoman verður
svipuð og i fyrra.
Þá er borin saman sala á
sekkjuðu og lausu sementi bæði
árin, og virðist hún svipuð. Ef
hins vegar sala til framkvæmda
við Sigöldu og Þorlákshöfn er
bæði árin dregin frá sölu á lausu
sementi, verður ljóst, að
sementssala til steypustöðva i
Reykjavik, Selfossi og Keflavik.
er aðeins um 59 þúsund tonn árið
1975 en var árið 1974 76.400 tonn.
Steypuframkvæmdir á þessu
svæði hafa þvi minnkað um 23%
frá fyrra ári.
Salaásekkjuðu sementi, sem að
langmestu leyti er selt til annarra
landshluta, er mjög svipað bæði
árin.
-VS.
Eldavélar C.F. 750 (S.G. 160) 70 cm
breið með 4 hellum og klukkuborði. 2 ofnar. Sá efri
54 Itr. með grillteini og grillmótor. Einnig hraðræsir
og steikarmælir. í neðri ofninum er einnig hægt að
baka. Fáanlegir í 3 litum.
Brún kr. 115.400 — (áður 126.900)
Græn kr. 101.200 — (áður 109.800)
Hvít kr. 114.900.— (áður 126.200).
Vísir og bœjarstjórn
Sauðórkróks -samþykkt
og athugasemd
Bæjarstjórn Sauðárkróks hef-
ur séð ástæðu til að senda Vfsi
og öðrum fjölmiðlum eftirfar-
andi samþykkt, sem gerð var
með atkvæðum allra bæjarfull-
trúa:
„Bæjarstjórn Sauðárkróks
hefur haft áhyggjur af fram-
ferði barna og unglinga i bænum
á gamlárskvöld undanfarin ár,
og telur nauðsynlegt að taka
upp aukið samstarf lögreglu,
bæjarstjórnar og félaga i bæn-
um um að reyna að beina at-
hafnaþrá ungmennanna I já-
kvæða átt.
Hinsvegar lýsir bæjarstjórn
undrun sinni og vanþóknun á
fréttum, sem birtar hafa verið
dagblaðinu Visi og fleiri blöðum
um ástand og bæjarbrag á
Sauðárkróki s.l. gamlárskvöld.
Bæjarstjórn telur ljóst að at-
huguðu máli, aö framkomnar
ásakanirséu i nokkrum atriðum
ýktar og rangar og fréttaflutn-
ingur i heild i villandi æsifrétta-
stil, sem virðist engum öðrum
tilgangi þjóna en rýra álit
bæjarins og bæjarbúa út á við”.
Hver er
tilgangurinn?
Forseta bæjarstjórnar Sauö-
-árkróks hefur verið skýrt frá
þvi, að Visir láti þessari athuga-
semd eða samþykkt ekki ósvar-
að. — Fyrstu viðbrögðin verða
þau, að spyrja hver sé tilgang-
urinn með slikri samþykkt?
Er bæjarstjórnin að leysa ein-
hvern innanbæjarvanda, það er,
að finna einhvern sökudólg til að
létta áhyggjum af öðrum. Ein-
hversstaðar hefur sök bitið sek-
an, ella hefði dýrmætum tima
bæjarstjórnar Sauðárkróks ekki
verið varið til að koma saman
sllkri samþykkt.
Þau vandamál, sem bæjar-
stjórn Sauðárkróks og yfirvald
staðarins eiga við að striða,
verða ekki leyst með þvi að
skamma fjölmiðla. t samþykkt-
inni skortir allan rökstuðning,
ekkert tilvik er sérstaklega
nefnt til að styðja fullyrðingar
um rangan fréttaflutning Visis.
Hætt er við, að knötturinn hefði
komið I andlit þeim, er honum
kastaði, hefðu slik dæmi verið
nefnd.
Ahyggjur
af börnum
Bæjarstjórnin lýsir þvi yfir i
upphafi samþykktarinnar, að
hún hafi haft áhyggjur af fram-
ferði barna og unglinga i bænum
á gamlárskvöld undanfarin ár.
Af einhverju stafa þessar
áhyggjur, og renna stoðum und-
ir fréttir fjölmiðla um ólæti á
Sauðárkróki á gamlárskvöld.
Ekki er nema gott eitt um þaö
-að segja, að nú skuli hafið sam-
starf um að beina athafnaþrá
ungmennanna i jákvæða átt.
Ekki hefur það hvarflað að Vfs-
ismönnum, að álita börn og
unglinga á Sauðárkróki verri né
betri en börn og unglinga á öðr-
um stöðum á landinu. Blaðið vill
aðeins óska bæjarstjórninni ails
hins besta I fyrirhuguðum af-
skiptum af athafnaþrá þeirra.
Hins vegar vill blaðið benda á,
að samþykkt bæjarstjórnarinn-
ar gerir fátt annað en að bera
blak af þeim unglingum, sem til
ólátanna stofnuðu, og óbeint að
koma sökinni frá hinum seku yf-
ir á þá fjölmiðla, sem frá ólát-
unum greindu. Vart lýsir þetta
miklum klókindum.
Álifið út ó við
t viðtölum hefur komið fram,
að ýmsir ibúar á Sauðárkróki
telja, að þessar fréttir hafi kom-
ið óoröi á byggðarlagið. Hér
hefur verið gerður úlfaldi úr
mýflugu. Visir hefur ekki á
nokkurn hátt reynt að gera litið
úr þvi fólki, sem byggir Sauðár-
krók. Blaöið hefur sagt frá góðu
og illu, sem þar hefur gerst.
Yfirlýsing bæjarstjórnar gerir
ekki annað en að vekja enn
meiri athygli á atburðum gaml-
árskvölds, og hvetur til þess að
atburðir kvöldsins verði endur-
sagðir samkvæmt lögreglu-
skýrslum og lýsingu sjónarvotta
til að renna stoðum undir frá-
sögn blaðsins.
Mörg bæjarfélög yrðu að
halda langa bæjarstjórnarfundi
vegna skrifa um ólæti og tiltekt-
ir unglinga, ef þau ætluðu að
bregðast eins við og bæjarstjórn
Sauðárkróks. Ekki er það ætlun
Vísis að troða illsakir við bæjar-
stjórn Sauðárkróks né nokkurn
mann þar um slóðir. En sam-
þykkt, eins og að framan greinir
verður ekki látið ósvarað.
Heímildir Vísis
Bæjarstjórnin segir, að fram-
komnar ásakanir séu ýktar og
rangar og fréttaflutningurinn I
heild i villandi æsifréttastil. —■
Heimildir blaðsins fyrir atburð-
unum á Sauðárkróki á gamlárs-
kvöld var lögreglumaður á
staðnum, og siðar nokkrir sjón-
arvottar. Lögreglumenn hafa
ávallt verið taldar þær heimild-
ir, sem bestar væru, þegar um
slika atburði er að ræða. Þess-
um þætti málsins visar blaðið til
föðurhúsanna, og verða heima-
menn af þeim sökum, að gera út
um málið þar.
Blaðið hefur enga ástæðu til
að gera frásögn heimildar-
manns sins lengri eöa ljótari en
efni standa til. Hér er ekki um
að ræða neinar óuppgerðar sak-
ir, deilur né tilraunir til að rýra
álit íbúa Sauðárkróks.
Blaðið vill taka skýrt fram, að
það getur fallist á það sjónar-
mið að svonefndur „uppsláttur”
fréttarinnar hafi verið nokkur
ofrausn, einkum af þvi að hún
var á forsiðu blaðsins. Fullyrð-
ingu bæjarstjórnar um ýkjur og
rangan fréttaflutning er hér
meö neitað.
Þá er rétt að taka fram, að
breytingar hafa orðiö á ritstjórn
Vísis. Þangað eru komnir nýir
menn, og eins og fram kemur i
þessari athugasemd blaðsins, er
þeim mjög I mun að fréttir
blaðsins séu réttar og byggðar á
bestu fáanlegum upplýsingum.
Þeir munu framvegis, eins og
hingað til, leitast við að svo
verði.
—AG—
Götur eins
eftir
loftórós
ÁRAMOTA-
SKRÍLSLÆTI
ÁSAUÐÁR
KRÓKI:
BÖrn »U unjílingar stóftu fvrir
miklum skrilslátum »)í óspekt-
um á Sauftárkróki á jjamlárs-
kvöld. l»«*ssi skrilsla*ti hafa ver-
iö fastur li^n- á namlárskvöl(J:
jir i uyj
Kveiktu i ruslinu á að-
algötunum
Hátt á annafi hundraö börn og
unglingar \wu i hopnuni seni
• iöu fyrj^^^^Uunum Þau*
iau höj