Vísir - 21.01.1976, Blaðsíða 6
6
Miövikudagur 21. janúar 1976. vism
Hver
selur
hvað?
Þegar þig vantar einhverja
vöru og þarft áð finna fram-
leiöenda hennar, ekki
einungis í Reykjavík, heldur
út um landiö þá finnur þú
svarió i "(SLENSK
FYRIRTÆKI” sem birtir skrá
yfir framleiðendur hvar á
landinu sem er.
Sláið upp í
"ÍSLENSK FYRIRTÆKI”
og finnið svarið.
FÆST HJÁ ÚTGEFANDA.
Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf.
Laugavegi 178 -Símar: 82300 82302
14660
Range Rover
Mazda 818
Volga
'72
'73
'74
Höfum kaupanda að
rússajeppa,
aðeins góður bíll
kemur til greina.
opið frá kl. 10-7
laugardaga kl. 104 eh.
JKjörbíllinn \
Hverfisgötu 18 - Sími 14411
Blaðburðar-
börn óskast
til
að bera út í
Miðbœinn
Ism
m
Hverfisgötu 44 Sími 86611
Við bjóðum
úrval af:
Húsgögnum
Einsmanns rúm frá
frá kr. 25.700.-
Hjónarúm
frá kr. 36.370.-
Rúmteppi
frá kr. 4.320.-
Sœngur og koddar springdýnur
i öllum stærðum og styrkleikum.
Viðgerðir á notuðum springdýnum samdæg-
urs.
Opið virka daga kl. 9—7
og laugardag kl. 10—1.
mm Springdýnut
Helluhrauni 20, Sími 53044.
Haf narf irði,
Smygla Sameinuðu
þjóða-menn hassi?
Einn af þingmönnum
israels bar i gær kirkj-
unnar mönnum og her-
mönnum i gæsluliði
Sameinuðu þjóðanna á
brýn að vera valdir að
vaxandi eiturlyfjavanda
israelsmanna.
Yosef Sarid sagði fréttamönn-
um, að samkvæmt skýrslu lög-
reglunnar kæmi megnið’ af
smygluðu hassi inn til landsins
falið i bifreiðum, sem kæmu frá
Jórdaniu.
Kirkjunnar menn og gæsluher-
mennirnir nota sér, að ekki er
leitað i bifreiðum þeirra. Hafa
þeirsmyglað mikiu niagni af
hassi tií tsraels. og ekki er ólik-
legt. að allt aðH0% af smygluðum
fikniefnum komi með þeim "
sagði þingmaðurinn.
Hann lét ekki meira uppi að
sinni, en sagði, að þetta væri i
sérstakri athugun og viðeigandi
ráðstafanir yrðu gerðar til þess
að stöðva þetta.
Talsmaður gæsluliðsins vildi
ekkert segja um málið.
Opinber skýrsla, sem birt var i
Israel i gær, gefur til kynna, að
rúmlega 100,000 israelsmenn
neyti ólöglegra fikniefna, og þvi
er haldið fram, að 1,600 eitur-
lyfjasjúklingar séu svo langt
leiddir af neyslu heróins að þeim
verði ekki við bjargað.
Franskir lög-
menn í verkfall
Rúmlega 4,500 lögmenn I Paris
leggja niður vinnu i dag og ganga
þar á uudan i aimennum mót-
mælum franska lögmanna-
félagsins gegn aðgerðum
stjúrnarinnar, sem þykja stuðla
að þvi að minnka hlut lögmanna i
dómsmálum Frakklands.
Lýst hefur verið yfir þriggja
daga verkfalli og er þetta fyrsta
vinnustöðvum franskra lög-
manna i 400 ár. — Dómarabækur
sýna, að lögmenn i Frakklandi
gripu siðast til vinnustöðvunar á
valdatima Hinriks IV seint á 16.
öld.
Francis Moller-Vieville, forseti
lögmannafélags Parisar, segir að
verkfallið spegli djúpa andúð á
nýjum lögum, sem auki vald og
umboð dómara á kostnað þeirra,
sem leggja mál sin fyrir þá.
Það er búist við þvi, að mál-
ílutningsmenn i Frakklandi 13,500
að tölu muni allar taka þátt i
þessum mótmælum á næstu vik-
um. A meðan verkfallið stendur
yfir munu lögmenn ekki leggja
liðveislu sina til, nema i húfi sé
frelsi sakborninga.
„Grandmaster Ólafs-
son" stöðvaði Ljuboje-
vic í fjórðu umferðinni
Friðrik Ólafsson
tefldi við Ljubojevic i
fjórðu umferð
Hoogoven-skakmótsins
i Wijk aan Zee, en fram
til þess hafði
Ljubojevic unnið allar
sinar skákir og var
orðinn heilum vinning
hærri en næsti keppi-
nautur.
En Friðrik stöðvaði sigur-
göngu júgóslavneska stór-
meistarans i bili. Mun
Ljubojevic hafa verið feginn að
fá jafntefli, þvi að orð var á þvi
gert, hve „grandmaster ólafs-
son hefði teflt örugglega með
hvitu mönnunum og vel.”
Þetta er hinsvegar fjórða
jafntefli Friðriks i jafnmörgum
skákum.
Skemmtilegustu baráttu-
skákina tefldu þeir Kurajica frá
Júgóslaviu og tékkinn, Jan
Smejkal, en skákin fór tvivegis i
bið og verður ekki lokið við hana
fyrr en i dag. — Kurajica er i
baráttu um efstu sæti.
Staðan eftir fjórar umferðir
er nefnilega: Ljubojevic 3 1/2,
Browne 2 1/2, Kurajica 2 (og
biðskák), Langeweg, Sosonko,
Tal og Friðrik allir með 2
vinninga. Smejkal 1 1/2 og
biðskák. Dvorecki, Ree og
Andersson 1 1/2 og Böhn 1.