Vísir - 21.01.1976, Qupperneq 4
Miðvikudagur 21. janúar 1976. visra
VERÐUR HRINGBRAUTIN I
Skipulagsnefnd Heykjavlkur-
borgar hefur samþvkkt tillögu
sem gerir ráð fyrir tilfærslu
Hringbrautar. Hvorki liggja
fyrir samningar við ríki né af-
staða borgaryfirvalda til máls-
ins og þvi er ekki hægt að segja
að svo komnu máli hvenær eða
hvort af þessari framkvæmd
verður.
Nú þegar liggur fyrir samn-
ingur milli rikis og borgar um
flutning Hringbrautar. Sá
samningur gerir hins vegar ráð
fyrir mun minni flutningi eða
um fimmtiu metrum til
suð-vesturs.
Forsenda þess samnings var
að tryggja Landspitalanum
nægjanlegt rými til stækkunar
spitalans. Við nánari athugun
og útfærslu kom hins vegar i ljós
að ýmsir annmarkar myndu
f.vlgja.
Fyrst og fremst þeir að
Hringbrautin myndi skilja að
starfsemi sem kreföist mikilla
og góðra tengsla innbyrðis.
KOSTIR
TILLÖGUNNAR
Skipulagsnefnd hefur i grein-
argerð gert grein fyrir þeim
kostum sem hún telur vera
helsta við tillögu sina.
1 fyrsta lagi að innri tengsl
bygginga á lóð Landspitalans
verði mun auöveldari en ef
Hringbrautin myndi aðskilja
byggingarnar.
1 örðu lagi: Innra gatnakerfi
tengist hinu ytra á betri hátt.
Auk þess sem tengingar akvega
innan lóðar Landspitalans verði
leystar á hagkvæman hátt án
þess að fara þurfi yfir hrað-
brautir.
1 þriðja lagi verði öll tengsl
Umferðarmiðstöðva bæði við
hraðbrautir og umferðaræðar
viðunandi.
t fjórða lagi. Með þessari til-
lögu verði mun auðveldara að
ráðast i gerð umferðarmann-
virkja á Miklatorgi án þess að
valda röskun á umferð á Miklu-
braut-Hringbraut. Jafnframt
opnast möguleiki á vinstri
beygju af framlengdum Bústað-
arvegi vestur Hringbraut.
Loks væri lausn fengin á téng-
ingu Hringbrautar og Sóleyjar-
götu án þess áð til þyrfti að
koma skerðing á flugbraut sem
liggur frá norðri til suðurs. En
sú flugbraut er einmitt aðalflug-
brautin i' Reykjavik.
Ef tillögur skipulagsnefndar verða aðveruleika verður svæöið, þar sem nú er Hringbrautin á Landsspitalalóðinni en Hringbrautin færist
nær flugvellinum.
BREYTINGARNAR
HAFA ÁHRIF
Með tillögum skipulagsnefnd-
'ar er flugbrautin 07-25 skert
nokkuðvið norð-austur-endann.
Þessi flugbraut liggur i áttina
frá Miklatorgi að Shell-stöðinni i
Skerjafirði og er minnst notaða
flugbrautin.
Ennfremur er gert ráð fyrir
að Hringbrautin verði niður-
grafin við norðurenda aðalflug-
brautarinnar sem einkennd er
02-20. Þvi er ekki talið að nein
4/ ^ '
'M
iffr*
skerðing verði á þeirri braut, en
hugsanlegt að litils háttar til-
færsla verði á aðflugsljósabún-
aði við norðurendann.
ÓSAMMÁLA
UMFERÐAR-
PÓLITÍKINNI
Tillaga sú sem lýst hefur ver-
ið var samþykkt i skipulags-
nefnd með þremur samhljóða
atkvæðum. Sigurður Harðarson
sat hjá við atkvæðagreiðslu og
gerði grein fyrir skoðun sinni:
,,Höfuðástæðan fyrir flutningi
Hringbrautar er að minu áliti,
fyrirliggjandi umferðarspá
Þróunarstofnunar og erfiðleikar
við Iausn gatnamóta af þeim
sökum. Þar eð ég er engan veg-
inn sammála þeirri umferðar-
pólitik og forsendum sem
spánni liggja til grundvallar tel
ég mig ekki geta tekið þátt i á-
kvörðun um þennan flutning
sem kosta mun borgina fleiri
hundruð milljónir.”
—EKG
Þessi mynd sýnir betur en
orð fá lýst hverjar breyting-
ar verða ef hugmyndir
skipulagsnefndar verða að
veruleika. Feitletraða,
dökka linan sýnir fyrirhug-
aða Hringbraut. Þá má sjá
hvernig Hringbrautin mun
skera Landspitalalóðina ef
henni verður ekki valinn nýr
staður.
KYNNIÐ YKKUR FORSOLUNA
Forsala aðgöngumiða
GL HLEMMTORGI
ÖR SÓLHEIMUM
OG í
GSHEIMILINU
ÖLD KL. 6-9
A MORGUN I SIGTUNI
STÓR,
BINGO
18 UMFERÐIR SPILAÐAR
3 UTANLANDSFERÐIR
FJÖLDI ANNARA
GLÆSILEGRA VINNINGA
KAUPIÐ MIÐA I TIMA
BINGÓIÐ HEFST KL. 8
HÚSIÐ OPNAÐ KL. 7,30
AF ÞESSU MÁ ENGINN MISSA ;