Vísir - 21.01.1976, Page 11
VTSIR Miövikudagur 21. janúar 1976.
11
Sesar lokað,
Óðal stœkkar
Það hlýtur að vera góður bis-
iess að reka vinveitingastað á
ÍSiandi hugsar eflaust margur,
enUiann litur i pyngju sina eftir
he%ina.
En það þykir vist samt sem
áður ekki heiglum hent að
standá. i slíkum stórræðum, þvi
margar kvaðir hvila á slikum
rekstri, svo sem lagaákvæði um
eldhús up|fá milljónir og skattar
af öllum jjærðum og gérðum.
Einn af n^justu skemmtistöð-
um höfuðbor^arinnar, diskótek-
ið Sesar við Armúla, varð til
dæmis að lokfc i siðustu viku af
margvisleguiji ástæðum.
Ein helsta ^stæðan mun hafa
verið sú, að v*itingamaður sá er
skráður var fyrir vinveitinga-
leyfi staðarins þótti ekki hafa
nægileg afskipti af rekstrinum.
Þetta er Stefán i Múlakaffi, en
eins og kunnugt er þá er matur
afgreiddur i diskótekinu úr eld'-
húsi Stefárfs á hæðinni fyrir neð-
an. *
Aðrarastæður fyrir lokuninni
voru afskipti stéttarfélags þjóna
af afslætti þeim er Sesar veitti
viðskiptavinum sinum á
drykkjarföngum (10%), og van-
greiddur söluskattur.
Forráðamenn Sesars standa
um þessar mundir i „samninga-
viðræðum” við yfirvöldin og
vonast til þess að geta opnað
staðinn að nýju innan skamms.
Tónhorninu finnst það annars
timi til kominn að yfirvöld
endurskoði þessi lagaákvæði
um fullkomna eldunaraðstöðu á
hverjum vinveitingastað.
Ef yfirvöld eru svona hrædd
um heilsu manna, þ.e. að drukk-
ið sé á fastandi maga, þá væri
rökréttast að skylda fólk einnig
til þess að kaupa þennan mat,
eða hvað?.
Yfirleitt fer fólk heldur ekki á
diskótek til þess að borða þar
dýra máltið, til þess eru aðrir
staðir.
Væri t.d. ekki hugsanlegt að
sleppa bæði eldhúsinu og sterku
vinunum? Þannig gætum við
kannski byrjað að tala um betri
vinmenningu landans.
Þó að illa hafi gengið hjá Ses-
ar hefur hitt diskótekið, Öðal við
Austurvöll, blómgast til muna.
Að sögn Jóns Hjaltasonar er
ekki um mjög arðvænlegan
rekstur að ræða. „Þetta gengur
svona la-la” sagði Jón
Jón hefur nú lokað matsölu-
staðnum Sælkeranum við
Austurstræti og hyggst fella
hann inn i Óðal.
Breytingin á Óðali verður þá
sú, að á neðstu hæð þess verður
matsalur með básum, og einn
bar.
Um ódýrar veitingar verður
að ræða, litla rétti, einfalda i
framreiðslu, og minna lagt upp
úr kostnaðarsömum flottheit-
um.
Efri hæðin verður óbreytt, en
Stuart Austin, plötusnúllinn
frægi, mun yfirgefa staðinn i
mars, en nýr maður er væntan-
legur frá Englandi i stað hans.
Orp.
Sviptingar hjá
íslenskum
hljómsveitum
Eins og fram kom i
Tónhorninu nú nýverið eru allar
likur til þess að hljómsveitin
Change leysist upp á næstunni,
af fjárhagslegum ástæðum.
Hljomsveitin hefur frá
upphafi verið stvrkt af fjár-
sterkum útgerðari lanni einum,
og ekki er þar ta að um neinar
smáupphæðir allt að fimm
milljónir hafa verið nefndar i
þvi sambandi)
Þessi fjársterki aðili telur nú
að Change hafi ekki staðið undir
vonum sinum, árangurinn hafi
látiðstanda á sér—ogþvifer
sem fer.
Ekki má þó útiloka þann
möguleika að sambönd þeirra
Change-lima i London hlaupi
undir bagga með þeim i þessum
erfiðleikum, en það kemur
væntanlega til með að sýna sig
á næstunni.
Allir meðlimir Change eru nú
hérlendis að Magnúsi
Sigmundss. undanskildum, en
hann varð eftir i London i von
um að fá hagstæða samninga
fyrir hljómsveitina.
Mikil umsvif eiga sér einnig
stað hjá hljómsveitinni Júdasi.
Magnús Kjartansson er á för-
um til Ameriku sér til lærdóms
og reynslu, en aðrir meðlimir
Júdasar verða eftir á tslandi —
a.m.k. til að byrja með.
Hljómsveitin mun þvi leysast
upp sem danshljómsveit, og
verður þar með vissulega
höggvið stórt skarð i ,,is-
lenska flotann”
Þeir Vignir, Finnbogi og
Hrólfur koma til með að vinna
saman að næstu plötu Júdasar
sem væntanlega verður með is-
lenskum textum. Magnús mun
svo vinna sitt verk seinna á
árinu.
Ekki þurfa þeir félagar að
kvarta undan aðgerðarleysi
þrátt fyrir fjarveru Magnúsar
— þvi allir eru þeir þrælvanir
„stúdi'óvinnu”, og þvi eftirsóttir
sem slikir.
Tónhomið vill láta i ljós þá
von sina að mánuðirnir fram-
undan verði Júdösum lærdóms-
rikir, og að hljómsveitin geti svo
komið aftur fram á sjónarsviðið
i sumar, tviefld og reynslunni
rikari.
-örp.
POPPARAR ÁRSINS 1976
í fyrri viku birti Tónhornið atkvæðaseðil þar sem lesendum þess cr gefinn kostur á að kjósa stjörnur ársins á hinum ýmsu sviðum „poppsins.” Þátttakan virðist vera allgóð i þessari kosningu, en Tónhornið hefur i huga vissa lágmarksþátttöku þannig að kosningin gefi sem gleggsta mynd af vinsældum „poppara” I dag. Nafn Heimilisfang Hljómsveit
Þessu lágmarki er enn ekki náð, og verður því listinn birtur aftur I dag, en Tónhornið treystir lesendum sínum fyrir þvf að senda að- Hljómplata
eins einn lista, annað er náttúrulega bara svindl.?. Utanáskriftin er: Tónhornið, Vfsir. Siðumúla 14. Örp. Ekki má tilnefna nema eitt nafn i hvern lið, en sama nafnið má rita i fleiri liði, sbr. poppstjarna—tónlistarmaður—söngv- Gitarleikari
Söngvari
Trommuleikari
ari—gitarleikari. Gætið þess að ruglast ekki á liðunum „tónlistarmaður” og Bassaleikari
„popp-stjarna” þvi þar er um tvennt gerólikt að ræða,annars vegar manninn með vinsældirnar, hins vegar manninn með hæfileikana, þó svo að i einstaka tilfelli megi flokka þetta undir Hljómborðsleikari
Tónlistarmaður
sama. Tónlistarmenn islenskir starfandi á erlendri grund teljast einnig til þessara kosninga. PoDD-stiarna