Vísir - 21.01.1976, Qupperneq 13
ER IRWIN
ÚR LEIK?
Allt útlit er fyrir að stærsta von Kanada um gullverðlaun i
bruni karla á Olympiuleikunum i Innsbruck i byrjun næsta
mánaðar, Dave Irwin, verði ekki meðal keppenda þar.
Hann slasaðist illa i brunkeppninni i Wengen I Sviss á dögun-
um og liggur nú á sjúkrahúsi með nokkur brotin rifbein, slitin
liðbönd og tognaður á fæti.
Hann féll illa efst i brautinni i fyrri umferðinni — þarna var
barist um stig i heimsbikarkeppninni — rann stjórnlaust niður
brautina og var rænulaus þegar að var komið. Þyrla var fengin
til að flytja hann á sjúkrahús i Interlaken, og þar er haft eftir
læknum, að hann verði varla orðinn nógu góður þegar brun-
keppnin hefst i Innsbruck, en það er ein af fyrstu greinum
leikanna, sem keppt verður I.
Aftur á móti er það haft eftir Irwin, sem er 20 ára gamall og
sigraði m.a. i bruni i heimsbikarkeppninni i Schladming i
Austurriki i siðasta mánuði, að hann ætli sér að vera kominn á
fætur fyrir þann tima, og kominn i það mikla æfingu, að gullið
verði hans. -klp-
o •
Sendiráðsmaðurinn œtlar
að gera Danmörku að stór-
veldi í körfuknattleik!
Tók við um áramótin og hans fyrsta verk var að kasta
út úr búningsklefanum bjór og vindlingum
A sama tima og islendingar
fengu tvo bandariska körfuknatt-
leiksmenn til að leika með tveim
1. deildarliðum — KR og Ar-
manni — fengu danir sér einnig
sina fyrstu „atvinnumenn”. Þeir
gerðu — eins og oftast — betur en
islendingar — fengu sér þrjá — og
þeir hafa eins og hér gert það að
verkum, að nú sækja danir enn
meir i að horfa á körfubolta en
áður, og sérstaklega þá leiki, sem
útlendingarnir taka þátt i.
Raunar er ekki hægt að segja
að þeir hafi fengið nema tvo frá
Bandarikjunum — Charles
Campbell sem leikur með USG og
Graig Scott, sem er hjá
Stebnsgade — þann þriðja fundu
þeir á „heimavigstöðvum” en
'það er Dale Dover, sem er einn af
háttsettustu mönnum i banda-
riska sendiráðinu i Kaupmanna-
höfn. Hann leikur með Sisu,
liðinu, sem Þorsteinn Hallgrims-
son lék með iþar til i fyrra, og nú
frá og með 1. janúar hefur hann
tekið við þjálfun danska lands-
liðsins.
Dover þessi sem er 26 ára
gamall, og er rúmir tveir metrar
á hæð, var áður leikmaður með
Harvard University og hinu
frægu atvinnum.liði B. Celtic. í
heimalandi sinu var hann þekktur
undir nafninu „Flash” og það
kalla danir þennan nýja lands-
liðsþjálfara sinn einnig. Hann
fékk á sinum tima tilboð frá hinu
fræga sýningaliði Harlem .
Globetrotters, en afþakkaði það,
sagðist heldur vilja starfa hjá
utanrikisþjónustunni og æfa og
leika með áhugamönnum viða um
heim — en til Danmerkur kom
hann frá sendiráðinu i Portúgal.
Hann var ekki að skafa utan af
hlutunum, þegar hann tók við
danska landsliðinu nú um ára-
mótin og ræddi þá við blaða-
menn. „Þið eigið mikið af frábær-
um efnum i góða körfuknattleiks-
menn” sagði hann. „Ég ætla mér
að velja gott lið og ná góðum
árangri með það, og við stefnum
m.a. að þvi að sigra i Polar Cup
keppninni, sem háð verður hér i
Kaupmannahöfn i april.
En til þess að svo megi verða,
verður i fyrsta lagi að vera
hugarfarsbreyting hjá landsliðs-
mönnunum. Til þessa hefur
landsliðið farið inn á með þvi
hugarfari að tapa með sem
minnstum mun, en nú þegar ég
tek við, verður farið inn á til þess
eins að sigra — sama við hverja
við leikum.
Ég trúði þvi ekki fyrr en ég sjá
það sjálfur að eitt fyrsta verk
danskra kröfuknattleiksmanna
að loknum leik, var að hella i sig
bjór og kveikja sér i vindlingi inni
i búningsklefa. Þetta hafði ég
aldrei séð fyrr en hér i Dan-
mörku.
Hér eftir verður þetta bannað,
og sömuleiðis allt sem heitir öl og
vindrykkja, og skal aldrei fara
ein bjórflaska inn i búningsklefa
hjá danska landsliðinu á meðan
að ég ræð þar rikjum.
Það er eins og það sé einhver
hefð hjá dönskum körfuknatt-
leiksmönnum að þamba sem
mest af bjór i reykfylltum
búningsklefunum að loknum leik,
en nú er þvi lokið. Ef leik-
mennirnir geta ekki sætt sig við
það — hversu góðir sem þeir eru
— er minu starfi með landsliðið
þar með lokið.
Ég hef hugsað mé að búa til gott
landslið úr þeim efnivið, sem hér
er, og ég veit að ég get það, ef
leikmennirnir vilja og gera það
sem ég segi þeim. Danmörk get-
ur orðið stórveldi i körfuknatt-
leik, en til þess að svo megi
verða, þurfa menn að fórna ein-
hverju, og ef það verður gert, skal
ég sjá um afganginn”, sagði þessi
eldfljóti leikmaður við dönsku
blaðamennina um leið og hann
klæddi sig úr diplómatajakkanum
og i æfingagallann... -klp-
Miðvikudagur 21. janúar 1976. VISIR
VISIR
Miðvikudagur 21. janúar 1976.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal.
Stefán Gunnarsson verður að hafa hægt um sig þessa dagana, en hann var þó hinn vigreifasti þegar
við litum inn til hans. „Þeir verða að berjast eins og ljón ikvöld, strákarnir”, sagöi Stefán og kreppti
hnefann þvi til áréttingar.
„Byrjunin rœður
úrslitum í kvöld
— sagði Stefán Gunnarsson sem getur ekki leikið gegn FH
„Ég veit ekki hversu alvarleg
meiðslin eru, en þau eru nógu
slæm til þess að ég get ekki
verið með gegn FH i kvöld né á
móti Þrótti á sunr.udaginn”,
sagði Stefán Gunnarsson, lands-
liðsmaður og leikmaður með 1.
deildarliði Vals i handknattleik
— þegar Visir sótti hann heim i
morgun. Stefán varð fyrir þvi
óhappi i leik Hauka og Vals i
Hafnarfirði á sunnudaginn að
meiðast illa á ökkla — og liggur
hann nú heima með fótinn i
þrýstiumbúðum, samkvæmt
læknisráði.
„Það kemur svo væntanlega i
ljós i dag hversu alvarleg
meiðslin eru, þvi að þá fer ég i
læknisskoðun. Ef um slæma
tognun er að ræða varmérsagt
að ég yrði góður eftir tiu daga,
en ef liðbönd eru slitin — þá
versnar málið þvi að þá leik ég
örugglega ekki meira með i
þessu tslandsmóti.
„Leikurinn i kvöld verður
erfiður hjá strakunum, en það
er þó bot I máli að Jón Karlsson
er kominn heim — en hvort
það verður nóg — fer allt eftir
byrjuninni. Ef strákarnir byrja
jafnilla og við gerðum á móti
Haukum á sunnudaginn — þá er
ég ekki alltof bjartsýnn. Við
lærðum að visu vissa lexiu i
þeim leik, en hvort hún hefur
verið nægjanleg verður að
koma i ljós i kvöld.”
Valsmenn verða þvi ekki
öfundsverðir I Hafnarfirði i
kvöld, þegar þeir leika við FH I
1. deild tslandsmótsins i hand-
knattleik án fyrirliða sins,
Stefáns Gunnarssonar. Stefán
hefur verið jafnbesti maður
liðsins i vetur, bæði i sókn og
vörn og verður skarð hans þvi
vandfyllt. Valur stendur best að
vigi i baráttunni um Islands-
meistaratitilinn, en tap liðsins
fyrir Haukum um siðustu helgi
setti strik i reikninginn. Vals-
menn eru nú með 13 stig eftir 9
leiki, Haukar eru með 12 stig
eftir 10 leiki og siðan koma FH,
Fram, Vikingur og Þróttur með
lOstig — FH og Vikingur eftir 9
leiki, en Fram og Þróttur eftir
10 leiki.
Það eru þvi sex lið sem
berjast ennþá um islands-
meistaratitilinn, en staða Vals,
Hauka. FH og Vikings er par
best eins og stendur.
Það má þvi reikna með að
FH-ingar sem töpuðu fyrir
Viking á sunnudaginn og voru
eina liðið sem vann Val i fyrri
umferðinni, leggi allt kapp á að
sigra I leiknum i kvöld, þvi að ef
þeim tekst það ekki, þá getur
orðið erfitt að vinna upp það
þriggja stiga forskot sem
valsarar þá hafa.
Leikur FH og Vals hefst um
kl. 21.15 i iþróttahúsinu i
Hafnarfirði i kvöld, en á undan
leika Grótta og Vikingur og
hefst sá leikur kl. 20:00. t þeim
leik má reikna með öruggum
sigri Vikings, þvi að Gróttuliðið
hefur vægast sagt ekki verið
uppá marga fiska að undan-
förnu — eins og staða liðsins
gefur glögglega til kynna.
Fyrir þá sem hafa gaman af,
birtum við stöðuna eins og hún
er I dag og geta menn þvi velt
vöngum yfir möguleikum
einstakra liða i keppninni.
Valur
Haukar
FH
Fram
Vikinfur
Þróttur
Arinann
Grótta
Reenen í
öðru sœti!
Það er ekki á hverjum degi scm
suður-afrikumaðurinn John van Reenen, tap-
ar i kringlukasti og það ekki sist þegar landar
hans eru annars vegar. Reenen hefur verið i
fremstu röð kringlukastara i heiminum —
hefur kastað lengst 68.48 m.
Hann varð þó að gera sér að góðu annaö
sætið i kringlukasti á frjálsiþróttamóti sem
fram fór i Port Elizabeth í Suður-Afriku í
gærkvöldi á eftir landa sinum Pict Goosen
sem er aðeins 20 ára og kastaöi 63.84 m.
Rcenen kastaöi 63.34 m.
A sama móti hljóp Danie Malan 3000 m á
7.58.2 m inútum — og Smit (fornafn hans ekki
gefið upp i fréttaskevtinu) hljóp miluna á
3.59.00 minútum.
— BB.
Atli Þór
til Holbœk?
Allt útlit er l'yrir að KR-ingurinn Atli Þór
Héðiiisson muni leika með danska 1. dcildar-
liðinu Ilolbæk sama félagi og Jóhannes
Eðvaldsson lék með i fyrra sumar.
Eins og við sögðum frá á dögunum, er Atli
farinn til Danmerkur, þar sem hann hyggst
stunda nám i matvælatæknifræði, en það
nám tekur a.m.k. fjögur ár.
Þrjú félög höfðu jiegar samband við hann
er hann kom þangað — Köge, B 1903 og
llolbæk — og er nú allt útlit fvrir að hann
muni velja Holbæk.
Ilonum hafði verið lofað bæði húsnæði og
atvinnu áður en hann hélt að lieiman, en
þegar til kom stóðst hvorugt. Þeir hjá
Ilolbæk buðust þá til að aðstoða hann með
þetta tvennt, svo að hann þyrfti ekki að fara
heim aftur.
Skólinn sem hann mun stunda nám i, hefst i
september. og mun vera eins auðvelt fyrir
hann að sækja liann frá llolbæk og Kaup-
mannahöfn og þvi er reiknað með að hann
slái til og þiggi boð þeirra holbækmanna, sem
eru mjög hrifnir af islendingum eftir að
.lóhannes Eðvaldsson var hjá þeim. -klp-
Landslið tékka
tapaði
fyrir Feyenoord!
Hollenska liðið Feyenoord sigraði landslið
tékka I knattspyrnu I Rotterdam I gærkvöldi
4:2. Staöan i hálfleik var 3:1.
Mörk Feyenoords skoruðu Jansen, Kreuz
og de Jong <tvö), en mörk tékkanna þeir
Pollak og Pevarnik. Áhorfendur voru 10 þús-
und.
— BB.
Bjóða frítt kaffí
að fá aðsókn!
til
*
förnu, er hið fræga Kaupmanna-
hafnarlið HG, sem nú er I einu af
neðstu sætunum i 1. deild. Nú
hafa forráðamenn þess fundið
upp nýtt ráð til að draga að
áhorfendur, og er það fólgið i þvi
að hafa suma heimaleiki liðsins
fyrir hádegi á sunnudögum, þeg-
ar lítið er um að vera i stórborg-
inni.
Sem uppbót er áhorfendunum
boðið upp á fritt morgunkaffi, og
hefur þetta mælst ágætlega fyrir
meðal þeirra — I þau fáu skipti
sem þetta hefur verið reynt. klp
Mörg af frægustu og rikustu félögum heims biða eftir því að samningur Johans Cruyff við Barcelona
renni út i sumar.
FER CRUYFF TIL ÍTALÍU?
Handknattleikurinn i Dan-
mörku hefur ekki átt neinni sér-
stakri velgengni að fagna að
undanförnu, og hefur það komið
glöggt I ljós i aðsókn að leikjunum
i 1. deild karla.
Það eru aðallega félögin i
Kaupmannahöfn og nágrenni sem
hafa átt við þetta vandamál að
etja, en aftur á móti hafa liðin úti
á landsbyggðinni ekki þurft að
kvarta mjög mikið. Þó er ljóst að
aðsókn að handknattleiknum
hefur minnkað allverulega á
undanförnum árum,og er nú ólikt
minni en þegar Danmörk var og
hét eitthvað i aiþjóða handknatt-
leik.
Helsingör hefur einna jafnbestu
aðsóknina, að sögn dönsku blað-
anna, og er ástæðan sögð sú, að
liðið er með á boðstólum ýmislegt *
skemmtilegt, sem fellur vel i
kramið hjá áhorfendum. Annars
segja blöðin að liðin leiki almennt
þannig handknattleik urn þessar
mundir, að þau dragi ekki að
áhorfendur.
Það félag sem hefur átt einna
erfiðast uppdráttar að undan-
En heimamenn eru
afbrýhisamir....
ítalska knattspyrnufélagið
Juventus er nú á höttunum eftir
hollensku „superst jörnunni”,
Johan Cruyff sem nú leikur með
spánska félaginu Barcelona, sem
keypti hann frá Hollandi fyrir
922.300 sterlingspund.
„Það er ekkert hægt að segja
um samningaviðræður okkar við
Cruyff á þessu stigi málsins, þvi
þær eru enn á byrjunarstigi,”
sagði Pietro Gulliano, ritari
Juventus, við fréttamenn i gær —
eftir að hann hafði átt klukku-
stundar fund með Cruyff. „Það
verður ekkert ákveðið fyrr en i
mai eða júni, og þá verða það
peningarnir sem skipta mestu
máli.” Gulliano sagði að Cruyff
sem verður laus allra samninga
við Barcelona 30. júni hefði sýnt
mikinn áhuga á að koma til ítaliu.
Eins og sakir standa fá erlend-
ir knattspyrnumenn ekki að leika
á ítaliu, en Gulliano sagði að þvi
banni yrði aflétt á næstu mánuð-
um — og væru stóru félögin þegar
farin að leita fyrir sér að
erlendum knattspyrnustjörnum.
Eftir að Cruyff var keyptur til
Barcelona frá Ajax 1973 sigraði
félagið i spönsku 1. deildar-
keppninni og hafði Barcelona þá
ekki unnið neinn titil i 14 ár, og
var Cruyff markahæsti leik-
maður liðsins það árið — skoraði
14 mörk.
Eftir það hefur ekki gengið
alltof vel hjá Barcelona og nú er
liðið i 2. til 3. sæti ásamt Real
Madrid á eftir Atlectico Madrid
sem hefur forystuna i deildar-
keppninni.
-BB.
A skemmtistabnum
|Sjái6 þið þær þessar