Vísir - 21.01.1976, Page 17
VISIR Miðvikudagur 21. janúar 197«.
( ~
Útvarp, kl. 19,35:
Útvarp, kl. 14,30 fimmtudag:
Hver eru starfskjör
bankastjóra?
Starfskjör bankastjóra eru
meðal efnis i þættinum „Vinnu-
mál” i útvarpinu i kvöld. Þar
verður rætt við Baldvin Jónsson
ritara bankaráðs Landsbanka
íslands um starfskjör banka-
stjóra.
Þátturinn hefst annars á þvi
að fjallað verður um rétt manna
til inngöngu i stéttarfélög. bvi
næst verður sá fasti liður þátt-
arins að svara spurningum
hlustenda. Eru menn hvattir til
að nota sér þessa þjónustu.
f þessum þætti verður svarað
fyrirliggjandi spurningum.
Fastur liður þessara þáttar er
að kynna stéttarfélög og félög
atvinnurekenda. Að þessu sinni
verður kynnt samband is-
lenskra bankamanna.
„Vinnumál” hefst klukkan
19.35.
— VS/EA
Öskjuhliðarskóliun á meðan hann var enn i byggingu. t haust var liann tekinn I notkun, en nú er hús-
næðið orðiðof litið og ekkert bólar á nýjum áfanga.
Öskjuhlíðarskólinn:
Þegar of f jölmennt
og ekki hœgt að
taka við fleirum...
Öskjuhliðarskólinn er tekinn
fyrir i útvarpinu á morgun, i
þætti sem Gisli Helgason og
Andrea Þórðardóttir sjá um.
Öskjuhliðarskólinn er skóli fyrir
hugfötluð börn. Þaðvar sannar-
lega breyting til batnaðar þegar
hægt var aðflytja úr Iiöfðaskóla
i þessi nýju húsakynni. En nú er
svo komið, að Öskjuhliðarskól-
inn er orðinn of litill, og getur
ekki tekið við fleiri börnum.
Þau Andrea og Gisli lögðu leið
sina i' Öskjuhliðarskólann til
þess að ræða þar við Magnús
Magnússon skólastjóra sem lýs-
ir meðal annars skólanum.
Skólinn var tekinn i notkun i
haust. Áður varð að búa við
mjög slæma aðstöðu i Höfða-
skóla. Allir hlökkuðu til þess að
geta flutt, og kennararnir sáu
fram á að geta loks veitt börn-
unum það, sem ekki var hægt að
hugsa um áð'ur. En sama
vandamálið blasir við. Húsnæð-
ið er fallegt og gott en þrengslin
eru ennþá fyrir hendi. Það er
þvi ekkert skritið þó menn séu
sárir yfir þvi að enn bólar ekk-
ert á nýjum áfanga.
f skólanum eru börn á öllum
aldri,um 110 að tölu. Of mikið er
af börnum i skólanum eins og
er, og þvi er ekki hægt að taka
við fleirum.
En meira um þetta og frekari
upplýsingar fáum við i útvarp-
inu á morgun klukkan hálf þrjú.
—EA
MIÐVIKUDAGUR
21. janúar
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Kreutzersónatan” eftir
Leo Tolstoj Sveinn Sigurðs-
son þýddi. Árni Blandon
Einarsson les (8)
15.00 M iðdegis tónleika r.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Bróðir minn ljónshjarta”
eftir Astrid Lindgren
Þorleifur Hauksson les þýð-
ingu sina (12).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 VinnumáLÞáttur um lög
og rétt á vinnumarkaði.
Umsjónarmenn: lög-
fræðingarnir Gunnar Eydal
og Arnmundur Backman.
20.00 Kvöldvaka.a. Einsöngur
Elsa Sigfúss syngur islenzk
lög. Valborg Einarsson
leikur á pianó. b. Gisli
Gróuson Skerfjörð Magnús
Sveinsson kennari flytur
frumsamda smásögu.
Hagnýt lifsspeki.Dr. Sveinn
Bergsveinsson flytur frum-
ort stuttjóð. d. Þegar bjarn-
dýr gekk á land i Grimsey
Sigriður Schiöth les frásögn
Péturs Sigurgeirssonar
vigslubiskups. e. Litið til
byggða austan Lónsheiðar.
Þórður Tómasson safn-
vörður i Skógum flytur
fyrra hluta erindis sins. f.
Kórsöngur Kammerkórinn
syngur islenzk lög. Söng-
stjóri: Rut L. Magnússon.
21.30 útvarpssagan:
„Morgunn” annar hluti Jó-
hanns Kristófers eftir
Komain Kolland i þýðingu
Þórarins Björnssonar. Anna
Kristin Arngrimsdóttir leik-
kona les (8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: ,.í verum" sjálfsævi-
saga Theódórs Friðriksson-
ar Giis Guðmundsson les
siðara bindi (8).
22.40 Pjassþátturi umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
21. janúar 1976
18.00 Björninn Jógi. Banda-
risk teiknimyndasyrpa.
Þýðandi Jón Skaptason.
18.25 Kaplaskjól. Breskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Monicu Dick-
ens. Brottförin. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.50 Gluggár. Bresk fræðslu-
myndasyrpa. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Aðalsteinn Ingólfsson.
21.15 McCloud. Bandariskur
sakamálamyndaflokkur.
Kvennamorðinginn. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
22.05 Kaj Munk. Dönsk heim-
ildamynd um prestinn og
rithöfundinn Kaj Munk.
Vinir og vandamenn segja
frá kynnum sinum af hon-
um. Einnig er lesið úr verk-
um hans. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision-
Danska sjónvarpið).
23.05 Dagskrárlok.
Stórkostlegt högg, Kalli, en
Sjónvarp, kl. 20,35:
Listaskóldin
inn í stofu til
— í þœttinum Vöku
Hjalti Rögnvaldsson hefur vakið mikla athygli fyrir leik sinn i
Equus. Spjallað verður við hann i Vöku i kvöld. Hér er Hjalti með
dóttur sinni.
Þeir sem ekki kom-
ust i Háskólabió til þess
að sjá og heyra lista-
skáldin vondu eiga
kost á þvi að fá þau inn
i stofu i kvöld. Þrjú
skáldanna koma nefni-
lega fram i þættinum
Vöku.
Þeir sem koma fram
eru Guðbergur Bergs-
son Sigurður Pálsson
og Hrafn Gunnlaugs-
son. Þeir fara með verk
sin sem þeir fluttu i Há-
skólabiói.
Eins og komið hefur fram
tókst skáldunum að fylla salinn i
Háskólabiói og meira en það.
Margir höfðu talið þetta djarft
og áttu ekki von á þvi að margir
sýndu áhuga. En það er vonandi
vondu
okkar
að þetta verði endurtekið, eða
eitthvað þessu likt.
En fleira er á dagskrá i Vöku.
Sýnd verða tvö atriði úr Equus
sem Leikfélag Reykjavikur
sýnir um þessar mundir, og hef-
ur viðasi hvar fengið góða
dóma.
Hjalti Röngvaldsson fer með
aðalhlutverkið en frammistaða
hans hefur vakið mikla athygli.
Aðalsteinn Ingólfsson umsjón-
armaður Vöku, ræðir við Hjalta
i þættinum i kvöld.
Þá verður grafiksýningin i
Norræna húsinu á dagskrá, en
sú sýning er merkileg, m.a.
vegna þess aðhér er um að ræða
útlánasýningu. Spjallað verður
við Jón Reykdal um þessa sýn-
ingu.
Loks verður svo rætt við Ólaf
Jóhann Sigurðsson i tilefni þess
að hann fékk bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs. Það er
Vésteinn Ólason lektor sem
ræðir við Ölaf Jóhann. —EA