Vísir - 21.01.1976, Page 24
VfSIR
Miðvikudagur 21. janúar 1976.
Skogi:
Aldrei eins
mikill snjór
í 35 ór...
er mesti snjór sem
ég man eftir á Skaga í þau l!5
ár sem ég hef verið hér” varð
lögreglumanni á Akranesi að
orði i morgun. þegar við rædd-
um við hann. en i nótt snjóaði
þar mikið.
Ef vind hreyfir eitthvað má
fastlega gera ráð fyrir þvi að
allt verði ófært þar. Eins og
er, er þó illfært á mörgum
stöðum, og búast má við þvi að
nóg verði að gera i dag við að
koma bilum af stöðum þar
sem þeir hafa festst.
Engin óhöpp hafa orðið á
Akranesi, en litill drengur
varð þó fyrir bO i gær, en hann
mun ekki hafa slasast.
— EA.
Innbrot í bóta
í leit að lyfjum
Brotist var inn i tvo báta, Helgu
RE og Birting AR, þar sem þeir
lágu við Grandagarð. Stjórnklefi
beggja var brotinn upp.
Sennilegt er að tilgangurinn
hafi verið að afla lyfja en ekkert
hafðist upp úr krafsinu, þvi að
lyfjakassar beggja bátanna
höfðu verið teknir i land.
Að sögn rannsóknarlög-
reglunnar er þetta að verða
ófremdarástand með báta við
Grandagarð. Engin vakt er þar
og þvi vaða menn af þessu tagi
uppi og leita ákaft i bátunum i von
um að finna einhvers konar lyf.
-VS
Góðar kökur
í Breiðholts-
bakaríi
Akaflega hljóta þær að vera
góðar kökurnar I Breiðholts-
bakarfi. Aðfaranótt laugar-
dagsins var brotist þar inn og
hver einasta kaka étin, sem
var i útstillingarskápnum.
Farið var beinustu leið inn i
bakariið, spyrnt upp hurðinni
og karmurinn stórskemmdur.
Gert var við skemmdirnar
til bráðabirgða.
Ekki stóð sú dýrð lengi, þvi
að um miðnættið siöasta var
hurðinni aftur spyrnt upp og i
sama tilgangi, hver einasta
kaka étin. Að visu hefur
græðgin verið fullmikil, þvi að
eitthvað fór til spillis út um
gólfið. -VS
Yfir 40 símtöl
ó klukkutíma
Allir spyrja um fœrð
Siminn hjá lögreglunni i
vrhæ stoppar varla þegar
ófærðin er hvað rnest. 1 morg-
un þegar Vlsir hringdi á lög-
reglustöðina þar. var okkur
sagt. að þetta væri i 22. skiptið
á einuin klukkutima sem
siminn hringdi þar.
Fólk hringir stöðugt til þess
að vita hvernig fa-rðin er á
hinum og þessum stöðum. Ollu
meira mun þó hafa verið
hringt i ga'rmorgun, og gisk-
aði lögreglan á að simtölin
hefðu verið helmingi lleiri eða
yfir 40 á einum klukkutima.
— E A.
Fœr ekki að
auglýsa mjólk
— Vörum arkaðurinn I
Armúla fær ekki að auglýsa að
þar fáist mjólk og mjólkuraf-
urðir. Þetta eru skilyrði sem
M jólkursamsalan setur fyrir
mjólkursöluieyfi, segir forstjóri
fyrirtækisins, Ebenezer As-
geirsson.
„Þegar ég fékk loks mjólkur-
söluleyfi og fór að selja mjólk
fyrir nokkrum dögum, fylgdu
þau skilyrði munnleg að ég
mætti ekki auglýsa mjólkina”
sagði Ebenezer þegar Visir for-
vitnaðist um málið hjá honum.
„Þetta er mjög bagalegt fyrir
mig. Þegar ég opnaði nýju mat-
vörudeildina fyrir tveimur
mánuðum, var ég ekki búinn að
fá mjólkursöluleyfi. Ég er bú-
inn að missa óskaplega mikið af
viðskiptavinum, sem reiknuðu
með að ég hefði strax mjólk,
eins og aðrar verslanir með
þessu sniði” sagði Ebenezer.
Hann sagði að það kæmi sér
þvi mjög illa að geta ekki aug-
lýst að mjölkin væri nú loks
komin.
Hræddir við sprengingu!
„Þegar ég spurði hvers vegna
ég mætti ekki auglýsa, var mér
sagt að það yrði að vera svo, til
að ekki yrði sprenging hjá ein-
hverjum mönnum”.
,,Ég er búinn að vera i óskap-
legri baráttu, ekki aðeins við
Mjólkursamsöluna, heldur við
kerfið.
Fyrst fékk ég synjun á
mjólkursöluleyfi. En siðan fékk
ég leyfi til að selja mjólk, um
leið og frumvarp til laga um
mjólkursölu kæmi fram á
Alþingi. Mjólkursölunefndin
samþykkti þetta. Siöan var
þetta stoppað frá æðri stöðum,
og ég hef átt i mikilli baráttu.
Ég hef fullkomið heilbrigðis-
vottorð, og engin verslun hefur
stærri kælibúnað fyrir mjólkur-
vörur, þannig að þar er engin
hindrun i veginum. En það eru
nokkrir menn innan kaup-
mannasamtakanna sem hafa
gert mér þetta og fengið kerfið
til að ganga svona afturábak”.
— ÓH.
45 togarar
á veiðum
Herskipin eru farin útfyrir eftir
þvi sem við best vitum, en það
eru eftir einir fjörutiu og fimm
breskir togarar að veiðum i
landhelginni, sagði Jón
Magnússon, blaðafulltrúi Land-
helgisgæslunnar, við Visi i
morgun.
— Venjulega eru ekki nema
um tuttugu togarar að veiðum
hér um þetta leyti. Landhelgis-
gæslan hefur fyrirmæli um að
halda áfram að verja land-
helgina, eins og kemur fram i
ummælum forsætisráðherra,
svo við biðum nú frétta.
— Það eru tveir dráttarbátar
hjá togurunum, sem eru út af
Melrakkasléttu. Það eru States-
man og Euroman. Við hlýddum
áðan á tal Euroman og freigát-
unnar Falmouth, og hún
itrekaði fyrirmæli frá þvi i gær
að Euroman skuli yfirtaka
stjórn togaraflotans.
— Það var ekki flugve'ður i gær,
en við vonumst til að geta sent
vélina út i dag, til þess meðal
.annars að lita á herskipin.
Visir hafði samband við flug-
umsjón i morgun og fékk þær
fréttirað engin njósnaþota hefði
boðað komu sina á miðin.
Aætlað var að ein kæmi i gær,
en tilkynnt var um seinkun á
ferð hennar, og hún lét svo
aldrei sjá sig. -ÓT.
Torfœrubíll
í sjúkra-
flutningum
Bfll frá slysavarnadeildinni
Ingólfi i Reykjavik var i sjúkra-
flutningum I alia nótt og var
enn þegar við höfðum samband
við Hannes Hafstein hjá Slysa-
varnafélaginu I morgun.
Sagði hann að lögreglan hefði
hringt i gærkvöldi og beðið um
að fá bilinn. Þótti vissara að
hafa hann til taks ef færð
versnaði.
Bill þessi er af Unimog-gerð,
feikna-mikið tæki, sem ekkert
stendur fyrir. Er hann einstak-
lega heppilegur til þessara nota
þegar færð er slik sem nú og
hægt er aö taka úr honum sætin
og fá þannig rými fyrir 9 sjúkra-
körfur. -VS.
„EG ER
AÐALLEGA
HISSA"
„Mér Hður bara engan veg-
inn. Ég er aðallega hissa. Þessi
vcrðlaunaveiting kom mér svo
gersamlega á óvart” sagði Atli
Heimir Sveinsson tónskáld sem
I gær hlaut tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs, fyrstur Is-
lendinga. — Atli er tónlistar-
gagnrýnandi VIsis.
Kona hans Sigriður Hanna
Sigurbjörnsdóttir bætir viö:
„Ég hringdi I hann seinni part
dagsins, áður en frést hafði af
verðlaunaveitingunni og spurði
livort hann hefði nokkuð frétt.
„Frétt, af hverju? spurði hann.
„Verðlaunaveitingunni?”
„Gleymdu þessu,” sagði hann
og þar með var það búið i bili.”
— O —
Nú siðustu árin hefur mikil
gróska verið i tónsmiðum. Bæði
samin mikil og góð islensk tón-
list.”
— Hvernig verk er verð-
launaverk þitt?
„Þetta er flautukonsert. Ég
samdi hann fyrir vin okkar,
Robert Atkin frá Kanada, sem
oft hefur verið hér á landi og á
hér marga vini.
Við hjónin vorum árið 1972 i
Kanada hjá honum og þá bað
hann mig að skrifa stórt verk
fyrir sig. Verkið var siðan skrif-
að um haustið og frumflutt af
Sinfóniuhljómsveitinni. Sjálfur
stjórnaði ég hljómsveitinni, en
Robert Atkin lék einleik af
þeirri snilld sem honum er lag-
in.”
Atli Heimir Sveinsson tónskáld og kona hans, Sigriöur Hanna Sigur-
björnsdóttir. Ljósmynd Loftur.
— Ég vona að athygli manna
beinist i rikara mæli að islensk-
um tónsmiðum en verið hefur,
sagði Atli þegar við spurðum
hver áhrif hann teldi að verð-
launaveitingin myndi hafa.
„Ekki aðeins nútima verkum
heldur og verkum fyrri tón-
skálda. Við höfum átt betri tón-
skáld bæði fyrr og nú en við höf-
um gert okkur grein fyrir.
Sumarfristónskáld
Gera þessi verðlaun þér kleift
að sinna meira tónsmiðum en
áður?
„Ég hef ekki hugmynd um
það. Ég og margir aðrir félagar
minir höfum unnið við kennslu
svo okkur gefst helst tækifæri
þegar fri eru að sinna tónsmið-
unum.
Það er, mest i sumarfrium og
öðrum slikum frium. Það má
kannski segja að við séum eins
konar sumarfristónskáld.
Miðaö við þessar aðstæður er
undravert hverju islensk
tónskáld hafa fengið áorkað.
— íslensk tónskáld hafa ekki
verið metin sem skyldi á erlend-
um vettvangi en það er samt að
aukast. Það væri gleðilegt ef
þessi verðlaunaveiting gæti orð-
ið til þess i rikara mæli að vekja
athygli á islenskum tónsmið-
um”- - EKG.