Vísir - 03.04.1976, Blaðsíða 1
TÝR BRAUST ÚT
ÚR HERKVÍNNI!
Skipherrarnir á
bresku freigátunum eru
vanir þvi að islensku
varðskipin reyni að
vikja sér undan ásigl-
ingartilraunum þeirra.
tslendingarnir eru lika
orðnir leiknir i þvi þótt
stundum ráði hraða-
munurinn úrslitum. Það
kom þvi eins og köld
vatnsgusa framan i
skipherrann á freigát-
unni Tartar, þegar
Guðmundur Kjærnested
lét Tý „vaða á hann”
— ÓT
- SJÁ NÁNAR
Á BAKSÍÐU
Kostar svita og tár
Þaö vcröur mikiö um að vera i iþróttum um þessa helgi eins og oft-
ast um helgar. Meöal þeirra leikja og móta sem fara fram, er is-
landsmótiö i badminton, sem háö veröur á Akranesi, en þar veröa
um 100 keppendur. Hér eru verðlaunin, sem barist veröur um i mót-
inu, og koma þau efiaust til með að kosta mikinn svita og mörg tár
áöur en þau falla i skaut sigurvegaranna. Nánar um iþrótta viöburði
helgarinnar á biaðsíðu 12..
iMOKFISKA
jÓÁREITTIR
;við Bretar flýja íslandsmið
ÍGRÆNLAND
Breskir togaraskip-
stjórar og útgerðar-
menn veltá nú fyrir
sér, hvort það sé þess
virði að skarka á
islandsmiðum öllu
iengur, þar sem þeir
verði sifellt fyrir á-
reitni islenskra varð-
skipa.
Mjög góður afli við Grænland
virðist hafa komið róti á hugi
þeirra og eru taldar likur á, að
ýmsir skipstjóranna fari að for-
dæmi Bills Taylor, sem er kunn-
ur skipstjóri frá Fleetwood, en
hann var orðinn mjög þreyttur á
þeim truflunum, sem hann varð
sifellt fyrir á Islandsmiðum af
hálfu varðskipanna, og ákvað
að halda á Grænlandsmið.
1 stað smáfisksins, sem hann
haföi komið með af Islandsmið-
um, meðal ánnars af friðuðu
svæðunum, á skuttogara sinum
Jacinta.kom hann til Fleetwood
með ágætan fisk. Samkvæmt
fréttum frá Fleetwood, var
þarna um að ræða bestu veiði
togara þaðan i meira en ár.
Vakti aflinn mikla athygli á
fiskmörkuðunum i Fleetwood.
Hver veit nema stefnubreyting
gæti orðið hjá ýmsum þeirra
skipstjóra', sem veitt hafa undir
herskipavernd hér við land, og
fleiri haldi héðan á Grænlands-
mið, þar sem þeir geta fengið að
veiða óáreittir stóran og góðan
fisk.
—EKG.
ísland
vann
Noreg
ísland vann Noreg
18-11 á Norðurlanda-
móti unglinga fyrir 18
ára og yngri, i
Laugardalshöllinni i
gærkvöldi. danir unnu
þá svia 10-9.
Leikur islendinga og norð-
manna var jafn lengst af og
staðan i hálfleik 8-7 f. isl. Á
lokaminútunum var einum
norðmanna visað út af fyrir að
lemja á islendingi og var þá
gert út um leikinn. Hann stóð
13-11 þegar það geröist og
norðmenn gerðu ekki mark
eftir það.
1 siðari leiknum byrjuðu
danir vel og komust i 3-0 á 20
minútum. En sviar eru harðir
af sér og þótt leikur þeirra sé
ekki skemmtilegur er hann
nokkuð árangursrikur, og i
háifleik var ekki nema 4-3
fyrir dani.
1 siðari hálfleik náðu danir
aftur forskoti 5-8. Sviar jöfn-
uðu. en danir voru sterkari á
endasprettinum og unnu. A
morgun leika islendingar við
svia og finna. —BB/óT