Vísir - 03.04.1976, Side 9
VISIB l,augardagur :!. april 1976
9
Ánœgjuleg kvöldstund ó Nesi
Hlauptu af þér liornin.
Höfundur: Neil Simon
Leikstjóri: Helgi Skúiason
Leikmynd: Steinþór Sigurðsson
Þýðing: Hjörtur Halldórsson
(
'■ v-
Haraldur Blöndal
skrifar:
---------v*--------
j
Þórunn Halldórsdóttir og
Jónatan T. Steinsson.
Seltirningar leggja á það á-
herslu, að þeir séu annað og
meira en svefnbær frá Reykja-
vik. Og menningarstarfsemi er
mikil á Nesinu: bókasafnið þar
er t.a.m. með flest útlán á nef i
landinu. Leikfélag Seltjarnar-
ness er ekki gamalt, aðeins
fimm ára, en félagar þess hafa
verið duglegir og starfsemin
verið blómleg. M.a. hafa er-
lendar gestasýningar verið
furðu oft hjá svo ungu félagi.
Nú er það öllum ljóst, að á-
hugamannaleikfélag lýtur öðr-
um lögmálum en atvinnu-
mannafélög, ekki sist i nánd við
tvö helstu leikhús þjóðarinnar
og þau einu, sem svo til ein-
göngu styðjast við atvinnuleik-
ara. Það hefur hins vegar ekki i
för með sér, að áhugamanna-
sýningarnar séu verri sýningar
i þeim skilningi að þær veiti
verri skemmtun, siður en svo.
Hlauptu af þér hornin er
bandariskt leikrit, og höfundur
þess er kunnur gamanleikrita-
höfundur, — sjónvarpsáhorf-
endur muna sjálfsagt eftir laug-
ardagsmynd fyrir stuttu, sem
hét The Odd Couple, þar sem
Jack Lemmon lék aðalhlutverk-
ið. Hlauptu af þér hornin er
gamanleikrit um unga menn,
sem vilja lifa og leika sér frekar
heldur en vinna i fyrirtæki föð-
urins, — vera glaumgosar og
föndra við kvenfólk. Leikritið er
i ágætri þýðingu Hjartar
Halldórssonar.
Helgi Skúlason leikstýrir
þessu verki. Hefur leikurunum
verið mikill styrkur að njóta svo
ágætrar leiðbeiningar góðs leik-
stjóra.
Leikarar veittu áhorfendum
ágæta skemmtun. Vil ég þar
sérstaklega tilnefna Jón Jóns-
son og Jórunni Karlsdóttur i
hlutverkum þeirra Bakers-
hjóna, og þá ekki siður Hilmar
Oddsson.sem áreiðanlega getur
orðið góður leikari, er timar
liða, svo ágætlega sem hann lék
á stundum. Helst fannst mér
ljóður á sýningunni, að leikar-
arnir, einkanlega þeir yngri töl-
uðu full hratt, svo að orð runnu
saman.
Ég gat þess framar, að önnur
lögmál gilda um áhugamanna-
leikfélög. Þau eru mörg á Is-
landi, og þar hafa margir af
bestu leikurum okkar staðið
fyrst á sviði. Það er mikill mis-
skilningur, að starf þessara fé-
laga sé þýðingarlitið, allt leik-
húslif hlýtur að verða til þess að
efla áhuga landsmanna á leik-
list og tryggja hana. Leikhús er
að minum skilningi fyrir al-
menning fyrst og fremst, en
ekki fyrir sérmenntaðan áhorf-
endahóp manna i leikhúsfræð-
um, þótt vitanlega séu þeir
nauðsynlegir eins og súkkat i
jólaköku.
Leiksýning Leikfélags Sel-
tjarnarness kemur áhorfendum
i gott skap, og það verður eng-
inn svikinn af þvi að skreppa
suður á Nes eina kvöldstund.
Jón Jónsson og Hilmar Oddsson.
Mik Magnússon
skrifar
Sprengjuárásir eru
hafnar á ný i London.
Og nýjasti skotspónn
þeirra er neðanjarðar
járnbrautin og skipti-
linurnar til höfuð-
borgarinnar.
Þetta hefur leitt til mestu
öryggisráðstafana sem gerðar
hafa verið á friðartimum.
Vopnaðir leynilögreglumenn,
dulbúnir þannig að þeir líti út
fyrir að vera venjulegir far-
þegar, ferðast með flestum
lestum núna. Það gera einnig
einkennisklæddir lögreglumenn
(aðeins fáir þeirra eru
vopnaðir).
Öryggisverðir og lögreglu-
menn eru á verði á flestum
stöðvum og leita á öllum sem
hafastóra tösku eða skjalatösku
meðferðis.
Almenningur kvartar ekki
yfir þessu... reyndar segir fólk
þegarþaðerspurt,aðþaðsé þvi
fegið, þar sem það vilji heldur
láta leita á sér en sprengja sig i
loft upp.
Þvi verður ekki neitað að lög-
reglan hefur náð talsverðum
árangri. Tveir tilræðismenn
hafa meiðst af völdum sinna
eigin tóla i þessum mánuði. Og
þegarlögreglan oghinn sérstaki
hópur sem myndaður var til
varnar hermdarverkum rann-
sökuðu feril þeirra, leiddu hinir
grunuðu yfirvöldin að þremur
sprengjuverksmiðjum i London.
En það skyldi haft i huga að (i
það minnsta að hluta til) hefur
lögreglan verið mjög heppin.
Þvi ef tilræðismennirnir hefðu
ekki verið með gallaðar
sprengjur sem sprungu of
snemma, hefðu þeir sennilega
komist upp með aðgerðir sinar.
Hverjir eru þá þessir tilræðis-
menn? Svariðereinfalt: Óþjálf-
aðir irskir öfgamenn.
Nýlegar aðgeröir bæði i Eng-
landi og Irska lýðveldinu hafa
borið þann árangur að atvinnu-
hryðjuverkamenn IRA eru bak
við lásog slá — að minnsta kosti
flestir þeirra. Þetta hefur orðið
til þess að IRA verður aðtreysta
á „sofendur” („sleepers”) Það
eru irskir öfgamenn sem eiga a
fara til Bretlands og ekki hafa
samband við aðra irska
þjóðernissinna árum saman.
Þessir „sofendur” samlagast
umhverfi sinu: lifa eðlilegu lifi:
fara til vinnu: og virðast vera
venjulegir borgarar sem sinna
sinum málum.
Þeir búa venjulega i sama
svæði i þrjú eða fjögur ár
(stundum lengur), en þegar þeir
eru „settir i gang” flytjast þeir
til mið- eða suðurhluta Lundúna
ogsetjastað i litlum ibúðum eða
herbergjum.
Þar safna þeir sprengiefni frá
samböndum sem IRA útvegar.
Eina helgina sækja þeir
sprengiefnið sjálft — þá næstu
tundrið — og þar næstu tima-
stillinn og hvellhettuna.
Þegar þeir hafa náð öllum
hlutunum saman, reyna þeir að
muna þaðsem þeim hefur verið
kennt og setja sprengjurnar
saman.
Þar sem þeir hafa ekki farið
frá Bretlandi til að fara á endur-
hæfingarnámskeið i Irska lýð-
veldinu, gleyma þessir „sof-
endur” oft öllum smáatriðunum
sem þeim hefði verið kennt. Það
er þá sem mistölcin eiga sér
stað.
Þeir hryðjuverkamenn sem
hafa verið handteknir i London
upp á siðkastið hafa án undan-
tekninga verið „sofendur”. Ef
til vill eru þeir hættulegastír
allra pólitiskra öfgamanna. Þvi
að til að vera „sofandi” krefst
þess að menn helgi sig algerlega
málstaðnum. Þeir mega aldrei
hitta vini sina: geta aldrei farið
„heim”: og eru staðsettir með
aðeins eitt markmið ihuga — að
koma sprengjum fyrir á al-
mannafæri.
Allt þetta hefur orðið til þess
að lögreglan býst við nýrri öldu
ofbeldis. Það er ekki vitað
hversu margirhópar „sofenda”
eru i Bretlandi núna, en yfirvöld
teljaað margir slikir hópar geti
verið dreifðir um allt landið —
allir tilbúnir þegar merki
verður gefið frá Dubtin um að
fara af stað.
Alitið er að örfáir sprengju-
sérfræðingar, þjálfaðir af IRA
hafi verið sendir til Bretlands til
að halda endurhæfingarnám-
skeið fyrir hermdarverkamenn-
ina hér — sérstaklega með tilliti
til þess hversu margar illa
gerðar sprengjur hafa fundist
upp á siðkastið. Þaö er álitið að
IRA hafi áhyggjur af þvi að ef
þeir ekki þjálfi meðlimi sina
aftur muni öll herferð þeirra
hrynja til grunna.
Þetta hefur orðið til þess að
lögreglan hefur gefið út hverja
aðvörunina á fætur annarri til
almennings i Bretlandi.
F'ólk sem leigir út Ibúðir og
herbergi hefur verið beðið aö
vera sérstaklega varkárt núna.
Þvihefur veriö bent á aðathuga
vandlega meðmæli allra sem
hafa irskan hreim eða irskt
nafn, áður en þeim sé veitt slik
aöstaða. Og nágrannar se’rii
álita að „maðurinn i næsta
húsi" hagi sér grunsamlega eru
beðnir að hafa samband við
yfirvöld fljótt.
En þetta er aðeins toppur is-
jakáns. Sérstakar öryggisráð-
stafanir hafa verið gerðar fyrir
allan almenning.
Tilkynningar koma i
sjónvarpinu þar sem farþegar á
neðanjarðarlestanna eru beðnir
að tilkynna alla grunsamlega
pakka éða poka strax. Ef ein-
hver sér poka skilinn eftir, á
hann að segja starfsfólki lest-
anna frá þvi á næstu stöð. Allir
hinir farþegarnir eiga þá að
yfirgefa lestina. Alvarlegasta
aövörunin er „Takið ekki i
neyðarhemilinn á millistöðva ef
lestin er neðanjarðar”. Astæða
þess er að ef lestin stansaði,
myndi sprenging i svo mikilli
innilokun leiða til dráps eða lim-
lestunar mun fleira saklauss
fólks.
Þegar lögreglan fer að aug-
lýsa slikar ráðleggingar i
sjónvarpinu, er ljóst að neyöar-
'■'ástand rikir i landinu.
Við eðlilegar aðstæður myndi
þetta koma hryðjuverkamönn-
unum mjög vel. Þvi að hluti
kerfis þeirra er aö reyna að fá
lögregluna til að taka upp
strangar aðgerðir og láta
þannig li'a út fyrir aö lýðræðið
sé i upplausn og lögregluriki
komið á.
Þetta hentar borgáirskærulið-
um þar sem það liti út sem yfir-
völd brygðust of harkalega við
og neituðu almepningi um
borgaraleg réttindi. Þetta
myndi samkvæmt kenningunni
leiða til þess að almenningur
snérist á sveif með skæruliðun-
um.
En — að minnsta kosti hvað
snertir Bretland — hefur þetta
ekki tekist. 1 stað mikilla kvart-
ana við lögregluna vegna leita
sem skellt er á fólk fyrirvara-
laust, hefur breskur almenning-
ur tekið þeim allshugar.
Litið er á lögregluna sem ein-
beittskipulag gegn borgaralegri
upplausn og fagnað sem slfkri.
Þegar allt kemur til alls: ef
lögreglan ræður viö að fækka
sprengjuárásunum : tekst að
handtaka tilræðismennina: og
aö minnsta kosti viröast vera á
hælum leiðtoganna. þá hlýtur
það að vera litil fórn að leitað sé
í losKunum þinum.
Hermdarverkamennirnir
munu tapa ef þessi afstaða er
höfð hugföst.
SPRENGJUR
• Bretar taka leit fram yfir sprengjur
• Þrjár sprengjuverksmiðjur hafa nýlega fundist í London
• Atvinnuhryðjuverkamenn IRA bak við lás og slá
• Sprengjutilrœðin gerð af nýrri tegund hryðjuverkamanna
• Sprengjur springa í höndum tilrœðismanna
• Lögreglan auglýsir ráðleggingar í sjónvarpinu