Vísir - 22.06.1976, Síða 1
y
Réttargœslumennirnir efuðust um
einangrun gœsluvarðhaldsfanganna
— Voru fullvissaðir
um að gœslan
vœri fullnœgjandi
Réttargæslumenn þeirra sem
viöriönir eru Geirfinnsmáliö
geröu oft fyrirspurnir um þaö til
yfirvalda hvort gæsluvaröhalds-
fangarnir heföu möguleika á aö
hafa samband sin á milli.
„Töldum viö margt benda til
þess aö svo væri”, sagöi Jón G.
Zoéga lögfræöingur sem er einn
réttargæslumannanna. „Meðal
annars virtust fangarnir stundum
samræma framburö sinn eftir á.
Þeir komu þá meö sitthverja sög-
una annan daginn, en daginn eftir
voru sögurnar orðnar eins.
Þá álitum viö réttargæslu-
mennirnir aöstæður i Slðumúla
fangelsinu ekki benda til þess að
treysta megi einangruninni.
Hljóðeinangrun er þar engin.
Fangarnir hafa möguleika á að
tala saman gegnum loftræstikerf-
ið. Allt það sem sagt er á gangin-
um heyrist inn i klefana, vegna
raufanna, sem eru undir klefa-
hurðunum og bréfaskiptin milli
Sævars Ciecielski og samfanga
hans fóru fram um. Loks heyrist
það milli klefanna ef menn
ræskja sig eða hósta.
Við slikar aðstæður er ekki
hægt að ætlast til að fanga-
verðirnir geti haldið uppi full-
kominni einangrun, sérstaklega
þegar tekið er tillit til þess að þeir
eru önnum kafnir við þjónustu-
störf og geta þvi ekki verið öllum
stundum i klefaganginum.”
Réttargæslumennirnir voru þó
fullvissaðir um að enginn mögu-
leiki væri á þvi fyrir gæsluvarð-
haldsfangana að hafa samband
sin á milli.
Eftir að upp komst um bréfa-
málið velta menn þvi fyrir sér
hvort einangrun gæsluvaröhalds-
fanganna hafi ekki mistekist og
hvaða áhrif það hafi haft á rann-
sókn málsins. Virðist mönnum
timi til kominn að islendingar
eignist fangelsi sem uppfylli allar
kröfur um öryggi.
-SJ
ÓK FYRIR BÍL,
- STAKK AFFRÁ
Frá slysstaönum á mótum
Skúlagötu og Vitastigs I
morgun. Ljósm: Loftur.
SLYSSTAÐ
ökumaöur á fólksbifreiö meö
H númeri stakk af frá slysstaö i
morgun á mótum Vitastigs og
Skúlagötu.
Fólksbifreiðinni var ekið nið-
ur Vitastig og inn á Skúlagötu I
veg fyrir sendiferðabil sem ók
inn Skúlagötuna. ökumaður
sendiferðabilsins reyndi að
forða árekstri og beygði upp á
gangstéttina, en þaö dugði ekki
til, bilarnir rákust samán, og
sendiferðabillinn valt á hliöina.
Bifreiðarnar óku ekki mjög
hratt, og ekki munu hafa oröiö
slys á ökumönnunum, en er
blaðið fór i prentun I morgun
hafði ökumaður H-bilsins ekki
enn fundist. Ekki er vitað hvort
hann var ölvaður.
— AH
Kaggar og kraftmikil hjól
- SJÁ VIÐTÖl OG
MYNDIR Á BLAÐSÍÐU 11
Af stórloxum!
Vísir mun í sumar birta helstu fréttir af
laxveiðum, bœði upplýsingar um veiði í
einstökum óm og frósognir af helstu
veiðiklóm. — Fyrsti þótturinn er ó
bls. 2 í dag.
Virðulegu gestir!
Þaö var óhætt fyrir ljósmyndarann aö segja „viröulegu gestlr”
um leiö og hann baö Ijósmyndafyrirsæturnar á þessari mynd aö
brosa eilitiö. Þarna voru saman komnir nokkrir þjóöhöföingjar
Evrópu, þeirra á meöal dr. Kristján Eldjárn forseti, til opinberrar
myndatöku vegna brúökaups Karls Gústafs sviakonungs og Silviu
Sommerlath. Fleiri myndir á bls. 6.
Hitaveitan í Olfusborgum gjörónýt
„Hitaveitulögnin var lögð ný
á árunum 1969-1970 en virðist nú
öll gjörónýt. Grafnar hafa veriö
upp leiðslur alveg frá húsunum að
aðveitustöðinni og I ljós hefur
komið aö þær eru allar ónýtar.
Ennfremur eru stálofnarnir i hús-
unum allir tærðir, en tæringin
kemur fram vegna þess að kerfið
hefur lekið einhvers staöar.”
Þannig fórust Halldóri Björns-
syni formanni rekstrarfélags
ölfusborga orð, er Visir grennsl-
aðist fyrir um hitaveituna i ölfus-
borgum, orlofshúsum verkalýðs-
hreyfingarinnar.
„Hér er eingöngu um aö ræða
viðgerð á nýja hverfinu og við
höfum ástæðu til að ætla aö á-
standið i eldra hverfinu sé ekkert
betra.” sagði Halldór.
„Við getum ekki gert endan-
lega við eldra hverfiö i sumar,
vegna fólksins sem er þar, en höf-
um lappað upp á hitaveituna þar i
von um að hún hangi til haustsins.
Hins vegar mun viögerðin á nýja
hverfinu kosta um 10 milljónir
króna og teljum við að öörum beri
að greiða þann skaða en okkur.
Málið er nú I höndum mats-
manna og hefur lögfræðingur
okkar fengið það til meöferöar.”
—RJ