Vísir - 22.06.1976, Page 3
VISIR Þriðjudagur 22. júni 1976
3
Mvndin sýnir þá hliö Borgarbókasafnsins sem snýr að götunni. Hin-
um megin við húsið verður friðsælt göngutorg og þar er aðaiinn-
gangur hússins.
Margháttuð menningar- l03hAsi
starfsemi er fyrirhuguð Ska
Starfsaðstaða Borgarbóka-
safnsins hefur lengi verið heldur
bágborin. Nú hillir undir úr-
bætur i þeim málum, er
teikningar og útboðsgögn að
safnshúsi i nýja miðbænum við
Kringlumýrarbraut liggja fyrir.
Nýja bókasafnið verður 5.822
gólf-ferm. að stærð. Undir-
búningsstarf og frumáætlun um
húsið var byggð að miklu leyti
að tillögum Sigurd Möhlen-
brock, sem er kunnur sænskur
bókasafnsmaður.
Teikningarnar hafa veriö sýnd
ar tveimur fremstu sérfræöing-
um á Norðurlöndum um bóka-
safnsbyggingar, þeim Bengt
Hjalmquist i Sviþjóð og Sven
Plovgaard I Danmörku. Luku
þeir miklu lofsorði á húsiö.
Arkitektar hússins eru Gunn-
laugur Halldórsson og Guð-
mundur Kr. Kristinsson, en
samstarfsmaður þeirra hefur
verið Ferdinand Alfreðsson.
t húsinu verður aðstaöa fyrir
ýmsar greinar sem eiga heima
á aðalsafni, s.s. þjónustu fyrir
aldraða og fatlaða og talbóka-
þjónusta fyrir blinda. Einnig
verður þar aðstaða fyrir bóka-
bilana. Þá verða i safninu þær
deildir sem sjá um stofnunina i
heild, þ.á.m. innkaupadeild,
flokkun, skráning, frágangur,
viðgeröir og skrifstofa safnsins.
Menningarlegt félags-
heimili.
Húsið er miðað við, að þarna
fari ekki einungis fram útlán
bóka, heldur verði húsið eins
konar menningarlegt félags-
heimili Reykvikinga, þar sem
fólk getur dvalist við bóka-
lestur, dagblaða- og timarita-
lestur og hlustað á tónlist,
skoðað sýningar og hlýtt á fyrir-
lestra.
1 miðhluta hússins verða góð
hlustunarskilyrði og verður
þetta fyrsta bókasafniö á
Norðurlöndum, þar sem fólk
getur hlustað á tónbönd i
lestrarsal. 1 aðalsal eru engar
súlur i miðjunni, en það eykur
mjög á notkunarmöguleika
salarins. Er miðaö við að hús-
næðið geti fullnægt þörfum
safnsins framyfir það sem nú
er.
Sérstaklega var gert ráð fyrir
fötluðum við hönnun bókasafns
hússins. Inngöngudyr og lyftur
eru þannig úr garði gerðar að
fólk i hjólastólum getur farið
óhindrað um húsið.
Húsinu var valinn staður
langt á undan öðrum stofnunum
i nýja miðbænum og hefur stað-
setningin ekki breyst á þeim 10
árum sem siðan eru liðin.
Byggingartimi er áætlaður 5 ár
og var heildarkostnaður i
október sl. áætlaður 549
milljónir króna. I byggingar-
sjóði eru nú um 25 milljónir
króna. —SJ
Gömlu búningsklefunum
breytt í gufuböð
Sundlaug Vesturbæjar var
opnuð aftur nú um helgina og er
það vel við h æfi, þvi að i dag er
iengstur dagur og ef marka má
af veðrinu i morgun ætti fólk að
geta legiö og sólað sig iangt
fram á kvöld.
Laugin hefur tekið miklum
stakkaskiptum frá þvisem áður
var. Nýir búnings- og baðklefar
hafa veriö teknir i notkun og er i
þeim aðstaða fyrir 300 manns.
Nú eiga sundlaugargestir kost á
að fækka fötum i svonefndum
skiptiklefum en einn slikur fylg-
ir hverjum fjórum skápum. i
nýju byggingunni eru einnig 22
steypiböð. Ekki var látið staðar
numið við þetta þvi að sund-
laugin hefur verið lagfærð og
máluð hátt og lágt.
Sundlaug Vesturbæjar er
teiknuð af Bárði ísleifssyni
arkitekt, en viðbótarbygging-
una teiknuðu þeir Bárður og Jes
Einar Þorsteinsson. Allar teikn-
ingar og verkhönnun er gerð i
samvinnu við iþróttaráð
Reykjavikur og iþróttanefnd
rikisins.
Að sögn Erlings Jóhannsson-
ar, forstöðumanns laugarinnar,
verða gömlu búningsklefarnir
teknir úr notkun og er ætlunin
að breyta þeim i gufuböð. Sagði
Erlingur að vonir standi til að
unnt verði að hefja fram-
kvæmdir við það áður en langt
um liður.
—AHO
Morðið á Baldri Jónssyni við Háteigsveg:
Sá seki var
dœmdur til að
sœta öruggri
gœslu á við-
eigandi stofnun
Dómur hefur verið kveðinn upp
hjó rikissaksóknara vegna
morðsins á Baldri Jónssyni,
Dvergabakka 36 i Reykjavfk.
Talið var sannað, aö ákærði Jón
Pétursson, Háteigsveg 30 i
Reykjavik, hefði orðið Baidri að
bana með þvi að slá hann i
höfuðið og kyrkja hann siöan. At-
burðurinn átti sér stað I kjallara-
herbergi aö Háteigsvegi 30, hinn
10. janúar siðast iiðinn.
Rannsókn á andlegu og likam-
legu ástandi ákærða leiddi i ljós
að hann var ekki talinn sakhæfur,
og jafnframt að hann gæti orðið
hættulegur umhverfi .sinu við
vissar aðstæður. Þá var einnig
talið að hvorki sektir né refsi-
vistir myndu breyta hátterni á-
kærða. Akærði var þvi dæmdur til
að sæta öruggri gæslu á við-
eigandi stofnun. Ennfremur var
ákærði dæmdur til ævilangrar
sviptingar ökuleyfis vegna si-
endurtekinna ölvunaraksturs-
brota.
—AH.
Laus staða
Staða skólameistara viö Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavik er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknirmeðýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfis-
götu 6, Reykjavik, fyrir 12. júli 1976.
Menntamálaráðuneytiö, 16. júni 1976.