Vísir - 22.06.1976, Side 7
vism
Þriðjudagur 22. júni 1976
*
Arabískir auðkýfing-
ar kaupa eitt virt-
asta hótel Lundúna
Arabískir rikisbubb-
arhafa fest kaup á hinu
fræga Dorchester
hóteli i Lundúnum.
Söluverðið er 2,6
milljarðar króna.
Dorchester hefur löngum ver-
iö biistaöur lávaröa, kóngafólks,
kvikmyndastjarna og auöjöfra,
þegar viökomandi hafa dvalist i
LdndunUm. Hóteliö hefur 285
herbergi. Siöastliöin fjögur ár
hefur 327 milljón krónum verið
variö til að gera upp og endur-
nýja hótelið.
Hinir nýju eigendur standa að
félagi sem heitir Pageguide
Limited. Þeir keyptu hóteliö af
fyrirtækinu sem hefur átt
Dorchester frá þvi það var
byggt.
Virtir breskir fjármálamenn
hafa verið fengnir til aö sitja i
stjórn hins nýja eigendafélags.
Einn þeirra lét hafa eftir sér aö
arabarnir heföu i hyggju aö
kaupa fleiri lúxushótel i höfuö-
borgum Evrópu.
Harris-hjónin vilja fara
aftur á ránsstaðinn
Hjónin William og Emily
Harris fóru fram á þaö viö rétt-
arhöldin í Los Angeles i gær, aö
þeim yrði ieyft aö skoöa aftur
sportvöruverslunina, sem þau
eru sökuð um að hafa reynt að
ræna i félagi viö Patty Hearst.
En lögregluforingi i Los
Angeles lögreglunni mælti á
móti bón þeirra hjóna, þvi hann
sagði að það yröi of viðamikið
verk að koma i veg fyrir að
reynt yrði að frelsa þau, eða
ráðast á þau. Dómarinn frestaði
ákvöröunartöku i nokkra daga.
William Harris
Harris hjónin og Patty Hearst
eru sökuð um að hafa reynt að
ræna verslunina 16. mai 1974,
hafa skotið á lögreglu, stolið bil-
um og haldið tveimur bilstjór-
um gislum meðan þau voru á
flótta undan lögreglunni. Patty
verður leidd ein sins liðs fyrir
rétt. v
1 réttarsalnum i Los Angeles
skilur hátt skothelt gler á milli
dómsins og áhorfenda. Hótun
hefur borist um að myrða eigi
Harris hjónin við réttarhöldin.
SKOÐUN LURIES
Urðu fyrir skriðu í fjallgöngu
ttalskur fjallgöngugarpur lést
af völdum höfuðmeiðsla og sjö
félagar hans liggja slasaðir á
sjúkrahúsi, eftir að þeir lentu
fyrir skriðu utan i Lyskamm-tindi
i svissnesku ölpunum.
Hópur 17 fjallgöngumanna var
kominn hálfa leið upp norðurhlið
tindsins, þegar jökultunga
brotnaði fyrir ofan þá og hratt
yfir þá aurskriðu.
Sjömannanna bárust 400 metra
með skriðunni niður fjallshliöina.
Sá áttundi hékk alvarlega
meiddur i lifstrengnum. — Niu
sluppu ómeiddir og sex gátu snúið
aftur til baka að sækja hjálp, sem
barst með þyrlum.
Myrti barn
Sautján ára gamall piltur i
Fíladelfiu i Bandarikjunum er
sakaður um að hafa myrt tveggja
ára gamalt barn, þegar barnið
hellti mjólk á bil piltsins.
Lögreglan segir að barnið hafi
verið að leika sér, þegar það
skvetti mjólk á bil piltsins, Paul
Turchi. Hann öskraði á barnið,
þaut inn i bii sinn og ók af stað
stuttan spöl. Siðan setti hann
bilinn i afturábakgir og bakkaði
yfir barniðisem lést við það.
Vanþakklœti?
Þrjár áhafnir af björgunar-
þyrlum i Leuchars i Skotlandi
sendu 100 manns, sem þær
höföu bjargað úr sjó eða af
fjöllum, boð um að koma i af-
mælisveislu björgunarsveit-
arinnar. En enginn svo mikið
sem sá ástæðu til að svara,
hvað þá koma.
Björgunarsveitarmenn voru
að vonum óhressir yfir þess-
um viðbrögðum, en þeir hættu
samt ekki við veisluna. 200
öðrum gestum er boðið, og
hafa flestir þegið boðið. Tals-
maður flughersins sagði að
björgunarsveitarmönnum
hefði dottið í hug að þeir, sem
bjargað hafði verið, hefðu haft
áhuga á að fagna afmælisdeg-
inum með sveitinni.
Niðurstöður kosning-
anna á ítalíu hafa kom-
ið mjög á óvart en þar
sem hreinn meirihluti
liggur ekki fyrir til
st j ór nar m y ndun ar
blasir við óvissa í
stjórnmálum landsins,
enn meiri en var jafn-
vel siðustu vikur fyrir
kosningarnar.
Þaö, sem kom mest á óvart
auövitaö, var, aö kommúnistar
skyldu ekki fara með sigur af
hólmi, og að kristilegir demó-
kratar juku fylgi sitt frá siöustu
sveitarstjórnarkosningum.
Að visu jók kommúnista-
flokkurinn jafnvel enn meira við
fylgi sitt og bætti við sig 25 þing-
sætum, en þaö dugir þeim ekki
til aö mynda stjórn. Eru þeir nú
ekki nema 5% á eftir kristileg-
um demókrötum i atkvæða-
magni.
Þegar talningu atkvæöa lauk,
sýndi það sig, að kristilegir
demókratar höfðu fengið 38,9^
atkvæöa, en I þingkosningunum
1972 fengu þeir 38,1% og i
sveitastjórnarkosningunum I
fyrra ekki nema 35,5%. — Þing-
mannatala flokksins breyttist
ekkert og er áfram 135.
Kommúnistar, sem fengu
27,6% i kosningunum 1972, hlutu
núna 33,8% atkvæða.
Sósialistar, sem rufu
stjórnarsamstarfið i vetur og
urðu með þvi þess valdandi, aö
efna varð til þingkosninganna i
sumar, töpuðu fylgi. Þeir fengu
10,2% enhöfðu 1972 hlotið 10,7%.
Við þetta misstu þeir 4 þingsæti.
Samanlagt hafa vinstri-
flokkarnir yfir að ráða 47%
þingsæta i neðri málstofunni og
sjá menn þvi fram á margra
vikna, ef ekki mánaða, starf,
áður en tekst að mynda meiri-
hluta stjórn.
Leiðtogi socialista, Francesco
de Martino, lét hafa eftir sér
fyrir kosningar, að fylgisaukn-
ing kristilegra mundi leiða af
sér patt i stjórnmálaskákinni og
kalla fram aðrar þingkosning-
ar, áður en langt um liði.
Mir.nstu flokkarnir biðu af-
hroð, þegar kjósendur fylktu sér
um stóru flokkana. Þannig voru
frjálslyndir á hægri væng nær
þurrkaðir út, nýfasistar, lýð-
veldissinnar og social-demó-
kratar misstu og mikið fylgi tii
kristilegra demókrata.
Það liggur ljóst fyrir, að
kristilegum demókrötum er
nauðsyn á stuðningi socialista,
ef þeir eiga að geta myndað
stjórn, sem styðst við meiri-
hluta. En socialistar hafa lýst
þvi yfir, að þvi aðeins séu þeir
til umræðu um stjórnarmyndun,
að kommúnistar eigi sæti i
rikisstjórninni. — Þaö mega
kristilegir demókratar ekki
heyra nefnt.
Einn forystumanna sociahsta
áréttaði þessa afstöðu I gær-
kvöldi að lokinni talningu.
Enrico Beriinguer, leiðtogi
kommúnista, sagöi, þegar úr-
sUtin lágu fyrir, að flokkur hans
heföi aukið aUra flokka mest við
sig fylgi frá þvi 1972, og leiddi
það til vinstrisveiflu á þinginu.
— ,,Af þvi leiðir og, að sá timi er
liöinn, sem menn reyndu að úti-
loka kommúnista frá stjórn,”
bætti hann við. Sagöi hann, að
kristilegir demókratar kæmust
nú ekki af án kommúnista, rétt
eins og kommúnistar mundu
ekki komast af án kristilegra
demókrata.
Amintore Fanfani, formaður
kristUegra demókrata, sagði,
þegar úrslitin lágu fyrir:
„Meirihluti itala hefur hafnað
tillögum kommúnista og örvað
kristilega demókrata til að visa
leiðina með festu.”
Framkvæmdastjóri Social
istaflokksins sagði af sér, þegar
atkvæöatalningunni var lokið,
og hvatti aðra forystumenn
flokksins til að gera hið sama.
Viðast um heim var fylgst aí
athygli meðkosningum á ttalíu.
Einkanlega stóð NATO-rikjum
stuggur af þvi að kommúnistar
kæmust tU vald i' Róm. — Ford
forseti hefur lýst þvi yfir, að
stjórn hans mundi endurskoða
afstöðu sina tU samskipta vií
ítaliu, ef kommúnistar tækju
þátt i stjórnarmyndun.
Enrico Berlinguer ieiðtogi kommúnista greiðir atkvæði á kjör-
stað nálægt heimili sinu I Róm, að viðstöddum fjölda frétta-
manna.
Kosningarnar á Ítalíu:
Úrslitin auka
á óvissuna