Vísir - 22.06.1976, Blaðsíða 24
VtSIR
Þriðjudagur 22. júnl 1976
Viðrœður
fyrirhugaðar:
Stefna kirkja
og marxismi að
sama marki?
„Það var almenn skoðun
manna á þessari ráðstefnu, að
staða kirkjunnar i þjóðfélaginu
væristerk.en hún nýtti e.t.v. ekki
aðstöðu sfna sem skyldi”, sagði
Þorvaldur Helgason æskulýðs-
fulltrúi kirkjunnar I samtali við
VIsi I gær,
Þorvaldur sat ráöstefnu sem
haldin var i Skálholti um helgina
þar sem fjallaö var um hlutverk
kirkjunnar i nútima þjóðfélagi.
Þátttakendur á þessari ráö-
stefnu voru menn úr hinum ýms-
um stéttum þjóðfélagsins svo sem
kennarar, læknar, stjórnmála-
menn, bændur og menn frá fjöl-
miðlum o.fl.
„Þetta voru almennar um-
ræður um stöðu oghlutverk kirkj-
unnar og engin ákveðin niður-
staða fékkst”, sagöi Þorvaldur.
„Meöal annars var rætt um,
hvort ekki mætti efla félagslegt
hlutverk kirkjunnar og koma á
Hráefnisskortur segir til
meiri samvinnu milli presta, sál-
fræðinga, félagsráðgjafa og
lækna en verið hefur. Þvi aö fé
lagsráðgjafar og sálfræðingar
hafa að miklu leyti tekið viö
ákveðnu starfi af prestinum”,
sagði Þorvaldur.
„Þá gerðist á ráösteftiunni
mjög merkilegur atburður, sem
að minu áliti er jafnvel kirkju-
sögulegur”. Á ráðstefnunni var
staddur marxisti sem óskaði eftir
viðræðum við kirkjuna, og taldi
hann ekki vera svo mikinn mun á
þessum tveim hugmyndastefn-
um. Hann kvaðst ekki skilja
hvers vegna kirkjan og marxism-
inn gætu ekki starfað saman, þar
sem þau stefndu að sama mark-
miði, þ.e. að bæta þjóölifið. Þetta
er að visu persónuleg skoðun
mannsins, en óneitanlega væri
gaman að fá viðræður við marx-
ista”.
—SE
sín á Siglufirði:
f f r n t | t r •• x
Starfsfolki h|a oðru
frystihúsinu sagt upp
Starfsfólki hraöfrystihússins
Isafoldar á Siglufirði hefur nú
verið sagt upp kauptryggingu
sinni þar sem fyrirsjáanlegur er
mikill hráefnisskortur hjá fyrir-
tækinu. Fram að þessu hefur Isa-
fold fengið til vinnsiu helming
afla skuttogarans Dagnýjar, en
nú hefur skipið hætt bolfiskveið-
um og byrjað tilraunaveiðar á út-
hafsrækju.
Svo sem skýrt var frá i VIsi á
sinum tima hefur allt stefnt i
þessa átt undanfarnar vikur, þar
sem eigendur frystihússins hafa
ekki fengið fyrirgreiðslu til skipa-
kaupa og hitlfyrirtækið, sem rek-
ur hraðfrystihús á Siglufiröi, Þor-
móður rammi hlf. hefur ekki talið
sig vera aflögufært með fisk, en
það gerir út tvo skuttogara.
Horfir nú illa I atvinnumálum
siglfirðinga, ef isafoldarmönnum
tekst ekki að útvega sér fiskiskip.
—ÞRJ Siglufirði
63 hvalir veiddir
Fimmtiu og niu hvalir eru nú
komnir á land i Hvalfiröi og á
leiöinni er verið með fjóra þang-
að. Eggert Isaksson, hjá Hval-
stööinni, sagði VIsi i morgun að
veiðarnar hefðu gengið fremur
treglega fyrst eftir að þær hófust,
30 mai.
Upp á siðkastið hefur aflinn
hinsvegar glæðst og bátarnir fjór-
ir gert þaö gott. Þeir veiða ein-
göngu langreyður og búrhvali. Af
þeim, sem komnir eru á land, eru
46 langreyðar og 13 búrhvalir.
Þaö eru um 200 manns sem
hafa atvinnu af hvalveiðunum. 1
Hvalveiðistöðinni sjálfri vinna
um eitthundrað. Sextiu eru i á-
höfn hvalbátanna fjögurra og um
fjörutiu manns vinna I frystihús-
inu i Hafnarfirði.
—ÓT.
Kona ó nírœðisaldri fyrir bíl
Kona á nlræðisaldrei varð fyrir aðvlfandi á allmikilli ferð, og
bíl I gærmorgun, á gangbraut við mun konan hafa fótbrotnað, hlotið
Hlemmtorg. Er konan var að höfuðmeiðsl auk annarrar minni-
ganga yfir brautina, kom fólksbill háttar meiðsla. —AH
Ásgeir Christiansen viö Islander vélina. Þessi mikli hali aftan úr henni er til segulmælinga. (Mynd JA.)
Annars ber Grœnlandsflug
Vœngja ekki góðan árangur
Yfirleitt láta flugmenn sér
nægja aðhringja I veðurstofuna
og athuga ástandið I gufuhvolf-
inu, áður en þeir fara I loftið.
Þeir Asgeir Christiansen og
Þórólfur Magnússon, verða þó
að skyggnast töluvert lengra,
fyrir sumar flugferöir slnar á
Grænlandi. Það fer nefnilega
eftir aðstæðum á sólinni, hvort
þeir fljúga eða ekki.
Asgeir og Þórólfur eru flug-
stjórar hjá Vængjum, og á
föstudaginn leggja þeir iqjp i
tveggja mánaða Grænlandsleið-
angur á Islander vél félagsins.
Þar eiga þeir að fljúga fyrir
danska stofnun sem annast
jarðfræðirannsóknir á Græn-
landi.
Fjórða sumarið
Isiander vélin er nú komin
með gildan „hala” en hann er
hluti af tækjabúnaði sem notað-
ur er til aö leita að oliu og
málmum. Þessi búnaður mælir
breytingar á segulsviði.
Þegar verið er við segulmæl-
ingarnar verður að vera „gott
veður” á sólinni.
Það þýðir að þá mega ekki
geisa þar segulstormar sem
stundum fara um þá hlýju
stjörnu. Þeir Ásgeir og Þórólfur
eru báðir vanir Grænlandsflug-
menn, þvi þetta er þriðja sum-
arið sem Asgeir verður þar, en
fjórða sumar Þórólfs,
„Við höfum höfuðstöðvar á
Syðri-Straumfirði,” sagði As-
geir„ þegar við hittum hann úti
á flugvelli. Þórólfur var þá að
flækjast einhvers staöar um
loftin blá.
„Við fljúgum svo yfir svæði
sem dönsku visindamennirnir
hafa ákveöið fyrirfram. Þaö eru
jafnan tveir danir um borð til að
sjá um tækin og við Þórólfur
skiptumst á um að fara með þá.
Það er aöeins hægt að fljúga i
góðu veðri svo vélin verður að
vera tilbúin til flugs 24 tima á
sólarhring. Þvi er nauðsynlegt
að hafa tvo flugmenn.”
„Jú, okkur likar vel á Græn-
landi og hlökkum til ferðarinn-
ar. En eftir tvo mánuði eða
meira, erum við lika alveg til-
búnir að koma heim aftur.”
—ÓT.
„YFIRLYSING RANNSOKNARSTOFNUNAR-
INNAR OTIMABÆR" — segir forstjóri Sigló síldar
„Okkar viðbrögð eru ákaflega
litil I dag. Málið er I rannsókn.
Mér finnst þessi yfirlýsing
Kannsóknarstofnunar fiskiðn-
aðarins vera ákaflega ótimabær
á þessu stigi”, sagði Egill Thor-
arcnsen, framkvæmdarstjóri
SiglósIUlar ii:þegar Visir hafði
samband við hann I morgun.
„Það er bæði veriö að vinna
að rannsókn hjá Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins og eins er
verið að vinna að sölu á þessu
magni”, sagði Egill.
Að öðru leyti sagði Egill litið
vera hægt um málið að segja.
Þeir heföu énn, sem komið væri,
ekkert I höndunum hvað heföi
valdið þessu. Það væri verið að
skoða þetta mál.
„Það verður gefin út yfirlýs-
ing um þetta mál þegar það er I
höfn, fyrr viljum við sem
mínnst um það segja” sagði
Egill.
Skilyrði um
útflutningsvottorð
Eitt af skilyrðum þeim sem
sett voru I núgildandi samningi
islendinga og Prodintorg i
Moskvu um sölu á gaffalbitum
voru að útflutningsvottorð
fylgdu með sendingunni þang-
að. Ekki verður selt upp i
samning þennan nema slikt
vottorð fylgi, að sögn Eysteins
Helgasonar framkvæmdastjóra
Sölustofnunar lagmetis I morg-
un.
„Við höfum margitrekað bent
iðnaöarráðuneytinu og Siglósild
á ákvæði samningsins”, sagði
Eysteinn.
Eysteinn sagði að aðilar þessa
máls væru fyrst og fremst
Rannsóknarstofnun fiskiðnað-
arins og Siglósild. Sölustofnun
lagmetis, sem samningsaðili,
stefndi að þvi að uppfylla öll á-
kvæði samningsins.
Eysteinn sagði enga ákvörðun
hafa verið tekna um hvaö gert
yrði við framleiðslu, sem hugs-
anlega fengi ekki útflutnings-
vottorð. Enda lægi engin niður-
staða fyrir um það. —EKG