Vísir - 01.07.1976, Blaðsíða 11

Vísir - 01.07.1976, Blaðsíða 11
„Ég held að það sé ekkert nema ævintýra- mennska sem veldur þvi að við erum að hugsa um að fara út til Þýskalands i haust”, sagði Drifa Kristjáns- dóttir er við litum við hjá henni og manni hennar ólafi Einars- syni fyrir stuttu. Ólafur hefur um tima búið i Þýskalandi, þar sem hann hefur leikið með þýska handknatt- leiksliðinu Donzdorf, en áður hafði hann verið einn af máttar- Ljósm: Jens. stólpum FH og islenska landsliðsins. Drifa er hinsvegar mörgum kunn fyrir ieik sinn i Hárinu auk þess sem hún hefur sungið með ýmsum söng- flokkum s.s. Nútíma- börnum og Nunnunum. „Eiginlega var það nú fyrir hreina tilviljun að ég byrjaði að syngja”, segir Drifa. „Ég var eitt ár skiptinemi i Bandarikj- unum ásamt ómari Vald. og fleirum, og við komum fram og sungum á einhverri tslands- kynningu. Svo var það ekki fyrr en löngu seinna, eftir að ég var komin heim, að Ómi hringdi i migog spurði hvort ég væri ekki til' i að stofna söngflokk með honum og fleiru hressu fólki. Nú ég sló til, svo að þetta er eiginlega allt Ómari að kenna, — já eða þakka! ’’ „Ef af þvi verður aö ég fari út ihausterég svo aðhugsaum að komast á einhvern leiklistar- skóla ef mér list á mig þarna. — Annars veit ég i rauninni sára- litið um þýska skóla, hvorki um gæði þeirra né inntökuskilyrði”. „Það eru ótalmörg áhuganiál sem við eigum sameiginleg” seg ja þau Drtfa og Ólafur er við spurðum þau hvaða áhugamál þau hefðu önnur en söng,leiklist og handknattleik. „Fyrst og fremst mætti nefna þetta hús okkar hérna, sem við erum að vinna við lagfæringar á. Það er miklu skemmtilegra að gera eitthvað i þessu sjálfur heldur en að fá það allt saman tilbúið upp i hendurnar. Svo höfum við lika mikinn Litið við hjá Drífu Kristjánsdóttur og Ólafi Einarssyni Siappað af yfir könnu af öli. áhuga á málefnum barnanna á Upptökuheimilinu i Kópavogi, en við vinnum bæöi þar. Það er eitt af þessum störfum sem hel- taka mann alveg um leið, og þar er engin leið að skilja allar áhyggjur eftir á vinnustað”, segja þau. „Þarna kynnist maður besta fólki sem af einhverjum ástæðum hefur oröið eitthvað utanveltu við þjóötélagiö. Oftast er þaö vegna einhvers konar vandamála á heimilum viðkomandi”, segir ólafur. „Fyrir okkur sem höfum verið svo heppin að alast upp að öllu leyti viðhinar bestu aðstæður er eins og þarna opnist hreinlega nýr og óþekktur heimur. Það er bara verst hve bæði al- menningur og yfirvöld lita á þessa stofnun með mikilli tor- tryggni, ákaflega margir hafa horn i siðu heimilisins alveg án þessað vita nokkuð um það sem þarna er verið að gera”. Þau kváðu þvi margs að sakna er þau færu utan, en það væri þó bót i máli að þetta væri aðeins hugsaö sem fremur stuttur timi. Eitt var það þó sem ólafúr kvaðst ekki sakna, en þaö væri islenska landsliðið, a.m.k. ekki á meðan þessi eski- móavinnubrögð sem þar hefðu viðgengist undanfariö héldu áfram, eins og hann orðaði það. Erlendis væri miklu meira fyrir liðin og einstaklingana gert, án þess þó að um atvinnumennsku væri að ræða. Þar væru menn yfirleitt búnir með sina vinnu og æfingar klukkan sjö á kvöldin. „Það ætti þvi að vera nægur timi til að sinna eitthvað hugðarefnunum, og einna mest langar mig til að ferðast eitt- hvað um, enda stutt að fara til margra fegurstu staða Evrópu þarna frá suðurhluta Þýska- lands”, sagði Ólafur að siðustu. —AH „1 Þýskalandi ertu búinn bæði með vinnuna og æfingarnar um kvöldmat”. - „Ekkert nema ævintýralöngun sem ræöur þvi að viö erum að hugsa um að flytja út”. VISJLTL Fimmtudagur 1. júli 1976 ^ „SKEMMTILKRA AD VINNA SJÁLF VIÐ ÍBÚÐINA EN AÐ FÁ ALLT TILBÚIÐ UPP í HENDURNAR"

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.