Vísir - 01.07.1976, Side 17

Vísir - 01.07.1976, Side 17
visra Fimmtudagur 1. júlí 1976 Útvarp í kvöld kl. 20,25: „Gangið ekki nakin i gagnsæjum slopp” heitir leikrit vikunnar og er skopleikur eftir franska rithöfundinn Georges Feydeau. Leikurinn gerist i kringum siðustu aldamót. Þar segir frá þingmannsfrú einni, sem haldin er þeirri dæmalausu áráttu að spranga um á nærfötunum ein- um klæða. Eiginmaður hennar sem er virðulegur þingmaður vill að sjálfsögðu gæta velsæmis i hvi- vetna og reynir allt til að fá hana til ofan af þessum ósóma. Eitt sinn kemur mektarmað- ur iheimsókn til þeirra hjóna og frúin bregður ekki af þeim vana sinum að sýna sig léttklædda. Það fer þó margt öðruvisi en ætlað er, og gamla kempan Clemencau kemst „óvart” inn i spilið. Höfundurinn Georges Feyde- au fæddist i Paris 1862 Hann fór snemma að skrifa leikrit, og varð fyrst frægur fyrir „Dömu- klæðskerann”.Siðan skrifaði hann fjöldann allan af skop- leikjum og söngleikjum. Eitt þekktasta verk hans er „Fló á skinni” sem sýnt var hér á landi fyrir nokkru við metað- sókn. Feydeau reynir einkum að skapa bráðskemmtilega heild úr einföldustu hlutum. Jafnvel það sem i fljótu bragði virðist ó- merkilegt verður fjörugt og líf- andi i höndum hans. Þýðandi og leikstjóri er Flosi Ólafsson. Meö helstu hlutverk fara Gisli Halldórsson, Sigriður Þorvaldsdóttir, Guðmundur Pálsson og Helgi Skúlason. Leikritið hefst kl. 20.25 og stend- ur yfir i klukkustund. — SE Myndir er tekin á upptöku leikritsins „Gangið ekki nakin I gagnsæjum slopp”, sem við heyrum i kvöld. ÞINGMANNSFRÚ Á NÆRKLÆÐUM Útvarp í dag kl. 16,40: IMBÓLIN Bim Sigrún Björnsdóttir heldur áfram lestri sin- um um Imbúlin Bimm i litla barnatimanum i dag. Auk þess mun Sigrún spjalla við börnin og leikin verða barnalög. —SE Ekkert sjónvarp Sjónvarpið byrjar I sumarfrii I dag og veröa engar útsendingar I júlimánuöi. Visir hafði samband við Pétur Guðfinnsson framkvæmdastjóra sjónvarpsins og spurði hann, hvort nokkur von væri til, að sjón- varpsáhorfendur fengju að fylgj- ast með Olympiuleikunum, sem hefjast I Montreal 17. júll. Pétur sagði okkur, að allt starfs- fólk sjónvarpsins tæki sumarfrl I júlimánuði og yrðu engar útsend- ingar þann mánuð. Hins vegar verða sýndar marg- ar myndir frá leikunum fyrstu vikurnar I ágúst. —SE Smáauglýsingar VÍSíS eru virkasta verðmætamiðlunin MUNIÐ RAUÐA KROSSINN Fimmtudagur 1. júli 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tiikynningar. A frivaktinni Margrét Guömundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Farðu burt, skuggi” eftir Steinar Sigurjónsson Karl Guð- mundsson leikari byrjar lesturinn. 15.00 Miðdegistónleikar André Saint-Clivier og kammersveit undir stjórn Jean-Francois Paillards leika Konsert fyrir mandólin og hljómsveit eft- ir Johann Nepomuk Hummel. Artur Rubinstein leikur Pianósónötu nr. 8 i c-moll op. 13 , J’athétique” eftir Beethoven. John Willi- ams og Enska kammer- sveitin teika „Hugdettur um einn heiðursmann”, tónverk fyrir gltar og hljómsveit eft- ir Joaquin Rodrigo, Charles Groves stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnr). Tón- leikar. 16.40 Litli barnatiminnSigrún Björnsdóttir hefur umsjón með höndum. 17.00 Tónleikar 17.30 Bækur, sem breyttu heiminum, II. „Heilbrigð skynsemi” eftir Thomas Paine. Bárður Jakobsson lögfræðingur tekur saman og flytur. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 í sjónmáli. Skafti Harð- arson og Steingrimur Ari Arason sjá um þáttinn. 20.00 Gestur I útvarpssal: Ey- vind Möller leikur á pianóa. Sdnatinu i a-moll eftir Frederik Kuhlau. b. Tvö smálög eftir Niels Gade. c. Stef og tilbrigöi eftir Carl Nielsen. 20.25 Leikrit: „Gangið ekki nakin i gagnsæjum slopp” eftir Georges Feydeau Þýð- andi og leikstjóri: Flosi Olafsson. Persónur og leik- endur: Ventroux.... GIsli Halldórsson, Clarisse.... Sigriður Þorvaldsdóttir Viktor... Guðmundur Páls- son, Prumpillion.... Helgi Skúlason De Jaival.... Pétur Einarsson, Sonurinn... Ste- fán Jónsson. 21.25 Kirkjulegt starf innan veggja sjúkrahúsa. Dr. Kristján Búasón dósent flytur synóduserindi. Tónlistaþátturinn sem átti að byrja kl. 21.20 fellur niður. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Litli dýrlingurinn” eft- ir Georges Simenon As- mundur Jónsson þýddi. Kristinn Reyr les (3). 22.40 A sumarkvöldi Guð- mundur Jónsson kynnir tón- smiðar um svani. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. „KREBS" málningarsprautur. Svissnesk gœði. //KREBS" málningar- sprautur hafa víðtækt notkunarsvið/ allt frá úðun skordýraeiturs til málunar stórra flata, Einnig til ryðvarna. Stimpildrifin sprautun gefur besta nýtingu á efni og litla loftmengun. Spissar með flötum geisla á lægsta fáaniega veröi. Allir hreyfihlutir og spissar úr hertu stáli og Mangan-Carbide (Rockwell 80). Verð frá 7060,- Sveinn Egilsson h/f, Skeifan 17, Iðngörðum

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.