Vísir - 01.07.1976, Page 17
visra
Fimmtudagur 1. júlí 1976
Útvarp í kvöld kl. 20,25:
„Gangið ekki nakin i
gagnsæjum slopp”
heitir leikrit vikunnar
og er skopleikur eftir
franska rithöfundinn
Georges Feydeau.
Leikurinn gerist i kringum
siðustu aldamót. Þar segir frá
þingmannsfrú einni, sem haldin
er þeirri dæmalausu áráttu að
spranga um á nærfötunum ein-
um klæða.
Eiginmaður hennar sem er
virðulegur þingmaður vill að
sjálfsögðu gæta velsæmis i hvi-
vetna og reynir allt til að fá
hana til ofan af þessum ósóma.
Eitt sinn kemur mektarmað-
ur iheimsókn til þeirra hjóna og
frúin bregður ekki af þeim vana
sinum að sýna sig léttklædda.
Það fer þó margt öðruvisi en
ætlað er, og gamla kempan
Clemencau kemst „óvart” inn i
spilið.
Höfundurinn Georges Feyde-
au fæddist i Paris 1862 Hann fór
snemma að skrifa leikrit, og
varð fyrst frægur fyrir „Dömu-
klæðskerann”.Siðan skrifaði
hann fjöldann allan af skop-
leikjum og söngleikjum.
Eitt þekktasta verk hans er
„Fló á skinni” sem sýnt var hér
á landi fyrir nokkru við metað-
sókn.
Feydeau reynir einkum að
skapa bráðskemmtilega heild
úr einföldustu hlutum. Jafnvel
það sem i fljótu bragði virðist ó-
merkilegt verður fjörugt og líf-
andi i höndum hans.
Þýðandi og leikstjóri er Flosi
Ólafsson. Meö helstu hlutverk
fara Gisli Halldórsson, Sigriður
Þorvaldsdóttir, Guðmundur
Pálsson og Helgi Skúlason.
Leikritið hefst kl. 20.25 og stend-
ur yfir i klukkustund.
— SE
Myndir er tekin á upptöku leikritsins „Gangið ekki nakin I gagnsæjum slopp”, sem við heyrum i kvöld.
ÞINGMANNSFRÚ
Á NÆRKLÆÐUM
Útvarp í dag kl. 16,40:
IMBÓLIN Bim
Sigrún Björnsdóttir
heldur áfram lestri sin-
um um Imbúlin Bimm i
litla barnatimanum i
dag.
Auk þess mun Sigrún
spjalla við börnin og
leikin verða barnalög.
—SE
Ekkert
sjónvarp
Sjónvarpið byrjar I sumarfrii I
dag og veröa engar útsendingar I
júlimánuöi.
Visir hafði samband við Pétur
Guðfinnsson framkvæmdastjóra
sjónvarpsins og spurði hann,
hvort nokkur von væri til, að sjón-
varpsáhorfendur fengju að fylgj-
ast með Olympiuleikunum, sem
hefjast I Montreal 17. júll.
Pétur sagði okkur, að allt starfs-
fólk sjónvarpsins tæki sumarfrl I
júlimánuði og yrðu engar útsend-
ingar þann mánuð.
Hins vegar verða sýndar marg-
ar myndir frá leikunum fyrstu
vikurnar I ágúst.
—SE
Smáauglýsingar
VÍSíS eru virkasta
verðmætamiðlunin
MUNIÐ
RAUÐA
KROSSINN
Fimmtudagur
1. júli
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tiikynningar. A frivaktinni
Margrét Guömundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Farðu
burt, skuggi” eftir Steinar
Sigurjónsson Karl Guð-
mundsson leikari byrjar
lesturinn.
15.00 Miðdegistónleikar
André Saint-Clivier og
kammersveit undir stjórn
Jean-Francois Paillards
leika Konsert fyrir
mandólin og hljómsveit eft-
ir Johann Nepomuk
Hummel. Artur Rubinstein
leikur Pianósónötu nr. 8 i
c-moll op. 13 , J’athétique”
eftir Beethoven. John Willi-
ams og Enska kammer-
sveitin teika „Hugdettur um
einn heiðursmann”, tónverk
fyrir gltar og hljómsveit eft-
ir Joaquin Rodrigo, Charles
Groves stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnr). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminnSigrún
Björnsdóttir hefur umsjón
með höndum.
17.00 Tónleikar
17.30 Bækur, sem breyttu
heiminum, II. „Heilbrigð
skynsemi” eftir Thomas
Paine. Bárður Jakobsson
lögfræðingur tekur saman
og flytur.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 í sjónmáli. Skafti Harð-
arson og Steingrimur Ari
Arason sjá um þáttinn.
20.00 Gestur I útvarpssal: Ey-
vind Möller leikur á pianóa.
Sdnatinu i a-moll eftir
Frederik Kuhlau. b. Tvö
smálög eftir Niels Gade. c.
Stef og tilbrigöi eftir Carl
Nielsen.
20.25 Leikrit: „Gangið ekki
nakin i gagnsæjum slopp”
eftir Georges Feydeau Þýð-
andi og leikstjóri: Flosi
Olafsson. Persónur og leik-
endur: Ventroux.... GIsli
Halldórsson, Clarisse....
Sigriður Þorvaldsdóttir
Viktor... Guðmundur Páls-
son, Prumpillion.... Helgi
Skúlason De Jaival.... Pétur
Einarsson, Sonurinn... Ste-
fán Jónsson.
21.25 Kirkjulegt starf innan
veggja sjúkrahúsa. Dr.
Kristján Búasón dósent flytur
synóduserindi.
Tónlistaþátturinn sem átti að
byrja kl. 21.20 fellur niður.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Litli dýrlingurinn” eft-
ir Georges Simenon As-
mundur Jónsson þýddi.
Kristinn Reyr les (3).
22.40 A sumarkvöldi Guð-
mundur Jónsson kynnir tón-
smiðar um svani.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
„KREBS"
málningarsprautur.
Svissnesk gœði.
//KREBS" málningar-
sprautur hafa víðtækt
notkunarsvið/ allt frá
úðun skordýraeiturs til
málunar stórra flata,
Einnig til ryðvarna.
Stimpildrifin sprautun gefur
besta nýtingu á efni og litla
loftmengun.
Spissar með flötum geisla á
lægsta fáaniega veröi. Allir
hreyfihlutir og spissar úr
hertu stáli og Mangan-Carbide
(Rockwell 80).
Verð frá 7060,-
Sveinn Egilsson h/f,
Skeifan 17, Iðngörðum