Vísir - 23.10.1976, Page 1
„Ekki ólöglegt að
tryggja erlendis"
— Geta losnað við söluskatt með
því að
„Þetta er ekki tílöglegt, svo
framarlega sem félögin eru bara
aö tryggja fyrir sig sjálf. Þannig
að þau tryggi milliliðalaust hjá
erlendum tryggingafélögum”,
sagði Erlendur Lárusson, for-
stjóri Tryggingaeftirlits rikisins
er Visir innti hann eftir lögmæti
þess að stór félög hafa i nokkrum
tilfellum sagt upp tryggingu sinni
hérlendis og leitað til erlendra
tryggingafélaga.
Erlendur sagði að umboðs-
starfsemi erlendra félaga væri
óheimil á Islandi nema meö leyfi
ráðherra.
Þá sagði Erlendur að það heföi
tryggja þar
ekki verið algengt að fyrirtæki
tryggðu hjá erlendum trygginga-
félögum. En ástæðan fyrir þvi að
fyrirtæki leituðu til erlendra aðila
i sambandi við tryggingar gæti
verið sú að þau losnuöu þannig
við að greiða 20 prósent söluskatt
af iðgjöldunum.
Undantekningar eru frá þvi að
menn þurfi að greiða söluskatt af
iðgjöldum vegna trygginga hér-
lendis. Til dæmis þarf ekki að
greiða söluskatt af iðgjöldum
vegna skipatrygginga. Erlendur
bentiþó á að þessi ástæða væri þó
tæplega sú sem hefði valdið þvi að
Eimskipafélag Islands hefði flutt
tryggingar sinar til útlanda.
Erlendur sagði að á móti þeim
ávinningi sém fylgdi þvi að þurfa
ekki að greiða söluskatt, kæmi að
aðilar sem lentu i tjóni og hefðu
tryggt erlendis þyrftu að sækja
sitt mál á erlendri grund.
Þess má geta að Matthias
Bjarnason tryggingaráðherra
sagði i samtali sem birtist i Visi i
gær að sjá yröi til þess að þeir
skattar og skyldur sem greiddir
væru vegna innlendra trygginga
innheimtust einnig þótt menn
tryggðu erlendis.
—EKG
Það var öðru visi um að litast I Hafnarstræti á Akureyri I gær en venju er til. Lokað haföi veriö fyrir
alla bilaumferð um götuna og komið þar upp sýningu á framleiöslu vörum ýmissa iönfyrirtækja á
Akureyri. Þá þáðu menn veitingar I Hafnarstræti, akureyrskt kaffi og gosdrykki. Visismynd: AH.
Iðnkynningin á Akureyri innan húss og utan:
Sýning og veitingar ó
aðalgötu bœjarins
Mikið var um dýrðir i gær á
Akureyri i tilefni af degi iðnað-
arins. llafnarstræti, aðalgötu
bæjarins, hefur verið lokað fyrir
bilaumferð og verður svo næstu
3 daga. Þar hefur verið komið
upp sýningu á iðnvarningi ým-
issa fyrirtækja á Akureyri. Má
þar nefna skipsskrokk frá
Slippstöðinni hf, eldhúsinnrétt-
ingar og margt fleira.
Þá hefur gestum einnig verið
gefinn kostur á að fá sér heitt
kaffi, öl og gosdrykki á götunni
og i allan dag hafa hundruð
Akureyringa verið í miðbænum.
Um hádegi i gær bauð bæjar-
stjórn Akureyrar iðnaðarráð-
herra, Gunnari Thoroddsen og
frú, og fleiri gestum til hádegis-
verðar á hótel KEA. Þar voru á
boðstólum matvörur frá Kjöt-
iðnaðarstöð KEA og K. Jónsson
& Co.
Að loknum hádegisverði hófst
fundur um iðnaðarmál i Sjálf-
stæðishúsinu með þátttöku iðn-
aðarráðherra og framámanna i
iðnaðarmálum Akureyringa. Að
loknum þeim fundi hélt iðnaðar-
ráðherra boð fyrir ýmsa gesti á
hótel KEA, en að þvi loknu hófst
kvöldskemmtun i Sjálfstæðis-
húsinu. Þar fór fram tískusýn-
ing og var eingöngu sýndur is-
lenskur fatnaður. Svipuð kvöld-
skemmtun verður einnig i
kvöld, auk þess sem haldnar
verða miðdegisskemmtanir
með tiskusýningum á Akureyri i
sambandi við iðnkynninguna.
—AH, Akureyri.
Fyrstur með
fréttirnar
i 65 ár
Það virðist enginn kosningaskjálfti i mönnum á s'ómannasam-
bandsþinginu, en ugglaust brennur sú spurning hjá inörgum hver
muni veröa næsti forseti Sjómannasambandsins.
Ljósmynd Visis Jens
Siómannasambandið:
Spennandi
kosninga-
undirbúningur
Mikil spenna er i lofti á þingi
Sjómannasambands islands
sem nú er lialdið i Reykjavík.
Jón Sigurðsson sem verið hefur
forseti sambandsins um ára-
tuga skeið hyggst nú láta af
störfum — eins og frá hefur
verið skýrt — og liggur engan
veginn ljóst fyrir hver ntuni
verða eftinnaður hans.
Óskar Vigfússon, formaður
sjómannafélagsins i Hafnarfirði
hefur veriö nefndur sem
hugsanlegur frambjóðandi i
kosningunum sem fram munu
fara á sjómannasambands-
þinginu óskar starfaði meðal
annars mikið i samstarfsnefnd
sjómanna á liðnum vetri. Hann
hefur fengið traustsyfirlýsingu
frá 225 undirmönnum á 21
togara. Þess skal getið að
aðeins fulltrúar undirmanna
hafa rétt til setu á sjómanna-
sambandsþingi.
Um hugsanlegt mótframboð
hefur varið öllu lægra. i upphafi
var Karl Steinar Guönason, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavikur nefndur En
hann mun nú hafa hætt við
framboð, samkvæmt upplýs-
ingum sem Visir hefur aflað sér.
Leitað hefur verið til þó nokk-
urra manna og þeir beðnir um
að gefa kost á sér i embætti for-
seta Sjómannasambands
islands. Nú mun vera rætt um
að formaður Sjómannafélags
Reykjavikur, Hilmar Jónsson,
ætli að gefa kost á sér i embætti
forseta Sjómannasambandsins.
—EKG
ER DRAUMUR KVIK-
MYNDAGERÐAR-
MANNA AÐ RÆTAST?
Frumvarp um kvikmyndasjóð
ó Alþingi eftir
„Við höfum komist að niður-
stööu um helstu atriði varðandi
kvikmyndasjóð og kvikmynda-
stafn, en erum núna i miðju kafi
við aö vinna að málinu”, sagði
Stefán Júliusson, formaður
nefndar, sem semur frumvarp
unt kvikmyndastofnun.
„Við eigum eftir að ræða við
menntamálaráðherra og fjár-
málaráðherra um það hvar eigi
að sækja fjármagnið i sjóðinn,
en við höfum komist að niður-
stöðu um, hvaö sé lágmarksfé,
svo að hægt sé að fara af stað
úramótin
með kvikmyndasjóðinn.”
Stefán sagði, að ekki væri
ljóst, hvort sjóðurinn og safniö
yrðu ákveðnar, sjálfstæðar
deildir innan einhverra fyrir-
tækja rikisins. Um það ætti enn
eftir að taka ákvörðun, .
Hann sagðist vona, að nefndin
lyki störfum fyrir áramót, þvi
að það væri hugmyndin að
frumvarpi um kvikmyndasjóð
og safn yrði lagt fyrir Alþingi er
það kæmi saman til starfa eftir
jólin.
— RJ
TUTTUGASTA OG FYRSTA HELGARBLAÐIÐ FYLGIR VÍSI í DAG