Vísir - 23.10.1976, Síða 10
10
Laugardagur 23. október 1976 VISIR
VÍSIR
Ctgefandi: Hcykjaprent hf.
Framkvaemdastjóri: DavfóGuömi ndsson.
Ritstjórar: Þorsteinn Pð<sson, ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulitrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta : Gu&mundur Pétursson. Um-
sjón meö helgarblaði: Ami Þórarinsson. Blaóamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson,
Guöjón Arngrlmsson, Kjartan L. Pólsson, óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir. Akur-
eyrarritstjórn: Anders Hansen. lþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Útlitsteiknun: Jón ósk-
ar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorstei/ia Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgata 44.Sfmar 11660, 86611
Afgreiösla: Hverfisgata 44. Sfmi 86611
Ritstjórn : Sföumúla 14. Sfmi 86611, 7 lfnur
Akureyri. Sfmi 96-19806
Askriftargjald kr. 1100 á mánuöi innanlands.
VerÖ f lausasölu kr. 60 eintakiö.
Prentun: Blaöaprent hf.
Bylting, sem ekki
má gleymast
I dag eru liöin tuttugu ár frá því að stúdentar í
Búdapest gengu i broddi fylkingar frjálshuga fólks
um götur borgarinnar i því skyni að knýja f ram breyt-
ingar á stjórnarháttum í Ungverjalandi og skera upp
herör gegn ógn Stalinssósíalismans. Blóðbaðið sem í
kjölfar fylgdi er einn af stærstu harmleikjum þess-
arar aldar.
Borgarar Búdapest munu ekki i dag sjá margt, er
minnir á þessa ógnaratburði. Það væri ekki að geði
þarlendra stjórnvalda. En á Vesturlöndum er þessi
harmleikur brennimerktur í vitund manna sem við-
vörun gegn því stjórnkerfi, sem ól böðlana í Búdapest
fyrir tveimur áratugum.
ÞjóðbyItingin í Ungverjalandi hófst eiginlega 23.
október 1956, þegar stúdentar og hópar menntamanna
hófu frelsisgönguna frá Búda til Pest. Tugir þúsunda
borgara fylktu liði í þessari göngu. Þeir kröfðust þjóð-
legrar forystu. heimtuðu frelsi og bræðralag, hrópuðu
burt með stalínismann og lifi æska Póllands.
Þjóðbyltingin í Ungverjalandi var ekkert einangrað
fyrirbrigði. Hún kom m.a. í kjölfar mikilla hræringa í
Póllandi. I raun réttri voru kröfur þjóðfrelsisaf lanna í
Ungverjalandi afar hógværar. En eigi að síður hóf
lögreglan skothrið á borgara i Búdapest að kvöldi
þessa dags fyrir tuttugu árum. Þar með var blóðbaðið
byrjað.
Sovéskur her var kominn inn íhöfuðborg Ungverja-
lands nokkrum klukkustundum eftir fyrstu átökin. I
byrjun nóvember létu Sovétríkin síðan til skarar
skríða með hermdarverkum og blóðbaði víðsvegar um
landið.
Frjáls riki á Vesturlöndum stóðu aðgerðarlaus
meðan sovéskur her braut á bak aftur hreyfingu
fólksins í Ungverjalandi. Það er í sjálfu sér hrikaleg
staðreynd, þegar litiðer til baka. En þó er napurlegast
hlutskipti þeirra manna á Vesturlöndum, einnig hér á
Islandi, sem i nafni réttlætisins tóku málstað böðl-
anna.
Þau viðbrögð sýna gleggst, hversu orð geta verið fá-
nýt i stjórnmálum. Það er afstaðan, sem máli skiptir.
Og eftir tuttugu ár spyrja menn enn, hvernig það megi
vera, að þeim sé treyst, er stóðu við hliðina á böðl-
unum i Ungverjalandi. Orðin eru enn þau sömu. Hvað
hefur þá breyst?
Eftir bióðbaðið í Ungverjalandi voru menn í stórum
hópum hnepptir i fangelsi eða teknir af líffi, börn voru
sett í fangabúðir og unglingar f luttir í ánauð til Sovét-
ríkjanna. Nokkur hundruð þúsund ungverja komust úr
landi og settust að á Vesturlöndum.
Þaö er erfitt hlutskipti að flýja föðurlandið og setj-
ast að á nýjum stað. tslendingar voru svo lánsamir að
geta tekiðað móti hópi ungverskra flóttamanna, sem
hér settust að. Það hefur ugglaust verið mikil raun á
sinum tíma, en þeir eru að meðal okkar í dag merkis-
berar frjálshuga fólks.
Blóðbaðið í Ungverjalandi var hvorki upphaf né
endir sósíaliskrar ógnarstjórnar. Innrásin í Tékkó-
slóvakíu 1968 talar þar skýru máli. Það er því ekki að
ástæðulausu, að frjálst fólk á Vesturlöndum er á varð-
bergi gegn þessari ógn.
Að sjálfsögðu hafa menn ekki gefið upp vonina um
þjóðbyltingu gegn einræðisokinu. Tómas Guðmunds-
son sagði á sínum tíma í eftirmála bókar Rostbölls um
ungversku þjóðbyltinguna: „Þannig á frelsisbylting
ungverja enn dag í vændum. Hún lifir og ryður sér til
rúms i samvisku allra þeirra manna, er leita sannleik-
ans í einlægni og bera framtíð mannkynsins fyrir
brjósti".
Það er ótrúlego
í augum barns
margt sem f reistar
Vitið þið
aö svo daglega er komið með
börn á Slysavarðstofuna vegna
þess að þau hafa látiö ofan I sig
einhverja ólyfjan. Ariö 1975 var
komið með 412 börn og þar af
325 sem voru 3 ára og yngri.
Hvert einasta heimili er
fullt af hættum
fyrir þessar litlu verur sem
þurfa svo mikla vernd og leiö-
sögn. Miklu meiri vernd en
margur heldur. Þaö er ótrúlega
margt sem freistar I augum
barns. Eðlileg forvitni þeirra
getur leitt þau þangað sem sist
skyldi. Umbúðir og ýmisleg
hættuleg efni, eru oft fallegar og
mjög forvitnilegar. Barnið
stenst ekki freistinguna að opna
og skoða þessar skrautlegu
flöskur og bauka. Snyrtivörur
eru t.d. nær alltaf i fallegum
umbúðum, og þaö getur verið
ofur auðvelt fyrir barnið að ná i
þær. í snyrtivörum eru ýmis
hættuleg efni svo sem i nagla-
lakki, hárúðunarefni, rakspira,
ilmvötnum, Iagningarvökva svo
eitthvað sé nefnt af algengum
efnum á venjulegu heimili.
Allar þessar vörur ættu að vera
á stöðum þar sem börn ná ekki
til þeirra, t.d. i efstu hillu I skáp
sem þau geta ekki klifraö upp i.
En þó snyrtivörurnar séu vara-
samar eru lyfin þó enn hættu-
legri.
öll lyf eru hættuleg
hverju nafni sem þau
nefnast
ef þau eru tekin inn af þeim sem
ekki kunna með þau að fara. Lyf
ættu skilyrðislaust að vera
geymd inni i læstum skáp.
Sérstakir lyfjaskápar fást þvi
miður ekki viða en þeir fást nú i
versluninni Brynju við Lauga-
veg og kosta 6.600 kr. Að sjálf-
sögðu er einnig hægt að nota
aðra læsta skápa og þess má
geta'að Neytendasamtökin hafa
barist fyrir þvi, að það verði sett
inn i byggingasamþykkt að
læstur skápur skuli vera i eld-
húsum. A flestum heimilum
hefur skapast sú hefð aö geyma
allskyns hreinsiefni i skápnum
undir vaskinum i eldhúsinu.
Þesu þarf að breyta þvi að
hreinsiefni (sem svo mjög eru
auglýst, sem efni er eigi að ná
hvaða óhreinindum sem eru)
innihalda mjög hættuleg efni. Af
algengum efnum á heimili
mætti nefna þvottaduft, klór,
efni til þess að hreinsa niöurföll,
stálull og aliskyns sterka
hreinsilegi sem eru stórhættu-
legir, Ef eitthvað af þessum
efnum (og öðrum hættulegum
efnum) er i eldhússkápnum hjá
þér lesandi góður, skaltu fjar-
lægja þau hið snarasta og finna
þeim betri stað. Það er meiri
fyrirhöfn að ná i þvottaefni upp i
efstu hillum, en það er þess
virði. Auk þess er þetta ekkert
annað en vani sem auðvelt er að
breyta.
Varið ykkur á því að kalla
meðöl sælgæti
Barnið sér engan mun á þvi
hvort sykurhúðuðu pillurnar
sem það náði i eru lyf eöa sæl-
gæti. Aö visu finna þau vont
bragð ef þau tyggja þær, en það
er auðvelt að bæta úr þvi, þau
gleypa þær bara i staöinn. Börn
eru snögg að framkvæma og
þau ráðgera ekki fyrirfram það
sem þau ætla að gera. Finni þau
eitthvað sem vekur áhuga
þeirra gera þau engan greinar-
mun á þvi hvort það er hættu-
legt eða ekki. Einhvers staðar
lengst inni i hugarfylgsnum
barnsins heyrist ef til vill rödd
sem segir þú mátt ekki, en sú
rödd gleymist fljótt ef freist-
ingin við að ná I eitthvað gott
veröur sterkari. Umvandanir
eða skammir geta ekki komið i
veg fyrir að barnið svali eöli-
legri forvitni sinni.
Hér fyrir neðan er listi yfir
algeng efni á heimilum, sem
vitað er til að börn hafa skaðaö
sig á, samkvæmt upplýsingum
frá læknum.
Efnasambönd
I. Lyf
Geðlyf
Róandi lyf
Svefnlyf
Hjarta- og æðalyf
önnur verkjalyf
Vöðvaslappandi lyf
Járn
Nefdropar
önnur lyf
(t.d. megrunarlyf,
getnaðarvarnartöflur
og blóðþynningarlyf).
II. Efni á heimilum
Terpentlna
Húsgagnaáburður
Þvotta- og hreinsiefni
Bensin og steinolia
Ediksýra
Salmiakspiritus
Bórsýra
Annaö (t.d. hárvökvi, bón, ilm-
vötn, naglalakkseyöir og lim-
efni).
1
III. önnur efnasambönd
Garðúöunarefni
Meindýra- og
skordýraeitur
Sigarettu- og
vindlastubbar
Afengi
Annað (t.d. benzol,
fenol,
tréspiritus og
kvikasilfur).
Þessi varnarorð eiga ekki ein-
göngu við þá sem eiga litil börn
heldur iika hina sem börn
heimsækja. Þvi að ekkert er
eins spennandi og að skoöa I
hirslurnar hjá öðrum.
Eina örugga ráöið til þess að
koma I veg fyrir eitranir, hvort
sem þær eru vegna lyfja eða
annarra efna er að læsa öll
hættuleg efni inni þar sem börn
geta ekki náð til þeirra. Þetta á
ekki aöeins við um óvita heldur
öll börn. Lika stóru börnin. Með
fyrirbyggjandi aögeröum má
koma i veg fyrir mörg óþarfa
slys.