Vísir - 23.10.1976, Qupperneq 15
15
D
V
Útvarp sunnudag klukkan 19.35:
„KOMMUNISTAR
HAFA STYGGST VIÐ
ii
„Þessi þáttur verður um
st jórnmálakenningar enska
heimspekingsins Bertrand
Russel”, sagði Hannes
Gissurarson i samtali við Visi,
en hann sér um þáttinn Orða-
belg i útvarpinu á sunnudags-
kvöld klukkan 19.35.
,,Ég reyni einkum að spjalla
um bók hans: Þjóöfélagið og
einstaklingarnir, sem komið
hefur út i islenskri þýðingu
Sveins Ásgeirssonar, og um efni
ýmissa ritgerða eftir hann. Til
dæmis ritgerð sem hann
skrifaði um vestræna menningu
og um sambandið á milli
fasisma og kommúnisma.
Russel var kunnur fyrir sam-
félagsgagrýni sem lét sig flest
varða; hann einangraði sig ekki
við umræður i fræðasölum.
Það má geta þess að Russel
vareinn af þeim sem gerðu upp-
reisn i heimspeki á fyrsta hluta
20. aldar og varð einn af
málsvörum visindalegrar og
rökvisrar hugsunar, en hann
var stærðfræðingur og rökfræð-
ingur að mennt.
Ég mun leggja „orð i belg”
fram að áramótum. Þetta hefur
verið mjög gaman, og ég hef
orðið var við margvisleg við-
brögð manna. Kommúnistar og
fasistar hafa styggst við, en
aðrir hafa látið i ljós áhuga,
þannig að þau hafa spannað allt
hið pólitiska litróf.”
Sjónvarp í kvöld klukkan 22.30:
Glœsiíeg fortíð
Það er uppgjafakvikmynda-
ieikari sem er miðpunktur
myndarinnar i kvöid. Hann heitir
Thornton Sayre og lifir friðsælu
llfi ásamt Caroi dóttur sinni.
Enginn veit að hann var áður
kunnur kvikmyndaieikari, þar til
sjónvarpsstöð tekur myndir hans
til sýningar.
Verður væntanlega uppi fótur
og fit þegar hann þekkist, enda
maðurinn hinn sérkennilegasti.
Ginger Rogers, sem ieikur
dótturina, er sennilega frægust
fyrir danshæfileika sina á hvita
tjaldinu, en hún og Fred Astaire
hafa leikið og dansað saman i
fjölda mynda, sérstaklega frá
1933-39. Hún er fyrst og fremst
gamanleikkona, en hefur þó
einnig leikið i alvarlegri
myndum. Hún fékk Óskar fyrir
leik sinn sem Kity Foyle i sam-
nefndri kvikmynd.
Háskólakennarann leikur Clift-
on Webb, en hann fengum viö
einnig að sjá um siðustu helgi
sem Belvedere. Hann hóf leikferil
sinn sem barnaleikari, en sneri
sér brátt að „alvarlegri” verk-
efnum. Hann er sennilega þekkt-
astur I hlutverki Belvedere, en
hann hefur lika leikið I nokkrum .
„menningarlegum” myndum.
Myndin er frá árinu 1952 og af
léttara taginu.
—G A
Ginger Rogers gramsar I ilmvötnum f myndinni Glæsiieg fortfð,
sem sýnd er f sjónvarpinu f kvöld. Sé þessi mynd skoðuð vel, segir
hún meira en þúsund orðum það,í hvaöa stfl niyndin er.
Hávarður, sambýlismaður Ástriðar, f dyrunum,er Jói 9 ára strýkur
með Barða föður sinum.
Fékk vinnu út á lctndi
og endoði í dómsalnum
Hinn árlegi þáttur laganema viö Háskóiann, Réttur er settur, er á
dagskrá sjónvarpsins I kvöid klukkan 21.45.
Þátturinn var tekinn upp i vor sl. en hefur verið lengi i vinnslu.
Þrettán lögfræðinemar leika i myndinni, flestir á 3. og 4. ári.
Fjallað er um þá togstreitu, sem myndast við hjúskaparslit um for-
ræði barna og umgengnisrétt við þau. Þetta eru mál sem mjög oft
koma fyrir lögfræðinga, en þau eru sérstaklega erfið vegna þess hversu
tilfinningarnar leika stóran þátt i þeim.
Söguþráðurinn i þætti laganema á morgun er i aðalatriðum á þá leið
að ung hjón skilja og gera með sér skilnaðarsamning. Þau eru ham-
ingjusamlega gi ft þegar maðurinn fær vinnu úti á landi, en hann er bil-
virki og heitir Baröi. Astriður kona hans er ein heima á meðan, að þvi
undanskildu að ungur lögfræðinemi leigir herbergi i kjallaranum. Þar
er á ferðinni hið mesta prúðmenni. Barði stundar vinnu sina i langan
tima og kemur ekki heim, þar til eitt sinn að hann kemur óvænt heim
að nóttu til og kemur þá aö konu sinni og lögfræðinemanum, úlfljóti,
þar sem þau eru i hörku samræðum. Afbrýðisemin blossar þá upp i
Barða, og hann flytur til móður sinnar eftir þessar næturraunir og sæk-
ir um skilnaöinn, sem hann og fær.
í skilnaðarsamningnum segir að hún skuli fá umráðarétt yfir börn-
um þeirra tveim, en öðrum eignum verði skipt til helminga.
Eftir skilnaðinn flytur úlfljótur út, en annar flytur inn i staðinn, Há-
varður að nafni,. Takast með honum og Astriði góð kynni og þau hefja
sameiginlegt húshald. Jóa, syni Astriðar, likar hins vegar mjög illa við
Hávarð. Hann strýkur úr vistinni og fer til pabba sins þar sem hann býr
hjá móður sinni.
1 skilnaðarsamningi þeirra kvaö svo á að Barði skyldi greiða ákveð-
inn lifeyri til Ástriðar. Hann litur nú svo á að hún sé búin að fá annan
framfæranda og hættir að borga henni . Hún svarar hins vegar með þvi
að nei ta að lofa honum að sjá dótturina. Hann unir þvi illa og vill nú fá
hnekkt með dómi skilnaðarsamningnum.
Atvikalýsingu samdi dr. Armann Snævarr, hæstaréttardómari, og
lögfræðilegar leiðbeiningar annaðist Guðrún Erlendsdóttir, hæstarétt-
arlögmaður.
Handrit sömdu Gunnar Guðmundsson og Þorgeir öriygsson.
örn Harðarson er umsjónarmaður þáttarins og hann stjórnaði einnig
upptöku.
— GA
nokkur tekur sig upp meö
konu sina og tvö börn og
flyst frá Lundúnum til borg-
ar i Norður-Englandi, þar
sem hann hefur keypt gam-
alt hús. Þau hafa ekki lengi
búið þar, er þau hallast
helst að þvi, að reimt sé i
húsinu. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
19.00 íþróttir
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Ringulreið „Episk
ópera” I þremur þáttum eft-
ir Flosa Ólafsson og Maenús
Ingimarsson. . Verkiö
er sKopstænng á ymiss kon-
ar „listrænum” stilbrigð-
um, sem þekkt eru úr leik-
húsum og fjölmiðlum. Er
óðalsbóndinn Marinó I
Fákahlið kemur heim af
hestamannamótinu aö Villi-
bala, þar sem hann hefur
leitt góðhest sinn, Satan, til
sigurs, biða hans óvæntir
atburðir. Leikstjóri Flosi
Ólafsson. Hljómsveitar-
stjóri Magnús Ingimarsson.
21.40 Ann-Margret Olsson
Sænska leikkonan Ann-Mar-
gret syngur og dansar, og
auk hennar skemmta Tina
Turner og The Osmonds.
Þýöandi Stefán Jökulsson.
22.30 Glæsileg fortið (Dream-
boat) Bandarisk gaman-
mynd frá árinu 1952, byggö
ásögu eftir JohnD. Weaver.
Aöalhlutverk Clifton Webb
og Ginger Rogers. Háskóla-
kennarinn Thornton Sayre
lifir friðsælu lifi ásamt
Carol dóttur sinni. Enginn
veit, aö hann var áður kunn-
ur kvikmyndaleikari, þar til
sjónvarpsstöð tekur myndir
hans til sýningar. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
23.50 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
24. október 1976
18.00 Stundin okkar. Sýnd
verður fyrsta myndin af sjö
um Matthias, 5 ára dreng,
sem býr i Noregi, daglegt lif
hans og leiki, siðan er mynd
um Molda moldvörpu. 1
seinni hluta þáttarins er
mynd um hirðingu gælu-
dýra. Að þessu sinni er fjall-
að um hamstra. Loks sýnir
Leikbrúðuland leikþátt um
Meistara Jakob og tröllið
Loðinbarða. Umsjónar-
menn Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir og Her-
mann Ragnar Stefánsson.
Stjórn upptöku Kristin Páls-
dóttir.
18.50 Enska knattspyrnan.
Kynnir Bjarni Felixson.
19.30 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Davið Copperfield.
Breskur myndaflokkur,
byggður á sögu Charles
Dickens. 5. þáttur. Efni
fjórða þáttar: Emilia Pegg-
otty hefur hlaupist að heim-
an með Steerforth, vini
Daviðs, og Dan frændi
hennar fer aö leita hennar.
Kynni Daviðs og Dóru verða
nánari og þar kemur, að
hann biður hennar. Betcy
Trotwood verður gjald-
þrota, og skömmu siðar
deyr Spenlow vinnuveitandi
Daviðs. Hann fer þá til
Kantaraborgar og hittir þar
gamla kunningja, Wickfield
og Agnesi dóttur hans.
Micawber hefur gerst skrif-
ari Uriah Heeps, sem nú
ræöur i rauninni öllu i fyrir-
tæki Wickfields. Daviö segir
þorparanum Heep til synd-
anna, og þeir skilja fjand-
menn. Dóra hefur nú náð
sér eftir föðurmissinn, og
þau Davið gifta sig, Heep tii
mikillar skapraunar, en
hann hugsar sér gott til
‘ji'lóðarinnar með Agnesi.'
Þýðandi óskar Ingimars-
son.
21.25 Frá Listahátið 1976.
Anneliese Rothenberger
syngur lög eftir Robert
Schumann. Við hljóðfærið
Gunther Weissenborn.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
21.45 Réttur er settur.Þáttur i
umsjá laganema við Há-
skóia tslands. Fjallað er um
þá togstreitu sem myndast
við hjúskaparslit um for-
ræði barna og umgengnis-
rétt við þau. Ung hjón skilja
og gera með sér skilnaðar-
samning, sem veitir kon-
unni forræði tveggja barna
þeirra og kveður á um bú-
skipti og lifeyrisgreiðslur.
Skömmu siðar hefur móðir-
in sambúð með öðrum
manni, og um svipað leyti
strýkur sonur hennar af
heimilinu til föður sins. Vill
fyrrverandi eiginmaður nú
fá hnekkt með dómi
skilnaðarsamningnum. At-
vikalýsingu samdi dr. Ar-
mann Snævarr, hæsta-
réttardómari, og lögfræði-
legar leiðbeiningar annaðist
Guörún Erlendsdóttir,
hæstaréttarlögmaður.
Handrit sömdu Gunnar
Guðmundsson og Þorgeir
örlygsson. Umsjón og
stjórn upptöku: Orn Harð-
arson.
23.00 Að kvöldi dags. Séra
Birgir Ásgeirsson, sóknar-
prestur f Mosfellssveit, flyt-
ur hugvekju.
23.10 Dagskrárlok.