Vísir - 23.10.1976, Blaðsíða 23
Bréf til Andra ísakssonar
Þórður Valdimarsson stjórn-
málafræðingur.
Þaö er furðulegt að heyra
menntaðan mann tala um aö að-
ild að hernaöarbandalögum feli
i sér skerðingu á sjálfstæði þátt-
takenda! Samkvæmt þvi ætti
sjálfstæði allra landa Vestur.
Evrópu aö vera skert! Hvað
heföi orðið um sjálfstæði þjóða
Vesturlanda ef að þær hefðu
ekki um siðir borið gæfu til að
sameinast i hernaðarbandalagi
til að kveða niður helstefnu
Hitlers? f þeim heimi kjamork-
unnar sem við lifum byggist
sjálfstæði þjóöa öllu öðru frem-
ur á hernaðarlegri samvinnu
þeirra, og samstööu i voldugum
bandalögum, eins og Nato. Eng-
in þjóð Evrópu er þess umkomin
lengur að verja af eigin ramm-
leik sjálfstæði sitt. Hvað Vestur-
Evrópu snertir þá er heill og
hamingja hennar að miklu leyti
komin undir Nato. Sameinaðar
standa þjóðir hennar, sundrað-
ar hljóta þær að falla! Og samt
er til maður uppi á Islandi.
Andri Isaksson, og samtök sem
hann er forsprakki fyrir, sem
berst fyrir þvi að Nato þjóðir
vinni það niðingsverk á sjálfum
sér að leggja niður hið volduga
varnarbandalag sitt, sem dugað
hefur svo ágætlega til þessa að
vernda heimsfriðinn, og standi
sundraðar og varnarlausar
gagnvart herveldi Sovétrikj-
anna! Er þetta ekki vitglóru-
laust athæfi?
Gerir þú þér grein fyrir þvi,
minn góði Andri fsaksson, hvað
það hefði i för með sér ef farið
væri eftir óskum ykkar og
sósialista að leggja niður Nato?
Þá væri ekki um nema eitt að
gera. Hina leiðina, sem sé þá að
Bandarikin fengju helstu
bandamönnum sinum i Evrópu,
frökkum, vestur-þjóðverjum og
bretum sjálfstæð yfirráð yfir
það miklu magni kjarnorku-
vopna, að þessar þjóðir gætu
staðið Sovétrikjunum á sporði i
striði, þvi varla væri það sæm-
andi fyrir þau að láta þær
standa uppi eins aflvana og
Austur-Evrópu þjóöirnar, áður
en sovétherir lögöu þær undir
sig og neyddu upp á þær sinum
einræðisstjórnarháttum, eða
hvað?
Lokaði öllum
möguleikum
til bœttrar
sambúðar
Þessa leið hafa Bandarikin
ekki viljað fara, af augljósri á-
stæðu. Þau vita vel að Sovétrik-
in eiga um sárt að binda af völd-
um blóðhunda Hitlers. Að
minningin um 50 milljónir rússa
er létu lifið á skelfilegasta hátt,
er þeim enn i fersku minni, og
að ekkert mundi verða eins til
að margfalda vigbúnað Sovét-
rikjanna eins og það að gera
Þýskaland að herveldi með
'‘sjálfstæðum yfirráðum kjarn-
orkuvopna! Sú þróun mála
myndi loka öllum möguleikum
til bættrar sambúöar og afvopn-
unar að vissu marki. Og samt er
það þetta sem hin villuráfandi
samtök yðar og sósialista berj-
ast fyrir og dreymir um! Þvi i
heimi nútima hernaðar er ekki
um nema tvennt að gera hvað
varnir Evrópu snertir. Sam-
staða innan Nato með þeim
hætti sem nú er, eða það að gera
helstu riki Vestur-Evrópu að
voldugum- sjálfstæðum kjarn-
orkuveldum! Viss öfl i Banda-
rikjunum, svo og rikisstjórn
frakka, hefur viljað hina leið-
ina. Þeir heimtuðu aðstoð
Bandarikjanna til að verða
voldugt kjarnorkuveldi, og fóru
i fýlu, sem kunnugt er, vegna
þess að Bandarikin vildu ekki
láta þaðeftir þeim. Þó þeir hafi
minniháttar kjarnorkuvopn i
litlu magni, sem þeir hafa kom-
ið sér upp af eigin rammleik þá
skiptir það ekki neinu höfuð-
máli. Varðveislu friöarins i
heiminum útheimtir það að
stöðva sem mest útbreiðslu
kjarnorkuvopna, og að yfirráð
þeirra séu I sem fæstra höndum
eins og nú er. Bandarikin hafa
ekki hikað við að taka á sig ó-
vinsældir frakka, og annarra,
frekar en hvika frá þeirri skyn-
samlegu stefnu. Hún ein mun
gera fært aö hemja vigbúnaðar-
kapphlaupið og finna heppi-
lega og kostnaðarminna valda-
jafnvægi risaveldanna en nú er.
Verða ykkur
til háborinnar
skammar í
íslandssögunni
Þér og samtök þau sem þér
eruð forsprakki fyrir, ættuð að
gera ykkur það ómak að reyna
að setja ykkur inn i þó ekki væri
nema einföldustu atriði her-
fræðinnar, svo meira vit verði i
orðum ykkar og gerðum en ver-
iðhefur til þessa. En einu sam-
tökin sem jafnast á við ykkur i
forheimskun, sjúklegu einsýni
og ofstæki eru jesúitareglan og
galdrabrennumenn á sinum
tima, sem þjónuðu sjúklegum
þáttum i lundarfari sinu i nafni
guös og heilagra hugsjóna!
Þið, gegn her i landi menn, lif-
ið ykkur inn í furöulegustu
bábiljurog vitleysur, sem munu
verða ykkur til háborinnar
skammar i Islandssögunni og
stimpla ykkur sem hættulegt
sambland af þjóðniðingum og
Don Quekotelýð.
Ef þið hefðuð hugrekki til að
horfast i augu við hernaðarleg-
ar staðreyndir, i stað þess að
flytja veruleika þeirra inn i
heim óskhyggjunnar, mynduð
þið koma auga á aö stefna ykkar
er stórhættuleg heill og ham-
ingju islensku þjóðarinnar, og
heimsfriðinum, ef nokkrar likur
væri þá á þvi að þið gætuö haft
veruleg áhrif á gang málanna —
þið og ykkar likar i öðrum lönd-
um.
Stefna ykkar er byggöá fölsk-
um forsendum og alröngum
upplýsingum. Hætta sú sem
þjóð vor er i stafar alls ekki af
starfrækslu herstöðvarinnar i
Keflavik, heldur legu lands vors
á miðju mesta hættusvæði i
heimi, þeim stað, er gerir hern-
aðarleg yfirráð að vissu marki á
Atlantshafi möguleg. Þeirri sjó-
viglinu sem báðir hugsanlegir
striðsaðilar telja að verði óhjá-
kvæmilega mesta átakasvæðið!
Umrædd lina, Grænland, Is-
land, Færeyjar, Noregur stofn-
ar öryggi Sovétrikjanna i geig-
vænlega hættu. Það er þvi
höfuðlausnin að leitast sé við aö
hafa viðbúnað þar i þvi lág-
marki sem viðunanlegur er
fyrir þau, jafnframt þvi sem
hagsmunir Nato á þessu svæði
eru nægilega tryggðir. Núver-
andi ástand þjónar þessum til-
gangi furðu vel. Og hún ásamt
hinni skynsamlegu stefnu
Norðurlandanna á álika mikil-
vægu svæði er eitt mesta fram-
lagið til varðveislu heimsfriðar-
ins.
Hlutleysi Finnlands og Svi-
þjóðar og kjarnorkuvopnalaus
Noregur tryggir lágmarks-
spennu á svæði sem er afar ör-
lagarikt fyrir öryggi Sovét-
rikjanna, og er i rauninni
ómetanlegt ástand fyrir varð-
veislu heimsfriðarins. Þó það
hafi þvi miður I för með sér að ef
til styrjaldar kæmi, mundi
Noregur hertekinn af Sovétrikj-
unum, þvi vonlaust er að hægt
sé að koma þeim til hjálpar að
gagni undir núverandi kring-
umstæðum. Hefði sá þáttur i
vörnum Nato, sem að Noregi lýt
ur átt að vera framkvæmanleg-
ur, hefði Noregur þurft að vera
grár fyrir kjarnorkuvopnum.
En núverandi ástand i Noregi er
miklu betra fyrir varðveislu
heimsfriöarins og það er norö-
mönnum ljóst.
Myndi leiða til
heimsstyrjaldar...
Varnir Noregs byggjast þvi
ekki á kjarnorkuvopnum á
staðnum heldur á hinu að árás
Sovétrikjanna á Noreg mundi
leiða til heimsstyrjaldar, ef her-
ir Sovétrikjanna yrðu ekki
dregnir til baka i tima.
Eitt af þvi sem gerir Nor. og
reyndar Norðurlöndunum öllum
fært að reka sina skynsamlegu
stefnu i þágu varðveislu heims-
friðarins, er sá styrkleiki sem
kverktakssvæðið við tsland
veitir Nato. Samt má ekki ein-
blina á það eitt að gera styrk-
leika Nato á þessu svæði sem
mestan. Þaö veröur vegna
heimsfriöarins að stilla honum i
hóf, það hóf sem Sovétrikin geta
sættsig við, og kallar ekkiá allt
of dýra og geigvænlega svörun
af þeirra hálfu . Núverandi
ástand er það lang-besta fyrir
báða aðila, og einkum og sér i
lagi fyrir Norðurlönd.
Hugsum okkur að farið væri
að hinum vanhugsuðu hug-
myndum ykkar og her Banda-
rikjanna yrði visað burt frá Is-
landi. Eftir það er ekkert annað
fyrir þá að gera, til að tryggja
öryggi sit á þessu örlagarika
svæði, en að gripa til flotadeild-
arinnar sem hann Luns var að
tæpa á, án þess að skýra málið
sómasamlega. Banda-
rikjamenn yrðu þá að koma sér
upp Norður-Atlantshafsflota,
með flugvélamóðurskipum,
fullkomnum kjarnorkuvopnum
ogöllu tilheyrandi, og hafa hann
aðstaðaldri á svæðinu umhverf-
is Island. Þar með væri spennan
á þessu svæði komin i hámark
og Sovetrikin yrðu auðvitað að
fara eins að. Taka fé frá iðn-
aðar- og landbúnaðarþróun og
bættri lifsafkomu sovéskra
verkamanna til að koma sér upp
ámóta flota til að hafa á svæðinu
fyrir norðan okkur. Væri þetta
ekki gaman eða hitt þó heldur?
Þetta felst i stefnu ykkar og
þið hafið liklega ekki hugmynd
um það frekar en jesúitarnir á
timum rannsóknarréttarins á
Spáni og viðar, skynjuðu að
hugmyndir Jesú Krists voru
ekki i þeim illverkum þeirra er
þeir brenndu menn fyrir Guð og
kristindóm. Þið eruð þvi miður
eins og álfar út úr hól i öllu sem
hermálum viðkemur, þó þið
séuð sigasprandi um þau mál,
og virðist halda að kúnstin sé
bara að hafa nógu hátt og látast
vera afskaplega þjóðlegir. Þið
eigið bandamenn i hinni illu viö-
leitni ykkar. Liklega hafið þið
ekki hugmynd um hverhann er
frekar en annað. Það eru hinir
allt of voldugu hergagnafram-
leiðendur i Bandarikjunum,
sem lengi hafa ekkert veriö á
móti þvi að umræddum Noröur-
Atlantshafsflota yrði komið
upp, þvi þeir myndu græða heil
ósköp á þvi, en þeir hafa bara
ekki fengiö að ráða þessu hingað
til, þvi það myndi stofna hern-
aðarjafnvæginu i voða. Maöur
gæti háldið að þiö „gegn her i
landi menn” væruð á mála hjá
bandariskum hergagnafram-
leiðendum, þvi þeir eru þeir
einu sem stefna ykkar i rauninni
þjónar.
Nú orðið þjónar hún Sovét-
rikjunum alls ekki lengur, þó
hún hafi i upphafi verið miðuð
við imyndaða hagsmuni þeirra
á Stalinstimabilinu og árunum
þar á eftir. Þvi er svo komið að
það hefur ekki minna að segja
fyrir Sovetrikin en Bandarikin
sjálf, að ástandiðá Islandi, hvað
dvöl bandarikjamanna snertir,
haldist óbreytt.
Annars held ég nú ekki i al-
vöru að þið eða þjóðviljamenn
séuð á launum hjá Lockheed og
þeirra likum, þó þið eigið þessa
sameiginlegu vonir og drauma,
sem sé burtför bandarikjahers
frá Islandi og flotadeildina
ábatasömu. Nei, höll Þjóðvilj-
ans er eflaust byggð fyrir sam-
skot fátækra verkamanna,
fremur en bandariskt fé, þvi það
eru vist engin takmörk fyrir þvi
hvað hægt er að láta vel heila-
þvegið fólk gera!
Hugsaðu nú málið upp á nýtt
minn góði Andri ísaksson, og þá
vona ég að þú komir auga á það
besta og þjóölegasta sem sam-
tök ykkar geta gert, það er að
leggja samtökin niður og beina
starfskröftunum i farvegi sem
eitthvert vit er i. Eða þá að þið
gætuð breytt samtökunum i
önnur til að berjast fyrir af-
vopnun almennt og bættri
sambúð austurs og vesturs. Það
er mikið hægt að gera á þvi sviði
og ísland gæti vissulega vegna
hernaðaraðstöðu sinnar lát ið
kveða meira að sér i alþjóða-
málum á þvi sviði en það hefur
gert til þessa.
w KÓTEK ★ DISKÓTEK-A- DISKÓTEK* DISKÓTEK-frDISK
Q
★
LU
K
o
cn
Q
*
FERÐA DISKÓTÉK
OBELIX
UMBOÐSSÍMI
15699
KL. 9-12,30
FYRIR HÁDEGI.
>isia*»3io»sia*»3io»sia-¥-»3io»sia*»3io»sia
ÓTEK-A-DISKÓTEK-A-DISKÓTEK*