Vísir - 23.10.1976, Qupperneq 24
Útvarp-Akureyri
Hjá aðeins einu félagi
komu tveir iistar fram
Samkvæmt upplýsingum sem
við fengum hjá Alþýðusambandi
íslands i gær, er aðeins vitaö um
eitt félag af þeim mikla fjölda
innan ASI, þar sem sérstök
kosning fer fram um kjör fulltrúa
á alþýðusambandsþingiö, sem
háð verður i lok næsta mánaðar.
Þetta eina félag er ASB — félag
afgreiðslustúlkna i brauö- og
mjólkurbúðum — þar sem kosiö
verður nú um helgina. Hjá öðrum
félögum innan ASl hefur veriö
sjálfkjörið, þar sem ekki hefur
komiö fram nema einn listi, eða
kosið hefur verið á almennum
félagsfundi.
Hjá ASB komu fram tveir
listar. A-listi, þar sem Hallveig
Einarsdóttir, formaður félagsins,
er i fararbroddi, og B-listi, sem er
borinn fram af Lilju Kristjáns-
dóttur og fleirum.
Á kjörskrá eru um 260 konur.
Kosningin fer fram að Skóla-
vörðustig 16 i dag og á morgun á
milli klukkan 9.00 og 17.00. Er
búist við hörðum kosningum enda
viðbúnaður verið mikill i báðum
herbúðum nú siöustu dagana.
„Þetta gekk svo rólega að
okkur brá varla”, sagði Kolbeinn
Arason, flugmaður hjá Flugfélagi
Austurlands, er við spjölluðum
við hann skömmu eftir að hann
hafði lent i óhappi á flugvél sinni
á Egilsstaðaflugvelli i gær.
,,Ég var að koma frá Vopna-
firði og með mér var einn farþegi
i vélinni, sem er af gerðinni
Beechcraft og tekur sex farþega.
Við vorum lentir og búnir að
rúlla eina 200 metra eftir braut-
inni þegar hjólin fóru allt i einu
upp og vélin lagðist á magann.
Þannig rann hún eina 70 til 80
metra en stöðvaðist svo.
Hvorugan okkar sakaði enda
var engin ferð á vélinni þegar
óhappið varð. Hún er ekki mikið
skemmd, en viðgerðin verður trú-
lega dýr. Annars á eftir að kanna
Rekstur einkaútvarpsstöðva á
Akureyri er enn i fullum gangi, og
er útvarpað meira og minna á
degihverjum, oft margar klukku-
stundir i senn. Það eru nokkrir
ungir akureyringar sem að
þessum útvarpsrekstri standa, og
Kratar eignast
nýja stefnuskrá
„Það verður afgreidd á
þessu' þingi ný stefnuskrá,
sem unnið hefur verið að
undanfarin tvö ár”, sagði
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, er Visir
spurði hann i gær um hver
yrðu helstu mál 37. flokks-
þings Alþýöuflokksins-
„Siöan er búist við að á
þinginu verði rædd ýmis innri
mál flokksins. Þá liggur fyrir
þinginu tillaga varðandi próf-
kjör og kanna á hvernig megi
nota það við val á frambjóð-
endum flokksins”. —EKG
það betur, svo og að rannsaka
ástæðuna fyrir þvi að hjólin fóru
upp, en á þvi hef ég enga
skýringu.”
Kolbeinn, sem hefur verið flug-
maður hjá Flugfélagi Austur-
lands. sl. tvö ár, sagöi okkur, að
eftir þetta óhapp gæti hann farið i
fri, þvi að hann hefði enga flugvél
til að fljúga þessa stundína.
Félagið átti tvær flugvélar,
þessa Beechcraftvél sem sjálf-
sagt tekur langan tima að gera
við, og vél af gerðinni Chessna, en
sú vél er nú i viðgerð eftir að hafa
hlekkst á fyrr á þessu ári.
Kemur þetta sér mjög illa fyrir
austfirðinga, þvi að Flugfélag
Austurlands hefur sinnt veiga-
miklu hlutverki i sam-
göngumálum þar eystra, frá þvi
að það tók til starfa. —klp-
hefur engin tilraun verið gerð til
að stöðva útsendingar þeirra.
Yfirmönnum landsimans er þó
fullkunnugt um þessa starfsemi,
en hún er algjörlega ólögleg sem
kunnugt er.
Slysið við
Borgarfjarðarbrú:
Leituðu
líksins úr
tveimur
þyrlum
Tvær þyrlur leituðu i gær að lfki
Jóns Vals Magnússonar, 19 ára
piits, sem drukknaði við vinnu við
Borgarfjarðarbrú á þriðju-
daginnn var. Leitin bar engan
árangur.
Þyrlurnar voru i eigu Andra
Heiðbergs og Landhelgisgæsl-
unnar. Leitað var allan daginn,
flogið yfir Hvitá, og ennfremur
varleitað i fjörum á Mýrum. Með
þyrlunni voru Kristján Bjarna-
son, formaöur Björgunarfélags-
ins Brákar i Borgarnesi, og
Guðbrandur Þorvaldsson, for-
maður Björgunarfélagsins
Hjálpar á Akranesi.
A miðvikudag var komið fyrir
dufli á Hvitá á þeim stað þar sem
Jón heitinn féll i ána. Var siðan
fylgst með hvernig það bærist
með straumnum, þar til það
hvarf sjónum manna seint um
kvöldið. Var ætlunin með þessu
að reyna að finna hvert likið
kynni að hafa rekið.
Þegar Jón heitinn féll i ána var
hann i björgunarvesti sem átti að
blásastút þegar hann félli út i. Er
mönnum alveg hlulin ráðgáta
hvernig á þvi stóð að það gerðist
—klp—
Hjólin fóru upp og flug-
vélin lagðist á magann
Eins og áður hefur verið skýrt
í miklum blóma
frá hér i Visi hafa um skeiö verið
starfandi tvær stöðvar, en nú mun
þó aðeins önnur þeirra vera i
gangi. Útvarpar hún léttri tónlist
frá þvi um kaffileytið á daginn og
fram eftir nóttu. Sú stöð sendir út
á FM, 101,6 m.
Vegna þess að útvarpsstöðin er
ólögleg er ekki unnt að segja
hverjir standa að starfrækslu
hennar, en sendirinn mun vera á
norðurhluta Brekkunnar á
Akureyri. AH, Akureyri..
Leitað var á viðáttumiklu svæði. Hér er Jón Heiðberg að kanna
ógreinilegan hlut.
Þeir Kristján og Guðbrandur skipta hér leitarsvæðunum á milli
þeirra Björns og Jóns.
NÆST LENGSTA FLUG-
BRAUT Á LANDINU
tekur í notkun ó Sauðórkróki í dag
VISIR
Laugardagur 23. október 1976
Líf fœrist i
Edda-Film
Heimild hefur fengist til
aukningar hlutaf jár i kvikmynda-
fyrirtækinu Edda-Film, sem á
sinum tima framleiddi kvik-
myndirnar Sölku Völku, 79 af
stöðinni og Rauðu skikkjuna.
A aðalfundi félagsins í gær-
kveldi var ákveðið að nýta þessa
heimild til hlutafjáraukningar og
má þvi vænta einhverra stór-
virkja af hálfu fyrirtækisins á
næstunni, ef að likum lætur. RJ
Nýi flugvöilurinn á Sauðár-
króki verður formlega opnaður I
dag. Þar er nú 2014 metra flug-
braut, sem er lengsta braut á is-
lenskum flugvelli, utan Kefla-
vikur.
Þá eru komin til landsins
blindaðflugstæki sem verða sett
upp við brautina. Með þeim
verður hægt að lækka um helm-
ing leyfilega aðflugshæð i blind-
flugi, eða niður i 300 feta skýja
hæð og skyggni framundan þarf
ekki að vera nema 1,5 km.
Upphaflega átti brautin
aðeins að verða 1400 metra löng,
en samgönguráðuneytið féllst
á tillögu flugráðs um að hafa
hana i fullri lengd, þ.e. 2000
metra. Við þá ákvörðuri var
tekið tillit til þess að þarna var
hægt að gera tiltölulega ódýrt
fullkomna braut með tiiheyr-
andi öryggissvæðum og mjög
góðum aðflugsskilyrðum.
Það var þvi hægt að fá á mjög
hagkvæman hátt 2000 metra
flugbraut, sem vélar af gerðinni
Boeing 727 geta notað án tak-
markana.
—ÓT.
Við hðfum veitt meira af þorski en í fyrra
Heildarþorskafli breta verður
varla meiri en 50 þúsund tonn
islendingar hafa veitt 239 þús-
und tonn af þorski frá ársbyrjun
og fram i septemberlok. Þorsk-
afli okkar i fyrra á sama tima
var hins vegar 10 þúsund
tonnum minni eða 229 þúsund
tonn.
Þorskafli útlendinga á sama
timabili er nú 51 þúsund tonn, en
á sama tima i fyrra 85 þúsund
tonn.
Heildar þorskaflinn hér við
land á timabilinu frá áramótum
til septemberloka núna i ár er
þvi um 290 þúsund tonn en i
fyrra var hann 314 þúsund.
Þessar upplýsingar fékk Visir
hjá Má Elissyni fiskimálastjóra
i gær. Már sagði að tölurnar við-
vikjandi afla islendinga væru
allábyggilegar. En tölurnar um
afla útlendinganna væru ekki
alveg eins áreiðanlegar.
Bretar hafa veitt á timabilinu
fram að október 44 þúsund tonn.
Eru þessar tölur byggðar á
skeytum og getur þvi skakkaö
nokkru. Afli þeirra á sama tima
i fyrra var 71 þúsund tonn.
Aðrar þjóðir, það er vestur-
þjóöverjar, færeyingar, belgir
og norðmenn hafa veitt um sjö
þúsund tonn. I fyrra var afli
þessara þjóða 14 þúsund tonn.
— segir fiskimólastjóri
Tölurnar um afla þjóðanna i
fyrra eru ekki alveg eins
ábyggilegar þar sem vestur-
þjóðverjar veiddu sem kunnugt
er i óleyfi hluta ársins.
„Ef við göngum út frá þvi að
afliokkar frá þvi i október verði
sá sami og hann var siðustu
mánuðina i fyrra, þá má ætla aö
ársþorskaflinn verði 275 þúsund
tonn”, sagði Már Elisson.
Hann benti jafnframt á að
nokkuð heföi bæst við fiski-
skipaflotann. A móti kæmi hins
vegar að breyttar reglur um
möskvastærð hefðu tekiö gildi
siðan þá og ennfremur heföi
svæðum verið lokað. — „Þetta
er allt komið undir veðri og
fiskigöngum”, sagði Már.
„Ég á bágt með að trúa þvi að
afli breta verði meiri en 6 þús-
und tonn þá tvo mánuði sem
eftir er þangað til samkomu-
lagið við þá rennur út 1. des-
ember, og heildarþorskafli
þeirra þvi um 50 þúsund tonn.”
Már sagði að færeyingar
mættu samkvæmt samkomu-
lagi veiða 8 þúsund tonn frá þvi i
mars siðastliðnum til mars
næstkomandi.
„Þjóðverjar mega veiða 5
þúsund tonn fram til 28.
nóvember, en ég efast um að
þeir nái þvi”, sagði hann.
Þá sagði Már að belgiumenn
hefðu veitt 400 til 500 tonn og
norðmenn lOOtonn. Kvaðsthann
búast við þvi að afli útlendinga
annarra en breta á islandsmið-
um yrði um 5 þúsund tonn það
sem eftir væri ársins. __EKG.
/