Vísir - 04.02.1977, Page 8
Úmsjón: Sigurveig Jónsdóttir
LAUGARDAGSMYND BORGARBÍÓS:
Eiginkona óskast
Laugardagsmynd Borgarbiós
á Akureyri er aö þessu sinni hin
viöfræga mynd Zandy’s Bride,
sem á islensku hefur hiotiö heit-
iö Eiginkona óskast. Meö aöal-
hlutverkin fara engir aukvisar,
þvi þaö eru þau Liv Ullman og
Gene Hackman, og leikstjóri er
Jan Troell.
Myndin gerist á ofanveröri
öldinni sem leið, I Big Sur-fjall-
lendinu i norður Kaliforniu. Er i
myndinni á snilldarlegan hátt
sagt frá ýmsum erfiðleikum
frumbyggjanna i Bandarikjun-
um, en annars fjallar myndin
fyrst og fremst um samskipti
þeirra Allen-hjónanna, Zandy’s
og Hönnu.
Fundum þeirra bar saman á
þann hátt, að Zandy sér auglýs-
ingu frá konu I blaði einu i
Monterey, sem gjarna vill gift-
ast. Hann lætur þaö ekki á sig fá
þó hún búi viös fjarri heldur
kaupir undir hana far til
Monterey, og fer með hana
heim til Big Sur eftir nokkuð
söguleg kynni.
Zandy er bóndi i Big Sur, og
fljótlega kemst hann að þvi að
hin nýja eiginkona hans hefur
ekki sömu skoðun á öllum hlut-
um og hann, og óhjákvæmilega
leiðir það til árekstra. Aðaltil-
gangurinn meö þvi aö giftast
var fyrir Zandy aö eignast son,
en Hanna þráir allt eins félags-
skap manns sins.
I myndinni eigast sem fyrr
segir viö tveir mjög ólíkir
persónuleikar, hin ruddalegi og
oft óheflaöi bandarikjamaður
frumbýlisáranna, og svo aftur
kona er viröist hafa fengið
dæmigert evrópskt uppeldi.
Landslag i Big Sur er mjög stór-
fenglegt, og með snilldarleik
þeirra Ullman og Hackman er
hér mynd sem tvimælalaust er
hægt að mæla með.
—AH, Akureyri.
Runebergsvaka í
Norrœna húsinu
Einn þekktasti bókmennta-
fræöingur finna, Kai Latinen,
mun flytja erindi á Runeberg-
vöku I Norræna húsinu á laug-
ardagskvöldiö 5. febrúar kl.
20.30.
Það er Suomifélagið, sem þá
efnir til hinnar árlegu Rune-
bergvöku sinnar. A þessu ári
eru liðin 100 ár frá þvi Rune-
berg lést, og hefur félagiö, I
samvinnu við Norræna húsið,
boðið Latinen til landsins af
þvi tilefni.
A vökunni mun formaður fé-
lagsins, Barbro Þórðarson,
flytja ávarp. Sigurður Björns-
son, óperusöngvari, syngur
við undirleik Carls Billys,
Hjálmar Ólafsson les kvæði
eftir Runeberg I þýðingu
Grims Thomsens og Magnús-
ar Asgeirssonar, og Merjatta
Hakala sýnir litskuggamyndir
frá Finnlandi og skýrir þær.
Frœg sovésk
kvikmynd
Félagið MiR heldur
kvikmyndasýningu í
MIR-salnum Laugavegi
178/ á laugardaginn kl.
14.
Sýnd verður ein af
frægustu myndum
sovéskrar kvikmynda-
gerðar á fjórða áratug
aldarinnar, kvikmyndin
//Tsjapaéf"/ sem var
gerð 1934. Leikstjórn
myndarinnar önnuðust
Vasilíéf bræður og er
Boris Babotsjkin í titil-
hlutverkinu.
Höggmyndir hafo framhlið
og bakhlið'
Helgi Gíslason opnar höggmyndasýningu
í kjallara Norrœna hússins
,,Ég lit svo á aö höggmyndir
hafi framhiiö og bakhliö eins og
önnur myndverk, og þurfi þvi
oft aö hafa hvitan bakgrunn,”
sagöi Helgi Gisiason i samtali
viö VIsi, en hann opnar á
laugardaginn sýningu á högg-
myndum og grafik i kjaliara
Norræna hússins.
Flestar höggmyndanna, sem
eru um 30 talsins eru módel-
stúdiur sem Helgi gerði I Valand
listaháskólanum i Gautaborg
þar sem hann hefur stundað
nám sl. 5 ár. Auk höggmynd-
anna sýnir hann 14 grafikmynd-
ir, unnar með silkiprenti og tré-
ristum. Sagðist hann vinna viö
grafik mest til aö hvila sig frá
höggmyndunum sem flestar eru
mjög seinunnar.
Þetta er fyrsta einkasýning
Helga, en áður hefur hann sýnt
með öðrum, bæði hér heima og i
Sviþjóð. Hann sagðist aðallega
hafa málað áöur en hann fór til
náms i Sviþjóö. Þar hefði mið-
depill skólans verið módelsalur-
inn og hefðu allir unniö þar
hvort sem þeir lögðu stund á
teiknun eða höggmyndir.
„Það er mjög vanþakklátt
starf að vera myndhöggvari”,
sagði hann. „Það er erfitt vegna
þyngdar og fyrirferðar og svo er
óhernjumikil vinna við hvert
verk. Þannig er það tveggja til
þriggja mánaða vinna að vinna
módelið i stærri myndunum og
siðan tekur allt að einum mán-
uði til viðbótar að vinna við af-
steypuna”.
Umhverfiö tekið með
Höggmyndir Helga eru allar
unnar i leir, en afsteypurnar eru
úr ýmsum efnum. Þannig hefur
hann mikið unnið meö stein-
steypu með ýmsum litarefnum
og eins eru nokkrar myndanna
gerðar úr iönaðarvaxi. Margar
nýjustu myndirnar sýna ekki
aðeins styttuna, heldur einnig
umhverfi það sem fyrirsætan
var i.
„Ég býst við þvi að áfram-
haldið hjá mér verði frekar i þá
átt að setja manneskjurnar inn i
sitt umhverfi og vinna siðan út
frá afstöðu umhverfisins”,
sagði hann.
Sýning Helga verður opin til
16. febrúar kl. 14-22.
Glötuðu snllllngar-
nir komnir aftur
Leikfélag Kópavogs tekur aft-
ur upp á sunnudaginn sýningar
á leikritinu „Glataöir sniliing-
ar”, en þær hafa legiö niöri siö-
an i desember.
Leikgerð verksins var samin
af Caspar Koch eftir marg-
frægri sögu færeyska skáldsins
Williams Heinesen, en hún hef-
ur m.a. komiö út á Islensku.
Mörgum þeim sem hafa lesið
söguna og eru henni vel kunnug-
ir þykir það ótrúlegt aö hægt sé
að gera úr henni sviðsverk án
þess að hugblær hennar glatist
aö nokkru. En svo virðist sem
leikdómarar og leikhúsgestir
séu sammála um að leikhópi
Leikfélags Kópavogs hafi tekist
þaö.
Meðal þeirra sem einkum
hafa lagt Leikfélaginu lið við
þetta verkefni má nefna Stefán
Baldursson leikstjóra, Þorgeir
Þorgeirssin þýöanda, Sigurjón
Jóhannsson leikmyndahönnuð
og Gunnar Reyni Sveinsson tón-
skáld.
Þrjátlu leikendur taka þátt I
sýningunni. Vegna þess hve erf-
itt er að halda svo stórum hópi
saman verða aðeins fjórar sýn-
ingar á Glötuðum snillingum og
veða þær á sunnudögum I Fé-
lagsheimili Kópavogs.
Ellilífeyrisþegar án tillits til
búsetu fá helmings afslátt af
miðaverði eins og aö öllum
sýningum Leikfélags Kópavogs.
Einnig geta hópar fengiö afslátt
og er hægt aö fá um þaö nánari
upplýsingar I miöasölunni.
Vilmar Pétursson og Jónas Magnússon I hlutverkum Orfeusar og
Bomans I Glötuðum sniliingum.
SÝNINGAR
Kjarvalsstaöir: Sýning á nor-
rænni veflist stendur nú yfir I
báðum sölum og göngum húss-
ins. Sýningin er opin til 20.
febrúar kl. 16-22, nema um helg-
ar kl. 14-22.
Norræna húsiö: Helgi Gíslason
opnar á laugardaginn sýningu á
höggmyndum og graflkmynd-
um. Sýningin verður opin til 16.
febrúar kl. 14-22.
Gallerl Sólon Islandus: Egill
Edvarðsson sýnir 20 litaðar
teikningar. Sýningin er opin kl.
2-6virka daga, nema mánudaga
og kl. 2-10 á sunnudögum.
Loftiö: Sýningu á 60 myndum
eftir vangefna er opin á verslun-
artima, nema á laugardögum,
en þá er hún opin kl. 14-18.
Mokka: Stefán Jónsson frá
Möðrudal sýnir 22 olíumálverk.
Galierl Háhóli, Akureyri: Sýn-
ing á vatnslita- og grafíkmynd-
um eftir Jónas Guðmundsson og
Rudolf Weissauer.
LEIKHÚS
Þjóöleikhúsiö:sýnir Sólarferð á
föstudag kl. 20og Gullna hliðið á
laugardag kl. 20. Dýrin I Hálsa-
skógi veröa sýnd á laugardag
kl. 15 og á sunnudag verða tvær
sýningar kl. 14 og 17. Kl. 20:30 á
sunnudagskvöldiö verður sýn-
ing á Nótt ástmeyjanna.
Leikfélag Reykjavlkur: Ein af
síöustu sýningum á Stórlöxum
verður á föstudagskvöld. A
laugardag kl. 20:30 verður slð-
asta sýning á Æskuvinum og á
sunnudag verður Saumastofan
á fjölunum I Iðnó. 1 Austur-
bæjárblói veröur miðnætirsýn-
ing á Kjarnorku og kvenhylli á
laugardagskvöld.
Leikfélag Kópavogs: sýnir
Glataða snillinga á sunnudags-
kvöld kl. 20:30.
Leikfélag Akureyrar: Sýningar
verða á öskubusku á laugardag
kl. 15 og á sunnudag kl. 14 og 17.
Herranótt MR, Félagsheimilinu
Seltjarnarnesi: „Sú gamla
kemur i heimsókn” verður sýnd
á föstudags- og sunnudagskvöld
og eru báðar sýningarnar ætlað-
ar skólafólki.