Vísir - 11.02.1977, Síða 9
9
Alþýöuleikhúsiö sér um hluta dagskrár menningarvökunnar.
Nokkrir aöstandendur þess eru I Reykjavlk um þessar mundir,
þar á meöal þau Arnar Jónsson og Þórhildur Þorleifsdóttir.
Ljósm. JA
Fjölbreytt menning-
arvaka fyrir
alþýðu manna
Meistari Jakob
vinnur í
happdrœttinu
A sunnudaginn 13. febrúar,
frumsýnir Leikbrúöuland 3
nýja leikbrúöuþætti. Fyrsti
þátturinn fjallar um stutta ævi
litillar holtasóleyjar. Sföan
koma gamlir kunningjar ,,10
litlir negrastrákar” og loks er
nýr þáttur um Meistara
Jakob, sem I þetta sinn vinnur
i happdrætti og lendir af þeim
sökum i ýmsum þrengingum.
Aöstandendur Leikbrúöu-
lands eru: Bryndls Gunnars-
dóttir, Erna Guömarsdóttir,
Hallveig Thorlacius og Helga
Steffensen. Hólmfriöur Páls-
dóttir annaöist leikstjórn á
þættinum um Meistara Jakob,
en hún hefur frá upphafi mót-
aö Meistara Jakob og hans
skylduliö. Arnhildur Jónsdótt-
ir leikstýröi hinum þáttunum.
Leiktjöld eru eftir Þorbjörgu
Höskuldsdóttur.
Sýningar veröa á hverjum
sunnudegi kl. 3 aö Frikirkju-
vegi 11. Miöasala hefst kl. 1 á
sunnudögum og verþúr svaraö
i sima 15937 frá 1-3 en aöeins
sýningardagana.
Samfylking um alþýöumenn-
ingu gengst fyrir menningar-
vöku I Lindarbæ sunnudags-
kvöldiö 13. febrúar kl. 20:30.
A vökunnL veröur blandaö
saman gamni og alvöru I hæfi-
legum hlutföllum. Alþýöuleik-
húsiö og Samtök áhugafólks um
leiklist, SAL, munu flytja stutta
leikþætti, ungskáld lesa úr
verkum sinum, kór Alþýöu-
menningar syngur nokkur lög,
rimur veröa kveönar og Jón ó.
Jóns frumflytur frumsamiö
leikhúsverk. Mun þá væntan-
lega skýrast hver dylst bak við
þaö nafn.
Margt fleira verður á boöstól-
um alþýöu manna til dægra-
styttingar og umhugsunar.
Þeim til glöggvunar sem ekki
hafa áöur oröið varir viö tilvist
samtaka þeirra er aö vökunni
standa, skal hér frá þvi greint,
aö samfylking um alþýðumenn-
ingu, undir nafninu Alþýöu-
menning, var stofnuö á siöast-
liönu hausti af hópi áhugafólks.
Markmiö samfylkingarinnar
er m.a. aö varöveita, endur-
vekja og efla alþýöumenningu á
Islandi og kynna hana hvar sem
þess gefst kostur, aö sýna fram
á aö raunveruleg alþýöumenn-
ing er sprottin úr daglegu lifi al-
þýöu, aö hvetja alþýðufólk til
aukinnar tjáningar i söng,
dansi, hljóöfæraleik, kvæöum,
leikþáttum o.fl. og efla sam-
stööu þess og félagslif.
Sýna „Drekann" í
MH á sunnudaginn
Nemendur f mennta-
skólanum við Hamrahlíð
frumsýna á sunnudaginn
leikritið „Drekinn" eftir
rússann Schwarts í þýð-
ingu örnólfs Árnasonar.
Leikstjóri er Þórunn
Sigurðardóttir.
Um 50 nemendur hafa unniö
viö undirbúning sýninganna frá
þvi um áramót. Leikendur eru
um 30, en nemendur I mynd-
listarfélagi skólans sjá um leik-
myndir og búninga.
Leikritið var flutt i ríkisút-
varpinu áriö 1965, og er I reynd
leikrit fyrir alla fjölskylduna.
Ahorfendur geta tekið leikritiö
jafnt sem ævintýri og þjóöfé-
lagsádeilu.
Aöalleikarar eru Sigriöur
Þorgeirsdóttir, Björn Guö-
brandur Jónsson, Karl Agúst
Úlfsson, Jakob S. Jónsson og
Indriöi Einarsson.
Frumsýningin veröur á
sunnudaginn kl. 20.30 i hátiöar-
sal skólans, en sýningar veröa
einnig á þriöjudag og föstudag i
næstu viku á sama tima.
Nemendur i Hamrahliðar-
skólanum hafa undanfarin ár
sýnt leikrit á hverjum vetri viö
góöa aðsókn.
— ESJ.
Sýningar og fleira
Sýningar:
KJARVALSSTADIR: Sýning á
norrænni veflist stendur nú yfir
i báöum sölum og göngum húss-
ins. Sýningin er opin til 20.
febrúar kl. 16-22, nema um helg-
ar kl. 14-22.
NORRÆNA HÚSIÐ: Helgi
Gislason sýnir höggmyndir og
grafikmyndir. Sýningin verður
opin til 16. febrúar kl. 14-22.
GALLERt SÓLON ISLANDUS:
Egill Eövarösson sýnir 20 litaö-
ar teikningar. Sýningin er opin
kl. 2-6 virka daga nema mánu-
daga og kl. 2-10 á sunnudögum.
MOKKA: Stefán Jónsson frá
Möörudal sýnir 22 oliumálverk.
LOFTIÐ: Sýning á 60 mynd-
verkum vangefinna veröur opin
á verslunartima virka daga, kl.
14-18 laugardaga til 19. febrúar.
Á fjölunum:
ÞJ ÓÐLEIKHÚSIÐ: Sýnir
Gullna hliðiö á föstudagskvöld
kl. 20:00, Sólarferð á laugar-
dagskvöld kl. 20:00 og Nótt ást-
meyjanna á sunnudagskvöld kl.
20:30. Dýrin I Hálsaskógi veröa
á fjölunum á laugardag kl. 15 og
á sunnudag kl. 14 og 17.
LEIKFfiLAG REVKJAVtK-
UR:Saumastofan veröur sýnd á
föstudagskvöld, Skjaldhamrar
á laugardagskvöld og Makbeö á
sunnudagskvöld kl. 20:30. MiÖ-
nætursýning veröur á Kjarn-
orku og kvenhylli á laugardags-
kvöld og hefst hún kl. 23:30.
LEIKFÉLAG KÓPAVOGS:
Sýnir Glataöa snillinga á sunnu-
dagskvöld kl. 20:30.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR:
Sýnir Oskubusku á laugardag
kl. 15 og sunnudag kl. 14. Miöa-
sala er kl. 5-7 daginn fyrir sýn-
ingardag.
LEIKFÉLAG SELFOSS: Sýnir
leikritiö ,,Sá sem stelur fæti...” I
Arnesi föstudagskvöld ki. 21.
HERRANÓTT: Sýnir „Sú
gamla kemur i heimsókn” i
Félagsheimili Seltjarnarness á
sunnudagskvöld kl. 20:30.
FLENSBORGARNEMEND-
UR: Sýna „ó, þetta er indælt
striö” i skólanum föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld
kl. 20:30.
NEMENDUR MH: Sýna leikrit-
iö Drekann á sunnudagskvöld
kl. 20:30.
LEIKLISTARKLÚBBUR
, FJÖLBRAUTARSKÓLA
BREIÐHOLTS: Sýnir „A út-
leiö”.
Smurt brauð
m
#
#
&
Heilar sneiðar Kaffisnittur
Hálfar sneiðar Cockteilpinnar
Brauðtertur
Kynnið ykkur okkar
sanngjarna verð
&
#
*£
#
Suðurveri Stigahlið 45 simi 38890.
— 52449
Artistry in sound ONKYO
A3000
Vorum að taka upp stóra sendingu af
Onkyo hljómtœkjum, meðal annars
þennan glœsilega 100 watta magnara
ó aðeins Kr. 47.370.-
mjc
Sími (96)23626
M
Glerárgötu 32 Akureyri
Ford Cortína
Ford Cortina órgerð 1977 er til sýnis dag-
lega í sýningarsal okkar að Skeifunni 17
Komið og kynnist nýju Cortinunni
Ford í fararbroddi
SVEINN EGILSSON HF
FORD HUSINU SKEIFUNNI 1 7 SIMI 85100