Vísir - 18.08.1977, Blaðsíða 24
VÍSIR
'ffftnft
Lykillinn aó góðum
bílakaupum
- P. STEFÁNSSON HF. J
, SIÐUMULA 33 SiMI 83W4_83105_J^|
ÖLL ÖKUTÆKI
SMÁOG
STÓR
P. STEFÁNSSON HF.
HVERFISGÖTU103 SÍMI 26911
VERÐMÆTI LIFRARAFLA KROSSVÍKUR 2,4 MILLJ.
75 þúsund krónur í hlut hvers skipverja fyrir lifrina í stað þess að henda henni í sjóinn
Niðurlagningarverk-
smiðja Haralds Böðvars-
sonar á Akranesi hætti
nýlega að taka á móti lif-
ur úr togurum til vinnslu.
Var það gert vegna sölu-
tregðu á erlendum mörk-
uðum og vegna surnar-
leyfa i verksmiðjunni að
sögn útgerðaraðila togar-
ans Krossvíkur sem
hefur lagt upp lifur hjá
verksmiðjunni.
Það hafa verið tveir togarar
sem lagt hafa upp lifur hjá
Niðurlagningaverksmiðjunni,
Krossvik og Haraldur Böðvars-
son. Er hér einkum um að ræða
þorsklifur, en einnig talsvert af
ufsalifur.
Á timabilinu frá febrúarbyrj-
un til fyrsta ágúst á þessu ári
hefur Krossvik lagt upp 53 tonn
af lifur. Er verðmæti aflans um
2.4 milljónir króna en áður var
lifrinni jafnan hent fyrir borð og
verður það nú aftur gert þar til
aðstæður hafa breyst.
Samkvæmt upplýsingum
Sigurðar J. Halldórssonar, sem
gerir skuttogarann Krossvik út,
hafði hver skipverji i sinn hluf
um 75 þúsund krónur fyrir
lifrina eingöngu á fyrrgreindu
timabili. Verðmætunum fyrir
lifrina er skipt jafnt milli allra
áhafnarmeðiima, og gætu þeir
sem best farið i fri til Spánar
fyrir þessa peninga, en fimmtán
manns eru á togaranum.
Að sögn Siguröar eru áhafn-
armeðlimir mjög áhugasamir
um þessa nýtingu hráefnisins,
og það tefði þá alls ekki viö önn-
ur störf um borð. öll lifrin er
isuö og geymd i plastpokum.
Um fimmtiu krónur hafa
fengist fyrir lifrarkilóiö að
undanförnu, og væru til dæmis
sextiu og fimm togarar með
svipaðan afla, þá væri það
magn sem þeir veiddu það sama
og ársafli eins togara. Skiptir þá
ekki máli hvort metið er verö-
mæti aflans eða magn. — AH
Lousn?
„Hvaö á að gera við úrganginn?" er tiskuspurning áttunda áratugsins. Og ennþá
hefur henni ekki verið svarað að fullu. Sumir vilja grafa hann í jörðu. Aðrir vilja
senda hann út í geiminn. Og enn aðrir vilja bara gleyma honum. Á myndinni hér
fyrir ofan sést hnotskurnslausn á þessu heimsvandamáli: hvað á að gera við
úrganginn? Nú, auðvitað leita að skiiti sem á stendur „inn".
—HHH/Vísismynd: EGE.
Er vöruverð
reiknað út
á röngum
forsendum?
Verð innfluttrar vöru
miðast meðal annars við
þau gjöld sem innf lytjandi
þarf að greiða til að koma
vörunni til landsins. Þegar
allur kosnaður hefur verið
lagður við innkaupsverð
vörunnar er siðan reiknuð
út álagning og söluskattur.
Það verð sem þá fæst út er
það verð sem neytandinn
þarf endanlega að greiða
fyrir vöruna.
Alþýðublaðið skýrir frá þvi i
morgun, að sum flutningafyrir-
tæki, tií dæmis Eimskip, veiti
stórum viðskiptavinum sinum oft
5% afslátt á þessum gjöldum, og
komi útreikningur sliks afsláttar
til framkvæmda i árslok. Þvi séu
neytendur að greiða fyrir vöruna
verð sem ekki sé rétt þegar öll
spil hafi endanlega verið lögð á
borðið. Verðútreikningur fari
jafnan fram miðað við að fullt
gjald sé greitt fyrir flutningana,
og 5% afslátturinn sé ekki tekinn
inn i dæmiö.
Að sögn Georgs Ólafssonar,
verðlagsstjóra, er mál þetta nú i
athugun hjá Verðlagsnefnd, með
sérstöku tilliti til Eimskips.
Veröur þaö afgreitt frá nefndinni
innan skamms. —AH
„Kröfur okkar 4% lœgri en
laun verkfrœðinga á stofum
— segir Gunnar H. Gunnarsson í samninganefnd verkfrœðinga
„Mér er ekki kunnugt
um að Reykjavíkurborg
hafi nokkurntíma áður
beitt verkbanni, og því er
verkbannið sem borgin
hefur sett á þá meðlimi
Stéttarfélags verkfræð-
inga sem vinna hjá henni
eða stofnunum hennar að
minum dómi nokkuð
sögulegur atburður," sagði
Gunnar H. Gunnarsson er
Vísir ræddi við hann í
morgun, en hann er í
samninganefnd stéttar-
félagsins.
„Þegar við fengum þetta verk-
bann á okkur vorum við búnir að
slaka svo á kröfum okkar, að þær
eru nú 4% lægri en laun starfs-
bræðra okkar á verkfræöistofum.
í lok þriðja samningsfundar lýsti
Albert Guðmundsson, formaður
Launamálanefndar, þvi yfir, að
ekkert þýddi að halda viðræðum
áfram vegna þess að borgin
mundi ekki bjóða meiri launa-
hækkun en 7.5% að óbreyttum að-
stæöum. Þessvegna boðuðum við
punktverkfall hjá fjórum verk-
fræöingum, og slik verkföll eru
ekkert ný undir sólinni. Við höfð-
um í og með i huga þegar við
boðuöum það, aö verkfallið kæmi
sem minnst niður á þjónustu við
almenning.”
„ út i hött aö miða viö laun í
maímánuði.
Kjarasamningur milli borgar-
innar og stéttarfélagsins rann út
10. júli siðastliöinn. Gunnar sagöi,
að þaö væri út i hött að miða við
mailaun verkfræðinga, eins og
borgaryfirvöld hefðu gert i til-
kynningum til fjölmiöla, og væri
það einungis gert til þess að fá
sem hæsta prósentutölu á kröfur
verkfræðinga. „Einnig vil ég
árétta það, að ef farið yrði að
kröfum okkar myndu meðallaun
hækka um 20.7%, en ekki 23.3%
eins og komið hefur fram.” Sagði
hann. „Siðarnefnda talan gæti þó
ef til vill átt við ef miöað er við
vegin meöallaun, en það er allt
annaö mál”.
Verkfræðingar á stofum hafa
nýlega undirritaö kjarasamning,
og gildir hann til 1. febrúar á
næsta ári. Að sögn Gunnars vilja
verkfræöingar hjá borginni ekki
undirrita samning sem gildi
miklu lengur en það, og siöustu
kröfur þeirra gera ráö fyrir
samningstlma til 15. mars næst-
komandi. „Við förum lika fram á
2.5% hækkun 1. desember næst-
komandi, en verkfræðingar á
stofum fá þá hækkun samkvæmt
nýgeröum kjarasamningi
þeirra.”
—AHO
KELDUHVERFI:
Góðviðriskaflinn vel
nýttur til heyskapar
Eignatjónið í jarðskjálftunum hefur verið bœtt
Heyskapur hefur geng-
iö vel að undanförnu i
Kelduhverfi í Norður-
Þingeyjarsýslu. Eftir að
veöur haföi verið frekar
óhagstætt lengi framan
af sumri, hef ur að undan-
förnu verið mjög góð tíð
og bændur nýtt þann tíma
vel.
Ferðamannastraumur er nú
farinn aö minnka um norö-aust-
urhluta landsins, en hann var
mjög mikill framan af sumri.
Eru staðir eins og Ásbyrgi og
Jökulsárgljúfur ávallt eftir-
sóknarverðir i augum ferða-
manna, og þangað koma flestir
þeir er fara um þetta lands-
svæði.
Langt er nú siöan jaröskjálfta
hefur orðið vart í Kelduhverfi,
og eru ummerki þeirra óðum að
hverfa. Vatnið sem myndaöist
við landssig nálægt bæjunum
Framnesi, Keldunesbæjum og
Lindarbrekku er þó enn á sinum
stað, og virðist ekki vera neitt
fararsmið á þvi.
Þaö eignatjón sem varð i
jarðskjálftunum á sinum tima
hefur nú verið bætt, og munu
flestir bændur nokkuð ánægðir
með sinn hlut. Skipuð var dóm-
nefnd á sinum tima til að meta
það eignatjón sem taliö var að
orðið hefði, og gátu bændur kært
úrskurö matsnefndarinnar ef
þeir voru ekki ánægðir meö
niðurstöðurnar. Var i þeim til -
vikum farin samningaleiðin, og
sem fyrr segir hefur nú verið
lokið við að greiða þær bætur
sem um var samið.
— AH/VMJ, Axsrfirði