Vísir - 05.12.1977, Blaðsíða 9

Vísir - 05.12.1977, Blaðsíða 9
VÍSIR Mánudagur 5. desember 1977. lauslega til að mynstrin passi við miðju eða áætla á annan hátt hvernig þau koma i kökuna. Þeg- ar skorið er með járni er alltaf skorið einfalt og hægt er að sjá jafnharðan hvernig skurðirnir liggja. Þá má skera með hnif ýmiss konar skurði sem mynda sólir, glugga eða annað skraut, þegar búið er að bretta upp á réttan hátt. Best er að lýsa útskurði með myndum. Algengast er að skera ýmiss konar stjörnur, einhvers konar reitamynstur, jólatré, burstabæ o.fl. Einnig eru oft skor- in nöfn eða fangamörk heimilis- fólksins. Þá eru stundum skorin stök smálauf á ýmsum mynstrum um kökuna og brett upp á hvert þeirra. Þetta er kallað „músa- slóð” eða „músastigur”'. Einnig er hægt að skera langar ræmur, fastar i annan endann, snúið upp á þær og festar aftur. Kallast það „snúður” og „kleina” þegar skornar eru breiðar stuttar ræm- ur, fastar i annan endann, skorin rifa i miðju eftir endilöngu og snúið við eins og kleinu. Allt þykir þetta þó fremur óvandaður flýtis- skurður. Þegar langt er komið að skera, er farið að hita feitina. Aður fyrr var ætið steikt i tólg en einnig má steikja i jurtafeiti, eða blöndu af hvoru tveggja. Potturinn þarf að vera viður svo að kökurnar geti þanist nokk- uð út. Feitin er höfð vel heit. Venjuleg steikarfeiti er um 170- 180C heit og ber þvi að gæta fyllstu varúðar. Kökurnar eru settar niður i heita feitina, þannig að laufin snúi niður, svo að þau flettist sið- ur við, siðan en kökunni snúið við með prjóni eða fingerðum gaffli og steikt augnablik á hinni hlið- inni. Færið siðan kökuna upp með prjóninum, leggið hana á slétt bréf, sem dregur i sig dálitið af feitinni og sléttið litillega með potthlemmi eða gaffli, meðan hún er heit, ef með þarf. Agætt er að kökurnar liggi kyrrar, meðan þær eru að kólna. Þá aflagast þær siður. Steikið þannig allar kökurnar og staflið þeim i hlaða, þegar þær eru orðnar kaldar. Best er að geyma laufabrauðið upp á rönd i hreinum og þurrum kassa á þurrum stað. 9 (^ndersen Lauth hf. Vesturgötu 17 Laugavegi 39 BJARG VÆTTUR HENNAR Flower varð að viðurkenna, að það var eitthvað dularfullt við Jónatan, enda þótt þau hefðu dregrét svo sterklega hvort að öðru frá upphafi. Flower elskaði hann og var ákveðin f að treysta honum. hvað svo sem hann hafði áður verið eða gert. Hún neitaði að hlusta á hin hörðu varnaðarorð Klöru frænku og var þess albúin að leggja sig f þessa miklu „hættu“. En hún var næstum bú- in að týna Iffinu áður en gátan leystist og hún gat sýnt fram á, að Jónatan var trausts hennar og ást- ar verður. — Dularfull og æsispennandi ástarsaga, ein sú bezta, sem við höfum gefið út eftir Theresu Charles. Gártland í hafróti dstríöna Þau unnust hugástum, það var augljóst! En hversvegna reisti þá Sir Robert þessa ósýnilegu en óyfirstíganlegu hindrun á milli þeirra? Hvaða skuggalegu og ógn- þrungnu leyndamál voru það, sem fþyngdu svo mjög hinni rúmliggj- andi en andlega sterku lafði Clementfnu og einkasyni hennar? Og yfir hvaða leyndardómsfullu vitneskju bjó barnfóstran gamla frá bernskudögum master Bobby? — Það hvfldu sannarlega dimmir skuggar yfir herragarðin- um glæsta og erfið og óhugnanleg mál urðu að dragast fram í dags- Ijósið áður en hamingjudraumar elskendanna gátu orðið að veru- leika. Rauðu ástarsögumar SIGGE STARK KONA AN FORTIÐAR Hrffandi fög- ur sveitalffs- saga, þar sem spunninn er þráður ástríðu- þrunginna, eldheitra ásta og þjak-. andi afbrýði, en tryggð og trúfesti verða til bjargar. Hjá- trú, fornar siðvenjur og töfrar hinna dimmu skóga verða örlagavaldur, og engum gleymist mikilfenglegar veizlur stórbændanna, snarkandi eldur bjálkahúsanna eða bjartsýni og dugur ungu bændanna, sem leita á vit óbyggðanna og brjóta nýtt land. Að baki öllu ólgar ástríðu- full ástin, ljúfsár og heit. — Þessi saga heillar, skapar óvenjuleg og hlý hug- hrif, hún er saga sigurs hins fagra og góða. Maiyit Sf.idcTtiolm LAUN DYGGÐARINNAR Hugo Berg stóð undr- andi og áhyggjufull- ur og horfði á ungu stúlk- una, sem öld- ur hafsins höfðu skolað á land til hans. Hann var staddur á eyðiey og hans yrði ekki vitjað fyrr en eftir tvo mánuði, — og hann varhértilað gleyma, tilað græða hjarta sár. En hver var hún þessi unga, fallega stúlka, sem mundi ekki einu sinni nafn sitt, hvaða leyndarmál lá hér að baki? Hafði stúlkan í raun og veru misst minnið eða hafði hún eitt- hvað að fela varðandi fortfð sfna? — Þetta er saga sjúfsárrar ástar, hveljandi afbrýði og ótta, en einnig vonar, sem ástin ein eiur og enginn túlkar betur en Sigge Stark. ELSE-MARIE IUOHR HIIÐARÖARÐIR . Varla var hún fyrr flutt að Heiðargarði en undarleg- ir atburðir fóru að ger- ast. Gat hugs- azt, að hún ætti hér ein- hverja óvini, sem vildu valda henni sorg eða ógæfu, jafn- vel sæktust eftir iffi hennar? Var eitthvað dularfullt við dauðdaga ömmu henn- ar, sem arfleitt hafði hana að Heiðar- i garði? Og hvað um undarlega fram- komu tatarakonunnar og hins kattlið- uga, slóttuga sonar hennar? Og hver var konan, sem gekk léttum draugaleg- I um skrefum f hvftum flögrandi flfkum um garðinn? — 1 turninum byrjuðu klukkurnar að drynja og gáfu til kynna 1 að komið væri miðnætti... ____________ - ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.