Vísir - 05.12.1977, Side 14
Mánudagur 5. desember 1977. vism
Már Kristjónsson
Glöpin
grtmm
GLÖPIN GRIMM ------------------------- GLÖPIN GRIMM
samtíðarsaga — e.t.v. sönn — úr íslensku sjávarþorpi
eftir Má Kristjónsson
Sagan gerist í hinu dæmigerða fslenska sjávarþorpi, þar sem sögupersónur hins
daglega lífs stfga fram af spjöldum bókarinnar og skerpa þá mynd sem fyrir er f huga
okkar úr slfku samfélagi. Þegar á fyrstu síðum bókarinnar nær frásagnarsnilli höf-
undar sterkum tökum á athygli lesandans, og slakna þau aldrei bókina á enda. Og
áreiðanlega munu sögupersónurnar og hinir fjölmörgu atburðir, ýmist meinfyndnir
eða sorglegir, halda áfram að lifa lifi sinu i hugum lesenda, því þetta er bókin sem allir
þeir sem meta frábært tungutak, fyndni og óhamið fjör geta lesið hvað eftir annað.
Lesendur munu seint'gleyma kaupfélagsstjóranum, sem ræður rikjum og ástum undir-
sátanna, frystihússverkstjóranum sem væntir ásta í réttu hlutfalli við skráða eftirvinnu,
smiðnum sem árlega bætir við bami og nýrri útbyggingu við húskofann né heldur dóttur
hans sem eykur lánstraust hans með blóðböndum og allra sfst afgreiðslustúlkunni i
kaupfélaginu, scm lét fallerast með svertingja og hefur auk þess verið öriát á blfðu sina
við karipeninginn f þorpinu.
Geymið auglýsinguna
Öm&Örfygur
SAMTÖLVIÐ JÓNAS
svipmesta mann sinnar samtíðar
eftir Indriða G. Þorsteinsson
Jónas Jónsson var svipmesti maður sinnar samtfðar.
Hann markaði djúp spor í þjóðarsöguna og varð
snemma einskonar goðsögn f þjóðlffinu. Og goð-
sögnin lifir og heldur áfram að vaxa. t þessari bók
skilar Indriði honum sem manninum Jónasi Jónssyni
og lýsir því hverjir voru helstu örlagavaldar f lffi hans.
Hvað gerðist t.d. að tjaldabaki þegar kratar höfnuðu
Jónasi sem ráðherra og hvað gerði hann að svo ein-
stæðum og svipmiklum stjómmálamanni? f bókinni
er fjöldi mynda og áður óbirt gögn.
SEYÐFIRSKIR
HERNÁMSÞÆ.TTIR
Hjálmar \'iihjáim!tö0n
Hernámsárin
SEYÐFIRSKIR
HERNÁMSÞÆTTIR
eftir Hjálmar Vilhjálmsson
Með útgáfu þessarar bókar hefst nýr bókaflokkur
sem ætlað er það hlutverk að safna saman endur-
minningum fóiks frá hemámsárunum. Þótt margt
hafi verið skrifað um hemámsárin þá hefur ótrúlega
lítið verið fært f letur um hin daglegu samskipti, það
andrúmsloft og þær ytri og innri aðstæður sem fólk
stóð allt f einu frammi fyrir, þegar landið hafði verið
hemumið og hér dvöldust jafnvel fleiri útlendingar
en allir íslendingar.
Alltvarþað
indælt stríð
/fAtntinnintytr
Guðlaugs Rósinkranz
. JjjoðltTkhusstjórii
ALLT VAR ÞAÐ
INDÆLT STRÍÐ
sjálfsævisaga Guðlaugs Rósinkranz
með formála eftir Indriða G. Þor-
steinsson
Guðlaugur Rósinkranz var einn umdeildasti maður á
sinni tíð. Hann mætti gifurlegum andbyr þegar hann
settist fyrstur manna f sæti þjóðleikhússtjóra. Flest
nýlunda frá hans hendi var talin bera vott um van-
þekkingu og fmmhlaup, en hann óx við hverja raun
og að leiðarlokum víðurkenna flestir að vart hefði
verið hægt að gera betur.
ÞRAUTGÓÐIR
Á RAUNASTUND
9. bindi Björgunar- og sjóslysasögu fs-
lands eftir Steinar J. Lúðvíksson
Bókin fjallar um atburði áranna 1916—1919 að
báðum árum meðtöldum. Þetta vora umbrotaár.
Vélbátaútgerðin var að taka við af skútuútgerðinni
og togaramir að koma til sögunnar og fyrri heims-
styrjöldin sem olli íslendingum miklum búsifjum. f
bókinni eru m.a. frásugnir af atburðum styrjaldarár-
anna, eins og td. þegar Ceres, Vestu og Flóru var
sökkt. Þá má nefna strand Goðafoss og það er sel-
veiðiskipið Kópur fórst út af Reykjanesi.
SteinarJ Lúövikssan
Þrautgódir
áraimastiuid
í FLAUMI LÍFSINS FLJÓTA
bemsku- og æskuminningar byltinga-
mannsins séra Gunnars Benediktssonar
Með þessari endurminningabók sinni velur Gunnar
sér nýjan vettvang. Hann lýsir mannlífi f umhverfi
sem aðeins örfáir eiga nú minningu um og enginn
hefur íyrr lýst, er nú ekki lengur til og á sér enga
hliðstæðu. f hinum homfirsku æskustöðvum fékk
Gunnar fyrstu æfingu f að kljást við straumþunga
lífsins og bjarga sér yfir ósköddum á sál og Ifkama.
Þetta er bók sem fróðir menn og heilskyggnir telja
að ætti að vera lesin f unglingaskólum.
GÚTTÓSLAGURINN
9. nóvember 1932 — baráttuárið mikla í miðri heimskreppunni
eftir Ólaf R. Einarsson og
Einar Karl Haraldsson
Það er árið 1932. Kreppan leggur dauða hönd sfna á atvinnulff um land allt. f Reykjavfk er
fimmti hver maður atvinnulaus. Það á að lækka kaupið um þriðjung. Verkamenn úr öllum
flokkum sameinast. Það slær í blóðugan bardaga. Yfir 20 lögregluþjónar særast og era óvfgir.
Verkamennirair hafa Reykjavík á valdi sínu. Verkamannauppþot? Byltingartilraun?
Þetta er 9. nóvember 1932. Þetta er Gúttóslagurinn.
TVEGGJA HEIMA TENGSL
. eftir Matthew Manning
Ein ótrúlegasta saga okkar tíma af sál-
rænum atburðum.
Ævar Kvaran þýðir og ritar formála.
MATTHEW MANNING er maður sem á fáa eða
enga sína líka. Hann sameinar í einni og sömu per-
sónu hina öflugustu hæfileika og óvenjulega hreins-
kilni. Það sem fslenskir fréttamenn urðu vitni að
nýlega þegar teskeiðar vora beygðar með hugarafli
er bamaleikur einn miðað við það sem sagt er frá í
þessari bók.