Vísir - 03.06.1978, Page 2

Vísir - 03.06.1978, Page 2
2 Laugardagur 3. júní 1978VISIR FULLAR VERÐLAGSBÆTUR: TOLUR UM FJOIDA LAUN- ÞIGA LIGGJA FYRIR Tölur um fjölda þeirra launþega sem fá fullar verðbætur á laun sin virðast ekki liggja fyrir að sögn Kjararann- sóknarnefndar. Það liggur hins vegar ljóst fyrir að þessir lág- launahópar eru einkum innan Verkamanna- sambandsins, Iðju félags verksmiðjufólks og Verslunarmanna- félagsins. „Sökum annrikis hefur ekki unnist timi til að kanna þetta þar sem við erum fáliðaðir, en ljóst er, að það er fólkið sem vinnur samkvæmt þremur lægstu töxtum verkafólks sem fær fullar bætur” sagði bórir Danieisson hjá Verkamanna- sambandinu. Hnn bætti þvi við að það væri liklega mjög erfitt að reikna út fjölda þessa fólks þar sem yfir- borgarnir væru töluverðar til dæmis i fiskvinnslunni. Iðjufólk ,,Ég reikna með þvi að það séu um 15-20% af félagsmönn- um sem fái fullar bætur, en 7 af 19 töxtum okkar eru á því bili þar sem verðbætur koma að fullu” sagði starfsmaður Iöju er haft var samband viö hann i gær. Hann taldi að mjög erfitt væri að reikna það nákvæmlega út hversu margir af um 3800 félagsmönnum Iðju fengju óskertar verðbætur, þar sem mikið væri um bónusgreiðslur til dæmis i saumaiðnaðinum. Verslunarmenn .^angstærstur hluti af- greiðslufólks i Reykjavik er á þessu bili, en hins vegar fær þetta fólk skertar verðbætur þegar yfirvinna er tekin með.” sagði Magnús L. Sveinsson skrifstofustjóri hjá Verzlunar- mannafélagi Reykjavikur. Magnús sagði að þaö væri unnin eftirvinna i öllum mat- vöru- og nýlenduvöruverslunum þannig að ljóst væri að þetta fólk fengi ekki fullar bætur. Er hann var inntur eftir þvi hversu stór hluti af 8000 félags- mönnum VR væri afgreiöslu- fólk, sagðist hann telja að það næði ekki helmingi tölu félags- manna. —BÁ — ,Formóli morg- undagsins' A morgun, sunnudag, verður opnuð i Lista- safni Islands, sýning á 75 teikningum eftir jafn marga bandariska listamenn. Er sýningin liður i Listahátið og verður opin daglega milli kl. 13.30 og 22.00. Sýning þessi er komin frá lista- safninu Minnesota Museum of Art og er farandsýning. Island er fyrsti viðkomustaðurinn, en sýningin nær yfir 50 ára timabil bandariskrar listasögu. Mikill- ar fjölbreytni gætir i myndun- um, bæöi að efni ogstil, enda við þvi að búast, þar sem lista- mennirnir eru fæddir á árabil- inu 1867-1949. í sýningarskrá ritar Malcolm E. Lein, forstööumaður banda- riska listasafnsins eftirfarandi m.a.: „Þegar ákveða skyldi efnivið til þessarar sýningar, urðu menn samdóma um, að engin listgrein gæti á sama hátt og dráttlistin gefið mynd af banda- riskri list siðustu 50 árin, i sýningu sem hlaut að verða tak- mörkuð að stærð og verka- fjölda. Dráttlistin er einlægt eigin húsbóndi, eins og kamel- ljónið aðlagast hún i skyndi um- hverfi slnu og þörfum liðandi stundar. Engin listgrein er eins nátengd skpöunareðli lista-, mannsins. Hún endurspeglar og markar nýjar stefnur. Hún er sjálfstæð og óháð, hefur þúsund andlit i breytileik sinum, ögrar kreddum.er óbundin af hefðum. Húnopnar sýn til tilfinninga og stefnumiða, hún leiðir- i ljós for- tið og nútið, hún er formáli morgundagsins. — Gsal_ Tónleikar í Hafnarfirði Kór öldutúnsskóla efnir til tónleika i Hafnarfjarðarkirkju á morgun (sunnudaginn 4. júni) kl. 5 s.d. Á efnisskránni eru bæði inniend og erlend lög, þar á meðal nýtt kórverk eftir Jón Nordal tónskáid. Stjórnandi kórsins er Egill Friðleifsson. Menningarstofnun Bandaríkjanna studdi velviðbakiðá Listasafni Islands viðvíkj- andi þessari sýningu og hér á myndinni eru forráðamenn Menningarstofnunar- innar, Irving E. Rantanenog Paul Saxton, ásamt Selmu Jónsdóttur forstöðumanni Listasafnsins og Jóhannesi Jóhannessyni, sem sá um uppsetningu sýningarinnar. Vísismynd: JA Myndlistaklúbbur Sel- tjarnarness sýningu Myndlistarklúbbur- inn á Seltjarnarnesi hefur opnað sýningu i Valhúsaskóla á Sel- tjarnarnesi. heldur Klúbburinn er félag áhuga- fólks um myndlist og er þetta fimmta sýning hans, en hann hefurstarfað i 7 ár og notið leið- sagnar ýmissa listamanna. Sýningin i Valhúsaskóla er opin alla virka daga frá klukkan 17-22 ogum helgar frá 14-22, en henni lýkur sunnudaginn 18. júni'. Leiðrétting Vinningshafinn i áskrif- endagetraun Visis heitir Páll H. Kolbeins en ekki Páll H. Kolbeinsson, eins og misritað- isthafði. Er Páll beðinn afsök- unar á þessari handvömm. —Gsal Vegleg bókagjöf til Kennaraháskólans 1 gær var afhent i Danska sendiráðinu bókagjöf frá danska menntamálaráðuneyt- inu til Æfingadeildar Kennara- háskóla tslands. Bókagjöf þessi er gefin fyrir tilstuðlan sendiráösins, en á undanförnum árum hefur verið góð samvinna á milli Kennara- háskólans og danska sendiráðs- ins. íþvi' sambandi má benda á þá aðstoð sem sendiráðið hefur veitt við námskeið dönskukenn- ara, sem haldin hafa verið i Danmörku. I umræöum sem farið hafa fram um dönskukennslu á grunnskólastigi kom fram sú hugmynd frá danska sendiráð- inu að leita eftir styrk frá danska menntamálaráðuneyt- inu til kaupa á heppilegum bókakosti sem hæfði dönsku- kennslu á grunnskólastiginu. Rætt varum aö æskilegt væri að reyna að samþætta dönskuna öðrum fögum þar sem Danir eiga mikið úrval af léttum og aðgengilegum fræðibókum. Bókagjöfina afhenti Frú Madden, sendiráðsritari, en Jónas Pálsson, skólastjóri, tók við henni fyfir hönd Kennarahá- skólans. Jónas Pálsson, Stella Guömundsdóttir og frú Madden sendiráðsritari, virða fyrir sér hina veglegu bóka- gjöf. Vfsismynd GVA

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.