Vísir - 03.06.1978, Blaðsíða 26

Vísir - 03.06.1978, Blaðsíða 26
26 Laugardagur 3. júnl 1978VJSIR Texti: Hallgrimur H. Helgason — Ég dey. Sá óhamingjusami heitir Hilmar Oddsson. Hann er i hljómsveitinni Melchior. Undir- ritaður hafði mælt sér mót við fáeina meðlimi hljómsveitar- innar i Skrinunni á Skólavörðu- stignum. Klukkan var 9 að kveldi. — Ég hef sko ekkert borðað siðan klukkan 11 i morgun, út- skýrði Hilmar og leit til skiptis á diska sessunauta sinna eins og hann væri að horfa á tennis- keppni. Hann var að biða eftir kótelettunum. — Þetta er ekki leggjandi á mann. — Farðu og rektu á eftir kokknum, sagði Gunnar bassa- leikari Hrafnsson, þegar nefið á Hilmari var fariö að flækjast fyrirhnifapörunum hans. Hilm- ar fór. — Við erum biinir að vera að æfa i allan dag, sögðu þeir Gunnar og Hróðmar Sigur- björnsson. Við eigum að spila á fjórum baráttusamkomum á næstu þremur dögum. Þeir voru næstum biínir að borða, þegar Hilmar kom aftur. Melchior i kosninga- ham Melchior er vissulega skrýtið nafn. Tónlistin sem hljómsveit- in leikur (öll frumsamin, að sjálfsögöu) er lika á vissan hátt sérkennileg. Aö minnsta kosti sérkennandi. Til dæmis getur óbó vart talist algengt hljóðfæri i „popphljómsveit”; það til- heyrir fremur synfoniuhljóm- sveit. Og reyndar minnir margt i lögum Melchior á klassiska tónlist.hvortsem um er að ræða samleik strokhljóðfæra eða gitardúetta, sem kalla miðaldir fram i hugann. En þetta er tón- list kynslóðar, sem er að kveða sér híjóðs i menningariifinu. Meðlimir Melchior er ungt skólafólk, og þrir stunda tón- listamám nú. Þó að hljómsveit- in sé að uppruna gömul, komst fyrst verulegur fjörkippur i hana eftir stúdentspróf i fyrra. Þá var fariö að æfa. Og semja. Og loks nú er komiö að þvi, að kveða upp úrskurð um tilveru- grundvöll þessarar tónlistar. Eftir viku kemur út hjá Iðunni stór hljómplata með Melchior. Það kom fram i viðtalinu, að viötökurviðhenni ráða úrslitum Smáragötunni daginn eftir. Hróðmar var að spila Bach á gitarinn, Gunnar að hlusta á jass, Hilmar að taka til. Kristin söngkona spurði hann hvort hann væri lasinn. Hann sagöist ekki vera lasinn. Þeir voru rétt búnir að ljúka æfingu með Rúrik Haraldssyni leikara. Það vardagskrá i máli og tónum eftir fáeinum ljóðum Tómasar Guðmundssonar fyrir eina kosningasamkomuna. — Rúrik er skemmtilegur i samstarfi, það er gaman að vinna með honum. Jú, við gæt-> um vel hugsað okkur aö gera meira af þvi að túlka svona verk annarra, þetta er skemmtileg reynsla. Þetta er mikið kosningabrölt? — Það er kominn mikill kosn- ingahugur i hljómsveitina, sagöi Karl Roth Karlsson. Við ætlum öll að neyta atkvæðisrétt- ar okkar. —Við erum ekki búin að ákveða hvort viö kjósum öll það sama, skaut Hilmar inn i. — Við eigum eftir að kjósa um það, botnaði Karl. Talið hlaut að sogast að þjóð- félagsmálum og þvi, hvaða stétt manna meðlimum væri hvað FBAMTI AF VIDl Vnf ImWk j Rœtf við hljómsveitina Melchior, og hljómplötu, sem Iðunn setur á markað efftir viku um framtið hljómsveitarinnar. Þær leiddu i ljós, hvort slik tón- list fengi þrifist hér eða ekki. Undanfariö hefur hljómsveitin þviþotiðfram og aftur að kynna verk sin, oft kauplaust. Það kom til dæmis i ljós, að hún fær að- eins greitt fyrir eina af áður- nefndum fjórum baráttusam- komum. En þar koma einnig til pólitisk áhugamál meðlima. Við mæltum okkur mót á verst við. — Það eru heildsalarnir, var Karl fljótur að árétta. Engin stétt er eins hættuleg þjóðinni. Enda ætla ég að stofna hafta- flokk með Steina, þegar hann kemur heim frá Þýskalandi. Setja höft á innflutninginn. Hilmar kvað aðra hljóm- sveitarmeölimi ætla að stofna kærleiksílokk. Þegar hljómsveitin Melchior var búin að ákveða að banna bjórinn, sérstaklega i Dan- mörku, senda ísland úr Nató og herinn burt og stofna annan haftaflokk gegn innflutningi, tók hún sér hlé frá stjórnmálaaf- skiptum. Einhver setti af stað segulbandsupptöku af plötunni. Fyrsta lagið heitir Ljóð um ljóð og texti Halldórs Gunnarssonar fjallar um misheppnaða tilraun til að yrkja. Melchior segist vera besta fótboltahljómsveit á islandi og skorar á hvaöa hljóm- sveit sem er i þeirri ágætu iþróttagrein. Myndir Gunnar Með sterkt ljós i eyrun — Það var einu sinni, þegar ég var æðislega litill, byrjaði Karl, að ég var að horfa á tvo málara mála húsið heima. Þá allt i einu sagði annar þeirra mér að halda kjafti. Mér brá ofealega og áttaði mig á þvl, að ég hafði talað stanslaust allan timann. Eftir þetta varð ég þög- ull og small svo beint inn i hippabissnesinn i gagnfræða- skóla. Þessi atburður hefur haft afgerandi áhrif á sálarlíf mitt upp frá þvi. Þessi dapurlega frásögn snöggbreytir farvegi viðtalsins, og á meðan Hróðmar upplýsir aðlögin á plötunni nái yfir fjög- urra ára timabil og séu þvi nokkurs konar úrval þess sem Melchior hafi verið að gera und- anfarið, færist armæðusvipur yfir Hilmar: — Einu sinni bar ég út Tim- ann, i einn mánuð. Ég sleppti alltaf úr einu húsi vegna þess að það lá köttur við útidyrnar. Það var kvartaðá hverjum degi, og ég sagðist alltaf hafa gleymt þessu húsi, en hélt svo aútaf áfram að ganga framhjá húsinu með kettinum. Nú hljómar lag um forseta lýðveldisins frá upphafi. — Ég bar lika út Timann á þessum tima og sleppti oft úr einu húsi vegna þess að nafn húsráðanda var svo óhugnan- legt, skýtur Karl inn i. — Hvaða nafn var það? — Eldjárn. Nei, þetta gengur ekki. — Þið voruð að tala um það, að platan væri hálfgildings þverskurður af tónlist ykkar siðustu f jögur árin. Er sú tónlist frábrugðin þvi sem þið eruð að gera nú? Hvernig yrði næsta plata, ef hún yrði til? Hroðmar: Næsta plata yrði ekki meðsömu lögum. — Þvi er ekki að neita, að tónlistin er að breytast. Við reynum að .þróa okkur, fara inn á nýjar brautir. Næsta plata sem verður ekki nema þessi seljist vel, yrði meiri heild, þar sem lög yrðu jafnvel tengd saman. Nú, þvi er ekki aö neita að hljóðfæra- skipanin er að breytast. Sú fyrri var nokkuð þung i vöfum og um- fangsmikil. — Stefnið þið þá að auknu tónleikahaldi? — Þaö er óhætt að segja það, já. Okkur langar að byrja á tvennum sumartónleikum, helst i Norræna húsinu, þar sem auk tónlistarinnar yrði sitthvaö fyr- ir augað, svo sem kvikmyndir i anda laganna og fleira. Hvernig er draumatónleika- aðstaða Melchior? Karl: Okkur hefur gengið vel á baráttusamkomum. Hróðmar: Þaö er best á Isa- firði, i mötuneyti Menntaskól- ans. Karl: Ég vil stóra tónleika meðvelheppnuðu fólki. Það var gott i Borgarnesi, — en Borg- nesingar mættu vera aöeins duglegriað sækja 1. mai hátíða- höld. Hilmar: Besteraðhafa sterkt ljósiaugum svomaöur sjáiekki Myndir: Gunnar V. Andrésson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.