Vísir - 03.06.1978, Side 4
4
Laugardagur 3. júni 1978 VISIR
Heilsuræktin HEBA Auðbrekku 53— Sími 42360
Dömur othugið!
Nýtt 4ra vikna námskeið i
leikfimi hefst 5. júni.
Sturtur, sauna, ljós.
Nudd á staðnum
Innritun yfir helgina
i sima 86178
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 13., 16 og 18. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
m/b Skutli 1S-451, þingl. eign Halidórs Jónssonar fer fram
eftir kröfu Jóns N. Sigurössonar hrl. viö eöa á skipinu I
Reykjavikurhöfn þriöjudag 6. júni 1978 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á Siöumúia 30, þingl. eign Emils Hjartar-
sonar fer fram á eigninni sjálfri miövikudag 7. júni 1978 kl.
14.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 3., 6. og 9. tbl. Lögbirtingablaösins 1978 á
eigninni sjálfri Arnartanga 59, Mosfellshreppi, þingl. eign
Siguröar Haildórssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfs-
sonar, hdl., á eigninni sjálfri miövikudaginn 7. júni 1978 kl.
4.00 e.h.
Sýslumaöurinn I Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101. 103. og 106. tbl. Lögbirtingabiaösins
1977 á eigninni Álfaskciði 50, Hafnarfiröi, þingi. eign Arn-
grims Guöjónssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikis-
sjóös, á eigninni sjálfri þriöjudaginn 6. júni 1978 kl. 4.30
e.h.
Bæjarfógetinn IHafnarfiröi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 13., 6. og 9. tbl. Lögbirtingablaðsins 1978 á
eigninni Arnarhrauni 20, ibúö á 1. hæö t.v. Hafnarfiröi,
þingl. eign Vilborgar Sigurjónsdóttur, fer fram eftir kröfu
Innheimtu Hafnarfjaröar og Innheimtu rikissjóös á eign-
inni sjáifri þriöjudaginn 6. júni 1978 kl. 3.00 e.h.
Bæjarfógetinn iHafnarfiröi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101., 103. og 106. tbl. Lögbirtingablaösins
1977 á eigninni Hraunkambi 4, efri hæö, Hafnarfirði, þingl.
eign Guðbjarts Benediktssonar, fer fram eftir kröfu Inn-
heimtu rikissjóös á eigninni sjálfri þriöjudaginn 6. júni
1978 kl. 2.00 e.h.
Bæjarfógetinn IHafnarfiröi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1101., 103. og 106. tbl. Lögbirtingablaösins
1977 á eigninni Breiövangur 28, Ibúö á 2. hæö B, Hafnar-
firöi, þingl. eign Einars Árnasonar, fer fram eftir kröfu
Innheimtu ríkissjóös og Innheimtu Hafnarfjaröar, á eign-
inni sjálfri þriöjudaginn 6. júni 1978 ki. 1.30 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfiröi
Kojak kvikmyndaður í New York: Hvar endar Telly og hvar byrjar Kojak?
K yntáknið
í gœrkvöldi fengu sjónvarpsóhorfendur forsmekkinn
og á þriðjudag hefur göngu sina einhver vinsœlasti
ntyndaflokkur siðustu óra
Sviðið er ein þessara
óhrjálegu lögreglustöðva
í New York, sem bíó- og
sjónvarpsáhorfendur um
allan heim eru orðnir
þaulkunnugir. Theo
Kojak er reiður. Glæpa-
faraldur geisar T
stórborginni og lögreglu-
þjónn hefur verið myrtur.
Kojak trúir á lögin en
stundum finnst honum
þau ekki ganga nógu
langt.
,/Svarið er þvingun",
hrópar hann og mundar
gildart fingur vonskulega.
„Þvingum hvern
einasta bófa, þjóf, mellu-
dólg, okurlánara,
veðmangara eða
vasaþjóf. Látum hart
mæta hörðu. Ef þeir
spyrja hvað klukkan sé,
þá skulið þið kæra þá
fyrir óspektir á almanna-
færi. Ef þeir svo mikið
sem hnerra í neðanjarð-
arlestinni, þá kýiið þá
kalda. Látið þessi boð
berast. Þannig verður
það þar til löggumorðing-
inn er kominn í gröfina.
Segið að Kojak hafi sagt
það."
Boð hans berast nú um
heimsbyggðina þvera og
endilanga, á ensku,
spænsku, portúgölsku,
þýsku,, japönsku, í Sví-
þjóð og viðar og nú eru
þau komin til Islands.
í Þýskalandi fylgjast rúmlega
18 milljónir manna aö staöaldri
með ævintýrum Kojaks. Þar
gengur hann almennt undir
nafninu „makkalausa ljónið”. 1
Venesú'ela er nafn hans krotað á
veggi innan um pólitisk slagorö.
Hann er inni á gafli á átta
milljónum japanskra heimila,
og leikarinn sem leggur til rödd
Kojaks á japönsku lét krúnu-
raka sig til dýröar hetjunni.
Þriðjungur ensku þjóöarinnar
horfir jafnaöarlega á Kojak og
drottningin hefur ekki misst af
einum þætti. Telly Savalas sem
leikur þennan sköllótta, lifs-
reynda en mannlega lögreglu-
mann er fyrsta alþjóölega stór-
stjarna sjónvarps.
Þetta þykir þeim mun undar-
legra fyrir þær sakir að Kojak
er engan veginn fyrsti sjón-
varpsmyndaflokkurinn sem
hlýtur heimshylli. Fyrir nokkr-
um árum var horft á „Bonanza”
jafnt i Bangkok sem Bolungar-
vík og „Saga Forsyte-ættarinn-
ar” vakti sömu hrifningu i
Leningrad sem á Leifsgötunni.
Aö undanförnu hefur
sannkallað Kojak-æði geisað i
meira en 70 löndum. Aðdáend-
urnir ganga i Telly-bolum,
sjúga Kojak-sleikibrjóstsykur
og steypa sér yfir Savalas hven-
ær sem færi gefst.
En hann lætur sér það vel
lynda. Hann var áður skrif-
stofumaður i opinberri þjónustu
og sneri sér ekki að leiklist fyrr
en hann var farinn að nálgast
fertugt. Vart er hægt að imynda
sér óliklegra kynþokkatákn en
þennan sköllótta, bólugrafna,
nefbrotna mann.
Hvað veldur
vinsældunum?
Savalas telur sjálfur að sér
hafi tekist að skapa persónu
sem virðist raunverulegur
lögreglumaður. Þegar aðrir
leikarar séu i hlutverki lögreglu
séu þeir einfaldlega aö leika
löggu.
— Þegar áhorfendur sjá Telly
eða Kojak eða hvað hann nú
heitir, sjá þeir sjálfa sig , segir
hann.
En venjulegast verða menn
ekki heimsfrægir fyrir það eitt
að vera hversdagslegir.
Skýringin er frekar sú að flestir
ala með sér von um að fá
einhvern timann að sýna hetju-
lund sem felst i reisn, dirfsku og
sterkri réttlætisvitund.