Vísir - 03.06.1978, Qupperneq 16

Vísir - 03.06.1978, Qupperneq 16
16 Laugardagur 3. júni 1978 vism en þá breytti Emsi þeim bara og sagbi: Guöbrandur greiöir allt nema ekki hár sitt. Þetta var ennþá verra vegna þess aö Guö- brandur var alltaf svo ufinn um hárið og þaö leit út fyrir aö hann greiddi sér aldrei.” „Oftast tókst okkur að greiða úr vandræðum sjálfir. Flestir tóku skopinu vel og meira aö j segja gekk þaö svo langt aö ! menn uröu óánægðir ef þeim var sleppt. Ég skal segja þér eina sögu af þvi. Eins og þú veist þá var Jónas frá Hriflu mjög áberandi i pólitikinni á þessum árum. Hann var svo að j segja i hverri einustu reviu okk- ar. Við ákváðum eitt sinn aö nú skyldum viö sleppa honum al- veg i þeirri næstu. Við geröum þaö en þá var strax fariö að minnastá þaövið Jónas aö hann væri nú orðinn svo ómerkilegur aö það væri ekki einu sinni hægt að nota hann i reviu. Siðar bættum við þætti við sem átti að gerast á Laugar- vatni. Komumst viö ekki hjá þvi aö hleypa Jónasi inn. Skömmu seinna mætti ég honum á förn- um vegi. Hann vék sér að mér ogsagði: „Er það rétt Haraldur að ég komi fram i siðasta þætti reviunnar?” Ég sagöi þaö vera rétt. Þá rétti Jónas mér hönd sina og sagði: „Þakka þér kær- lega fyrir Haraídur minn.” Eft- ir þetta vorum við mestu mát- ar.” — Fenguð þið aldrei sam- viskubit þegar þið tókuð menn i gegn? „Þvi er ekki að neita að við skömmuðumst okkar svolitið þegar við sáum þá sem verið var að skopast að með stirnað bros einhvers staðar úti i sal. En ég held að flestir þeir sem voru áberandi i þjóöfélaginu hefðu frekar viljað láta minnast á sig heldur en að verða sleppt. Þá hlautað vera meira en litið aö.” „Við höfðum alltaf afbragðs I leikara með okkur i Fjalakettin- um og siðar þegar við stofn-1 uðum Bláu stjörnuna sem ) starfaði frá þvi Fjalakötturinn | var lagður niður 1949 og til árs- ins 1952. Ég vil sérstaklega nefna vin minn Alfreð heitinn Andrésson. Hann er besti j gamanleikari landsins fyrr og siðar að öilum öðrum ólöst- uðum. Þegar hann birtist á sviðinu þá hlógu allir. Hann þurfti ekki annað en aö sýna sig, það var óþarfi fyrir hann að segja nokkurn hlut. Stundum þegar við lékum saman i ein- hverjum þætti þá kom ég á und- an honum inn á sviöið og reyndi að vera skemmtilegur en ekkert dugði þar til Alfreð birtist. Þá ætlaði allt vitlaust aö veröa.” Fjalakötturinn sýndi ekki að- eins reviur. Arið 1943 var sýnd- ur frumsaminn islenskur gamanleikur eftir þá Emil Thoroddsen, Harald og Indriða Waage sem nefndist Leynimel- ur 13. Efni leiksins var um hús- næöisvandamáliö á þeim árum og fjallaði um hjón sem áttu 13 börn og voru að flytjast úr bragga i húsnæði sem bærinn lét þeim i té. Með aðalhlutverkin i leiknum fóru þau Haraldur Á. Aróra Halldórsdóttir og Alfreð Andrésson. Þótti þessi leikur takast mjög vel. Haraldur lék Svein Jón Jónsson skósmið en Alfreð K.K. Madsen klæðskera- meistara. Skömmu fyrir frum- sýningu fóru að birtast dular-1 fullar auglýsingar i blöðunum. Ein var á þessa leið: Flestar ] saumastofur bæjarins eru lokaðar en 25. þessa mánaðar ] opnar K.K. Madsen klæöskera- meistari Leynimel 13. önnur j hljóðaði svona: Er fluttur að Leynimel 13, Sveinn Jón Jóns- j son skósmiður. Þessar aug- lýsingar urðu til þess að vekja forvitni bæjarbúa sem voru leiddir I allan sannleikann á frumsýningunni. Haraldur A. Sigurðsson leik- ari heldur áfram að spjalla við okkur i næsta Helgarblaði en þar kemur hann viða við og seg J ir okkur m.a. frá skemmtanalif- inu upp úr 1950 og þá sérstak- j lega i Sjálfstæðishúsinu. Einnig frá ferðalögum um landið með j stjórnmálamönnum, sögur úr j Þjóðleikhúsinu og ýmsu öðru sem allt of langt yrði að telja upp. í Leynimel 13. Haraldur og Aróra Halldórsdóttir léku hjón sem voru aö flytja úr bragga í húsnæði sem bærinn útvegaði þeim. úr reviunni Allt i lagi lagsi. Hér eru þær Guðrún Guðmundsdóttir (lengst til vinstri) Herdís Þorvaldsdóttir, Erna Sigurleifsdóttir og Inga Þórðardóttir. Gunnar Bjarnason og Guðrún Guðmundsdóttir á grimuballinu í revíunni Allt í lagi lagsi. Heldra fólk ibænum hélt mikiðgrimuball þetta ár og því þurfti að taka þann þátt í revíuna og gera heldur betur grín að. úr Upplyftingu árið 1946. Hér má sjá Emeliu Jónasdóttur, Harald A., Jón Aðils og Aróru Hall- dórsdóttur. Hér eru þau Emelía Jónasdóttir og Gunnar Bjarnason í Allt i lagi lagsi. DAIHATSU Ármúla 23 — sími 85870 Opið frá kl. 9-6. \ Toyota Crown órg. '72 kr. 1.400 þús. Toyota Crown órg. '70 kr. 1.100 þú$. Toyota Mark 11 órg. '73 kr. 1.650 þús. Cortina '74, 4ra dyra Verð kr. 1.450 þús. Toyota Carina órg. '74 kr. 1.600 þús. Toyota Corollo árg. '74 kr. 1.550 þús. Toyota Corolla árg. '72 kr. 1.100 þús. Maverick árg. '74 kr. 2,3 millj. Toyota Corona árg. '75 kr. 2,4 mill{. VW 1303 árg. '73 kr. l.millj. Toyota Corona árg. '75 station 2,4 millj. Datsun 140 i árg. '74 Kr. 1.400 þús. Vantar nýíega bito á skrá/ BILAVARAHLUTIR Cortina '67-'70 Willys '54-'55 Chevrolet Impala '65 Fiat 128 '72 Renault R-4 '72 Vauxhall Viva '69 Peugeout 204 '70 Rambler American 1967 PASSAMYIVDIR teknar i Sifum tilbúnar sfrax I karna & f fölskyldu LJOSMYNDIR AUSTURSTRÆTI 6 S.12644 Eftirtaldar notaðar Mazda bifreiðar til sölu: 929 sjálfskiptur árg. 77 ekinn 5 þús. km. 818 árg. 76 ekinn 23 þús. km. 818 station árg. 75 ekinn 45 þús. km. BÍLABORG HF. SMIÐSHÖFÐA 23 — SÍMI 81264

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.