Vísir - 29.06.1978, Síða 2
Fimmtudagur 29. júni 1978
VISIR
Hvern viltu sem næsta for-
sætisráðherra?
Olafur Eggertsson, nemi og sjó-
maður: Er ekki gott að sjálf-
stæðismaður sé áfram i forsætis-
ráðherrastólnum? Hvernig væri
aö leyfa Albert að spreyta sig?
Steindór lljartarson, verkstjóri:
Ég gæti vel hugsað mér að Geir
Hallgrimsson yrði áfram for-
sætisráðherra. Hann hefur mesta
revnsluna.
Friðþjófur Helgason, ljósmynd-
ari: Ég held að það sé enginn
nógu góður til þess að gegna
þessu embætti.
Guðfinna Sva varsdóttir, af-
greiðslumaður: Er ekki best að
auglýsa bara eftir honum eins og
borgarstjóranum?
Ilalla Guðmunrisdóttir, kennari:
Eg hugsa að ég vilji Benedikt
Gróndal. hann litur svo vel út á
rrr.n'l bað er sjálfsagt að lofa
honum að spreyta sig
Codex
Regius ó
V •
sytimgu
í Árna-
stofnun,
frœgust
allra
íslenskra
bóka
i Möðruvallabók eru ellefu sögur. Þar eru varðveittar islendingasögurnar t.d.
Laxdæla, Njála og Egilssaga. Handritið er bundið i tréspjöld, sem er upprunalegt
band handritsins. Jón Samsonarson kemur bókinni fyrir í sýningarkassa.
Islendingar ekki nógu
áhugasamir.
„Hingarkoma margir útlend-
ingar á þær sýningar sem
haldnar eru hér yfir sumarmán-
mikinn og ætla mætti. Að visu
koma kennarar með nemenda-
hópa i safnið og þeir sýna þvi
sem þar er að finna mikinn
áhuga.
Eins og fyrr segir erum við
tslendingar enn að fá sendingar
frá Danmörku. „Við fáum skrá
Hátt á sjöunda
hundrað handríta
komið til landsins
,,Við höfum fengið hátt
á sjöunda hundrað hand-
rita hingað til lands frá
Danmörku og enn eru að
berast sendingar. Við fá-
um þær næstum vikulega
og það koma nokkrar
bækur í einu", sagði Jón
Samsonarson handrita-
fræðingur hjá Stofnun
Árna Magnússonar í
spjalli við Vísi, þegar við
litum þar inn.
Nú stendur yfir sýning hand-
rita i stofnuninni og verður hún
opin i allt sumar. Sýningardag-
ar eru þriðjudagar, fimmtudag-
ar og laugardagar og opið er frá
14 til 16. Þar verða til sýnis ýms-
ir mestu dýrgripir islenskra
bókmennta og skreytilistar frá
fyrri öldum, t.d. Konungsbók
Eddukvæða, Flateyjarbók og
merkasta handrit Islendinga-
sagna, Möðruvallabók.
Flateyjarbók er einstök að því leyti að hún segir meira
af uppruna sínum en önnur miðaldahandrit. Jón
Samsonarson les formála Flateyjarbókar, þar sem
stendur að Jón prestur Þórðarson og Magnús prestur
Þórhallsson hafi ritað bókina, en sá síðarnefndi sá um
skreytingar, sem eru mjög fallega gerðar.
uðina. Sérstaklega eru þaö
Þjóðverjar sem eru áhugasam-
ir”, sagði Jón. Hann sagði að
Islendingar sýndu sýningunum
ekki nægilegan áhuga, ekki eins
yfir þau handrit sem koma
hingað, en samt er það alltaf
jafnspennandi að opna pakk-
ana. Handritin koma hingaö
þegar endanlega er búið að
Hópur Dana voru i stofnun Árna Magnússonar þegar við litum þar inn. Hér er einn
starfsmaður stofnunarinnar að leiðbeina þeim og fræða um handritin.
Visismyndir Gunnar V. Andrésson
ganga frá þeim i Kaupmanna-
höfn, en þar er gert við þau og
þau ljósmynduð áður en þau eru
send úr landi. 011 fara handritin
sjóleiðina til Islands”, sagði
Jón.
Frægust allra íslenskra
bóka.
Þeir sem leggja leið sýna á
sýninguna i Stofnun Arna
Magnússonar sjá þar frægustu
bók allra islenskra bóka, Codex
Regius, eða Konungsbók.
Brynjólfur biskup Sveinsson gaf
bókinni nafnið Edda og kenndi
við Sæmund fróða. Kvæðin i
bókinni kannast flestir við, en
það eru Eddukvæðin, sem fjalla
um heiðin goð og hetjur i forn-
eskju. Brynjólfi biskupi var vel
ljóst hvilikur dýrgripur skinn-
bókin var og lét hann skrifa
hana upp oftar en einu sinni.
Hann sendi bókina Friðriki
þriðja Danakonungi, ásamt
fleiri merkum skinnbókum árið
1662. Hún var siðan varðveitt i
Konungsbókhlöðunni i Kaup-
mannahöfn og hlaut þar nafn
sitt, Konungsbók.
A sýningunni er einnig
stærsta skinnbókin Flateyjar-
bók. Hún er i svo stóru broti að
aðeins tvö blöð fengust úr
hverju kálfskinni. Bókin er 202
siöur og fagurlega skrifuð og
skreytt. Þar er einnig Möðru-
vallabók, en hún hefur m.a. að
geyma Islendingasögur.
Fremst er Njálssaga, en i bók-
inni eru einnig Laxdælasaga,
Fóstbræðrasaga, Viga-Glúms-
saga og Egilssaga, svo dæmi
séu nefnd.
Bréfabók Brynjólfs Sveins-
sonar er einnig að finna á sýn-
ingunni. Þær voru upphaflega 21
bindi, en af þeim hafa 14 bækur
geymst i safni Arna Magnús-
sonar. Þriðjungur hefur glatast.
Sú bók sem sýnd er á sýningunni
nú er tólfta bindið, en þar er að
finna eiðstaf Ragnheiðar
Brynjólfsdóttur.
Geymd í
kjallaranum.
Eftir hvern sýningardag eru
handritin tekin úr sýningar-
kössunum og sett i handrita-
geymsluna i kjallaranum. Þar
eru þau geymd þar til næsta
sýningardag i myrkri og i
ákveðnu raka og hitastigi.
Starfsmenn Arnastofnunar
þurfa þvi að fara mörg spor með
handritin sem á sýningunni eru
og reyndar að setja hana upp
fyrir hvern sýningardag.
Sýn ingarsa1uri nn er
skemmtilega skreyttur ef svo
má að orði komast, með sýnis-
hornum af rithönd Arna
Magnússonar, sem stækkuð hef-
ur verið upp á sérstaklega gerð-
ar plötur. Einnig eru myndir af
skreytingum úr handritum á
veggjum.
—KP.