Vísir - 14.07.1978, Blaðsíða 4
Eitt af verkum Schmidt á sýningunni i GalleríSuöurgötu 7
Gallerí Suðurgata 7
Vatnsfitamyndir
eftir þýskan
listamann
Þýski listamaöurinn Peter
Schmidt opnar sýningu á verk-
um sinum I Galleriu Suðurgötu 7
á laugardag kl. 16.
Schmidt er fæddur i Berlin, en
fluttist fyrir striö til Bretlands,
þar sem hann hefur starfaö siö-
an. Schmidt hefur fengist viö
fleira en myndlist, t.d. kvik-
myndun, tónlist, grafik og bóka-
gerð. Siöastliöin tvö ár hefur
hann eingöngu helgaö sig vatns-
litatækni, en árangur þess
starfs má sjá á sýningunni.
Meöan á sýningunni stendur
verður leikin af segulbandi tvö
verk eftir tónlistarmanninn
Brian Eno. Hann hefur m.a.
starfaö I popphljómsveitum og
var einn stofnenda „Roxy
Music”. Hann hefur starfaö t.d.
með David Bowie, Robert Fripp
og John Cale.
Sýningin veröur opin daglega
til 30. þessa mánaöar frá kl. 16
til 22 virka daga, en frá 14 til 22
um helgar.
—KP.
Myndlistarsýningar
Kjarvalsstaöir: Nýlistarsýning
Listasafniö: Amerisk grafik-
sýning
Suöurgata 7: Sýning Peter
Schmidt. Opiö til kl. 22
Asgrimssafn: Sýning á verkum
Ásgrims Jónssonar. Opiö alla
daga nema laugardaga frá kl.
13.30- 16.00
Hnitbjörg: Sýning á verkum
Einars Jónssonar. Opiö frá
13.30- 16.00. Ekki á mánudögum.
Höggmyndasafn Asmundar
Sveinssonar opiö laugardag kl.
14-16.
Söfn
Sædýrasafniö opiö 10-19
Arbæjarsafn opiö kl. 13-18
Arnagaröur: Handritasýning
opin laugardag kl. 11-16.
Náttúrugripasafniö: Opið
laugardag og sunnudag kl.
13.30-16.00
Leikhús
Nemendaleikhúsiö Lindarbæ
sunnudag kl. 20.30.
Listasafn
íslands:
FRABÆR
FARANDSÝNING
Afbragössýning á grafikverk-
um bandarisku nstakonunnar
Louise Nevelson hefst á morg-
un í Listasafni lslands kl. 14, en
ráðgert er aö sýningin standi
yfir i tvær vikur.
Nevelson fæddist i Kiev i
Rússlandi um aldamótin en
fluttist fimm ára gömul til
Bandarikjanna og hefur búið
þar siðan. Hún hefur tekiö þátt i
samsýningum og haldið einka-
sýningar viða um heim. Var hún
m.a. fulltrúi Bandarikjanna á
Biennale Internazionale D’Arte
i Feneyjum árið 1962 og stórar
yfirlitssýningar á verkum henn-
ar hafa verið haldnar i Whitney
Museum of American Art i New
York og Museum of Fine Arts i
Houston i Texas. Tvær stórar
farandssýningar á verkum
hennar fóru á árunum 1973-1974
um Evrópu og Bandarikin.
Þessi sýning á verkum Nevel-
son, sem nú er i Listasafninu er
einnig farandsýning og kemur
hún hingaö til lands frá Lissa-
bon og er Island siðasti við-
komustaðurinn áður en hún fer
til Bandarikjanna. Menningar-
stofnun Bandarikjanna hefur
annast fyrirgreiðslu sem gerði
það kleift að sýningin er hér nú.
Nevelson hefur lengst af lagt
stund á höggmyndalist, en graf-
ikin hefur lengi átt itök i henni. I
sýningarskrá segir: ,,A löngum
listferli hefur hún að visu ekki
lagt stund á grafik nema öðru
hverju. En þó aö grafisk verk
hennar séu litil að vöxtum, miö-
Ferðalög um helgina
Ferðafélag íslands:
Gengið ó
Hrafntinnusker
og íshellar skoðaðir
Þrjór helgarferðir
Feröafélag islands stendur fyrir þremur
heigarferöum um þessa helgi og veröur lagt
af staö I þær allar i kvöld klukkan 20.00 frá
Umferðarmiðstöðinni. Fariö veröur i Þórs-
mörk og gist þar i húsi Feröafélagsins, Far-
arstjórar veröa þeir Rúnar Már Jóhannsson
og Jón Snæbjörnsson.
önnur feröin verður I Landmannalaugar
en þar á Feröafélagið einnig hús. Fariö verö-
ur i gönguferöir og meöal annars gengiö upp
á Hrafntinnusker og skoöaöir Ishellar. Far-
arstjórar I þeirri ferö verða þeir Kristinn
Zophaniasson og Magnús Guömundsson.
Þá verður einnig farin ferö i Kerlingarf jöll
og Hveradali i kvöld og er fararstjóri i þeirri
ferö Arni Björnsson.
A laugardginn veröur svo farin ferö meö
Fagranesinu frá Isafiröi til þess aö sækja
fólkiö sem fór á Hornstrandir fyrir viku.Far-
ið verður klukkan 13.00 frá Isafiröi og getur
fólk sem statt er á Vestfjöröum eöa Isafiröi
farið I dagssiglingu fyrir Horn og noröur
Furufjörö, sem mun að sögn kunnugra veröa
ógleymanleg sigling.
Þá veröur lagt af stað i sumarleyfisferöir
Ferðafélagsins á laugardagsmorguninn
klukkan 8.00. Fariö verður I Kverkfjöll,
Hvannalindir og suöur Sprengisand og tekur
feröin 9 daga. Fararstjóri I þessari ferö er
Torfi Agústsson.
Loks er svo á vegum Feröafélagsins fariö í
rólega gönguferö á sunnudaginn og verður-
lagt af stað klukkan 13.00. Gengiö veröur á
Mosfellsheiði og fariö i Borgarhóla. Farar-
stjóri er Hjálmar Guðmundsson.
—SE.
Ferðir Útivistar:
w
Utilegumanna-
byggðir skoðaðar
— helgarferðir í
Þórsmðrk og Kjöl
Þessa helgi veröa farnar tvær helgarferöir
og ein dagsferö á sunnudag, en þá veröur far-
iö i Þjófabálkahella og Þrihnjúka, sem
reyndar sjást vel frá Reykjavik”, sagöi
Einar Guöjohnsen hjá Ctivist i samtali viö
Visi.
A föstudagskvöld verður lagt af staö I
Þórsmörk. Einnig veröur fariö á Kjöl og
dvalið I tjöldum á Hveravöllum. Komiö
verður heim úr báöum þessum feröum á
sunnudag.
Lagt veröur af staö I eftirmiðdagsgöngu á
sunnudag kl. 13 og Þjófablkahellar skoöaöir.
Þetta er létt og skemmileg ganga aö sögn
Einars. Skoöaöar veröa gamlar útilegu-
mannabyggöir. 1 hellum sjást greinileg
merki um að útilegumenn hafa hafst þarna
við. m.a. eru þarna hlaönir bálkar.
„Viö höfum ekki haft nema eina dagsferö
um helgar i júlímánuði, vegna þess aö þá eru
svo margir í sumarleyfum og fara þá i lengri
feröir. Feröum veröur svo aftur fjölgaö I
ágúst”, sagöi Einar.
Otivist hefur skipulagt sex daga ferö aust-
ur 1 Hornafjörö en lagt verður af staö á
þriöjudag. Gengiö veröur um Hoffellsdal og
svæöiö fyrir vestan jökul. „Þarna er mjög
mikið af fallegum steinum og viö höfum nefnt
þessa ferð steinaleitarferö, en auövitaö er
þarna margt annaö sem viö skoöum enda
náttúrufegurö mikil”, sagöi Einar Guöjohn-
sen.
—KP.
Norrœna húsið:
íslensk þjóðlög
kynnt
Fremur dauft hefur veriö yfir
tónleikahaldi i höfuöborginni upp
á siökastiö og eru án efa margir,
sem hafa saknaö tónlistarinnar.
Númun hins vegar veröa ráöin
bók á þessu þar sem Félag is-
lenskra einsöngvara veröur meö
tónleika á föstudagskvöldum i
Norræna húsinu i juli og ágúst og
eru þeir fyrstu i kvöld klukkan
21.00.