Vísir - 14.07.1978, Blaðsíða 12

Vísir - 14.07.1978, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 14. jlíll 1978 VISIR LAUSAR STÖÐUR HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR auglýsir lausar til umsóknar eftirtaidar stöður: DEILDARLJÓSMÓÐUR við mæðradeild. Æskilegt, að umsækjandi hafi einnig hjúkrunarmenntun. HJUKRUNARFRÆÐINGA við barnadeild, skóla og kynfræðsludeild. Umsóknum sé skilað til hjúkrunarfor- stjðra, sem jafnframt gefur nánari upp- lýsingar, fyrir 1. ágúst n.k. HEILSU VE RND ARSTÖÐ REYKJAVÍKUR TILKYNNING Vegna sumarleyfa verður apótekið lokað frá 15. júlí og opnað aftur til almennrar afgreiðslu mánudaginn 14. ágúst. LAUS STAÐA Staða deildarstjóra i viðskiptaráðuneyt- inu er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 10. ágúst n.k. VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ, 11. JULÍ 1978 blaðburöarfólk óskast! BERGSTAÐASTRÆTI Hallveigar- stigur Ingólfstræti. LJÓSHEIMAR Gnoðavogur. SÓLHEIMAR Goðheimar K-V-5 Austurgerði Skjóibraut Urðarbraut VÍSIR í AFLEYSINGAR HAGAR Fornhagi, Lynghagi Tómasarhagi. MIKLABRAUT Miklabraut, Miklatorg SEL II Y-T Sel Afgreiðslan: Stakkholti 2-4Sími 86611 UPPSKERAN OG ÞAKKLÆTIÐ A þessum árstlma vaxtar og uppskeru kemur manni gjarnan i hug þetta erindi Ur sálmi Brorsons I þýöingu sr. Helga Hálfdánarsonar: Þótt kóngar fylgdust allir aö meö auö og veldi háu. Þeir megna ei hiö minnsta blaö aö mynda á blómi smáu. Hérerannar kraftur aö verki, afl, sem maöurinn hefur ekkert yfir aö segja og getur engu ráöiö um, hvort gefur nokkurn ávöxt eöa uppskeru. TrUar- brögöin — kristin trú — segja okkur aö sá, sem þessu afli stjórnar sé guö — höfundur til- verunnar —faöir mannanna. Og Ur þvi aö þetta er nú svo, þá er sérhver góöur ræktunarmaöur, hann er ekki aöeins umhyggju- samur um jörö sina, forsjáll og vakandi um þaö, sem moldin þarfnast til þessaö hún geti gef- iö ávöxt, heldur ber hann lotn- ingu fyrir honum sem ávöxtinn gefur — og lætur — eins og viö stundum syngjum — blessaöar ástgjafir slnar „drjUpa sem dögg til vor niöur”. Gleöin yfir ávöxtunum af erf- iöi sinu, uppskerugleöin, hUn viröist ekki siöur vera undir þvi komin aö kunna aö bera fram þökk hjartans til gjafarans allra góöra hluta og þiggja gjafir hans meö lotningu, heldur en hinu aö hlúa svo aö gróöri jarö- ar aö hún beri rikulega ávexti. Viö þekkjum eflaust ýmis dæmi um þaö, þar sem lofgeröina og lotninguna skortir, þar sem þakklætiö fyrirávöxtinn vantar. Þá veröur vinnan ekki náöarmeöal — engin gleöirik iöja — heldur leiöinlegt brauö- strit. Eftirminnileg — aö maöur ekki segi átakanleg — mynd er dregin upp af þessu hjá fólki á Hrúthólaheimilinu i sögunni hans Hjalta litla. Þaö er ömurlegt aö finna andrúmsloftiö, sem rfkir á þessu efnaheimili mitt I grósku (Séra Gísli Brynjólfs- son skrifar " y og glaða-sólskini miösumarsins. Þar vantar alla gleöi yfir góöum feng. Þar rikir engin ánægja yfir uppskerunni, sem þó er hin rikulegasta. Þarna er loftiö þrungiö af óánægju og lif sleiöa, þvi aöi hjörtunum býr engin lof- gjörð til hans, sem „ávaxtar iöninnarsveita”. Þar eru engar þakkir til hans, sem „öllum lif og afl og brauö — óveröskuldaö gaf”. — Þetta dæmi er aö visu tekið úr skáldsögu. Þvi miður er það samt svo, aö þessi mynd er ekki aöeins til i huga skáldsins, hún er lika til I llfinu sjálfu. Okkur hættir svo til aö lita á vinnuna sem illa nauðsyn, til aö framfleyta lifinu i staö þess aö hún er samstarf okkar viö lifs- inshöfund. Afrakstur hennar er gjöf hans til mannanna, sem þvi aðeins verður okkur til blessun- ar og bóta, að viö tökum viö henni með þakklæti i huga og lofgerö i hjarta. Við tslendingar búum i landi, sem aö visu býr yfir miklum auði og getur veriö gjöfult viö börnin si'n. Islandsbörn hafa samt löngum þurft aö hafa mik- iö fyrir þvi aö afla þess auös og brauös, sem landiö býr yfir. A.m.k. var þaö svo áöur en þjóöin fékk umráö yfir afli vélanna og tók sér i hönd töfra- sprota tækninnar. Og enn er þaö svo, þráttfyrir tækniog vélaafl aö þaö er æöi misjafnt eftir ár- feröi og ööru sliku hvaö þjóöin fær i aöra hönd og hefur upp úr vinnu sinni. Viö þurfum ekki annað en taka og bera saman tvö ólik ár tilþessað finna þenn- an mikla mun. Hretsömu hausti fylgdi mislyndurvetur. Svo kom óvenjulega hart vor. Siöan feng- um viö úrfellissamt sumar, sem geröi rýran margrá feng. En svo hófst annað ár, hinu fyrra næsta ólikt. Bliða og mildi siösumarsins varaði þá á vetur fram, veturinn var hagstæöur meö veður væg og vorið og sumarið meö margar bjartar og bliðar unaösstundir. Það er þvi mikill munir þegar horft er til baka og þau eru borin saman þessi tvö andstæðu ár. En hefur þá hin hagkvæma tiö hins góöa árs, hefur hún vakiö okkur bakkarkennd i brjósti, hefur nún, mörg kvöld.kalla fram á varir okkar þessa lof- gerö eða eitthvaö henni lika: Guö ég lofa þig og þakka þér fyrir þennan dag? Hvernig á sú þökk og lofgerö að hljóða? Til aö skýra þaö er oft sögö þessi alkunna llking. Fjólan teygaöi ljósið og ylinn frá sólinnioghúnfylltistaödáun og lotningu fyrir þessum mikla ljós- og lifgjafa og ávarpaöi hanaog sagöi: „Hvernig get ég lofaö þig og þakkaö þér sólin blessuö”. Þá svaraöi sólin: „Með þögulum hreinleik þin- um”. Biöjum þess.aöoss auönist aö lofa Guö og þakka honum allar gjafir hans með þögulum hrein- leika. Undirfellskirkja A þessum dögum eru margir á ferö um byggöir iandsins og óbyggöir. Og eflaust eru þeir ófáir, sem nú leggja leiö sina um hinn sumarfagra og frjó- sama Vatnsdal i Austur-Húna- vatnssýslu. 1 miöjum dal er hiö gamia prestssetur Undir- fell. Myndin sem fylgir kirkjusið- unni i dag, er af kirkjunni á Undirfelli — fallegu húsi, sem sómir sér vel I sinu fagra um- hverfi. Undirfellskirkja var byggö á árunum 1916-18, eftir aö kirkja sú, sem þar var fyrir, hafði brunniö til kaldra kola i ofsa- veöri á annan dag jóla 1913. — Myndina tók Jóhanna Björns- dóttir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.