Vísir - 14.07.1978, Side 10
10
VÍSIR
Otgefandi: Reykjaprent h/f
' Framkvæmdastjóri: Davið Gu&mundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
úlafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta:
Guðmundur Pétursson. Umsjón með helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa-
menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson,
Guðjón Arngrímsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Páls-
dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi
Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens
Alexandersson. Otlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla S.
Simar 86611 og 82260
Afgreiðsla: Stakkholti 2—4 simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur
Askriftargjald er kr. 2000
á mánuöi innanlands.
Verö i lausasölu kr. 100
eintakiö.
Prentun Blaöaprent h/f.
Lítil von um
betri efnahagstíð
Alþýðubandalagið drap eins og vænta mátti í fæðingu
tilraun Benedikts Gröndals formanns Alþýðuflokksins
til myndunar þríflokkastjórnar með Sjálfstæðisflokkn-
um. Hugmyndin um nýsköpunarstjórn er þar með úr
sögunni að sinni án þess að til viðræðna haf i komið milli
f lokkanna.
Þetta eru fyrstu merki þess að harka sé hlaupin í hin
pólitísku átök eftir kosningar. Þó að verkalýðsforysta
Alþýðubandalagsins hafi haftáhuga á víðtækri pólitískri
samvinnu af þessu tagi eru ástæður þingflokksins fyrir
svo afdráttarlausri synjun um stjórnarmyndunarvið-
ræður nokkuð augljósar.
í fyrsta lagi er Alþýðubandalagið ekki reiðubúið til
þess að taka þátt i ríkisstjórn sem með kjarasáttmála
eða þjóðarsátt ákveður launaþróun næstu ára. Bæði
Sjálfstæðisf lokkurinn og Alþýðuf lokkurinn hafa á hinn
bóginn lagt áherslu á að aðhaldsaðgerðir i kjaramálum
séu nauðsynlegar eins og á öðrum sviðum. Þessar hug-
myndir ganga þvert á þá pólitík, sem Alþýðubandalagið
hefur rekið að undanförnu.
í annan stað óttast Alþýðubandalagið að ganga inn í
ríkisstjórn með f lokkum sem einir sér hafa meirihluta á
þinginu. Áhrif Alþýðubandalagsins í slíku samstarfi
yrðu ekki eins mikil og í vinstri stjórn. Það hefur auk
þess gert kröfu til þess að hafa á hendi forystu um
myndun stjórnar með Alþýðuflokki og Framsóknar-
flokki. Lúðvik sættir sig einfaldlega ekki við Benedikt
sem forsætisráðherra.
Launapólitík Alþýðubandalagsins sem m.a. kemur
fram i gerræðisfullum útflutningshöftum verkalýðs-
félaga sem það ræður yfir er ekki vísbending um, að
raunhæfur kjarasáttmáli geti orðið að veruleika í ríkis-
stjórn sem þaðá aðild að. Alþýðubandalagið gæti knésett
Alþýðuflokkinn í vinstri stjórn að þvi er þetta atriði
varðar en ekki bæði Alþýðuf lokkinn og Sjálfstæðisf lokk-
inn i nýsköpunarstjórn.
Ef árangur á að nást í viðureigninni við verðbólguna
þarf mjög víðtæka uppstokkun í efnahags- og peninga-
málum. Dr. Þráinn Eggertsson hagfræðingur hefur
haldið því fram í Visisgrein að kjarasáttmáli um frið á
vinnumarkaði og þjóðarsátt um launamál sé óhugsandi
við óbreyttar aðstæður.
Dr. Þráinn segir að skipulögð launastefna sé vonlaus
meðan tekjur fólks í sjávarútvegi dansa trylltan dans
eftir verðlagi í Bandaríkjunum og aflabrögðum á Is-
landsmiðum og peningamagn og útlán láta ekki að stjórn
en ráðistaf gangi utanríkisviðskipta. Þessar ábendingar
eru kórréttar.
s Vitaskuld er út i hött að semja við launamenn um 5 til
10% árshækkun peningalauna en keyra um leið peninga-
magn í umferð áfram með 50% hraða á ári. Við blasir
því að gera kerfisbreytingu að því er varðar stjórn og
skipulag banka- og peningamála. Meginatriði er að
halda óbreyttri vaxtastefnu, beita jöfnunarsjóðum til
sveif lujöfnunar vegna verðbreytinga erlendis en ekki til
þess að prenta seðla eins og gert hefur verið. Rétt
gengisskráning er einnig mikilvægt atriði og hún þarf að
taka mið af hagsmunum iðnaðar ekki síður en sjávarút-
vegs. Núllrekstrarviðmiðunin í sjávarútvegi stenst ekki
lengur.
Benedikt Gröndal eraugljóslega kominn í erfiða stöðu
bæði að því er varðar valdataf lið sjálft og úrlausn efna-
hagsmálanna. Þaðerof mikil málefnaleg fórn fyrir Al-
þýðuflokkinn að ganga til samstarfs við Alþýðubanda-
lagiðog Framsóknarf lokkinn eins og sakir standa þó að
það verði reynt. Enn hefur því ekkert gerst í stjórnar-
myndunarathugunum, sem gefur fólkinu í landinu von
um betri efnahagstíð.
Föstudagur 14. iúli ms'VXSXÍL
Hjónin Stella og Björn (hægra megin á mynd) ásamt ættingjum slnum á heimili Andrésar Valberg (sem
er lengst til hægri á myndinni) ásamt ættingjum.
Vlsis-mynd Gunnar.
Stellu Einarsson tókst að hafa uppi ó œttingjum
$
„Hvert heimboðið
ó fœtur ððru"
„Ég er afskaplega
ánægð með dvöl okkar hér
og þá sérstaklega að hafa
komist i samband við ætt-
ingja mína hér á landi",
sagði Estella Þorbjörg
Einarsson frá Árborg í
Kanada, en hún hefur ver-
ið í heimsókn hér á landi
siðustu vikurnar ásamt
manni sínum Birni Einars-
syni.
Fyrir nokkru átti Vísir
viðtal við Stellu og Björn.
Þar kom m.a. fram að
Stella hafði ekki haft upp á
ættingjum sínum hér á
landi, Eftir að viðtalið
birtist höfðu ættingjar
Stellu, bæði í móður og föð-
urætt samband við blaðið
sem kom þeim í samband
við þau hjónin. Þau hafa
nú ferðast víðsvegar um
landið og komu m.a. í
Skagafjörð og í Vatnsdal,
en þaðan er Stella ættuð.
Einnig heimsóttu þau
Hornaf jörð, en þar á Björn
ættingja.
„Við höfum fengið hvert
heimboðið á fætur öðru f rá
ættingjum okkar og
móttökurnar hafa verið
stórkostlegar", sagði
Stella, en þau hjónin eru nú
að leggja af stað vestur um
haf.
—KP.
Þegar úrslit þingkosninganna
uröu kunn stóö Framsóknar-
flokkurinn eftir sem minnsti
flokkur þjóöarinnar meö tólf
þingmenn, og haföi ekki veriö svo
litDfjörlegur á þingi I manna
minnum. Þessi kosningaúrslit
hljóta aö vera hverjum Fram-
sóknarmanni næsta þungbær, og
þá ekki slzt forustu flokksins, sem
hefur eflaust unniö stjórnmála-
störfin eftir beztu samvizku. En
góö meining enga gerir stoö,
stendur þar, enda viröist svo
komiö fyrir flokknum, aö hann
eigi varla annaö fyrir sér en
dragast enn meira saman hvaö
fylgi snertir I næstu kosningum.
Má finna þeirri kenningu nokkurn
stuðning I þeim viöhorfum á
vinstri væng islenzkra stjórn-
mála, aö einna helzt er taliö aö
þvl fyrr sem kosningar veröi þvi
betra. En á þeim væng eru ein-
mitt menn, sem telja aö Fram-
sóknarflokkurinn kunni aö leggja
þeim tU enn fleiri atkvæöi I næstu
kosningum, nú þegar Ijóst er aö
hann er byrjaöur aö tapa veru-
lega.
Reikul afstaða til Nató
Þrátt fyrir þetta sjónarmið má
telja fullvist, aö Framsóknar-
flokkurinn hafi ekki siður tapaö
atkvæöum til Sjálfstæöisflokksins
en til Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks. Þaö er gömul saga
aö þegar Framsókn vinnur meö
Sjálfstæöismönnum I rikisstjórn
tapar hún fylgi til þeirra. Aftur á
móti helzt betur utan um fylgi
hennar þegar hún er I vinstri
stjórnum. Annaö hefur komið til á
siöariárum, sem hefur auöveldaö
þennan samgang atkvæöa Sjálf-
stæðismanna og Framsóknar, en
þaö er afstaöa til varnarliðsins og
Nato. Reikul stefna Framsóknar I
þessum efnum, sem hefur mótast
meira af fylgisótta en sannfær-
ingu, hefur oröiö flokknum dýr á
sama tlma og Alþýöuflokkurinn
hefur hagnazt á þvl aö lýsa yfir
ákveöinni afstööu meö Nato og
veru varnarliðs hér á landi aö svo
stöddu.
Landbúnaðarmálin eru
Framsókn til litils vegs-
auka
Þá hefur flumbrugangur I land-
búnaöarmálum oröiö Fram-
sóknarmönnum til litils vegsauka
þau sjö ár samfelld, sem hann
hefur fariö meö stjórn þeirra
mála. Voru þó landbúnaöarmálin
ein af „helgum málum” flokks-
ins, sem engir áttu aö kunna meö
aö fara nema Framsóknarmenn.
Viöburöarleysiö er jafnvel svo
mikiö I málefnum landbúnaöar,
aö viö liggur aö forráöamenn
Framsóknar játist undir stefnu-
miö Alþýöuflokksins um endur-
skipulagningu, og ræöur þar
mestu, aö útf lutningsbætur vegna
landbúnaöarframleiöslu þykja
slæmur skattur.
Alþýðubandalagið tekur
samvinnuhreyfinguna
Samvinnuhreyfingin er enn
sterkasta vigi Framsóknar-
manna. Enginn veit hvaö þaö
veröur lengi eftir aö flokkurinn
hefúr gerzt áhrifalitill á þingi.
Samvinnuhreyfingin þarf öfluga
pólitiska stoö til framdráttar sér,
og mun nú I auknum mæli leita
bandamanna annars staöar.
Þetta er svo augljóst mál, aö þeir
Alþýöubandalagsmenn eru þegar
farnir aö gera ráöstafanir til aö
undirbúa jaröveginn fyrir aukiö
samvinnustarf, sem væntanlega
hefst á þeirra vegum I deildum og
deildakosningum kaupfélaga, en
nær til toppsins aö lokum meö
fyrirsjáanlegum afleiðingum.
Þegar þannig veröur komiö á aö-
eins fyrn- Franisóknarflokknum
að liggja að veröa fámennur
fiokkur minnkandi bændastettar,
oglifa mest i ljdsi liðins tlma, eins
HVAÐ
NÚ,
og gömul kona i ruggustól sem
fæst viö aö prjóna Uleppa sér til
dægrastyttingar.
Neðanmóls
.... ^ v
Indriði G. Þorsteinsson
skrifar:
Eigi að halda áfram
þeirri venju að tala
þannig að hver maður
fái sitt lítið af hverju við
sitt hæfi þýðir það að
sextíu ára pólitískt starf
verður brátt gleymsk-
unni að bráð meðan
fimm eða sex þingmenn
tafsa um almenn atriði,
sem finna má í stefnu-
skrám annarra flokka.